Tíminn - 11.05.1990, Side 9

Tíminn - 11.05.1990, Side 9
Föstudagur 11. maí 1990 Tíminn 9 Rauði krossinn: 30 víetnamskir flótta- menn á leið til landsins í sumar koma 30 víetnamskir flóttamenn til landsins. Það eru átta fjölskyldur sem dvalið hafa í flótta- mannabúðum í Hong Kong á þriðja ár. Rauði Kross íslands sér um að undirbúa og skipuleggja komu þeirra. Á síðasta ári tók ríkisstjómin ákvörðun um að taka við sextíu flóttamönnum frá Suðaustur-Asíu. Sú ákvörðun gildir fyrir þrjú ár og það er meiningin að taka við 30 í sumar og 30 á næsta ári. Flóttamennimir sem koma í sumar vom valdir fyrir tilstilli flótta- mannafulltrúa Sameinuðu þjóð- anna. Að sögn Hólmfríðar Gísla- dóttur hjá Rauða krossinum var sá háttur hafður á við val flóttafólks- ins að flóttamannafulltrúi SÞ lagði fram lista yfir 56 einstaklinga. Full- trúar íslenska Rauða krossins ræddu síðan við hvem og einn, og byggðist valið á þeim viðtölum. „Þeir sem em skyldir eða tengdir á einhvem hátt vom látnir ganga fyr- ir,“ sagði Hólmfríður. Af þeim 30 sem koma í sumar em 23 innbyrðis tengdir, en auk þess er ein flöl- skylda til viðbótar. Alls em þetta átta fjölskyldur. „Við reyndum að meta það hvemig fólkinu gengi að spjara sig hér á landi. Þetta er ósköp venjulegt fólk, sjómenn, verka- menn og saumakonur, og öll hafa þau lokið bama- eða gmnnskóla- menntun,“ sagði Hólmfríður í sam- tali við Tímann. Fólkið kemur eftir 4-6 vikur, eða þegar það hefur gengið í gegnum læknisskoðun og búið er að útvega því tilskilda pappíra. Hólmfríður sagði að strax og fólkið kæmi til landsins hæflst kennsla í íslensku og ffæðsla um íslenskt þjóðfélag í samvinnu við Námsflokka Reykja- víkur. Þá verða flóttamennimir, sem komu hingað 1979, innan handar við kennslu og þýðingar. Hólmffíður sagði að undirbúning- urinn gengi vel og margir legðu hönd á plóginn. „Fólk er þegar far- ið að hringja og bjóða flóttafólkinu vinnu og ibúðir, sem er mjög já- kvætt og við lítum björtum augum ffam á veginn.“ -hs. Aðalfundur Kaupfélags Arnesinga: Heildarveltan jókst um 43% Heildarvelta Kaupfélags Ámesinga nam á síðasta árí um 2.306 milljónum króna á móti 1.612 milljónum áríð áður, sem er aukn- ing upp á 43%. Þetta kom fram á aðaifundi kaupfélagsins sem haldinn var í vikunni, en á honum var þess jafnframt minnst að kaupfélagið verður 60 ára á yfirstandandi árí. Nemendur &-A í Meiaskóla kanna sýrustig vatns, skrá og skoða upplýsingar í tölvu. Nemendur rann- saka súrt regn Kaupfélagið var rekið með nokkr- um halla á síðasta ári, þó minni en ár- ið 1988. Halli ársins nam 36,4 millj- ónum, en fyrir utan hagnað af sölu eigna var 42,4 milljóna tap árið 1989 á móti 47,4 milljóna tapi árið 1988. Tap sem hlutfall af veltu minnkaði þannig úr 2,94% árið 1988 í 1,86% árið 1989. Bókfærðar afskriftir eigna voru um 42,6 milljónir og fyrir fjár- magnskostnað batnaði rekstursaf- koman um 20 milljónir milli áranna. Kaupfélagið fjárfesti fyrir 81,3 millj- ónir á síðasta ári og var aðalfram- kvæmdin nýjar skrifstofur K.Á. á annarri hæð i Vöruhúsi K.Á. Þessar ffamkvæmdir urðu að hluta til þess að fjármagnskostnaður var meiri en við eðlilegar aðstæður og hækkaði um 52% ffá árinu 1988. 1 veltu kaupfélagsins vegur mest vörusala sem var 1.854 milljónir og hafði þá aukist um 46% ffá fyrra ári. Þess ber að geta að síðasta ár var fyrsta heila árið sem verslanir á veg- um Kaupfélags Ámesinga vom rekn- ar í V-Skaftafellssýslu og í Vest- mannaeyjum. Sala iðnaðar- og þjónustudeildar var um 393,5 millj- ónir sem er um 25% aukning ffá ár- inu á undan. Á aðalfundinum komu til umræðu sameiningarmál kaupfélaganna á Suðurlandi í framhaldi af fyrri aðal- fundi. Aðalfundurinn samþykkti til- lögu þess efhis að stjóm K.Á. er heimilað að semja um samstarf eða sameiningu við starfandi Sambands- kaupfélög í Suðurlandskjördæmi og telst þessi samþykkt endanlegt sam- þykki félagsmanna K.Á. fyrir hugs- anlegri sameiningu Kaupfélags V- Skaftfellinga, Kaupfélags Vest- mannaeyja og Kaupfélags Ámes- inga. —ABÓ Nýlega færði Vilhjálmur Jónsson forstjóri, fyrir hönd Olíustöðvarinnar í Hvalfirði, Samvinnuháskólanum á Bifröst að gjöf þriðjung allra fast- eigna á skólasetrinu, en Olíustöðin átti þennan eignarhluta á Bifföst á í vetur hefur sjötti bekkur A í Melaskóla tekið þátt í alþjóðlegu tölvuverkefhi sem nefhist „Kid’s network". Hluti af verkefninu felst í því að mæla sýmstig rigningarvatns I Reykjavík. Niðurstaða mæling- anna em sendar í gegnum tölvu til Bandaríkjanna þar sem gögnum víðs vegar úr heiminum er safnað saman. Markmið verkefnisins er að gefa nemendum kost á að starfa með nemendum alls staðar að úr heimin- um, kenna þeim að nýta sér tölvu- tæknina og afla gagna sem munu nýtast vísindamönnum. Kennsluleiðbeiningar em afar ná- móti Sambandinu og Samvinnu- tryggingum. „Þetta er stórkostleg hvatning og ómetanlegur stuðningur,“ segir Jón Sigurðsson rektor. „Hér er um að ræða eign sem nemur hátt á annan kvæmar og skýrt ffam settar. Dæmi um spumingar sem nemendumir em beðnir að svara em: Hvaðan berast súrar lofttegundir inn í um- hverfi ykkar? Hvaða skólar í verk- efninu búa við súrasta regnið? Hvemig eigum við að bregðast við súm regni? Nemendur sjötta bekkjar A í Mela- skóla hafa unnið verkefnið. Þeir hafa sent niðurstöður sínar til Bandarikjanna í gegnum tölvu. Þaðan hafa nemendumir einnig fengið upplýsingar um mælingar skólabama annars staðar í heimin- tug milljóna króna og með þessu er gmndvöllur Samvinnuháskóla tryggður varanlega á skólasetrinu hér á Bifföst. Við fæmm stjóm Olíu- stöðvarinnar og forstjóra innilegar þakkir Samvinuháskólans." um. -EÓ Samvinnuháskóla færð gjöf Kaldur aprílmánuður hefur seinkað vorinu: Utlit er fyrir góða grassprettu Meðalhiti í vetur var svipaður og tvo síðustu vetur þar á undan eða um 0,2 gráðum hlýrri en meðaltal 140 ára, 1846-1985. Páll Bergþórsson veðurfræðingur segir að tengsl séu á milli grassprettu og meðalhita undanfarandi vetrar hveiju sinni. Samkvæmt þessu má reikna með að heyfengur á sumri komanda verði yfir meðallagi eða álíka góður og í fyrra og hitteðfyrra. Páll sagði í samtali við Tímann að bændum væri óhætt að taka eitthvert mið af þessari spá við áburðarkaup í vor. Hann sagði að bændur sem eiga heyfymingar ættu a.m.k. ekki að þurfa að auka áburðarkaup að óbreyttum bústofni. Það verður þó að hafa í huga að á síðustu ámm hafa bændur sparað mikið kaup á áburði og háfa ýmsir ráðunautar talað um að ekki verði hægt að ganga öllu lengra í þá átt. Páll hefur á liðnum árum reynt að gefa bændum ábendingar um hvenær skynsamlegast sé að bera á tún. I ár var apríl óvenju kaldur. Sem dæmi um það má nefna að meðalhiti í Stykkis- hólmi í apríl var í kringum mínus 0,2 gráður, en þar er fátítt að hiti sé undir ffostmarki í þeim mánuði. Páll sagðist því reikna með að allur gróður yrði heldur seinna á ferðinni en i meðalári. Páll sagði að fara mætti að bera á þegar liðnir em 30 dagar með 2-3 stiga meðalhita. Páll sagðist ekki hafa kannað hitatölur með tilliti til þessa ennþá, en hann taldi hugsanlegt að bændur undir Eyjafjöllum mættu fara að huga að áburðardreifingu. Páll sagði að vorkoma væri venjulega um tveimur til þremur vikum síðar á ferð- inni á Norðurlandi en á Suðurlandi. Páll sagðist ekki treysta sér til að spá um hvemig heyvinnuveður verður í sumar. Það eina sem veðurffæðingar gætu ráðlagt bændum í því efhi væri að hraða þeirri þróun síðustu ára að verka sífellt meiri hluta heyjanna í votheyshlöður eða rúllubagga.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.