Tíminn - 10.05.1990, Síða 9
Fimmtudagur 10. maí 1990
Tíminn 9
að nokkur áliðnaður þróaðist. Sú
hefur ekki orðið raunin nema í litl-
um mæli og tækniþekkingin í áliðn-
aði Islendinga sem mestu skiptir var
ekki sótt til Isal svo vitað sé.
Mengun
Ljóst er að mengun fylgir álverum.
Ýmsir formælendur nýja álversins
hafa viðurkennt að reynslan ífá
Straumsvík sé ekki góð en hafa látið
orð falla um að sérffæðingar í áliðn-
aði séu ekki hrifhir af hvemig málin
hafa verið leyst þar. Hafa þeir sagt að
miklu betur yrði gengið ffá öllum at-
riðum til að forðast mengun en gert
hefiir verið i Straumsvík. í þessu
sambandi má minna á að í 12. gr. 2 í
aðalsamningi ríkisstjómar íslands
við Swiss Aluminium Ltd., sem veitt
var lagagildi með lögum nr. 76/1966,
segir:
„ISAL mun gera allar eðlilegar ráð-
stafanir til að hafa hemil á og draga
úr skaðlegum áhrifum af rekstri
bræðslunnar í samræmi við góðar
venjur í iðnaði í öðmm löndum við
svipuð skilyrði."
Þetta ákvæði og ýmis önnur í aðal-
samningnum um ráðstafanir til að
koma í veg fyrir mengun em það
ótvíræð að tæpast er unnt að gera ráð
fyrir að þau verði öllu gleggri í nýja
samningnum. Það verða væntanlega
einhver óljós mörk eða viðmið sem
lögð verða til gmndvallar og síðan
koma tilefni til ffávika. En sérstök
ákvæði um lausn ágreiningsmála,
væntanlega fyrir erlendum gerðar-
dómi, gera það að verkum að ís-
lenskir aðilar munu eiga mjög erfitt
með að hafa stjóm á þessum málum,
enda verður væntanlega ekki gert ráð
fyrir að þeir hafi síðasta orðið þar
um.
Það em mengunaráhrifm sem valda
því að mér finnst útilokað að stóm
álveri verði valinn staður tiltölulega
innarlega í Eyjafirði, bæði vegna lík-
legrar mikillar og stöðugrar mengun-
ar og eins vegna mögulegrar stór-
felldrar mengunar af völdum náttúm-
heimfara. Hvaða áhrif gæti t.d. öfl-
ugur Dalvíkurskjálfti haft á gamla og
tærða efnisgeyma?
Ég veit að ýmsttm Eyfirðingum
þykir miður að missa af álveri. Þeir
binda vonir við aukna atvinnuupp-
byggingu í Eyjafirði verði álverið
reist þar. En ekki verður bæði sleppt
og haldið. Landbúnaður, matvæla-
iðnaður og annar léttiðnaður og
þjónusta ýmisleg, m.a. umfangsmik-
Ég get ekki hugsað
mér nokkra aðgerð
hættulegri þróun
byggðar við Eyjafjörð
en byggingu stórs
álvers þar.
Ég tel einnig afar
varhugavert hve völd
og þekking þeirra
sem stjórna málum
sem tengjast þessu
eru í fárra höndum.
ið skólahald, fer illa í þröngu sam-
býli við stóriðju. Vemlegur hluti
fólks, 5% eða 10% eða meira, þolir
illa mengað andrúmsloft og jaftivel
þeir sem þola það sæmilega en eiga
aðra góða kosti vilja ekki við það
búa. Einn asthmasjúklingur í stórri
fjölskyldu verðiu næstum óhjá-
kvæmilega til þess að fjölskyldan
flytur burt úr menguninni. Og glans-
inn hlýtur að mást af ferðamanna-
bænum Akureyri ef að grátt mengun-
arský er það sem menn sjá fyrir sér.
Ég get ekki hugsað mér nokkra að-
gerð hættulegri þróun byggðar við
Eyjafjörð en byggingu stórs álvers
þar.
Stærð álversins
Höfuðókostur álversins er einmitt
stærð þess. Hún er slik fjárhagslega
að hún er líkleg til að auka vemlega
spennu í þjóðfélaginu á næstu ámm
og torvelda þar með aðra uppbygg-
ingu sem hlýtur að eiga erfitt með að
keppa við uppsprengd kjör á vinnu-
mörkuðum. Nú þegar Islendingar
hafa tæki og tækni til að afla mun
meira sjávarfangs en fiskistofnamir
þola er vissulega komin tími til að
hverfa ffá gullæðisviðhorfum í at-
vinnumálum.
Þá hljóta Islendingar að þurfa að
taka stórfelld lán erlendis til að fjár-
magna orkuffamkvæmdir sínar og
það sem mönnum mun ef til vill
þykja undarlegt er að skuldir Atlan-
tal aðilanna verða væntanlega taldar
með þjóðarskuldum okkar og mun
þó flestum lánveitendum erlendis
þykja nóg um. Þjóðarskuldir okkar
eru nú þegar þær hæstu í heimi á
mann og mega ekki hækka að ráði.
Er næsta liklegt að veruleg hækkun
erlendra skulda þjóðarinnar leiði til
verri lánakjara á erlendum lána-
mörkuðum auk þess sem hún dregur
mjög úr möguleikum á að lánsfé fá-
ist i aðrar álitlegar ffamkvæmdir.
Ég vil að lokum nefha að það eru
ýmsar aðrar jákvæðar niðurstöður
sem Þjóðhagsstofhun nefnir, svo
sem eins og að hagvöxtur er áætlað-
ur 3% á ári ffá 1991 til 1997 í stað
2%, landsffamleiðsla verði 5% hærri
1997 en hún yrði án álvers, atvinnu-
leysi yrði 0,2% minna. Hér eru auð-
vitað jákvæð atriði, en ég bendi á
hvað þetta eru lágar tölur og auk
þess háðar mikilli óvissu vegna þess
hve langt er spáð ffam í tímann.
En hvemig stendur á þessari
óhagstæðu niðurstöðu sem ég tel
vera? Hafa verður í huga að á þess-
um vettvangi eru íslendingar að
keppa við ýmsar þróunarþjóðir sem
eiga miklar orkulindir og em pindar
til að reyna að leysa erfið þjóðfélags-
leg vandamál, þar með taldar geysi-
legar skuldir, með þvf að selja auð-
lindir sínar og hráefhi á lágu verði.
Þróunarþjóðimar hafa auk þess fleira
að bjóða en við, svo sem mjög lág
vinnulaun og litlar kröfur til atvinnu-
rekenda á mörgum sviðum.
Með því að velja nú þessa sömu
leið og þær hafa valið erum við
einnig að velja okkur hlutskipti.
Ákvörðun í svona stóm máli verður
ákaflega mótandi a.m.k. næsta ára-
tug. Valið stendur m.a. um það hvort
við reynum að leysa okkar mál sjálf
með þeim margvíslegu aðgerðum
sem vel menntuð þjóð á að hafa tök
á eða hvort við bindum okkur stóra
skuldabagga til þess að erlendir aðil-
ar geti nýtt orkulindir okkar og feng-
ið til þess ríflegan stuðning okkar.
Það er margt annað sem ég vildi
nefna, en mér finnst slæmt hvemig
unnið hefur verið að þessu. Litlar
upplýsingar hafa verið gefnar um
málið fyrr en í þessum mánuði og
ákvörðun um staðarval á að taka í
næsta eða þar næsta mánuði. Engir
aðrir valkostir stóriðju em kynntir.
Islendingar em í þeirri óþægilegu
aðstöðu að hafa misst niður hagvöxt
þegar aðrar þjóðir em í hagvaxtar-
sókn og þeir virðast þurfa að leita
víða eftir ffamkvæmdaaðilum eins
og Alumax í stað þeirra sem hætta
við, Alusuisse og Austria Metall.
Ég tel einnig afar varhugavert hve
völd og þekking þeirra sem stjóma
málum sem tengjast þessu em í fárra
höndum. Formaður ráðgjafamefhd-
arinnar, sem stjómar viðræðum við
Atlantal aðilana, er Jóhanns Nordal.
Hann er einnig formaður stjómar
Landsvirkjunar sem verður aðal-
ffamkvæmdaaðilinn af hálfu íslend-
inga og hann er jafhffamt formaður
bankastjómar Seðlabankans sem
hefur eftirlit með erlendum Iántök-
um þjóðarinnar. Ég tel óforsvaran-
legt að fela einum manni svona mik-
il völd og að láta vinna svona stórt
mál með þeim hraða að litill timi
gefst til að kynna stefnumið og meg-
inþætti málsins fyrir þjóð og Al-
þingi. Þetta mál er þeirrar gerðar og
stærðar og brýnt er að gefa fólki góð
tækifæri til að tjá sig um það sér-
staldega. Þjóðaratkvæðagreiðsla er
að mínu mati eðlileg krafa svo ekki
sé talað um atkvæðagreiðslur f þeim
sveitarfélögum sem kynnu að þurfa
að búa við stórt álver í næsta ná-
grenni.
Grenndarréttur, skipulagslög og
fleira af því tagi hlýtur og að koma
til athugunar hjá þeim sem næstir
verða þessum miklu ffamkvæmdum
ef af þeim verður.
Greinin er byggð á erindi sem höfundur flutti
í Hlíðarbæ, Giæsíbæjarhreppi, 29. aprfl sL
Vinnuskóli
Reykjavíkur
Vinnuskóli Reykjavíkur tekur til starfa í byrjun júní
n.k. í skólann verða teknir unglingar fæddir 1975
og 1976 og voru nemendur í 7. og. 8. bekk
grunnskóla Reykjavíkur skólaárið 1989-1990.
Umsóknareyðublöð fást í Ráðningarstofu Reykja-
víkurborgar, Borgartúni 3, sími 62 26 48, og skal
umsóknum skilað þangað fyrir 18. maí n.k.
Nauðsynlegt er að gefa upp kennitölu.
Vinnuskólinn býður enn fremur störf á Mikla-
túni fyrir fatlaða einstaklinga sem þurfa mikinn
stuðning í starfi. Takmarkaður fjöldi í hóp.
Vinnuskóli Reykjavíkur.
RISIÐ
Borgartúni 32
Sjáum um erfidiykkjur
Upplýsingar í síma 29670
Marmaralegsteinar
með steyptu inngreyptu eða upphleyptu letri. Einnig
möguleiki með innfellda Ijósmynd.
Marmaraskilti með sömu útfærslum.
Sólbekkir, borðplötur, gosbrunnar o.m.fl.
Sendum um allt land. Opið 9-18, laugard. 10-16.
Marmaraiðjan
Smiðjuvegi 4E, 200 Kópavogi
Sími 91-79955.
Kransar, krossar, kistu-
skreytingar, samúðarvendir
og samúðarskreytingar.
y Sendum um allt land á opnunartíma
frá kl. 10-21 alla daga vikunnar
5V-
Miklubraut 68 @13630
Mágur minn og föðurbróðir okkar
Guðjón Fjeldsted Teitsson
f.v. forstjóri Skipaútgerðar ríkisins,
Hofsvallagötu 55
lést 2. maí.
Útförin fer fram frá Neskirkju föstudaginn 11. maí kl. 15.00.
Þeir sem vilja minnast hans, láti Krabbameinsfélagið njóta þess.
Unnur Bergsveinsdóttir
Teitur Danfelsson örn Ragnar Símonarson
Helga Daníelsdóttir Teitur Símonarson
Ragnheiður Daníelsdóttir Sigrún Simonardóttir
Sigurður Daníelsson Sigurbjörg Símonardóttir
Bergsveinn Símonarson
t
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi
Jón Vigfús Bjarnason
Suður-Reykjum, Mosfellsbæ
verður jarðsunginn i Lágafellskirkju föstudaginn 11. maí kl. 14.00.
Hansína Margrét Bjarnadóttir
Ásta Jónsdóttir Ragnar Björnsson
Bjarni Ásgeir Jónsson Margrét Atladóttir
Kristján Ingi Jónsson Haraldur Tómasson
Baldur Jónsson Hugrún Svavarsdóttir
og barnabörn