Tíminn - 21.02.1990, Blaðsíða 1
Starfsmenn fjármálaráöu-
neytis undirbúa nú enn eina
rassíuna vegna vangoldinna
opinberra gjalda. Að þessu
sinni er það staðgreiðslan.
Ails munu um tveir miiljarð-
ar vera útistandandi frá 1988
og 1989. Skattmenn fjármála-
ráðherra telja að með síend-
urteknum rassíum muni fyrir-
tæki átta sig á því að ekki
borgar sig að láta hjá líða að
greiða opinber gjöld. Telja
ráðuneytismenn innheimtu-
aðgerðirnar hafa ákveðin
uppeldisáhrif á forsvars-
menn fyrirtækja, þ.e.a.s.
kenni þeim skilvísi.
• Blaðsíða 3
HVASSVIÐRIÐ undir Eyjafjöllum um helgina olli miklu tjóni. Þessar
myndir tók fréttaritari okkar og sína þær vel hvernig grjóthríð hefur bulið
á járnklæðningunni á íbúðarhúsinu að Hvassafelli. T,mamyndir:s.gUr9elr
Innheimtumenn fjármálaráöuneytis undirbúa rassíu vegna vangoldinnar staögreiöslu:
Auglýsingastofa fengin til að vinna „upplýsingarit" um Félagsmálastofnun Reykjavíkur:
2ja milljóna áróður
um félagsmál í Rvík
Félagsmálaráð Reykjavíkurborgar hef-
ur falið íslensku auglýsingastofunni
að vinna að gerð upplýsingarits um
Félagsmálastofnun borgarinnar. Kem-
ur mörgum þetta spánskt fyrir sjónir
og reyndar eru uppi raddir sem segja
ritið ekkert annað en áróðursbækling
fyrir íhaldið í komandi borgarstjórnar-
kosningum. Sömu raddir segja það
alvarlegt mál að skattpeningum borg-
arbúa sé veitt til gerðar áróðurspésa.
• Baksíða
Skattmenn ÓRG kenna
fyrirtækjum skiívísi