Tíminn - 01.03.1990, Blaðsíða 12

Tíminn - 01.03.1990, Blaðsíða 12
12 Tíminn Fimmtudagur 1. mars 1990 DAGBÓK llllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllilllllllllllllllllllllllllli tvarlukonnn Meínir SÖNGMÓT KÓTLU Katla, samband sunnlenskra karla- kóra, heldur upp á 15 ára afmæli sitt með söngmóti laugardaginn 3. mars í íþrótta- húsinu að Varmá í Mosfellsbæ. Þar syngja eftirtaldir 8 karlakórar: Karlakórinn Jökull frá Höfn í Horna- firði (stofnaður 1973), söngstjóri Sigjón Bjarnason. Karlakór Selfuss (1965), söngstjóri Jóhann Stefánsson. Karlakór Keflavíkur (1953) söngstjóri Sigvaldi Snær Kaldalóns, einsöngvari María Guðmundsdóttir. Karlakórinn Þrestir í Hafnarfirði (1912), söngstjóri Kjartan Sigurjónsson, einsöngvari Sigurður Björnsson. Karlakórinn Fóstbræður í Reykjavík (1916), söngstjóri Ragnar Björnsson, ein- MINNING söngvari Eiríkur Tryggvason. Karlakór Reykjavíkur (1926), söng- stjóri Páll P. Pálsson, einsöngvari Friðrik A. Kristinsson. Karlakórinn Söngbræður í Borgarfirði (1978), söngstjóri Sigurður Guðmunds- son. Karlakórinn Stefnir í Kjósarsýslu (1940), söngstjóri Lárus Sveinsson, ein- söngvari Sigrún Hjálmtýsdóttir iviunu neisi ki. iu.uu ug lyisi syngja kórarnir átta 1 - 2 lög hver. Eftir hlé syngur sameinaður hátíðakór Kötlu (um 320 karlar) 4-5 lög við undirleik Sinfóníuhljómsveitar íslands undir stjórn Ragnars Björnssonar og Páls P. Pálsson- ar. Aðgöngumiðar verða seldir við inn- ganginn. Frá Félagi eldri borgara Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni hefur opið hús í dag, fimmtud. 1. mars í Goðheimum, Sigtúni 3. Kl. 14:00 er frjáls spilamennska, kl. 19:30 félagsvist og kl. 21:00 dansað. Danskennslan fellur niður Danskennsla fyrir eldri borgara í Nýja dansskólanum fellur niður laugard. 3. mars. Árshátíð Átthagasamtaka Héraðsmanna Árshátíð Átthagasamtaka Héraðs- manna verður í Borgartúni 6 laugardag- inn 3. mars. Húsið er opnað kl. 19:00 en hátíðin sett kl. 20:00. Miðasala verður í Domus Medica þann 1. og 2. mars kl. 17:00-19:00. Kvenfélag Háteigssóknar heldur fund nk. þriðjudag, 6. mars kl. 20.30 í Sjómannaskólanum. Spiluð verð- ur félagsvist og kaffi drukkið. Húnvetningafélagið Félagsvist nk. laugardag, 3. mars kl. 14 í Húnabúð, Skeifunni 17. Verðlaun og veitingar. Allir velkomnir. Pennavinur í Englandi 21 árs Englendingur, sem hefur komið langar til að skrifast á við Islending, - fyrst á ensku, en síðan eitthvað á íslensku. Utanáskrift til hans er: DARRENFROST BOX72 FAIRFIELD AVENUE, STAINGS, MIDDX. TWI8 IGE ENGLAND Franskur stúdent óskar eftir íslenskum pennavini Tuttugu og eins árs franskur námsmað- ur óskar eftir að eignast pennavin á íslandi. Utanáskrift til hans er: RICHARD OLIVIER, 8 RUE DES LUTINS 17300 ROCHEFORT FRANCE Frá sýningu á lcikverkinu VAGNA- DANSI Leikfélagið FANTASÍA: Sýning á VAGNADANSI Sýning verður á sjónleiknum VAGNA- DANS föstudaginn 2. mars kl. 21:00 og sunnudaginn 4. mars kl. 21:00 í Skeifunni 3C - húsnæði „Frú Emelíu“. Undirtitill verksins er: I leit að hjómi. Þetta er leikur án orða. Leikstjóri er Kári Halldór, en átta leikarar taka þátt í sýningunni, fjórir karlar og fjórar konur. Föstudagssýningin er 3. sýning á verk- inu. Mikil tónlist er í viðhöfð með sýningunni, sem er létt ogskemmtileg, þó hún sé án orða. VAGNADANS lýsir vegferð nútíma- mannsins og um leið vexti og þroska einstaklingsins í samfélaginu. Fantasía er leikhópur áhugamanna sem stofnsettur var 1989. Sama ár sýndi hann ieikverkið: Ég býð þér von sem lifir. Síminn er 697172 ef fólk vill panta miða. Grétar Olafsson yflrlæknir tckur við gjafabréfl úr hendi Ingólfs Viktorssonar, form. Landssamtaka hjartasjúklinga Landspítali fær stórgjóf frá Landssamtðkum hjartasjúklinga Nýlega afhenti stjórn Landssamtaka hjartasjúklinga Landspftalanum stórgjöf, en það er ný ósæðardæla, sem er til notkunar eftir aðgerðir í hjarta- og lungnavél, í þeim tilvikum þegar styrkur hjartans er það skertur að hætta er yfirvofandi. Reynsla erlendis hefur sýnt, að í 5% hjartaaðgerða þarf að nota slíkt tæki. Samkvæmt fréttatilkynningu frá Grét- ari Ólafssyni, yfirlækni við Brjóstholsað- gerðadeild Landspítalans segir, að þar hafi sl. 10 ár verið notuð ósæðardæla, sem Lionsklúbburinn Freyr gaf og hefur reynst mjög vel, en hún verði nú notuð sem varavél. Landssamtök hjartasjúklinga hafa áður stutt hjartaskurðlækningar á Landspítala af mikilii rausn, segir enn í fréttatilkynn- ingunni. Aldarafmæli Ejnars Munksgaards: 1890-28. fsbrúar-1990 Landsbókasafn fslands minnist þessa dagana með sýningu í anddyri Safnahúss- ins aldarafmælis hins merka útgefanda og íslandsvinar Ejnars Munksgaards. Kunn- astur er hann af útgáfum Ijósprentana fomra íslenskra handrita, er hann hóf með útgáfu Flateyjarbókar 1930, en sá flokkur varð alls 20 bindi. Sýningin mun standa nokkrar vikur. Tónleikar í Vinaminni á Akranesi Kolbeinn Bjamason flautuleikari og Helga Bryndís Magnúsdóttir píanóleikari munu halda tónleika í safnaðarheimilinu Vinaminni á Akranesi mánudagskvöldið 5. mars kl. 20:30. Á efnisskránni eru sónötur eftir Carl Philip Emanuel Bah og Sergej Prokofjev og verk eftir Árna Björnsson, Atla Ingólfsson og Béla Bartok. Illlllllllllllllllllllllllll MINNING llllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllli Kristín Guðmundsdóttir Fædd 27. ágúst 1900 Dáin 20. febrúar 1990 Ég vil minnast með nokkrum fátæklegum orðum Kristínar Guð- mundsdóttur. Hún var aldrei kölluð annað en Frænka af þeim sem þekktu hana. Frænka var ömmusystir mín og var hún eiginlega hálfgerð amma mín því hún gekk móður minn i í móðurstað strax á unga aldri. Frænka bjó mestan hluta ævi sinn- ar að Ásbrandsstöðum í Vopnafirði og var ég þar hjá henni nokkur sumur. Lærði ég margt af henni sem ég mun seint gleyma. Til að mynda hafði hún þolinmæði til að kenna mér að hekla sex ára gamalli. Frænka var nýtin eins og húsmóð- ur sæmdi og hélt hún öllum bókum mömmu vel til haga svo ég hef notið þeirra líka. Frænka var lífsglöð kona og mun ég seint gleyma brosinu hennar. Hún hafði gaman af öllu ungviði og var stutt í brosið þegar lömbin léku sér á vorin. Blessuð sé minning nöfnu minnar. Kristín Hermannsdóttir Ása Theódórs Fædd 13. janúar 1890 Dáin 13. febrúar 1990 Rökkrið færist yfir. Allt er hljótt á sjúkrastofunni á ísafirði. Faðir heldur um hönd fárveikrar dóttur sem loks er sofnuð. Hann spyr konu í næsta rúmi hvort hún vilji halda í hönd litlu stúlkunnar í sinn stað ef hún skyldirumska. Þvíervel tekið. Þetta var fyrsta en ekki síðasta aðstoð þessarar hjartagóðu konu við litlu stúlkuna. Konan var Ása Theódórs en stúlk- an var undirrituð. Nafngiftin „Ása mamma“ varð til vegna náinnar samveru næstu mán- uði. Hún gefur greinilega til kynna hvers virði umhyggjan og ástúðin var þriggja ára barni, fjarri foreldr- um. í þá daga var foreldrum ekki gert kleift að vera samvistum við börn sín á sjúkrahúsum. Manni Ásu, Hinriki Theódórs, kynntist ég líka og var hann ekki eftirbátur konu sinnar í ástúð og hlýju. Manngæskan geislaði frá honum. Því miður urðu kynni okkar allt of stutt því að vorið 1939 flutti ég á annað landshorn, en hann lést 17. ágúst sama ár. Árin líða. Leið mín liggur til Reykjavíkur. Nú skyldi dvalið í höfuðborginni heilan vetur við nám. Þá var tækifær- ið notað að leita „Ásu mömmu“ uppi. Þar kom símaskráin í góðar þarfir. Eiginlega hefði nafn Ásu Theódórs átt að vera þar skrautritað. Svo vel og dyggilega þjónaði hún Landsíma fslands áratugum saman. Þar var ekki slegið slöku við fremur en annars staðar. Samviskusemi og ár- vekni Ásu var einstök. Hún mátti ekki vamm sitt vita í neinu. Ná- kvæmnin og heiðarleikinn voru í öndvegi. Það var svo sem ekki verið að kveina og kvarta undan annríki eða of löngum vinnudegi. Skyldu- ræknin var henni í blóð borin. Að gera sitt besta var jafnsjálfsagt og að draga andann. En allt tekur enda, einnig starfs- ferill manna. Þar um gilda fastar reglur hjá „því opinbera". Nú skyldi maður halda að Ása hefði fallið saman og koðnað niður þegar hún, einbúinn, gekk ekki lengur til starfa utan heimilis. Ó ekkí! Slík var ekki skaphöfn þessar- ar mætu konu. Þó að sjón tæki óðum að daprast tók hún samt til við hannyrðir og lét sig ekki muna um að læra nýtt hekl sem henni leist vel á. Ég vildi að ég væri málari. Þá skyldi ég mála mynd af henni þar sem hún kemur galvösk til dyra, hnarreist og hressileg í fasi, og býður til stofu. Reyndar fékk maður að drekka í eldhúsinu á Hringbrautinni undir það síðasta þegar sjónin var orðin harla léleg. Og svo kom að þessu erfiða augna- bliki þegar öldungurinn verður að horfast í augu við þá sorglegu stað- reynd að ekki verður lengur dvalist á eigin heimili. Elli kerling er búin að ná undirtökunum. Nú hlaut að koma að uppgjöf og armæðu hjá „Ásu mömmu“. Nei, ekki aldeilis. Enn var það hreykin og hnarreist kona sem kom til dyra á Droplaugarstöðum. Með bros á vör i sýndi hún íbúðina sem sonur hennar hafði útvegað henni. Alltaf ánægja, sannkallaður Pollýönnu-stíll. Öllu snúið á besta veg. Ása eignaðist einn son, Richard, og missti hún hann fyrir tveimur árum, þann 19. janúar 1988. Eftirlif- andi kona hans, Dóra Sigurjónsdótt- ir, breiddi sig þá af enn meiri nærgætni og alúð yfir tengdamóður sína og hafði hún þó alla tíð sýnt henni ærna umhyggju. Nú hnignaði heilsu „Ásu mömmu" óðum og skyldi engan undra. Þá tók sjúkradeild Droplaug- arstaða við og voru þar margar hlýjar hendur sem hjúkruðu þreyttu gamalmenni. Þann 13. janúar síðastliðinn varð Ása Theódórs 100 ára. Hún hafði þá lítið talað um tíma, aðeins tjáð sig með svipbrigðum. Dóra sá um að allt yrði sem ánægju- legast en þó ekki ofviða afmæli- sbarninu. Ekki vissu menn gjörla að hve miklu leyti Ása naut návistar ættmenna sem heimsóttu hana. Þegar flestir voru farnir og komið að kveðjustund, heyrðist afmælis- barnið segja: „Ja, þetta var nú gaman.“ , Ég á enga ósk heitari til ísiensku þjóðarinnar en hún eignist sem flesta þegna með lyndiseinkunn og gáfur Ásu Theódórs. Þá verður auðvelt að sigrast á erfiðleikunum. Ekkert vol og víl, hálfvelgja eða hik, heldur eljusemi, óeigingirni, ástúð og heið- arleiki. Dóra mín. Megi ailar hlýju, björtu minning- amar fylla það tómarúm sem þú finnur óhjákvæmilega til um þessar mundir. Guð veri með „ykkur öllum" þessa heims og annars. Þómý Þórarinsdóttir

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.