Tíminn - 06.03.1990, Blaðsíða 4
4 Tíminn
Þriðjudagur 6. mars 1990
FRÉTTAYFIRLIT
WASHINGTON - Leiðtog-
ar bandarískra Gyðinga sök-
uðu Helmut Kohl kanslar Vest-
ur-Þýskalands og aðra leið-
toga Vesturlanda um að leiða
hjá sér hin bitru örlög Gyðinga
í Evrópu á nasistatímanum og
þeirra hörmungasem Þjóðverj-
ar kölluðu yfir Evrópu á þeim
tíma í asanum við að sameina
Þýskaland.
H ARARE - Leiðtogi blökku-
mannasamtakanna PAC hafn-
aði áskorun Nelsons Mandela
um viðræður við hvíta menn í
Suður-Afríku og sagði að til-
raunir Mandela til að sameina
blökkumenn í Suður-Afríku
væri tímasóun.
BONN - Helmut Kohl kansl-
ari Vestur-Þýskalands náði
ekki samkomulagi í ríkisstjórn
sinni um afstöðuna til Póllands.
Kohl vill halda til streitu landa-
mærum Þýskalalands og Pól-
lands frá því fyrir strið, en ekki
eru allir meðlimir stjórnarinnar
honum sammála. Pólvenar
fengu í sinn hlut vænarsneioar
Þýskalands eftir stríðið.
WASHINGTON - Stjórn
völd í Bandaríkjunum hvöttu
írana um að taka upp beinar
viðræður um skilyrðislausa
lausn vestrænna gísla í Líban-
on. Tóku Bandaríkjamenn
skýrt fram að engar leynilegar
viðræður færu nú fram, né
myndu fara fram um lausn
bandarískra gísla.
PRAG - Utanríkisráðherra
Varsjárbandalagsins munu
hittast að máli í Prag rétt áður
en kosningar í Austur-Þýska-
landi fara fram.
WASHINGTON - Réttar-
höld yfir John Pointdexter fyrr-
um öryggisráðgjafa Ronalds
Reagans og yfirmanns Oliver
Norths eru nú að hefjast, en
dómstólar reyna nú að finna
hlutlausan kviðdóm til að
dæma í málinu. Pointdexter er
sakaður um glæpsamlegt at-
hæfi í tengslum við svokallað
iran-Kontramál.
MANAGVA - Borgarastyrj-
öld og öngþveiti mun ríkja í
Níkaragva ef komandi ríkis-
stiórn Chamorros mun reyna
að leysa upp her og lögreglu
Sandínista í landinu.
DALLAS - Vísindamenn
segja að svokölluð drápsbý-
fluga sé nú á leið yfir landa-
mæri Texas.
Illllllil ÚTLÖND IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIM ..............Illlllllll...................
Róttækir umbótasinnar unnu góða sigra í kosningum til þinga sovétlýðveldanna Rússlands, Hvíta-Rússlands og Úkraínu. Boris Jeltsin leiðtogi hinna
róttæku sigraði með miklum yfirburðum í sínu kjördæmi.
Kosið til þinga og sveitarstjorna sovetlyðveldanna Russlands. Hvita-Russlands og Ukrainu:
Róttækir umbótasinnar
vinna ótvíræðan sigur
Róttækir umbótasinnar sigruðu glæsilega í kosningum til
þinga Rússlands, Hvíta-Rússlands og Úkraínu á sunnudag-
inn, auk þess sem hlutur umbótasinna ■ sveitarstjórnum
virðist ætla að verða stór.
Rán og gripdeildir í kjölfar valdaráns
í heimalandinu Ciskei:
Her Suður-Afríku
sendur til Ciskei
Ríkisstjórn Suður-Afríku sendi
herlið inn í heimaland Ciskei ætt-
bálksins í Suður-Afríku til að stöðva
átök og gripdeildir sem urðu í kjölfar
þess að hinum óvinsæla forseta
heimalandsins Lennox Sebe var
steypt af stól.
-Forgangsverkefnið er að koma á
lögum og reglu að nýju, síðan mun-
um við huga að því hvort við viður-
kennum nýja ríkisstjórn Ciskei,
sagði Pik Botha í Höfðaborg í gær.
Mannfjöldi er styður valdarán
hins fámenna varnarliðs Ciskei hafði
ráðist að verslunum sem tengdust
Sebe forseta og hans nánustu.
Heimildarmenn í höfuðborginni
Bisho töldu menn að á milli fimmtíu
og sextíu verksmiðjur og hundruð
verslana stæðu í Ijósum logum víðs
vegar um Ciskei.
Pik Botha sagði að afstaða ríkis-
stjórnar Suður-Afríku til nýrrar
ríkisstjórnar í Ciskei myndi ráðast af
því hvort almenningur, lögregla og
opinberir starfsmen styddu stjórn-
ina. Sagði hann gögn leyniþjónust-
unnar benda til að svo væri.
Hins vegar skýrði Botha einnig frá
því að Sebe hefði haft samband við
ríkisstjórn Suður-Afríku og tilkynnt
að hann hygðist brátt koma heim
ður viðskiptaför sem hann er í Hong
Kong og taka við völdunum að nýju.
Hafði Sebe farið fram á það við
Suður-Afríkistjórn að hún berði
uppreisnina niður, en því hefði ekki
verið sinnt.
íbúar í Ceskei segja að verksmiðj-
ur þær sem kveikt hafði verið í væru
flestar í eigu kaupsýslumanna í Tæv-
an og í ísrael, en þeir hafa byggt
verksmiðjur í heimalandinu vegna
þess hve skattar eru lágir og vinnuafl
ódýrt.
Ciskei er eitt tíu svokallaðra
heimalanda sem ríkisstjórn Suður-
Afríku hefur komið á fót í anda
aðskilnaðarstefnu sinnar. Þar ríkja
ríkisstjórnir blökkumanna sem í
raun eiga allt sitt undir Suður-Afr-
íku, enda geta löndin ekki staðið á
eigin fótum sem efnahagslega
sjálfstæð, heldur fá þau styrki frí
ríkisstjórn Suður-Afríku.
Hefur mikill órói verið í heima-
löndunum frá því Nelson Mandela
leiðtoga Afríska þjóðarráðsins var
sleppt úr haldi í síðasta mánuði.
Afríska þjóðarráðið viðurkennir
ekki heimalöndin heldur berst fyrir
einni Suður-Afríku þar sem hver
maður hefur eitt atkvæði.
Það var Oupa Gquso liðsforingi í
varnarliði Ceskei sem leiddi valda-
rán varnarliðsins og hefur hann kom-
ið á fót fjögurra manna herforingja-
stjórn. Sagðist hann ætla að sækja
eftir því að sameinast Suður-Afríku
að nýju.
Eru kosningaúrslitin mjög í anda
kosningaúrslitanna í Eystrasaltsríkj-
unum þegar fulltrúar Þjóðfylking-
anna unni glæsta sigra.
Boris Jeltsin hinn róttæki umbót-
asinni og nokkrir fyrrum pólitískir
fangar eru á meðal þeirra sem munu
taka sæti á þingum þessara þriggja
sovétlýðvelda.
Þrátt fyrir góðan árangur umbóta-
sinna var ekki skorið úr um nema
um 20% þingsæta, því samkvæmt
kosningareglum í Sovétríkjunum
þarf einn einstakur frambjóðandi að
hljóta helming atkvæða til að ná
kjöri. Því verða kjósendur í mörgum
kjördæmum að ganga til kjörborðs-
ins að nýju eftir tvær vikur, en þá
mun vera kosið á milli þeirra tveggja
Skæruliðahreyfingin UNITA í
Angóla fór í gær fram á vopnahlé í
landinu og viðurkenndu skæruliðar í
fyrsta sinn að þeir færu halloka fyrir
herjum marxistastjórnarinnar. Hörð
borgarastyrjöid hefur geisað í Ang-
óla undanfarin 15 ár. Hefur löngum
nokkurt jafnræði verið á með skæru-
liðum hinnar hægrisinnuðu Unita-
hreyfingar sem notið hefur dyggs
stuðnings ríkisstjórna Suður-Afríku
og Bandaríkjanna, og herja marx-
istastjórnarinnar í Angóla sem notið
hafa stuðnings 40 þúsund hermanna
frá Kúbu.
Það var Jónas Savimbi leiðtogi
Unita sem skýrði frá því á útvarps-
ávarpi á útvarpsstöð skæruliða að
Unitahreyfingin myndi samþykkja
vopnahlésskilmála þá sem Mobutu
Sese Seko forseti Zaire hefur lagt
fram. Hins vegar setur Savimbi það
skilyrða að stjórnarherinn hverfi frá
þeim landssvæðum sem hann hefur
náð af skæruliðum í bardögum
undanfarna tvo mánuði. Er það
bærinn Mavinga hvað mikilvægast-
frambjóðenda sem flest atkvæði
hlutu í kosningunum á sunnudaginn.
Kjósendur í þessum þremur
sovétlýðveldum fengu nú í fyrsta
sinni að velja á milli frambjóðenda
frá öðrum stjómmálasamtökum en
kommúnistaflokknum. í síðustu
sveitarstjórnarkosningum fengu þau
óháðir kjósendur að bjóða sig fram.
Mikhaíl Gorbatsjof forseti Sovét-
ríkjanna sagði á sunnudaginn að
kosningarnar væri mælistika fyrir
fyrir perestrojku.
Sigur Boris Jeltsins vann einstak-
lega góðan kosningasigur. Hann
hlaut um 80% atkvæða þó hann etti
kappi við ellefu aðra frambjóðendur
í borginni Sverdlovsk í Rússlandi.
ur, en sá bær hefur ætíð verið á valdi
skæruliða Unita og gegnt lykilhlut-
verki í baráttu þeirra.
- Ég er reiðubúinn til að undirrita
vopnahlé ef hersveitir ríkisstjórnar-
innar munu kalla herlið sitt til fyrr
stöðva sinna, sagði Jónas Savimbi og
bætti við að stjómarherinn hefði
Mavinga á haldi sínu. Savimbi mun
hafa særst í loftárásum stjórnarhers-
ins á höfuðstöðvar Unita í Jamba
24.febrúar.
Savimbi leggur til að í kjölfar
vopnahlés verði mynduð ný sam-
steypustjórn í Angóla sem undirbúi
frjálsar kosingar. Leggur hann til að
Joaquim Pinto de Andrade, leiðtogi
nýstofnaðrar stjórnmálahreyfingar í
Angóla sem hvorki styður ríkisstjórn
Jose Eduardos dos Santos forseta
Angóla né Unitahreyfingu Savimbis,
verði leiðtogi nýrrar ríkisstjórnar.
Dos Santos hefur nýlega boðið
vopnahlé og að fleiri aðilar taki sæti
í ríkisstjórn hans, þar með taldir
fulltrúar Uita, en Savimbi hefur ekki
vilja taka slíkt í mál.
Angóla:
UNITA vill vopnahlé