Tíminn - 01.03.1990, Blaðsíða 7

Tíminn - 01.03.1990, Blaðsíða 7
Fimmtudagur 1. mars 1990 Tíminn 7 llllllllllllllllllllllllllll BÓKMENNTIR IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIM ................III............................. SOGU-ATLAS fslenskur Sögu-Atlas I. bindi. Frá önd- verðu til 18. aldar. Ritstjórar: Árni Daníel Júlíusson, Jón Ólafur fsberg, Helgi Skúli Kjartansson. Almenna bókafélagið - Reykjavík 1989. Um tveir tugir höfunda standa að þessu riti. Höfundar texta, korta- gerðar, höfundar mynda og mynd- rita. Verkstjórn hefur Hörður Sig- urðarson annast. í inngangi segir að „hver opna er. kafli út af fyrir sig“ og er á þann hátt leitast við að „miðla miklum upplýs- ingum á aðgengilegan hátt“ í texta, kortum, uppdráttum og myndum. Höfundar fjalla um myndun landsins, jarðfræði, loftslag og haf- strauma og í upphafi bókar er yfir- litskafli um „Aldir bændasamfélags- ins“ og þar næst „Tímatafla" frá 9. og til loka 18. aldar, þar sem lykil- þættir innlendrar sögu og erlendrar eru settir upp. ísland er numið þegar hinum eig- inlegu þjóðflutningum er lokið í Evrópu og múslímar hafa lagt undir sig hin fornu skattlönd Rómverja í Norður-Afríku og Spán að auki. í Evrópu var Býsansríkið arftaki Rómar ásamt páfaveldinu og ríki Franka. Svo gerist það á 8. öld að ný skipasmíðatækni ryður sér til rúms á Norðurlöndum. Hver ástæðan var er ekki vitað, þótt tilgátur hafi komið fram um orsakir þeirra breyt- inga. Á þær tilgátur er ekki minnst sem ætti þó að vera nærtækt þar sem eru kenningar Barða Guðmundsson- ar. Þær eru að minnsta kosti tilraun til skýringa og eru auk þess mjög athyglisverðar. Ef kenningar Barða um Herúla og valdatöku þeirra í Danmörku og Noregi eiga eftir að sannast þá má skýra margt sem telst frábrugðið um siði og trúarbrögð ætlaðra afkomenda þeirra hér á landi og Austmanna á sama tíma- skeiði. Orð, sem snerta stjómun og hemað, em oft skýrð frá heitinu Herúli eða Emli. En eins og kunnugt er voru Herúlar málaliðar á 5. og 6. öld, komnir frá Svartahafi, þar sem þeir stunduðu sjórán. Kenningar Barða skýra ástæðurnar fyrir vík- inga-fyrirbærinu. En hvað um það, þá leitast höfundar við að finna ástæðurnar í opnukaflanum „Upp- haf víkingaaldar" - 6.-9. öld. Þar er birtur víkingaannáll og kort um strandhögg og verslunarleiðir. Á næstu opnu er fjallað um víkingaöld- ina og þau ríki sem víkingar áttu hlut að að stofna og stofnuðu. Einnig fylgja kort yfir verslunarleiðir þar sem víkingar koma við sögu sem málaliðar, þ.e. Væringjar. Á það kort vantar ferðir Haraldar harðráða Sigurðarsonar sem samtíma býs- anskar heimildir rekja, auk þeirra heimilda sem finna má í Heims- kringlu og Halldórs þætti Snorrason- ar. Haraldur fór með liði sínu til Sikileyjar og Jerúsalem og jafnvel austur að Efrat. Á kortinu yfir verslunarleiðir þar sem merkt eru inn með litum þau lönd sem víkingar námu eða afkom- endur víkinga, er ísland meðal annars. Höfundar kalla að hér á landi hafi verið um „bændaland- nám“ að ræða. Ekki veit ég hvað Snorri hefði sagt um þá nafngift. Á þessu korti er sýnt Normandí og talið að víkingar hafi þar verið yfirstétt. Afkomendur víkinga og víkingar sem námu hér land urðu hér yfirstétt, þótt ekki væri um neina frumbyggja að ræða. Höfundar gera hlut fyrirbrigðisins „frjálsir bændur" mikinn hér á landi og segja að samfélagsskipunin hafi „verið í meg- inatriðum þannig að fjölmenn stétt frjálsra bænda var ráðandi" (Opnan: Goðar og samfélag.) Þessar staðhæf- ingar stangast heldur en ekki á við þær heimildir sem til eru um stofnun Alþingis 930. Um goða og goðorð eru uppi margvíslegar skoðanir. Á þessari opnu segir: „Goðar voru forstöðumenn blóta, heiðnir prestar Að vera „forstöðumenn blóta" var meira á borði en í orði. Sam- kvæmt þeim kristnu heimildum, sem skráðar voru 200-300 árum eftir landnámið, má marka hina stórkost- legu þýðingu sem fylgdi stöðu goðans. Hann var nánastur guðun- um og goðaættum fylgdi heill og gæfa. Blótin voru hvorki meira né minna en framkvæmd sáttmála goða og manna, „blóta til árs og friðar". Það er mikið gert af því að sleppa úr þýðingu hinna fornu trúarbragða og þótt þau stæðu reyndar hallt fyrir kristninni, jafnvel úti hér, þá mótað- ist meðvitund goðanna og „hinna frjálsu bænda“ mjög af þeim. (Má skírskota hér til Dumezil, hins kunna höfundar um trúarbrögð og meðvitund indóevrópa.) Á þessari opnu er sú staðhæfing sett fram að „tekjuvon goða var framan af helst sú að standa í málaferlum fyrir skjólstæðinga sína“. Tekjur goðanna voru af jarð- eignum og búskap sem rekinn var með þrælahaldi. I sambandi við þá staðhæfingu má minna á hin stór- kostlegu mannvirki sums staðar á landinu, garðana, sem mikinn fjölda verkamanna hefur þurft til að hlaða. „Garðurinn", garðahleðslur í hlíð- um dala á Norðurlandi, garðurinn í Hrísey og garðhleðslur í Dölum. Á opnunni „Stjórnkerfið" glittir í þá hugmynd að Alþingi hafi verið stofn- að „eignarréttinum til verndar". Hin fornu þing fyrir stofnun allsherjar- þings dugðu ekki til þess að halda uppi lögum og reglu innanlands. Það var því tilraun til samhæfðrar lög- gjafar- og dómssamkomu sem gafst vel. Opnurnar um Kristnitökuna, Kirkjuna, Erlend menningaráhrif og Kirkjugoðaveldi, Þorlák helga og Guðmund góða eru skrifaðar af skynsamlegu viti. Eitt er þó athuga- vert, sem er að aðdáun almúga á Guðmundi góða hafi verið af ein- hvers konar stéttrænum toga, andúð á auknu valdi og auðsöfnun höfð- ingja. Það var fyrst og fremst trú á kraftaverk og ölmusugæði hans sem dró almúgann að honum og auk þess átti Guðmundur fjölda aðdáenda meðal höfðingja. Talsvert eftir kristnitöku tekur valdajafnvægið að raskast í íslensku samfélagi og komu þar til tíundar- lögin, eins og höfundar sýna fram á. Löggjafarvaldið, þ.e. goðar og þing- fararkaupsbændur, tryggðu ekki þetta valdajafnvægi með lögum. Á opnunni „Farvegir bókmennt- anna“ er yfirlit um íslenskar mið- aldabókmenntir og þar er birt mynd af þróun og uppruna íslenskra bók- mennta sem höfundar vilja rekja stéttlægt. Samkvæmt þessari saman- tekt eru vissar greinar bókmennta runnar frá klerkum, aðrar frá höfð- ingjum og þriðju frá því fyrirbrigði sem höfundar nefna „alþýðu". Þarna glittir í þann mikla misskilning að ströng stéttaskipting hafi einkennt ísienskt samfélag á þessum tímum og lykillinn að öllum sögulegum skilningi sé stéttabaráttan. Slíkar hugmyndir eru ákaflega vafasamar í samfélagi sem taldi e.t.v. 80.000 íbúa. Auk þess sem menningarleg stéttaskipting viðgekkst ekki hér á landi. Því er þessi myndsamantekt rugl að mestu leyti, nema hvað klerkar hafa skrifað um kirkju og trúarleg efni, en einnig um veraldleg efni. Næstu aldirnar - opnurnar - eru nokkurn veginn hin hefðbundna frásögn sem er lífguð myndum og uppdráttum og einnig hagfræðileg- um upplýsingum í myndum. Á opn- unni „Gósseignir á 14.-15. öld“ er fjallað lítillega um kúgildaeigur eftir svartadauða og þar er þessi klausa: „Upp úr 1400 færðist í vöxt að kirkjustofnanir eða eignamenn leigðu landsetum sínum kvikfé. Þetta stafaði af því að landeigendur urðu æ ríkari að fé og þurftu að finna nýjar leiðir til að nýta það.“ Eftir svartadauða fór fjöldi jarða í eyði vegna mannfallsins og því fór fjarri að landeigendur yrðu ríkari að fé við slíkar aðstæður þegar margar jarða þeirra fóru í eyði. Vegna þessa var reynt að fá fólk til að byggja eyðijarðir með því að láta kúgildi fylgja. Það varð leigulið- um akkur og hagur landeigenda að byggja eyðijarðir. Þótt ýmsir ein- staklingar eignuðust fjölda jarða við arf eftir pláguna, þá gaf eyðijörð engar tekjur, svo að þeir urðu lítt ríkari að fé. Aftur á móti jókst fjárvon þeirra með auknum útvegi þegar langt var liðið á 15. öld. Opnan „lslensk myndlist 10.-16. öld“ er góður kafli og þar er komið til skila efni sem ekki hefur verið sinnt í yfirlitsritum í íslenskri sögu. Höfundar fjalla um Evrópu- og Dan- merkursögu þar sem hún snertir atburðarásina hér á landi og þeim er greinilega ljóst að Danmörk var höfuðborg íslands og einnig að þar voru höfuðstöðvar íslenskrar menningar þegar líður á aldir. Kafl- arnir um jarðabókina og manntalið 1703 eru sjálfsagðir en það er ekki eins sjálfsagt að tyggja upp undan- tekningar á leigumáta, svo sem hjá frúnni í Bæ á Rauðasandi sem notaði aðferðir sem stungu algerlega í stúf við eðlilegan leigumáta íslenskra landeigenda. Á þessari undantekn- ingu er einnig hamrað sem venjuleg- um leigumáta í einhverri verstu íslandssögu sem út hefur komið, sem er „Kjör fólks á fyrri öldum“, og er auðvitað notuð sem kennslu- bók í grunnskólum. Umfjöllun höf- unda um einokunarverslunina orkar tvímælis, einkum varðandi verðlagn- ingu á fiski. Hvað hefði gerst ef fiskur hefði hækkað mjög í verði? Menn skyldu athuga að fiskur var höfuðfæða íslendinga á þeim öldum. Höfundar gera Innréttingunum og jarðræktartilraunum ekki nægileg skil, en það eru merkustu tilraunir sem gerðar voru landinu til viðrétt- ingar. Fjöldi kafla um menningu, hag landsmanna, atburði og kirkju er að finna á þessum fróðlegu opnum, ásamt myndefni. Þetta er glæsileg bók, þótt textinn virðist stundum markaður söguskoðun sem hefur leitt margan mann til fáránlegra staðhæfinga og að því er virðist lokað fyrir öll skilningarvit varðandi liðna tíð. Almenna bókafélagið gefur þetta rit út. Það bókmenntafélag var upp- haflega stofnað sem andsvar við þeim áhrifum sem virðast því miður vera forteikn vissra kafla þessarar bókar, marxískrar söguskoðunar. Og bókin kemur út þegar þjóðir sem búið hafa við uppfræðslu af þessu tagi í 40 ár eru að banna frekari útlistanir þessarar stefnu, bæði í söguritun og samfélagi. Siglaugur Brynleifsson llllllllllillllllllllllllll VIDSKIPTALIFID lllllllllllllllllllllllillllllllllllllllllllllllllllllllllllllllillllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll FJÁRHYGGJAN „Það sem að vanda hefur verið nefnt kenningin um verðáhrif pen- inga ... er nú nefnt fjárhyggja (mon- etarism),“ ritaði Milton Friedman 1971. Þannig kveður Friedman fjár- hyggjuna ekki vera viðbrögð við verðbólgu sjötta og sjöunda ára- tugarins né kenningum J.M. Keynes, eins og oft er gefið í skyn. Samkvæmt fjárhyggjunni varða tök seðlabanka á magni peninga höfuð- máli við mótun og framfylgd stefnu í efnahagsmálum. Kenningin um verðáhrif peninga- magns verður rakin aftur til 16. aldar, ýmist alla leið til Salamanca- skólans eða til franska lögfræðings- ins Jean Bodin. Ricardo tók hana upp, en Adam Smith hafði sett henni fyrirvara. í klassískri hagfræði var vænst fullrar nýtingar vinnuafls og framleiðslutækja og verðlags í hlutfalli við peningamagn að öðru óbreyttu. í heimskreppunni, sem hófst 1929, virtist gangur mála ekki verða sam- ræmdur kenningunni um verðáhrif peninga, því að lítt sagði til aukning- ar peningamagns í Bandaríkjunum og í öðrum löndum. Dró J.M. Keynes af því lærdóma í Alhlítu kenningunni um atvinnu, vexti og peninga 1936. Nýju lífi var blásið í kenninguna um verðáhrif peninga eftir útkomu Studies in the Quantity Theory of Money, safni ritgerða eftir Milton Friedman og fjóra aðra hagfræðinga, útgefnu af forlagi háskólans í Chic- ago. Fjölluðu þeir m.a. um veikasta hlekk kenningarinnar, veltuhraða peninga, en Milton Friedman kvað hana eiginlega vera kenningu um eftirspurn eftir peningum. Annan veikan hlekk í kenningunni ræddu höfundar líka: Hve fljótt eða seint segir til breytinga á peningamagni? í hinni miklu bandarísku peninga- sögu, A Monetary History of the United States, sem Milton Friedman samdi ásamt Anna J. Schwartz og út kom 1963, töldu þau sig sýna fram á að tilsvarandi breytingar á peninga- magni hafi jafnan farið á undan vendipunktum útþenslu og sam- dráttar í hagsveiflum, en mislangt þó, að jafnaði 16 mánuðum í upp- sveiflu og 12 mánuðum í samdrætti. Af eigin athugun og annarra dró Milton Friedman þessar ályktanir: Hagfræðingum gengur illa að sjá 1 ár eða lengra fram í tímann; sveigj- anleg stefna í peningamálum er þess vegna líkleg til að valda efnahags- legri röskun (öðru fremur); viðhafa þarf þannig hægan, viðvarandi vöxt peningamagns. Seðlabanki Bandaríkjanna setti aukningu peningamagns fyrsta sinni mark 1970, skömmu eftir að Arthur Burns varð aðalbankastjóri hans. Þótti það sýna vaxandi áhrif fjár- hyggju í Bandaríkjunum. Sfðustu tvo áratugi hafa fjárhyggjumenn haf- ist til áhrifa í bandarískum háskól- um, í stórfyrirtækjum og í seðla- bankanum, þótt síðustu fimm ár hafi áhrif þeirra verið dvínandi. Fáfnir

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.