Tíminn - 01.03.1990, Blaðsíða 11

Tíminn - 01.03.1990, Blaðsíða 11
Iðgjöld af tryggingum undanþegin virðisau Þrátt fyrir 18 prósent hækkun lækka iðgjöld Gjalddagi bifreiðaiðgjalda hjá um 70% bifreiðaeigenda er í dag, 1. mars. Þau þrjú tryggingafélög sem Tíminn hafði samband við sögðu að hækkun skyldutryggingar milli áranna væri 18,3%. Meðaliðgjald fyrir bifreið í milli- flokki er rétt um 30 þúsund krónur. Talsmenn félaganna vildu meina að raungildi iðgjaldanna hafi lækkað ef tekið væri mið af hækkun framfærsluvísi- tölu á sama tíma. 1. mars í fyrra voru teknar upp svokallaðar heilsárstryggingar, þannig að bifreiðaeigendur tryggja eftirleiðis alltaf eitt ár fram í tímann. Sá er keypti bifreið 1. ágúst sl. greiðir tryggingar af bílnum til 31. júlí nk. Enn sem komið er greiða hins vegar um 70% bifreiðaeig- enda iðgjöld sín frá 1. mars ár hvert til loka febrúar og 30% á öðrum tíma ársins. Þá var á sama tíma tekin upp svokölluð tjónavísitala í bifreiðatrygg- ingum. Vísitalan á að mæla hversu dýrari eða ódýrari, ef svo ber undir, tjónin eru milli mánaða og sem dæmi þá hefur tjónavísitalan hækkað um 1,5% frá 1. febrúar sl. til loka mánaðar. Hvemig er iðgjaldið fundið út Ragnar Ragnarsson hjá Tryggingaeft- irlitinu sagði í samtali við Tímann að til að finna út vísitöluna eru áhrif ýmissa þátta í tjónunum metin, s.s. viðgerðar- kostnaður, vinnutími á verkstæðum, varahlutaverð, verð á nýjum bílum þegar þarf að endurbæta, verð á bílaleigubílum þegar láta þarf slíka bíla í staðinn til skamms tíma. Hagstofan hefur upplýs- ingar um það hve þetta hækkar á milli mánaða og er liður í framfærsluvísitöl- unni. Þetta er tjónaþátturinn í iðgjaldinu sem vátryggingafélögin hafa lítið að segja til um. Hinn þátturinn í iðgjaldinu er kostnaðarþáttur vátryggingafélagsins, þ.e. hvað tryggingafélagið þarf mikið til að reka greinina, s.s. umboðslaun úti á Iandi og kostnaður við skrifstofurekstur. Ragnar sagði að tryggingafélögin gætu sjálf ákveðið hvað það kosti fyrir þau að reka bifreiðagreinina, en áætlað er að 20 til 25% iðgjaldsins fari í kostnaðarþátt tryggingafélaganna og þá 75 til 80% í tjónaþáttinn, þ.e. það sem reikna má með að greitt sé vegna tjóna. Það sem kallað er skyldutrygging er ábyrgðatrygging ökutækis og slysatrygg- ing ökumanns og eiganda. Að sögn Ragnars hækkar ábyrgðatryggingin fyrir nær alla bíla um 18,33% á milli ára hjá flestum tryggingafélögunum, en slysa- tryggingin um rúm 27%, þar af er hækkun launavísitölu um 11% og hækk- un iðgjalds um 15%. Hvað skyldutrygg- ingin hækkar þá í raun á milli ára fer eftir í hvaða áhættuflokki bifreiðin lendir. En þar sem ábyrgðatryggingin er mun stærri liður skyldutryggingar þá fer nærri að meðaltalshækkun skyldutryggingar sé ekki ýkja langt frá 18,33%. Ragnar sagði að í fljótheitum mætti segja að hækkunin lægi á bilinu 19 til 20% hjá flestum bifreiðaeigendum, en ef menn vildu fá þetta nákvæmara þá þyrfti að athuga tryggingariðgjald hjá tryggingafélagi á ákveðnum bíl. Þess má geta að iðgjald mótorhjóla hefur hækkað um nær helm- ing á milli ára, vegna slæmrar tjóna- reynslu. Idgjöldin lækka að raungildi Tíminn hafði samband við þrjú trygg- ingafélög til að afla upplýsinga um hækkun iðgjalda á skyldutryggingum ökutækja. Þetta eru Vátryggingafélag íslands, Sjóvá-Almennar og Ábyrgð. I fáum orðum sagt var meðaltalshækkun iðgjalda á skyldutryggingu í öllum tilfell- unum þrem um 18,3%, enda þar stuðst við tjónavísitöluna. Sigurjón Pétursson aðstoðarfram- kvæmdastjóri hjá Sjóvá-Almennum sagði í samtali við Tímann meðaltals- hækkun ábyrgðartryggingar væri 15,7% fyrir allan bílaflotann sem tryggður er Eftir Agnar Óskarsson hjá félaginu, en meðaliðgjaldið samtals, þ.e. ábyrgða-, slysa- og framrúðutrygg- ing væri 18,3%. Meðaliðgjald fyrir allan bílaflotann sem er í tryggingu hjá fyrir- tækinu er 29.249 krónur, en var í fyrra 25.564 fyrir utan söluskatt. „Það er 5,4% lægri greiðsluupphæð en kúnninn greiddi í fyrra, en þá var hann að greiða með söluskatti,“ sagði Sigurjón. Hann sagði að hækkun lánskjaravísitölu frá febrúar í fyrra til febrúar í ár var 21,1% og hækkun framfærsluvísitölu frá janúar til janúar er 23,7%, „þannig að hækkun iðgjaldsins er vel fyrir innan vísitölu- hækkanir,“ sagði Sigurjón. Hann sagði að þarna væri um 5% í raunlækkun iðgjaldsins að ræða, miðað við að fram- færsluvísitalan hækkaði um 23,7% en meðaltalsiðgjaldið um 18,3%. Hækkunin ætti að vera meiri Aðspurður sagði Sigurjón að forsend- ur hækkunarinnar miðað við heildarút- reikningá segði til að hækkunin ætti að vera meiri. „Útreikningar okkar sýndu að iðgjaldið fyrir slysatryggingu öku- manns og eiganda ætti að vera rúmar 6200 krónur, en er 5484 krónur, en það er fastagjald," sagði Sigurjón. Aðspurð- ur hvers vegna iðgjaldið var þá ekki hækkað meira, sagði Sigurjón að það væri gert til að halda heildargreiðslu- skyldu manna innan markanna. „Þetta er þá sem framlag okkar til þessarar þjóðarsáttar. Svo vonast menn auðvitað líka að hagræðing skili sér,“ sagði Sigur- jón. Hann sagði að meginástæða hækkun- arinnar væri sú að kostnaður vegna tjóna hefði hækkað, „það eru kúnnarnir sem hafa hækkað sinn eigin kostnað," sagði Sigurjón. Hann sagði slysin væru alltaf að verða dýrari og dýrari og hækkuðu meir en verðlagsbreytingar á milli ára. Hefur bati í rekstri fylgt sameiningu tryggingafélaganna á síðasta ári? „í rekstrarkostnaði sjáum við breytingu. Við erum að klára uppgjörið núna og maður sér ekki svo glöggt fyrir fyrsta árið. Það er nokkur kostnaður sem fylgir sameiningunni, flutningur og annað slíkt. Breytingin fer ekki að sjást veru- lega fyrr en á þessu ári,“ sagði Sigurjón. Hjá Sjóvá-Almennum er hæsti bónus 100%, þ.e. ellefta árið frítt. Næsti bón- usflokkur er 65%. Meðalbónus er 52,45%, og eru 83% tryggingataka í 50% bónus og meira. Meðalbónusinn í fyrra var 51,15% í fyrra. Hilmar Pálsson framkvæmdastjóri hjá Vátryggingafélagi íslands sagði að með- altalshækkunin á ábyrgðatryggingu væri 18,3. Hann tók dæmi af meðalbíl, eins og Opel, Lancer og Volvo 340 og er iðgjaldið af skyldutryggingunni á þessum bifreiðum 32.715 krónur, fyrir utan framrúðutryggingu, sem ekki er skylda en velflestir eru með. Hilmar sagði að ástæða hækkunarinnar fælist í tjónavísi- tölunni sem hækkar frá mánuði til mán- aðar. í maí í fyrra hafi hún verið komin 3,3% á árinu, í september í 10% sl. Hann sagði að þeir væru farnir að sjá að sameining Brunabótafélagsins og Sam- vinnutrygginga væri farin að skila sér. Hann benti einnig á eins og Sigurjón hér að ofan, að raunvirði iðgjaldsins í ár er lægra en almennt verðlag í þjóðfélaginu. „Við erum að vona að við séum að hefja það að skila einhverjum árangri," sagði Hilmar. Hæsti bónusflokkur hjá Vátr- yggingafélagi íslands er 70%. Meðalbón- us er 54,58%. Jóhann E. Björnsson framkvæmda- stjóri Ábyrgðar sagði að ef tekið væri mið bílum í miðflokki eins og Lancer t.d. þá væri meðaliðgjaldið í ár 29.211. Þetta er ábyrgða-slysa og framrúðutrygg- ing. Hann benti á að þar sem hækkun hefði verið á meðalbónus tryggingataka þá mætti í raun segja að sú bónushækkun dragi úr hækkun iðgjaldsins og væri í raun 14,2% meðalhækkun á bílnum sem tekinn var sem dæmi hér að ofan. „Vísitöluhækkunin á milli ára er 18,33%, en vegna þess að meðalbónus- inn á milli ára hefur hækkað þá dregur það úr hækkuninni,“ sagði Jóhann. Að- spurður um skýringu á því hvers vegna þeir gætu boðið sömu hækkun og stærri félögin, en eins og menn rekur minni til þá var sameining félaganna m.a. gerð til að ná niður reksturskostnaði. „Þetta hefur ekki komið fram strax. Það varð í raun engin hækkun á iðgjöldum núna, önnur en vísitöluhækkun, þannig að segja má að iðgjöldin eru þau sömu,“ sagði Jóhann. Átta tjónlaus ár hjá Ábyrgð færa ökumanninn í heiðursbónusflokk sem er 70%. Meðalbónus ökumanna nú er 57,3%, en var í fyrra 54%. 10 Tíminn Fimmtudagur 1. mars 1990 Fimmtudagur 1. mars 1990 Tíminn 11 i. ' >> .0

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.