Tíminn - 21.02.1990, Side 4
4 Tíminn
Miðvikudagur 21. febrúar 1990
UTLÖND
Fridargæsluliðar SÞ
felldir í S-Líbanon
Tveir friðargæsluliðar Sameinuðu þjóðanna voru felldir og
sex særðir í Suður-Líbanon í fyrrinótt. Sakar friðargæsluliðið
vopnaðar sveitir kristinna Líbana sem njóta stuðnings ísraela
um að hafa drepið friðargæsluliðana sem komu frá Nepal.
Fríðargæsluliðar Sameinuðu Þjóðanna í varðstöð sinni í Líbanon. Vopnaðar
sveitir kristinna manna sem njóta stuðnings ísraela drápu tvo friðargæsluliða
í S-Líbanon í gær og hafa þá 172 friðargæsluliðar fallið í Líbanon frá
friðargæsluliðið var sent þangað áríð 1978.
Júgóslavía:
Hernum skipað
gegn kynþátta-
ólgu í Kosovo
FRÉTTAYFIRLIT
WASHINGTON — Václav
Havel forseti Tékkóslóvakíu
hóf opinbera heimsókn sína til
Bandaríkjanna meö yfirlýsingu
þess efnis að lýðræöishug-
sjónin verði grundvallaratriði í
utanríkisstefnu Tékka. Þá
sagði hann að ekki væri lengur
þörf á bandarísku herliði í
Evrópu.
MOSKVA — Nokkrir leiðtog-
ar í Æðsta ráðinu hafa lagt
fram frumvarp sem kveður á
um að sovétlýðveldin geti sagt
sig úr Sovétríkjunum með ein-
faldri þjóðaratkvæðagreiðslu.
KATMANDU - Mannrétt-
indafrömuðurinn Debendra
Raj Panday segist óttast að
fórnarlömb ofbeldisöldunnar í
Nepal verði enn fleiri en þegar
er orðið, nema að lögreglan
beiti minni hörku en verið
hefur. Að minnsta kosti sex
manns hafa fallið, þar af skaut
lögreglan tvo menn til bana í
gær.
SEOUL — Stjórnarandstað-
an í Seoul yfirgaf þingið til að
mótmæla nýju stjórnmála-
bandalagi Roh Tae-woo for-
seta, sem nú hefur meirihlut-
ann í þinginu.
JÓHANNESARBORG-
Mikilsmetinn andstæðingur
aðskilnaðarstefnunnar í Suð-
ur-Afríku ræddi við dómsmála-
ráðherra landsins Adriaan Vlok
um leiðir til að stöðva átök milli
stríðandi fylkinga blökku-
manna í Natalhéraði. Nelson
MAndela eyddi helginni í Natal
til að reyna að stilla til friðar.
DYFLINNI — Douglas Hurd
utanríkisráðherra Bretlands
skýrði frá því að Bretar hygðust
aflétta banni við fjárfestingum
í Suður-Afríku.
BEIRUT - Hermenn Michel
Aouns og liðsmenn Líbönsku
hersveitanna börðust í tveimur
bæjum utan við Beirút þrátt
fyrir friðarsamkomulag hinna
stríðandi fylkinga kristinna
manna í Líbanon. Báðar fylk-
ingar virðast búa sigi undir
áframhaldandi átök.
DYFLINNI — Bretar höfn-
uðu boði írska lýðveldishersins
um friðarsamninga með þeim
orðum að IRA verði að láta af
öllu ofbeldi áður en hægt verði
að semja um nokkurn hlut. IRA
lagði á mánudag fram tilboð
um friðarsamninga án nokk-
urra skilyrða.
Friðargæsluliðarnir létust þegar
sprengja úr sprengivörpu féil á í
verustað þeirra. Samkvæmt heimild-
um innan SLA, hinna vopnuðu
sveita kristinna manna í Suður-Líb-
anon, þá var sprengjunni ætlað að
granda skæruliðum múslíma sem
gert höfðu sprengiárás á stöðvar
kristinna manna.
Timor Goksel talsmaður friðar-
gæsluliðs Sameinuðu þjóðanna í Lí-
banon, UNIFIL, sagði hins vegar að
einungis sveitir SLA hefðu varpað
sprengjum á þessu svæði.
-Bækistöðin var upplýst og greini-
lega merkt UNIFIL. Allir vissu hvar
hún var staðsett og hún hafði verið
þarna í langan tíma. Hvernig stend-
ur þá á því að bækistöðin verður
fyrir sprengjuárás?, sagði Goksel.
Brottflutningi herliðs Kúbu í Ang-
óla verður fram haldið á sunnudag.
Hlé hefur verið á brottflutningi her-
liðsins frá því 25.janúar vegna árása
skæruliðasveita Unita á kúbanska
hermenn þar sem fjórir Kúbumenn
féllu.
Herlið Kúbu á að hafa yfirgefið
Angóla fyrir mitt ár árið 1991 í
samræmi við friðarsamkomulag
Angóla og Suður-Afríku sem tryggði
sjálfstæði Namibíu.
Ríkisstjórnir Angóla og Kúbu
ákváðu að hefja aftur brottflutning
eftir að Bandaríkjamenn og Suður-
Blóðug átök fyrir utan þinghúsið í
Taipei höfuðborg Tæwan urðu til
þess að kjör nýs forseta þingsins var
frestað í gærkvöldi. Reyndar hafði
þingfundinum í gær oftsinnis verið
frestað vegna aðgerða lögfræðinga
stjórnarandstöðunnar sem dregur
lögmæti skipan þingsins í efa.
Að minnsta kosti sjötíu manns
slösuðust alvarlega í átökum
mótmælenda og lögreglu utan við
þinghúsið. Eru þetta alvarlegustu
átök á Tævan í fleiri ár.
Átökin fyrir utan þinghúsið koma
mjög illa við Þjóðernisflokkinn sem
fer með völd á Tævan. Þingmenn
Lýðræðislega framsóknarflokksins
notuðu tækifærið til að ítreka kröfur
Goksel sagði að friðargæslusveit-
irnar myndu senda ísraelum hörð
mótmæli, en ísraelar halda SLA
mönnum vopn og vistir. Sakaði hann
ísraela og sveitir SLA um að taka
fram fyrir hendurnar á friðargæslu-
liðinu á þessum slóðum.
Fimmtán sprengjum var skotið frá
stöðvum SLA innan svokallaðrarr
öryggislkínu íseaela og féllu þær á
bækistöðvar hermanna frá Nepal
sem eru í friðargæsluliði SÞ. Þá var
skotið á bækistöðina úr vélbyssum
SLA.
Nú hafa 172 friðargæsluliðar fallið
í suðurhluta Líbanon frá því sveit-
irnar voru sendar þangað árið 1978
til að reyna að koma á lög og reglu
eftir innrás ísraela. Tæplega 6 þús-
und manns eru í friðargæsluliði SÞ í
Líbanon.
Afríkustjórn sem hingað til hafa
stutt dyggilega við bak Unita, gáfu
viðhlýtandi tryggingar fyrir því að
ekki yrði ráðist á hermenn frá Kúbu
í Angóla.
Skæruliðar Unita segja að árásin
á Kúbumennina hafi verið mistök og
allt verði gert til að koma í veg fyrir
að slíkt endurtaki sig. Samtökin
segjast hins vegar ætla að berjast
gegn herliði Angóla.
Kúbumenn hafa haft um 50 þús-
und hermenn í Angóla en nú þegar
hafa þeir kallað 31 þúsund jreirra
heim.
sínar um að hinir öldnu meðlimir
Þjóðernisflokksins sem kallaðir eru
„Meginlandsfulltrúarnir" gæfu eftir
þingsæti sín og að um þau verði
kosið, en öldungarnir hafa haldið
þingsætum sínum án kosninga í
fjóra áratugi.
Þjóðernisflokkurin gerir enn til-
kall til valda á meginlandi Kína og
halda þeir fulltrúar þingsins sem
flúðu meginlandið eftir ósigurinn
gegn herjum kommúnista 1949, fast
í þingsæti sín sem þeim er tryggð í
stjórnarskrá Tævan. Hafa þeir ekki
látið undan þó þeim hafi verið
boðnar vænar fjárfúlgur til að hætta
afskiptum af stjórnmálum, enda
hafa þeir lítið um dagleg mál á
Ríkisráð Júgóslavíu skipaði hern-
um að koma á lögum og reglu í
Kosovohéraði þar sem mikil kyn-
þáttaólga hefur ríkt að undanförnu
og 27 manns hafa fallið í kynþáttaá-
tökum síðastliðinn mánuð. Er hern-
um fyrirskipað að brjóta andófs-
menn á bak aftur.
Tævan í dag að segja.
Meginlandsfulltrúarnir eru ein-
mitt ástæða þess að ekki hefur verið
hægt að kjósa nýjan forseta þingsins
þar sem lögfræðingar draga í efa rétt
þeirra til að greiða atkvæði í slíku
kjöri. Hins vegar átti að láta slag
standa í gær, eftir endalausar tafir
vegna aðgerða lögfræðinganna.
Almenningur í Tævan er ekki par
hrifinn af hinum gömlu þingfulltrú-
um sem flestur þurfa á mikilli aðstoð
að halda til að komast í þingið. Voru
bifreiðar þingmannanna frá megin-
landinu grýttar af mótmælendum er
þeir komu til þinghússins. Fékk einn
hinna öldnu þingmanna slag af geðs-
hræringu vegna ólátanna.
-Júgóslavneska ríkisráðið hefur
ákveðið... að fela sveitum út júgó-
slavneska hernum í Kosovo að halda
uppi ákvæðum stjórnarskrárinnar og
koma í veg fyrir ofbeldi, sagði í
opinberri yfirlýsingu stjórnvalda.
Albanski meirihlutinn í Kosovo
hefur staðið fyrir víðtækum mót-
mælaaðgerðum og krafist þess að
háttsettir embættismenn segi af sér,
frjálsar kosningar verði haldnar og
að sjálfstjórn héraðsins verði aukin
að nýju. Serbía fer nú með mál
héraðsins þar sem einungis 200 þús-
und kristnir Serbar og Svartfellingar
búa á móti 1,7 milljón Albönum.
Ákvörðunin um að skipa her-
mönnum að grípa í taumana var
tekin á sérstökum neyðarfundi for-
sætisráðsins eftir að mótmælaað-
gerðir bæði Serba og Albana hófust
að nýju í Kosovo.
Ríkisráðið sem skipað er átta
fulltrúum, einum frá hverju ríki sem
myndar sambandsríkið Júgóslavíu,
hefur með yfirstjórn hersins að gera
og hefur vald til að lýsa yfir neyðar-
ástandi í landinu.
Herinn hefur sýnt mátt sinn í
Kosovo með því að sína herflokka,
skriðdreka og orrustuþotur, en hefur
að öðru leiti ekki gripið inn í málin.
Hins vegar beitti lögregla táragasi
gegn mótmælagöngum í tveimur
bæjum í héraðinu.
Góóar veíslur enda vel!
Eftireinn
-ei aki neinn
ÚUMFERÐAR
RÁO
Angóla:
Brottflutningar
herja Kúbumanna
hefjast að nýju
Þjóðernisflokkurinn á Tævan verður fyrir áfalli vegna
harðra mótmæla almennings sem krefst lýðræðis:
ÞingTævansentheim
vegna blóðugra átaka