Tíminn - 10.05.1990, Side 5
Fimmtudagur 10. maí 1990
Tíminn 5
Sigrún Magnúsdóttir gagnrýnir harðlega aðild Félags ísl. iðnrekenda að vörukynningu Hagkaupa:
Kaupmenn óhressir með
einnar verslunar átak
Magnús Finnsson framkvæmdastjórí Kaupmannasamtakanna
segir það skoðun margra kaupmanna, að kynningarátak Fé-
lags íslenskra iðnrekenda á íslenskum iðnaði, sem hefst í Hag-
kaupum í dag, hygli einni verísun meir en ástæða sé til. Borg-
arstjórnarfulltrúar í Reykjavík tóku þá afstöðu að verða ekki við
óskum um að taka þátt í þessarí kynningu einmitt af þessum
ástæðum.
„Samstarfsverkcftii af þessu tagi á
að vera samstarfsverkefiii Kaup-
mannasamtakanna og Félags ísl. iðn-
rekenda. Það væri hið eðlilega, eigi
átakið á annað borð að vera til hags-
bóta íyrir iðnað, verslun og fólk í
landinu. Svo er ekki í þessu tilfelli og
er að mínu áliti seilst langt út yfir allt,
sem kalla má eðlilega viðskiptahætti
og eru iðnrekendur á alvarlegum villi-
götum,“ sagði Sigrún Magnúsdóttir
borgarfúlltrúi, en Sigrún gagnrýnir
harkalega kynningarátak Félags ísl.
iðnrekenda og Hagkaupa, sem hefst í
dag undir kjörorðinu „Hagkaup á
heimavelli - íslenskir dagar í maí“.
Þann 30. april bámst borgarráðs-
mönnum og borgarfúlltrúum Reykja-
víkur bréf undirritað af Ólafi Daviðs-
syni framkv.stjóra FÍI og Jóni
Asbergssyni forstjóra Hagkaupa. Þar
var greint frá áðumefndu kynningar-
átaki og þess farið á leit, að -“boigar-
fúlltrúar leggi sitt af mörkum til
stuðnings íslenskum iðnaði og versl-
un í landinu." Þetta skyldu þeir gera
með því að aðstoða viðskiptavini
Hagkaupa við að tína vörur ofan í inn-
kaupapoka þann 18. maí n.k.
í bréfinu er ekkert einasta iðníyrir-
tæki nefnt á nafn en Hagkaup hins
vegar átta sinnum. Eftir sameiginleg-
an fúnd allra borgarfúlltrúa og borgar-
stjóra var skrifstofústjóra boigar-
stjómar falið að afboða þátttöku
borgarfúlltrúa.
„Eg tel að iðnrekendur fari þama
mjög villur vegar. í bréfinu stendur,
að kynningin eigi að vera til hagsbóta
verslun í landinu. Eg get ómögulega
séð, að t.d. verslunin á Kópaskeri hafi
nokkum minnsta hag af þessu. Það er
aðeins ern verslun í landinu sem það
hefúr, hún heitir Hagkaup. Átak, sem
á að verða til hagsbóta fyrir íslenskan
iðnað og verslun, getur ekki gengið
undir kjörorðinu Hagkaup á heima-
velli,“ sagði Sigrún ennfremur.
Sigrún er sjálf kaupmaður og hún
kvaðst bæði í því starfi og sem boig-
arfúlltrúi og borgarráðsmaður, alltaf
hafa leitast við að styrkja íslenskan
iðnað. Þetta átak væri þó ekki hægt að
styðja, enda væri hér ekki um annað
að ræða, en að ákveðin verslun væri
að auglýsa sig upp. Óhæfa væri því að
halda fram, að hér væri mál, sem væri
iðnaði, verslun og fólki í landinu til
hagsbóta, því það væri einfaldlega
ósatt.
Magnús Finnsson framkvæmdastjóri
Kaupmannasamtakanna sagði í gær,
að þetta væri í annað sinn, sem Félag
íslenskra iðnrekenda hefði samstarf
við Hagkaup um vörukynningu. Það
leiði óneitanlega til þess, að það fyrir-
tæki fengi mikla umfjöllun og auglýs-
ingu. Atvik eins og þetta hljóti að vera
viðkvæmt í versluninni, sem væri
nánast eina atvinnugreinin á Islandi,
sem einhver samkeppni ætti sér stað í.
Því megi á engan halla, en maigir
kaupmenn teldu óneitanlega, að iðn-
rekendur gerðu það einmitt með
þessu.
„Við teljum, að við séum fyrst og
fremst að kynna þau 70 iðnfyrirtæki,
sem verða með vömr sínar þama. Við
höfum í eitt og hálft ár verið með átak.
Það hefúr að nokkru verið í formi
auglýsinga í sjónvarpi fyrir tvenn síð-
ustu jól. I fyrra vorum við með víð-
tæka kynningu í Miklagarði og sams-
konar kynningu nokkru síðar í
samstarfi við KEA á Akureyri. Þá
höfúm við verið að undirbúa samstarf
við Kaupmannasamtökin, sem hefst
vonandi síðar á árinu, þannig að við
teljum, að við höfúm verið og verðum
í sambandi við mjög stóran hluta af
versluninni. Þessvegna teljum við
ekki rétt að líta á þennan eina atburð
sérstaklega, heldur setja hann í rétt
samhengi - sem er að fá fólk til að
kaupa íslenskar vörur undir kjörorði
okkar; „kaupum íslenskt.“,“ sagði Ól-
afúr Davíðsson ffamkvæmdastjóri
Félags ísl iðnrekenda.
—sá
Ólafur Ragnar vill skipta aðstöðugjaldi Reykja-
víkurborgar á milli allra sveitarfélaga í landinu:
Hvaðan koma
peningar í
borgarsjóð?
50 ár liðin frá
hernámi íslands
Báöir taka hlutverk sitt alvarlega.
í dag eru 50 ár liðin frá því, að Bret-
ar hemámu Island, hinn 10. maí
1940. Þessi atburður markaði að
mörgu leyti þáttaskil í lífi þjóðarinn-
ar og verður hans minnst á ýmsan
hátt. Enn sjást víða minjar í umhverf-
inu eftir þau mannvirki, sem herinn
byggði og í Reykjavík eru þær einna
gleggstar á Öskjuhlíðarsvæðinu.
Árbæjarsafn, Náttúruvemdarfélag
Suðvesturlands og Norræna húsið
minnast þessara atburða í sameiningu
og gangast fyrir gönguferð um
Öskjuhlíð í dag. Herminjar verða
skoðaðar undir leiðsögn Friðþórs Ey-
dal, upplýsingafúlltrúa vamarliðsins.
Safnast verður saman fyrir framan
Keilusalinn í Öskjuhlíð kl. 17.15.
Að göngu lokinni verður farið að
Norræna húsinu, þar sem ljósmynda-
sýningin Hemám og stríðsár á íslandi
verður skoðuð. Aðstandendur sýn-
ingarinnar segja, að hún sé ekki hald-
in af söknuði, heldur til minningar
um að fimmtíu ár em liðin frá ein-
hverjum mesta tímamótaatburði Is-
landssögunnar.
Á sýningunni em ljósmyndir, sem
teknar vom á stríðsámnum á íslandi
1940-1945. Þær sýna m.a. umsvif
hersveitanna hér á landi og samskipti
almennings við hermennina. Mynd-
imar em fengnar að láni frá Ljós-
myndasafni íslands, Þjóðminjasafn-
inu og hjá einkaaðilum. Sýningin er
opin daglega kl. 14-19 til 24.júní.
I tengslum við sýninguna verða
haldnir fyrirlestrar í Norræna húsinu
um síðari heimsstyijöldina. Næstu
laugardagskvöld ætla nokkrir lista-
menn að slá á létta strengi með söng
og leik um stríðsárin. Listamennimir
em Ása Hlín Svavarsdóttir, Edda
Heiðrún Backman, Egill Ólafsson,
Jóhann Sigurðarson og Jóhann G. Jó-
hannsson. —ABÓ
Samkvæmt upplýsingum frá vega-
gerðinni er búið að ákveða, hvar og
hversu mikið verður malbikað á
sumri komanda. Ráðgert er, að mal-
bika tæpa 100 km, sem er með dauf-
asta móti, því að í fyrra vora malbik-
aðir um 150 km og árið áður 256. Það
er því ljóst, að um heilmikinn sam-
drátt er að ræða í malbikunarffam-
kvæmdum.
Sigurgeir Sigurðsson formaður
Sambands íslenskra sveitarfé-
laga segir, að sveitarfélögin hafi
ekki tekið afstöðu tii hugmyndar
Ólafs Ragnars Grímssonar flár-
málaráðherra um að skipta að-
stöðugjöldum Reykjavíkurborgar
upp á milli sveitarfélaganna. Sig-
urgeir segir þessa hugmynd ekki
nýja á nálinni, en hann segir sjálf-
ur ekki rétt að gera svo rótæka
breytingu á tekjukerfi sveitarfélag-
anna nú, þegar nýbúið er að gera
breytingu á verkaskiptingu ríkis
og sveitarfélaga og samþykkja ný
tekjustofnalög.
Ólafur Ragnar telur, að skipta eigi
aðstöðugjöldum Reykjavíkurborgar
upp á milli allra sveitarfélaga í land-
inu. Hugmyndin hefur verið rædd í
ríkisstjóminni, en íjármálaráðherra
kynnti hana á fundi á ísafirði nú í
viku. Hann segir, að nauðsynlegt sé
að umbylta tekjukerfi sveitarfélaga á
næstu áram. Hann segir núverandi
kerfi úrelt. Reykjavíkurborg sé í dag
farin að hafa tekjur af landinu öllu í
mjög miklum mæli.
Hann bendir á, að Hitaveita og Raf-
magnsveita Reykjavíkur fái tekjur af
viðskiptum við Seltiminga, Mosfell-
inga, Hafnfirðinga og Kópavogsbúa.
Þessum 100 kílómetmm verður
skipt á milli landshlutanna og cm
lengstu samfelldu kaflamir rúmir 8
km. Þeir em annars vegar í Hörgárdal
og hins vcgar í Seyðisfirði fyrir vest-
an. I Blönduhlíð í Skagafirði verður
lagður 6-7 km kafli, rúmir 6 km í
Borgarfirði, nánar tiltekið frá Varma-
landi og upp að Lundum, og 5 km á
norðanverðri Holtavörðuheiði.
Ólafur Ragnar segir, að tekjukerfi
Reykjavíkurborgar sé mjög óeðlilegt.
Borgin nýti sér gamalt kerfi aðstöðu-
gjalda, sem mótað hafi verið við allt
aðrar aðstæður, en em í dag. Fjár-
málaráðherra segir óeðlilegt, að
Reykjavíkurborg græði á íbúum ann-
arra sveitarfélaga.
Sigurgeir Sigurðsson sagði í samtali
við Tímann, að búið væri að gera
miklar breytingar á tekjukerfi sveitar-
félaganna í tengslum við breytta
verkaskiptingu milli ríkis og sveitar-
félaga og nýsett tekjustofnalög. Hann
sagðist telja rétt að gefa þeirri breyt-
ingu tíma til að sanna sig. Almennt
væm sveitarstjómannenn nokkuð
sáttir við tekjukerfi sveitarfélaganna
eins og það væri í dag. Sigurgeir
sagðist vona, að með nýju tekju-
stofnalögunum næðu sveitarfélögin
að vinna sig út úr þeim skuldum, sem
em að kæfa sum þeirra í dag.
Sigurgeir benti ennfremur á, að
sveitarfélög í þéttbýli væm búin að
afsala sér Jöfnunarsjóði sveitarfélag-
anna. I ár verður úthlutað úr honum
til jöfnunar um 1,6 milljarði króna.
Sigurgeir sagði, að meginhluti þeirrar
upphæðar færi til sveitarfélaga, sem
væm staðsett utan höfúðborgarsvæð-
isins. -EÓ
Auk malbikunarframkvæmda verð-
ur heilmikið unnið að viðhaldi og yf-
irlögnum.
Um síðustu áramót var bundið slit-
lag komið á 2136 km á þjóðvegum,
þar af um 840 km á hringveginum.
Það vantar því um 560 km upp á, að
allur hringvegurinn komist undir
malbik.
-hs.
T æpir 100 kílómetrar
undir malbik í sumar