Tíminn - 11.05.1990, Page 10

Tíminn - 11.05.1990, Page 10
10 Tíminn Föstudagur 11. maí 1990 Föstudagur 11. maí 1990 Tíminn 11 Flóamarkaðsstemmning við Faxagarð á miðvikudagskvöldi: Effir Agnar B. Óskarsson Gamlar Lödur þjóna nýju hlutverki í Rússlandi Sérstök stemmning ríkti á Faxagarði i Reykjavíkurhöfii á miðvikudagskvöld, en þá voru skipverjar á ísbrjótnum Otto Schmidt að undirbúa að skipa um borð íjölda gamalla Lada bifreiða sem þeir höfðu keypt hér á landi og mátt hafa mun- að sinn fífil fegri. Þeim hafði auðsjáanlega ekki tekist að verða sér úti um nógu marg- ar bifreiðar, því þeir stoppuðu forvitna vegfarendur sem leið áttu um höfnina til að athuga hvort þeir ættu notaðan bíl, sem fengist á góðu verði. Kaupmennimir höfðu einkanlega áhuga á Ladabifreiðum sem von er. Ef einhver hafði slíkan bíl að bjóða var hafist handa við að prútta um verðið. Keyptu á þriðja tug bifreiða Á þriðja tug bíla, hefðbundnar Lödur og Lada Sport, einn Benz og einn Peugot stóðu i þrefaldri snyrtilegri röð á hafnar- bakkanum tilbúnir til uppskipunar, þegar ljósmyndara Tímans bar að. Eftir því sem næst verður komist er hluti bílanna rifinn á meðan siglt er til heimahafnar og vara- hlutimir seldir þegar heim er komið, en varahlutir em af skomum skammti í Sov- étríkjunum og því mjög eftirsóttir. Þeir sem em í bestu ásigkomulagi fá að halda sér. Slagurinn hófst á miðvikudagsmorgun, er áhöfnin fór um bæinn í leit að bílunum hjá bílapartasölum og einstaklingum. Bíl- amir vom í misjöfhu ásigkomulagi, allt frá því að vera í góðu standi, vel ökufærir og ágætlega útlítandi, niður í að vera hauga- matur á íslenskan mælikvarða, vélarvana og ryðgaðir. Opinbert verð á nýrri Lödu í Sovétríkj- unum kostar eftir því sem Tíminn kemst næst um 12 þúsund rúblur en það sam- svarar til rúmlega einnar milljón króna. Þar fyrir utan er venjulega um þriggja ára bið eftir afgreiðslu bílsins, en á svarta- markaðnum er hægt að fá slíkan bíl af- greiddan fyrr. Verð varahluta í bílana þar ytra er í samræmi við þetta auk þess sem erfitt er að verða sér úti um þá. Tímanum Hvort sem vélin í þessum bíl, sem einn úr áhöfn Otto Schmidt er aö skoða, er heil eða ekki eru margir hlutir nýtanlegir úr bílnum. er kunnugt um að verð á framrúðu í Lada bifreið á svartamarkaðinum í Moskvu, er 1000 dollarar eða tæpar 60 þúsund krónur. Mánaðarlaun almennings eru um 200 til 250 rúblur. Skráð gengi rúblunnar í gær var um 101 króna og eru því mánaðarlaun- in um 20 til 25 þúsund krónur. Fengu ekki nóg Um tíuleytið á miðvikudagskvöld voru menn að koma með bíla sína niður á Faxagarð og rússnesku kaupendumir tóku bílunum opnum örmum. Um þetta leyti var á þriðja tug bíla á bryggjunni en kaupmennimir höfðu greinilega ekki fengið nóg, því þeir stoppuðu vegfarend- ur sem leið áttu um og spurðu þá hvort þeir ættu Lada bíl sem viðkomandi vildi selja á góðu verði. Ef svo var, var tekið til við að prútta um verð bílsins. Segja má að sannkölluð flóamarkaðs- stemmning hafi ríkt á Faxagarði umrætt kvöld, þar sem tekist var á um þúsund- krónumar. Ekki var um háar upphæðir að ræða á íslenskan mælikvarða, því algeng- asta verð fyrir bílinn var á bilinu 6 til 7 þúsund, en dæmi var um að bíll hafi ver- ið seldur á 10 þúsund krónur. Þess ber hins vegar að geta að þegar bílamir hafa verið rifhir niður, kemur verðgildi vara- hlutanna sem úr þeim fást til með að dekka kostnaðinn og gott betur. Þá fylgdu ýmsir aukahlutir með nokkmm bílanna, svo sem skíðabogar, grjótgrindur og aukadekk. Faxagarður líktist einna helst flóamarkaði þegar áhöfnin á Otto Schmidt var að safna að sér notuðum og úr sér gengnum Lada bflum á miðvikudagskvöld. Bflamir mega muna sinn fífil fegri, enda ekki útlitið sem sóst er eftir heldur innihaldið. Tímamyndir Pjetur Fólk trúöi ekki eigin eyrum Einn starfsmanna Tímans var á staðn- um meðan hamagangurinn var sem mestur og sagðist hann hafa getað lesið út úr and- litum fólks undrun þess og forvimi yfir því hvað kaupmennimir ætluðu að gera við bílana. „Það trúði ekki eigin eyrum þegar þeim var sagt að bílamir ættu að fara til Rússlands, þar sem nota ætti þá í vara- hluti,“ sagði viðmælandinn. Þegar kaupmennimir vom að meta gæði bílanna gengu þeir í kringum þá, bönkuðu hér og þar í bílinn, spörkuðu í dekkin og skoðuðu ofan í vélarhúsið. Það má ljóst vera að miðað við það verð sem þeir kaupa bílana á hér, gefa kaupin þeim talsvert í aðra hönd þegar til Sovétríkjaima kemur, enda er mjög mikill skortur á varahlutum þar ytra eins og áður sagði. Þó að bílamir líti kannski ekki sem best út eftir að hafa þjónað íslenskum eig- endum sínum dyggilega um áraskeið, þá er margt vel nýtanlegt úr þeim fyrir þá sem vantar varahluti, s.s. vélarhlutir, gírkassi, drif, dekk, rúður, hurðir og aðrir hlutir á ytra byrði bílsins sem em heilir. Hjá hafharstjóra fengust þær upplýs- ingar að hér væri ekki um einstakt tilfelli að ræða, þó svo að fjöldi bílanna hafi ver- ið óvenjumikill núna, sem ef til vill bæri þess vitni að mikill skortur væri á vara- hlutum í Sovétríkjunum. Áhöfhin á Otto Schmidt hefur áður keypt bíla sem þessa þegar þeir hafa haft viðkomu hér á landi, svo og önnur sovésk skip sem hingað koma. Áhafnimar kaupa ekki eingöngu bílana í heilu lagi, heldur hafa þær einnig haft með sér um borð ýmsa varahluti, sem torfengnir em ytra. Tíminn hafði tal af einum seljendanna sem kom af forvitninni einni saman á hafharbakkann. Þegar einn úr áhöfhinni vatt sér að honum og spurði hvort hann ætti gamla Lödu sem hann vildi selja brá honum heldur betur í brún. Hann tók kaup- manninn á orðinu, enda átti hann gamla Lödu í heimkeyrslunni. Hann ásamt þrem- ur úr áhöfhinni óku því næst heim til selj- andans og sagði hann að þremenningamir hefðu horft á eftir hverri Lödu sem til sást á leiðinni frá höfhinni og upp í Breiðholt. Þegar þangað var komið skoðuðu kaup- endumir Löduna vel og vandlega. Síðan var tekið til við að semja um verðið og að lokum urðu þeir ásáttir um að taka bílinn fyrir 10 þúsund krónur. Að svo búnu var haldið af stað niður á höfh með bílinn og honum komið fyrir í röðinni hjá hinum.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.