Tíminn - 24.04.1990, Blaðsíða 15
Tíminn 15
Þriðjudagur 24. apríl 1990
Körfuknattleikur - NBA-deildin:
Vinningstölur laugardaginn
21. apríl ’90
10 milljón kr. sekt
-Charles Barkley, Bill Lambier, Isiah Thomas og
félög þeirra og leikmenn fengu háar sektir eftir
einhver mestu slagsmál í sögu NBA- deildarinnar.
Einhver mestu slagsmál, sem
um getur í NBA-deildinni frá
upphafi brutust út á laugar-
daginn, þegar Philadelphia
‘76ers mætti meisturunum
Detroit Pistons í Detroit
Upphafið átti Bill Lambier, er hann
setti boltann í andlitið á fyrrum félaga
sínum og hinum helmingnum af
„Bad Boys“-genginu, sjálfum Rick
Mahom. Charles Barkley félagi Ma-
homs var ekki sáttur við ffamkomu
Lambiers og sló hann í gólfið. Áður
en yfir lauk, voru allir leikmenn
beggja liðanna komnir inná völlinn
og tóku þátt í slagsmálunum. Áhorf-
endur tóku einnig þátt í látunum og
Barkley fékk vel útilátið högg á and-
litið frá einum Pistons áhangenda.
Síðast sást til Barkleys, er hann hljóp
á eftir áhorfandanum upp í stúku!
Yfirmenn NBA-deildarinnar tóku
hart á þessum ólátum og sektimar
námu alls yfir 10 milljónum króna.
Hvort lið fékk rúmlega 3 milljón kr.
sekt. Barkley og Lambier þurfa að
greiða um 1,2 milljónir og Isiah
Thomas um hálfa milljón. Þar að
auki vom allir aðrir leikmenn liðanna
sektaðir um rúmlega 300 þúsund
krónur. Barkley og Lambier fengu að
auki eins leiks bann, sem þeir tóku út
á sunnudagskvöld.
Riðlakeppninni í NBA- körfúknatt-
leiksdeildinni bandarisku lauk einmitt
á sunnudagskvöldið. Houston Roc-
kets náði að tryggja sér sæti í úrslita-
keppninni með 100-88 sigri á Utah
Jazz. Á sama tíma tapaði Seattle Sup-
er Sonics fyrir Golden State og missti
af sæti í úrslitunum.
San Antonio Spurs tryggði sér sigur
í miðvesturriðli vesturdeildarinnar
með 108-93 sigri á Phoenix Suns, þar
sem Utah tapaði.
Þá vakti það mikla athygli, að lið
Atlanta Hawks með allar sína stjöm-
ur, Dominique Wilkins, Moses Mal-
one, Doc Rivers og dollaragrínið Jon
Koncak, komst ekki í úrslitakeppn-
ina. í þeirra stað komst lið Indiana
Pacers í úrslit eftir 127-117 sigur á
Washington Bullets.
Urslitin á sunnudagskvöld urðu
þessi:
Cleveland C.-New York Knicks 115-99
Detroit Pistons-Chicago Bulls 111-106
Boston Celtics-Philadelphia 118-98
San Antonio Spurs-Phoenix Suns 108- 93
Indiana Pacers-Washington B. 127-117
Denver Nuggets-Minnesota T.w. 115- 108
Golden State Warr.-Seattle S. 124- 122
Orlando Magic-New Jersey Nets 110-102
Dallas Mavericks-Charlotte H. 118-107
Houston Rockets-Utah Jazz 100-88
Portland Trail Bl.-L.A.Lakers 130-88
Lokastaðan í deildinni varð þessi;
leikir, sigrar, töp og vinningshlutfall:
Austurdeildin:
Atlantshafsriðill
82 53 29 64,6
82 52 30 63,4
82 45 37 54,9
82 31 51 37,8
82 18 64 22,0
82 17 65 20,7
82 55 27 67,1
82 44 38 53,7
82 42 40 51,2
82 42 40 51,2
82 41 41 50,0
82 18 64 22,0
Philadelphia ‘76ers
Boston Celtics
New York Knicks
Washington Bullets
Miami Heat
New Jersey Nets
Miðriðill
Detroit Pistons 82 59 23 72,0
Chicago Bulls
Milwaukee Bucks
Cleveland Cavaliers
Indiana Pacers
Atlanta Hawks
Orlando Magic
Vesturdeildin:
Miðvesturriðill
San Antonio Spurs 82 56 26 68,3
UtahJazz 82 55 27 67,1
Dallas Mavericks 82 47 35 57,3
Denver Nuggets 82 43 39 52,4
Houston Rockets 82 414150,0
Minnesota Timberwolves 82 22 60 26,8
Charlotte Homets 82 19 63 23,2
Kyrrahafsriðill
Los Angeles Lakers 82 63 19 76,8
Portland Trail Blazers 82 59 23 72,0
Phoenix Suns 82 54 28 65,9
Seattle Supersonics 82 41 41 50,0
Golden State Warriors 82 37 45 45,1
Los Angeles Clippers 82 30 52 36,6
Sacramento Kings 82 23 59 28,0
Eftirtalin lið mætast í úrslitakeppn-
inni:
Austurdeildin:
Detroit Pistons-lndiana Pacers
Philadelphia ‘76ers-Cleveland Caval.
Chicago Bulls-Milwaukee Bucks
Boston Celtics-New York Knicks
Vesturdeildin:
Los Angeles Lakers-Houston Rockets
Portland Trailbl.-Dallas Mavericks
San Antonio Spurs-Denver Nuggets
Utah Jazz-Phoenix Suns
Skíðamót Islands:
Asta og Ornólfur
sigruðu í svigi
Ömólfur Valdimarsson frá Reykja-
vík sigraði í svigi karla á Skíða-
landsmótinu, sem haldið er í Blá-
fjöllum. I kvennaflokki sigraði Ásta
S. Halldórsdóttir ísafirði.
Valdimar Valdimarsson frá Akur-
eyri varð annar í svigi karla og
Haukur Amórsson, Reykjavík, varð
þriðji. Ömólfúr náði 1 sekúndu betri
tíma samanlagt úr báðum umferðun-
um en Valdimar, en 3/10 úr sek.
munaði á þeim Valdimar og Hauki.
Ásta vann yfirburða sigur í kvenna-
sviginu, náði rúmlega 3 sekúndum
betri tima en Guðrún H. Kristjáns-
dóttir ffá Akureyri, sem varð önnur.
María Magnúsdóttir var ekki í vand-
ræðum með að tryggja sér þriðja
sætið.
Boðganga karla
A-sveit Akureyrar sigraði í 3x10
km boðgöngu karla í gær, kom í
mark á 1:47,14 klst. A-sveit Ólafs-
fjarðar varð í öðru sæti á 1:47,34
klst. Það munaði því ekki miklu á
þessum sveitum. Nokkuð á eftir Ak-
ureyringum og Ólafsfirðingum kom
sveit Siglufjarðar í mark í 3. sæti á
1:56,56 klst.
BL
Rick Mahorn og Bill Lambier „Bad
Boys“ meðan Mahorn var enn hjá
Detroit
BÍLALEIGA
með útibú allt í kringum
landið, gera þér mögulegt
að leigja bíl á einum stað
og skila honum á öðrum
Reykjavík
91-686915
Akureyri
96-21715
Pöntum bíla erlendis
interRent
Europcar
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA
1. 5af 5 2 2.875.468
2. aTM 10 58.263
3. 4 af5 276 3.641
4. 3af5 6.622 354
Heildarvinningsupphæð þessa viku:
9.682.670 kr.
UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI 681511 - LUKKULÍNA 991002
MOBIR/V
TALKMAN
FARSÍMINN
ÁSTÓRLÆKKUÐU
VERÐI!
Þegar menn tala um „alvöru“ farsíma eiga þeir við
Mobira Talkman. Vegna sérlega hagstæðra samninga
við framleiðanda getum við boðið þessi vönduðu tæki á
frábæru verði:
■ AnciMQ _
r96Í36BKR!
3 ára ábyrgð
og ókeypis kaskótrygging.
Til staðfestingar á því trausti sem við berum til Mobira
Talkman bjóðum við 3 ára ábyrgð og jafnlanga
endurgjaldslausa kaskótryggingu gegn skemmdum,
skemmdarverkum og þjófnaði. Enginn annar býður
þessa einstöku þjónustu hér á landi.
hJ£uM.
Ármúla 26, símar: 91 -31500 - 36700
HVÍTA HÚSIÐ / SÍA