Tíminn - 16.03.1990, Qupperneq 14

Tíminn - 16.03.1990, Qupperneq 14
14 Tíminn Föstudagur 16. mars 1990 Félagsmálaskóli Framsóknarflokksins GÍBSur Péturss. Þórður Ingvi Helgi Péturss. Egill Hciðar Jón Helgaeon Bolli Héðinaaon Áalaug Biynjólfsd. Jón Krifltjánflfl. Sigurður Geirdal Halldór Áflgrimfls. Sigrún Magnúsd. Guðm. Bjarnason Hermann Sveinbjörngs. Steingrímur Hermannss. Ásta R. Jóhannesdóttir Dagskrá: Mánudagur 19. mars Kl. 20:00 Sctning Gissur Pétur8son, form. SUF Kl. 20:15 Stjórnsýslan - uppbygging Þórður Ingvi Guðmundsson, stjórnsýslufr. Kl. 21:30 Fjölmiðlar og stjórnmál Helgi Pétursson, fjölmiðlafræðingur Miðvikudagur 21. mars Kl. 20:00 Félagsstörf • fundarsköp Egill Heiðar Gíslason, fulltrúi Kl. 21:30 Landbúnaður ■ framtíð Jón Helgason, alþingismaður Fimmtudagur 22. mars Kl. 20:00 Efnahagsmál - hagstjórnartœkni Bolli Héðinsson, efnahagsráðgj. ríkisstj. Kl. 21:30 Menntakerfið - vakandi eða sofandi Áslaug Brynjólfsdóttir, fræðslustjóri Mánudagur 26. mars Kl. 20:00 Umhvcrfísmál • málefni framtíðar Hermann Sveinbjörnss.on aðstoðarmaður sjávarútvegsráðherra Kl. 21:30 Alþjóðastjórnmál - þróun Ásta R. Jóhannesdóttir, form. utanríkismálan. Framsóknarflokksins Miðvikudagur 28. mars Kl. 20:00 Framsóknarflokkurinn • innra starf Sigurður Geirdal, framkvæmdastjóri Framsóknarflokksins Kl. 21:30 Stjórn fískveiða • framtíð sjávarútvegs Halldór Ásgrimsson, sjávarútvegsráðherra Fimmtudagur 29. mars Kl. 20:00 Heilbrigðiskerfíð óbreytanlegt? Guðmundur Bjarnason, heilbrigðisráðherra Kl. 21:30 Sveitarstjórnamál - nánasta umhverfið Sigrún Magnúsdóttir, borgarfulltrúi Sunnudagur 1. apríl Kl. 14:00 Skoðunarferð um Alþingi starf þess og uppbygging Jón Kristjánsson, alþingismaður Kl. 16:00 Stjórnmál framtíðarinnar ísland framtíðarinnar Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra Kl. 18:00 Afhending skírteina - skólaslit Skróning þátttakenda fer fram í síma 91-24480 hjá Agli Heiðari eða Þórunni Guðmundardóttur. Námskeiðsstaður: Nóatún 21, Reykjavík Fegurðardrottningar, fegurðarstjórí og lögreglulið í stuði. Þrítugur söngleikur endurreistur I jámum. Þórír Jónsson í gervi Stefáns veitingamanns ræðir málin við strokufangann Skarphéðinn Nielsen (Bjama Áskelsson). Rjúkandi ráð í Logalandi, Reykholtsdal. Ærslasöngleik- ur eftir Jón Múla, Stefán Jóns- son og Jónas Ámason í nýj- um búningi. Leikstjóri: Flosi Ólafsson. Mikil gróska hefur löngum verið í leikstarfseminni í Reykholtsdal og má segja að þar hafí áratugum saman verið regla að færa upp leiksýningu árlega. Nú dregur að næstu frumsýn- ingu. Verkið sem tekið verður til flutnings í ár er ærslasöngleikurinn Rjúkandi ráð en höfúnda þess verks hefúr hingað til aðeins verið getið undir dulnefninu Pír Ó. Man. Nú er það upplýst að höfúndar Rjúkandi ráðs eru þríeykið Stefán Jónsson, rithöfúndur og fv. alþingis- maður, Jónas Amason, rithöfúndur og fv. alþingismaður, og Jón Múli Ámason sem er höfundur söngva og tónlistar. Fmmsýning á Rjúkandi ráði er ráð- gerð í Logalandi laugardaginn 17. mars. Leikstjóri er Flosi Ólafsson og hef- ur hann fært verkið í nýjan hátíðar- búning af tilefni þess að í ár em liðin þijátíu ár síðan verkið var fyrst frum- sýnt en það var í Framsóknarhúsinu haustið 1959. Þar var verkið sýnt við fádæma vin- sældir veturinn 59-60 og má til gam- ans geta þess að aðalhlutverkin í þeirri uppfærslu vom í höndum Kristins Hallssonar, Erlings Gísla- sonar, Sigurðar Ólafssonar og Stein- unnar Bjamadóttur, svo nokkrir séu nefndir. Þar kom Svanhildur Jakobs- dóttir fram í fyrsta skipti, hljómsveit- arstjóri var Magnús Ingimarsson og leikstjóri Flosi Ölafsson. Nú hefur rykið verið dustað af þess- um þrítuga ærslasöngleik, hann færð- ur í búning við hæfi og bætt í hann skírskotun til dagsins í dag svo hann svari kröfum samtímans og æfa Reykdælingar af kappi undir leik- stjóm Flosa. Hljómsveitarstjóri er Guðmundur Norðdal. Rjúkandi ráð er ærslasöngleikur og gæti svo sem allt eins kallast revía þar sem í söngleiknum er tekið á ýmsu sem efst er á baugi í dag, svo sem fegurðarsamkeppnum, atferli ut- angarðs- og reikunarmanna, atgervi lögreglumanna og umsvifúm vík- ingasveitarinnar og ffamtaki þeirra sem hagnast á því að allt brenni til kaldra kola. Kvenleg fegurð skipar veglegan sess í verkinu, svo og ástin sem er sterkasta aflið, jafnvel sterkari en hnefinn, sem brýtur manni braut. Hlutverk lögreglunnar í verkinu er það helst að verja fegurðardísimar, hafa hendur í hári strokufanga og gæta þess að atkvæðakassinn lendi ekki í höndunum á lögreglunni í Borgamesi og týnist þar. Segja má því að verkið eigi brýnt er- indi til þjóðarinnar. Jónas Ámason, rithöfúndur og söngvari á Kópareykjum, mun í þess- ari uppfærslu á Rjúkandi ráði flytja milliþáttahugleiðingu — intermezzo — svo og Ragna Bjamadóttir ópem- söngkona. Hlutverk era í höndum þeirra sem af miklum krafti hafa haldið uppi öfl- ugri leiklistarstarfsemi í Reykholts- dal um langt skeið að ógleymdum fjölmörgum nýjum andlitum. Leikendur era: Armann Bjamason, Bima Jónasdóttir, Bjami Áskelsson, Þórir Jónsson, Þorvaldur Jónsson, Magnús Magnússon, Guðbjörg Þor- steinsdóttir, Steinunn Garðarsdóttir, Gunnar Bjamason, Hreftia Sigmars- dóttir, Sjöfn Vilhjálmsdóttir, Embla Guðmundsdóttir, Gíslína Jensdóttir og Þorsteinn Pétursson. Aðspurður segir leikstjórinn að þetta sé dæmigerður ærslaleikur, púra della, klassísk að vísu, og öðra ffemur til þess ætluð að koma fólki í gott skap með hækkandi sól. í verk- inu sé að vísu tekið á ýmsum samfé- lagsvandamálum dagsins í dag en vonandi „skilji það ekkert eftir“ nema kátínuna eina. Verkið verður eins og áður segir ffumsýnt í Logalandi í Reykholtsdal 17. mars nk. Önnur sýning verður á þriðjudag 20. mars og þriðja sýnúig laugardaginn 24. mars.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.