Tíminn - 01.03.1990, Blaðsíða 2

Tíminn - 01.03.1990, Blaðsíða 2
2 Tíminn Fimmtudagur 1. mars 1990 Álagning sveitarfélaga minnkuð í kjölfar kjarasamninga: Fasteignaskattar og -gjöld lækka Félagsmálaráðherra hefur í samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga ákveðið að fasteignagjöld lækki um 7%, varðandi nýtingu aðstöðugjaldsstofns. Jafnframt hefur verið ákveðin 10% lækkun varðandi nýtingu fasteignaskatts. í sambandi við nýgerða kjara- samninga aðila vinnumarkaðarins átti ríkisstjórnin viðræður við full- trúa samtaka launafólks, vinnuveit- enda og bænda, um kjarasamninga og efnahagsráðstafanir í tengslum við þá. í því skyni að greiða fyrir kjarasamningum samþykkti ríkis- stjórnin m.a. aðbeitasérfyrirendur- skoðun á hundraðshluta meðalnýt- ingar tekjustofna sveitarfélaga, sem skilyrði fyrir framlögum úr Jöfn- unarsjóði sveitarfélaga, enda er Ijóst að kjarasamningarnir fela í sér veru- legan fjárhagslegan ávinning fyrir sveitarfélögin. Að fenginni umsögn stjórnarSam- bands íslenskra sveitarfélaga var þess vegna ákveðið að breyta ákvörðun frá 30. nóvember s.l. um nýtingu tekjustofna sveitarfélaga. Utsvarsálagning verður eftir breyt- inguna 7,5%, aðstöðugjald 65% af meðalnýtingu aðstöðugjaldastofns, fasteignaskattur samkvæmt a lið 3. greinar laga um tekjustofna sveitar- félaga 0,36% og samkvæmt b Iið 0,9%. - ÁG Róbert Arnfinnsson í leikþættinum „Þrír leikarar - eitt drama“. Ungir leikstjórar þreyta frumraun sína með reyndustu leikurum Þjóðleikhússins: Stefnumót í leikhúsinu Síðasta frumsýningin á stóra sviði Þjóðleikhússins fyrir lokun verður dagskráin Stefnumót með smáverkum erlendra afbragðs- höfunda. Fyrstu sýningar verða á stóra sviðinu 2. og 4. mars. Sýningum verður síðan haldið áfram í Iðnó eftir miðjan mars. Stefnumót er byggt upp á örstutt- um leikritum eftir nokkra merkis- höfunda, sem sumir hafa aldrei verið kynntir fyrir íslenskum leikhúsgest- um. Höfundarnir eru Peter Bames, Michel de Ghelderode, Eugene Ion- esco, David Mamet og Harold Pinter. Höfundur tónlistar er Jó- hann G. Jóhannsson og þýðendur eru Árni Ibsen, Ingunn Asdísardótt- ir, Karl Guðmundsson, Sigríður M. Guðmundsdóttir og Sigurður Pálsson. Gunnar Bjarnason, yfir- leikmyndateiknari Þjóðleikhússins hannar leikmynd og búninga og Ásmundur Karlsson lýsingu. Tveir leikendanna hættu í vetur sem fastráðnir leikarar við húsið og fóru á eftirlaun, þeir Bessi Bjarna- son og Rúrik Haraldsson.Fjórir þeirra voru með í opnunarsýningum hússins og eiga því 40 ára starfsaf- mæli, þau Baldvin Halldórsson, Bryndís Pétursdóttir, Herdís Þor- valdsdóttir og Róbert Amfinnsson. Auk þeirra leika Anna Kristín Am- grímsdóttir, Amar Jónsson, Bríet Héðinsdóttir, Gunnar Eyjólfsson og Tinna Gunnlaugsdóttir. Leikstjórar em fjórir talsins, allt ungt fólk sem nýlega hefur lokið sérnámi í leikstjóm og þreytir þama fmmraun sína í Þjóðleikhúsinu. Þar með er stefnt saman þeint leikumm sem verið hafa burðarásar Þjóðleik- hússins í 40 ár og yngstu kynslóð leikstjóra sem vænta má að láti til sín taka í framtíðinni. Leikstjórarnir eru Hlín Agnarsdóttir, sem hefur yfimmsjón með dagskránni, Ásgeir Sigurvaldason, Ingunn Ásdísardótt- ir og Sigríður M. Guðmundsdóttir. Leikþættirnir eru: Þrír leikarar - eitt drama eftir Ghelderode. Þýðandi: Sigurður Pálsson. Leikstjóri: Hlín Agnars- dóttir. Leikarar: Róbert Arnfinns- son, Arnar Jónsson, Tinna Gunn- laugsdóttir, Bryndís Pétursdóttir og Rúrik Haraldsson. Biðstöðin eftir Pinter. Þýðandi og leikstjóri: Ingunn Ásdísardóttir. Aðalleikari: Herdís Þorvaldsdóttir. (Nánast einleikur Herdísar, en í þöglum aukahlutverkum eru Bessi, Anna Kristín og Bríet og Bryndís.) Tilbrigði við önd eftir Mamet. Þýðandi: Árni Ibsen. Leikstjóri: Ás- geir Sigurvaldason. Leikarar: Bald- vin Halldórsson og Gunnar Eyjólfs- son. Staður og stund eftir Barnes. Þýð- andi og leikstjóri: Ingunn Ásdísar- dóttir. Leikarar: Bríet Héðinsdóttir og Anna Kristín Arngrímsdóttir. Leikæfing eftir Barnes. Þýðandi og leikstjóri: Ingunn Ásdísardóttir. Leikarar: Bessi Bjarnason og Arnar Jónsson. Góð til að giftast eftir Ionesco. Þýðandi: Karl Guðmundsson. Leik- stjóri: Sigríður Margrét Guðmunds- dóttir. Leikarar: Herdts Þorvalds- dóttir og Rúrik Haraldsson. Það er nú það eftir Pinter. Þýð- andi og leikstjóri: Sigríður Margrét Guðmundsdóttir. Leikarar: Bríet Héðinsdóttir og Bryndís Pétursdótt- Gröfuskipið Reynir að störfum á Siglufirði fyrir skömmu. Mynd Ö. Þ. Endurbótum lokið á Sigluf jardarhöf n Fyrir skömmu lauk vinnu við dýpkun hafnarinnar á Siglufirði. Tekið var upp úr höfninni á tveimur stöðum, við hafnarbryggju en þar var skipt um verulegt magn af jarð- vegi og gerð fyrirstaða fyrir væntan- legt stálþil. Þetta var framhald á verki sem ekki tókst að ljúka fyrir einu og hálfu ári þegar veruleg dýpkun á höfninni fór fram. Þá var einnig tekið verulegt magn upp úr svokallaðri bátadokk, en við það batnar verulega athafnasvæði fyrir trillur og smærri báta inn í dokkinni. Að sögn Þráins Sigurðssonar bæjar- tæknifræðings á Siglufirði gekk verk- ið vel. Það var Dýpkunarfélagið hf. sem sá um framkvæmd verksins, og notaði við það gröfuskipið Reyni. Dýpkunarfélagið hefur nú flutt tækjabúnað sinn frá Siglufirði til Neskaupstaðar þar sem næsta verk- efni bíður fyrirtækisins. Ö.Þ. Búnaðarbankinn: Nýr aðstoðar- bankastjóri Á fundi bankaráðs Búnaðarbanka íslands 27. febrúar var samþykkt einróma að ráða Guðmund Gíslason aðstoðarbankastjóra erlendra viðskipta við Búnaðarbankann. Guðmundur hefur 30 ára reynslu við störf á sviði erlendra viðskipta. Hann hóf störf í gjald- eyrisdeild Útvegsbanka fslands 1960 og varð deildarstjóri er- lendra viðskipta þar 1967. Tíu árum síðar var hann skipaður forstöðumaður erlendra við- skipta Útvegsbankans. Við stofnun íslandsbanka hf. varð hann forstöðumaður er- lendra samskipta og tók við þeirri stöðu 1. janúar sl. Guðmundur lauk námi frá Verzlunarskóla íslands árið 1960. Hann hefur síðan sótt fjölmörg námskeið á sviði erlendra við- skipta, m.a. hjá City University í London, Bank of America, Roy- al Bank of Canada og mörgum öðrum bönkum í London, New York, Frankfurt, Luxembourg, Stokkhólmi og Kaupmannahöfn. Guðmundur Gíslason er fædd- ur 19. janúar 1941. Hann er kvæntur Erlu Sigur- jónsdóttur og eiga þau tvær dætur. Guðmundur mun taka við stöðu aðstoðarbankastjóra 1. mars nk. Meleyri á Hvammstanga: Mikil vinna í rækjuvinnslu Við höfum verið að vinna hér 10-12 tonn af rækju og 10 tonn af skel á dag alveg síðan um áramót,“ sagði Konráð Einarsson verkstjóri á Hvammstanga þegar tíðindamaður blaðsins leit inn hjá Meleyri hf. á dögunum. Mikil vinna hefur verið við þessa úrvinnslu, en við hana starfa 60-70 manns að jafnaði og vinna 10 stundir á dag, auk þess sem unnið hefur verið flesta laugardaga. Meleyri hefur undanfarið tekið við afla af 5 rækjubátum og hluta af afla eins til viðbótar. Þrátt fyrir rysjótt tíðarfar undanfarið hafa bátarnir aflað þokkalega. Þá leggja tveir bátar upp skel hjá Meleyri. Þessar veiðar byrjuðu í desember sl. en þá hafði ekki verið veidd skel í Hrúta- firðinum í ein þrjú ár. Skelfiskbát- arnir hafa fengið að jafnaði 5-7 tonn í róðri, búist er við að þessum veiðum ljúki nú í mars. Skelfisk- Starfsmenn Meleyrar önnum kafnir við rækjuvinnsluna. Mynd ö Þ. vinnslan hefur orðið atvinnulífinu á Hvammstanga talsverð lyftistöng því við hana fjölgaði starfsfólki Meleyr- ar um 17 manns. - ÖÞ

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.