Tíminn - 09.02.1990, Page 14
14 Tíminn
Föstudagur 9. febrúar 1990
i nnr
Sunnlendingar
Jón Helgason
Unnur
Stefánsdóttir
Árlegur stjórnmálafundur og viðtalstími verður haldinn að Brautarholti,
Skeiðahreppi, mánudaginn 12. febrúar kl. 21.00.
I Þjórsárveri, Villingaholtshreppi, miðvikudaginn 14. febrúar kl. 21.00.
Landverðir
Náttúruverndarráö auglýsir örfáar stööur land-
varða á friölýstum svæðum, sumarið 1990, lausar
til umsóknar. Námskeið í náttúruvernd - land-
varðanámskeið, veitir að öðru jöfnu forgang til
landvörslustarfa á vegum Náttúruverndarráðs.
Skriflegar umsóknir skulu berast Náttúruverndar-
ráði, Hverfisgötu 26, 101 Reykjavík, fyrir 20.
febrúar 1990.
Öskudagur - Grímuböll
30 gerðir af grimubúningum. T.d. Batman,
Superman, Zorro, Ninja, Sjóræningja, Hróa,
Trúða, Hjúkrunar, Strápils, Fanga, Indíána,
Kúreka, Kokka, Sveppa, Músa.
Hattar: Kúlu, Töfra, Pípu, Bast, Mexikana,
Indíána. Einnig: Fjaðrir, bogar, byssur, sverð,
gleraugu, andlítslitir o.fl. o.fl.
Pantið tímanlega fyrir öskudaginn.
Póstsendum.
Leikfangahúsið, Skólavörðustíg 8.
S. 14806.
VERKAMANNAFÉLAGIÐ
DAGSBRÚN
Félagsfundur
verður haldinn í Bíóborg (áður Austurbæjarbíó)
mánudaginn 12. febrúar kl. 16.00.
Fundarefni: Afgreiðsla á kjarasamningi.
Skorað er á félagsmenn að fjölmenna og koma
beint úr vinnu.
Félagsmenn eru beðnir að sýna félagsskírteini við
innganginn.
Stjórn Dagsbrúnar.
Útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa
Ólafs Inga Þórðarsonar
mjólkurfræöings
Borgarbraut 45, Borgarnesi
verður gerð frá Borgarneskirkju laugardaginn 10. febrúar kl. 14.
Bílferð verður frá BSÍ kl. 11. Þeim sem vildu minnast hans er bent á
Krabbameinsfélagið eða önnur líknarfélög.
Guðbjörg Ásmundsdóttir
HólmfríðurSólveigÓlafsdóttir Guðjón Ólafsson
Jóna Sólveig Ólafsdóttir
Þórður Ólafsson
Jón Róbert Rósant
Sigurgeir Sigmundsson
Gréta María Dagbjartsdóttir
Ásmundur Ólafsson
Brynja Ólafsdóttir
EinarÓlafsson
Ólafur Ingi Ólafsson
Ragnheiður Ólafsdóttir
Guðmundur Ólafsson
barnabörn og
Ósk Ólafsdóttir
Þorleifur Ingólfsson
Svanhildur Skúladóttir
Ingibjörg Sólveig
Bragadóttir
Gyrðir Elíasson
Rannveig Sigurjónsdóttir
barnabarnabörn.
IIIIIIIHIIIIII MINNING IIIIIIIIIIIIIIIM .Illlllllllll
Eyjólfur Guðnason
Fæddur 4. janúar 1931
Dáinn 29. janúar 1990
Nú er hann Eyjólfur í Bryðjuholti
dáinn.
Mig langar að minnast hans með
fáeinum orðum.
Ég kom í Bryðjuholt í janúar 1984
til verknámsdvalar frá Bænda-
skólanum á Hvanneyri. Ég dvaldist
þar í þrjá mánuði og var það einn
besti skóli sem ég hef verið í á
lífsleiðinni. Það var ekki bara það að
ég lærði nærri allt sem ég kann
varðandi búskap heldur var mér það
einnig dýrmætur skóli að kynnast
Eyjólfi og Helgu. Það var ákaflega
gaman að vera hjá þeim og gott að
II VIÐSKIPTALÍFIÐ 1111
SAM-
FLUG
í lok janúar 1990 keypti Air
France, franska ríkisflugfélagið, Un-
ion dc Transport Aeriens (UTA),
stærsta franska flugfélagið í eigu
einkaaðila, á 664 milljónir dollara.
Air France og UTA hafa hvort um
sig átt um þriðjung í Air Inter sem
1989 flaug með 15,7 milljónir far-
þega á flugleiðum innan Frakklands.
Air France er nú fjórða stærsta
flugfélag heims, á eftir Aeroflot og
tveimur bandarískum flugfélögum,
American og United.
Þessi kaup Air France á UTA eru
hin síðustu af mörgum hliðstæðum.
í desember 1989 tilkynntu British
Airways og hollenska flugfélagið
KLM að hvort þeirra um sig mundi
kaupa 20% af hlutafé belgíska
flugfélagsins Sabena World Airlines.
Síðsumars 1989 gerðu Air France og
Lufthansa með sér samning um sam-
vinnu við farmiðasölu, þjálfun
starfsfólks og þjónustu flugvéla í
flughöfnum. SAS, skandinavíska
flugfélagið, keypti 1988 25% af
hlutafé British Midland, bresku
flugfélagi. British Airways keypti
British Caledonian, helsta keppi-
naut sinn á Bretlandi, á 458 milljónir
dollara. Fáfnir
ERMAR-
SUNDS-
GÖNGIN
Gerð ganganna undir Ermarsund,
milli Bretlands og Frakklands, geng-
ur nokkurn veginn eftir áætlun.
Göngin eru orðin 31,2 mílur á lengd
og lengjast um nær 1,5 metra á
klukkustund. Frakkar eru 14 vikur á
undan áætlun en Bretar nokkuð á
eftir. Kostnaður hefur hins vegar
farið mjög fram úr áætlun. Fram til
ársloka 1989 varð hann 11,8 millj-
arðar dollarar. Vænst var að á því
stigi yrði hann 8 milljarðar dollara.
Forstöðumenn Eurotunnel, fyrir-
tækis sem að gerð ganganna stendur,
áttu í janúar 1990 fund með 22
bönkum sem fram komu fyrir hönd
186 lánardrottna þess. Féllust bank-
arnir á aukalegt lán til gangagerðar-
innar upp á 660 milljónir dollara.
Síðar á árinu þarfnast Eurotunnel
umframfjár upp á 2,5 milljarða doll-
ara sem væntanlega verður aflað
með 1,9 milljarða dollara lántöku í
apríl og útboði aukins hlutafjár upp
á 600 milljónir dollara í haust.
Þá hafa verið gerðar nokkrar
breytingar á hönnun ganganna.
Verða þau nú miðuð við að hámarks-
hraði lesta, sem um þau fara, verði
80 mílur á klst. en ekki 100 mílur
eins og fyrirhugað var.
Eftir er að grafa 61,9 mílur, þann-
ig að þriðjungur verksins er að baki.
Stígandi
vera nálægt þeim. Þau voru einstak-
lega samrýmd hjón og það þurfti
ekki langan tíma til að sjá hversu
vænt þeim þótti hvort um annað. Ég
var einstaklega heppin, borgarbam-
ið, að lenda hjá þeim hjónum í
Bryðjuholti.
Éyjólfur var alltaf tilbúinn til svara
og virtist hafa gaman af að fræða mig
um hitt og þetta varðandi búskapinn
og hann hafði frá mörgu að segja. í
Bryðjuholti er svo mikill myndarbú-
skapur að orð fer af. Það er ekki
lítils virði fyrir ungt fólk sem er
hneigt fyrir búskap að kynnast svona
góðu búi, reglusemi í einu og öllu,
góðum afurðum og hvernig hægt er
að hafa allt hreinlegt og snyrtilegt í
kringum sig.
Það er svolítið erfitt að tala um
þau Eyjólf og Helgu í sitt hvoru lagi
því þau voru svo samhent í öllu. Þau
ákváðu allt í sameiningu og unnu
saman að öllu af mikilli ánægju. Ég
hef rekið á fjall með fjölskyldunni í
Bryðjuholti nokkur undanfarin ár.
Það vantaði mikið í fyrrasumar þeg-
ar Eyjólfur var ekki með. Hann var
svo hress og kátur og sagði okkur
alls kyns sögur, bæði úr fjallferðum
og úr daglega lífinu. Hann var líka
fróður um kennileiti og allt sem fyrir
augu bar. Þessar ferðir hafa verið
mér mikið tilhlökkunarefni og þær
hafa líka skilið mikið eftir sig.
Eftir að ég og maðurinn minn
tókum við búrekstri sjálf höfum við
oft leitað ráða hjá þeim Eyjólfi og
Helgu og það hefur alltaf reynst
jafnvel. Við höfum líka oft beðið
þau að lána okkur hross í smala-
mennsku og að taka hross í haga-
göngu og Eyjólfur var alltaf fljótur
til svars, það var alveg sjálfsagt.
Eyjólfur hafði mjög svo sérstaka
skapgerð, hann var léttur í lund og
hlýr í viðmóti. Það hefur ábyggilega
hjálpað honum í veikindunum að
vera svona skapi farinn. Hann var
einstaklega sterkur og var laus við
biturleika. Það hlýtur að vera öllum
hollt að kynnast slíkum manni sem
Eyjólfur var. Megi minning hans
lifa.
Elsku Helga og fjölskylda, við
vottum ykkur innilegustu samúð
okkar.
Elísabet og fjölskylda
PRENTLIST