Tíminn - 11.05.1990, Blaðsíða 18
18 Tíminn
Föstudágúr' 11! rriaí 1990
Sverrir Júlíusson
fyrrverandi umdæmisstjóri
Kveðja frá Lionsklúbbnum Þór
Sverrir Júlíusson, fyrrv. um-
dæmisstjóri, alþingismaður og út-
gerðarmaður, andaðist 30. apríl sl.
Hann fæddist í Keflavík 12. október
1912. Sonur hjónanna Júiíusar
Björnssonar sjómanns og Sigríðar
Sverrínu Sveinsdóttur. Ætt hans
verður ekki rakin hér, en móðir hans
er frá Miðbýli á Skeiðum.
Þegar Sverrir fermdist var sunginn
sálmurinn:
Legg þú á djúpid, þú sem enn ert ungur
og æðrast ei, þóttstraumuriífs sé þungur
en set þér snemma háleitt mark og mið
haf Guðs orð fyrir ieiðarstein í stafni
og stýrðu síðan beint í Jesú nafni
á himins hlið.
(M. Joch.)
Sverrir lagði snemma á lífsins
djúp. Þegar hann var 15 ára var laus
staða símstöðvarstjóra í Keflavík.
Hann sótti um starfið og var valinn
úr mörgum umsækjendum. En hann
varð að hafa ábyrgðarmann þar til
hann varð fjárráða.
Sýnir það hvað hann hafði strax
mikið álit og traust. Var honum veitt
staðan 1. okt. 1928 og gegndi hann
því starfi til 30.11. 1940.
Þegar Sverrir tók við starfinu
gerði hann bæn sína og bað að sér
yrði veitt handleiðsla og styrkur.
Strengdi hann það heit að vera
reglusamur og trúr í starfi, þjóna
með hlýhug og jákvæðu hugarfari, í
þessu starfi svo og öðrum störfum
sem honum kynnu að verða falin á
lífsleiðinni, en þau urðu mörg
Kransar, krossar, kistu-
skreytingar, samúðarvendir
og samúðarskreytingar.
Sendum um allt land á opnunartíma
frá kl. 10-21 alla daga vikunnar
Miklubraut 68 @13630
t
Bróðir minn
Skúli Eyjólfur Skúlason
Gillastöðum, Laxárdalshreppl, Dalasýslu
verður jarðsunginn frá Hjarðarholtskirkju laugardaginn 12. maí kl. 15.
Þuríður Skúladóttir.
t
Eiginmaður minn og faðir okkar
Helgi Eiríksson
Fossi á Síðu
andaðist að heimili sínu 9. maí.
Guðrún Björnsdóttir
Guðleif Helgadóttir Björn Helgason
III
'V
Útboð
t Kristján Teitsson fyrrum bóndi i Riftúni, Ölfusi
Skolagerði 61, Kópavogi
er lést 2. maí s.l. verður jarðsunginn frá Hjallakirkju í Ölfusi
laugardaginn 12. maí kl. 14.00.
Sigfríður Einarsdóttir
Lilja Kristjánsdóttir Hrafnhildur Kristjánsdóttir Alfred Poulsen
Ragnar Kristjánsson Anna Guðmundsdóttir
Einar Kristjánsson Guðrún Eiríksdóttir
Kári Kristjánsson Guðmunda Sigurðardóttir
Hörður Kristjánsson Vibeka Kristjánsson
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Hitaveitu Reykjavíkur, óskar
eftir tilboðum í endurnýjun hitaveitu neðst í Hverfisgötu frá Ingólfs-
stræti, í Hafnarstræti og í Fischersundi.
Heildar skurðlengd er um 950 m. Heildarpípulengd (pípur einangrað-
ar í plastkápu) er um 1600 m.
Verkiö nefnist: Hafnarstræti endurnýjun.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík,
gegn kr. 15.000,- skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað, þriðjudaginn 29. maí 1990, kl.
11,00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 - Simi 25800
ábyrgðarstörfin sem Sverrir tók að
sér. Hélt hann ávallt sitt æskuheit.
Hann var bænheyrður. Öli störf
leysti hann vel af hendi og naut í
hvívetna trausts og virðingar. Hann
setti sterkan svip á störf sín og
samtíð.
Sverrir hreifst ungur af ung-
mennafélagshugsjóninni. Hann var
einn af stofnendum Ungmennafé-
lags Keflavíkur en það var stofnað
29. sept. 1928. Formaður félagsins
1936 til 1942 og heiðursfélagi þess.
Sverrir hóf útgerð 22 ára og var
útgerðarmaður tii æviloka. Hann
var stofnandi og framkvæmdastjóri
Hraðfrystihúss .. Keflavíkur 1942-
1947. Sverrir stofnaði með öðrum
sameignarfélagið Hilmir sf. á Fá-
skrúðsfirði 1962.
Hann var forstjóri verðlagsráðs
sjávarútvegsins 1961-1963. Forstjóri
Fiskveiðisjóðs (slands frá 1970 til
1983. í stjórn Fiskimálasjóðs frá
1947 til 1983 og formaður frá 1951.
Hann var formaður Landssambands
íslenskra útvegsmanna 1944 í 26 ár
og heiðursfélagi þess frá 1970.
Sverrir sat í bankaráði Lands-
bankans 1965 til 1968 og átti sæti í
bankaráði Seðlabankans frá 1969 til
1982, þar af formaður í tvö ár. Auk
þess sem hér er getið gegndi hann
fjölmörgum öðrum trúnaðarstörfum
í atvinnu- og félagsmálum. Átti sæti
í stjórn Sjálfstæðisfélags Keflavíkur
um árabil og formaður þess 1937 til
1941.
Sverrir var í kjöri fyrir Sjálfstæðis-
flokkinn í Reykjaneskjördæmi 1963
og 1967 og hlaut í bæði skiptin sæti
landskjörins alþingismanns og sat á
Alþingi til 1971.
Sverrir var búsettur í Keflavík til
ársins 1945 en flutti þá til Reykjavík-
ur.
Sverrir gekk í Lionsklúbbinn Þór
1967. Það var mikil gæfa að fá hann
í Þór og til starfa fyrir Lionshreyfing-
una.
Hann varð strax áhrifamaður í
Þór og Lionshreyfingunni. Leiðandi,
leiðbeinandi og hvetjandi félagi frá
inngöngu í Þór til hinstulítundar.
Hann varð ritari Þórs 1971 til 1972
og formaður 1975 til 1976. Undir
hans leiðsögn og handleiðslu var
gott að starfa. Sverrir var umdæmis-
stjóri í umdæmi 109A 1977 til 1978.
Sat alþjóðaþing Lionsmanna í New
Orleans árið 1977. Árið 1987 var
hann gerður að Melvin Jones félaga.
Sverrir var sannur lionsmaður.
Að leiðarlokum þökkum við fé-
lagar í Þór og Lionshreyfingunni öll
þau góðu störf sem hann vann fyrir
Þór og Lionshreyfinguna. Samfylgd-
in með honum var góð, lærdómsrík
og þroskandi. Við heiðrum best
minningu hans með því að efla
starfsemi Þórs og Lionshreyfinguna.
Undirritaður færir honum persónu-
legar þakkir fyrir vináttu og tryggð.
Hinn 30. apríl vissi hann að stund-
in var komin. Hann bað fyrir kveðju
til Þórsfélaga og kvaddi án kvíða og
í öruggri trú á framhaldslíf og endur-
fundi við ástvini.
Við vottum eiginkonu hans, Ingi-
björgu Þorvaldsdóttur, börnum og
öðrum aðstandendum okkar innileg-
ustu samúð.
Blessuð sé minning hans.
F.h. Lionsklúbbsins Þórs
Hclgi Ólafsson
Rósa Jóhanna
Sigurþórsdóttir
Faedd 13. júní 1935
Dáin 22. mars 1990
Aðeins nokkrar línur um vinkonu
mína Rósu Jóhönnu. Mér aldeilis
krossbrá er ég fékk upphringingu frá
Grundarfirði sunnudaginn 9. apríl.
Það var Guðbjartur Cecilsson,
eiginntaður Rósu, sem hringdi og
tilkynnti mér lát Rósu. Það hafði
alveg farið framhjá mér í fréttum.
Að vísu var ég búin að lesa um í
blöðunum að kona hefði verið skorin
upp við brjósklosi og dáið af völdum
þess, en að mig óraði fyrir því að ég
þekkti konuna, það hvarflaði aldrei
að mér. Það er oft skammt á milli lífs
og dauða. Það sýnir sig í þessu
tilfelli. Hún hefur í skyndi verið
kölluð til annarra starfa og þykir
mér það ekki skrýtið því allir vilja
hafa jafnljúfa konu í vinnu hjá sér.
Við Rósa kynntumst á Heilsuhæl-
inu í Hveragerði fyrir þremur árum.
Tókst með okkur kær vinátta frá
fyrsta degi er við tókum tal saman.
Höfðum við lík áhugamál, vorum
báðar bindindismanneskjur, áhuga
á söng, góðri tónlist, gönguferðum
og síðast en ekki síst töluðum við
Grundarfirði
mikið um trúmál og um heimili
okkar. Við vorum báðar svo lánsam-
ar að eiga yndislega menn sem hægt
var að treysta, yndisleg börn og
barnabörn sem öll voru í fjarlægð.
Rósa skifti aldrei skapi, hún kom til
dyranna eins og hún var klædd,
alltaf hrein og bein þannig að maður
vissi alltaf hvar maður hafði'hana.
Það er gott að kynnast slíkri mann-
kostamanneskju. Einnig var ég svo
lánsöm að kynnast seinni manni
hennar, Guðbjarti Cecilssyni. Hann
kom á eftir konu sinni til Hveragerð-
is sér til hressingar og hvíldar eftir
mikið slys. Hann sýndi þvílíkt æðru-
leysi, var sko ekki aldeilis að kvarta
þó að honum liði oft illa. Það var
yndislegt að sjá hvað þau báru mikla
virðingu hvort fyriröðru. Égdauðöf-
undaði hana að hafa manninn hjá
sér en auðvitað þakkaði ég Guði
fyrir það að minn maður var heill
heilsu þó að það hefði verið dásam-
legt að fá að hafa hann hjá sér.
Ég kom oft inn á herbergi til
þeirra og drakk með þeim kaffisopa,
þá var oft glatt á hjalla, eins og
raunar alltaf nálægt Rósu minni.
RIKISSKIP Sími: 28822
Vegna útfarar Guðjóns F. Teitssonar, fyrrverandi
forstjóra Skipaútgerðar ríkisins, verða skrifstofur
vorar og vöruafgreiðsla lokaðar í dag, föstudaginn
11. maí, frá kl. 1400.
Skipaútgerð ríkisins
Reykjavík
Lokað
Vegna jarðarfarar Sverris Júlíussonar, fyrrverandi
forstjóra, verða skrifstofur vorar lokaðar frá kl. 12
á hádegi í dag föstudaginn 11. maí.
Fiskveiðasjóður íslands
Þó að kynni okkar yrðu ekki löng
þá urðum við strax svo kærar hvor
annarri. Sögðum við stundum að
það væri engu líkara en við hefðum
þekkst í fyrra lífi. Ég vissi oft hvað
Rósa hugsaði og gagnkvæmt.
Það er erfitt að trúa því að Rósa
sé dáin en staðreynd eigi að síður.
Ég finn fyrir tómarúmi við tilhugsun-
ina um að hitta Rósu ekki oftar á
þessari plánetu, en ég trúi því að við
eigum eftir að hittast aftur á öðru
tilverustigi og getum þá sungið sam-
an á ný.
Ég veit að Rósa hefur fengið góða
heimkomu. Ég kveð þig, kæra vin-
kona, minninguna um þig geymi ég
í huga mínum og mun biðja fyrir þér
í bænum mínum.
Elskulegi Batti minn, missir þinn
er mikill, en ég vona að góður Guð
mildi sárin er fram líða stundir.
Börnum hennar og barnabörnum og
öðrum aðstandendum sendi ég inni-
legar samúðarkveðjur, en munið að
þið eigið góðar endurminningar sem
enginn getur tekið frá ykkur.
Minningarnar verða ógleymanlegar
og oft rifjaðar upp í góðum vinahópi.
Að lokum læt ég fylgja hér Ijóð
eftir tengdaföður minn Sigurð Gísla-
son sem heitir „Tár“.
Ég er hardur og hljóður.
Ég er hrímaður grár.
Visinn gleðinnar gróður.
Ég er glapinn og sár.
- Ég var glaður og góður
með geislandi brár.
Er nú ómvana óður
og á ekki tár.
Ég hef lifað og látið
allt í Hfinu falt.
Hvarf mér meðalhófsmálið
og í muna varð svalt.
Nú er stórmennskustátið
orðið stirðnað og kalt.
Ó, að ég gæti grátið.
- Ég vil gráta mitt allt.
Tár, sem laugandi leika
um lífsflekkuð tröf,
eru vinir hins veika
og viskunnar höf.
Tár í bölinu bleika
væru blíðasta gjöf
- er ég raunklökkur reika
yfir rósanna gröf.
Guð blessi minningu Rósu.
Hildur Kristín Jakobsdóttir