Tíminn - 26.05.1990, Blaðsíða 2
2 Tíminn
Laugardagur 26. maí 1990
Steingrímur Hermannsson, formaður
Framsóknarflokksins við kosningar
til sveitarstiórna 1990:
A tímum erfiðleika hefur Fram-
sóknarflokkurinn hvað eftir annað
verið kvaddur til forystu í stjóm
landsmála. Svo var 1983 og aftur
i september 1988. Framsóknar-
flokkurinn hefur aldrei skorast
undan ábyrgð og undir forystu
hans horfa Islendingar nú fram á
vœnkandi þjóðarhag.
Verðbólgan er nálœgt því að
vera sú minnsta frá þvi á stríðsár-
unum, vextir hafa lækkað og erf-
iðleikum fyrirtækja viðast hvar
um landið hefur verið bægt frá.
Undirstöðuatvinnugreinunum
hefur verið komið á réttan kjöl og
nú sjást þess hvarvetna merki að
atvinnulíflð er á uppleið á ný.
Þar sem jramsóknarmenn hafa
verið þátttakendur í sveitarstjórn-
um undanfarin ár hefur atvinnu-
lífið verið eflt og félagsleg þjón-
usta styrkt en jafnframt verið gætt
ráðdeildar. Flokkurinn hefur œtíð
lagt áherslu á frjálst framtak ein-
staklinga og fyrirtækja. A þeim
byggist styrkur atvinnulífsins.
Framsóknarmenn hafa jafnframt
lagt áherslu á að allir njóti félags-
legs öryggis og réttlœtis.
Það er mikilvægt bæði fyrir
sveitarfélögin og Framsóknar-
flokkinn, að áhrifa hans njóti sem
víðast. Þess vegna ríður á að
hann komi sterkur út úr þessum
kosningum. Það er ekki sist mikil-
vægt að flokkurinn sé öflugur i
höfuðborg landsins, Reykjavík.
Eins og i öllum öðrum sveitarfé-
lögum eigum við framsóknar-
menn þar mjög góða málsvara,
með Sigrúnu Magnúsdóttur borg-
arfulltrúa í broddi Jylkingar. Þar
sem annars staðar eru framsókn-
armenn reiðubúnir að axla þá
ábyrgð sem kjósendur leggja
þeim á herðar. Því hefur verið
spáð að Sjálfstæðisflokkurinn fái
allt að þrettán fulltrúa i borgar-
stjórn en Framsóknarflokkurinn
engan. Slíkur meirihluti væri eng-
um flokki hollur né nokkru sveit-
arfélagi. í frjálsu þjóðfélagi er
nauðsynlegt að lýðræðið sé virkt.
Ég hvet alla framsóknarmenn til
þess að vinna vel og tryggja
flokknum góða útkomu í sérhverju
sveitarfélagi. Ég hvet Reykvíkinga
sérstaklega til þess að tryggja
kjör fulltrúa Framsóknarflokksins
og um leið málefnalega og virka
gagnrýni á störf og gerðir meiri-
hluta Sjálfstæðisflokksins i borg-
arstjórn. Því betur sem við dug-
um, því ríkulegar uppskerum við.
Dagur aldraðra
B-listi framsóknarmanna í
Reykjavík gekkst fyrir fjölmenn-
um kaffi- og skemmtifundi eldri
borgara í Glæsibæ sl. fimmtu-
dag. Þarfluttu m.a. Sigrún Magn-
úsdótb'r borgarfulltrúi, Kristján
Benediktsson, fv. borgarfulltrúi
og Steingrímur Hermannsson
formaöur Framsóknarflokksins
ávörp. Þá skemmtu þau Elín Sig-
urvinsdóttir söngkona við undir-
leik Sigfúsar Halldórssonar og
Jóhannes Kristjánsson eftir-
herma.
Nokkrir gesta taka lagið. Frá
vinstri: Áslaug Brynjólfsdóttir, Þrá-
inn Valdimarsson, Kristján Bene-
diktsson, Guðmundur G. Þórar-
insson og Steinunn Finnbogadótt-
ir. Tímamyndir GE
VERÐLAUN VEITT JÚR
HUSFRIÐUNARSJOÐI
Um síðustu helgi var viðurkenning-
um og lánum úthlutað úr Húsfriðun-
arsjóði
Akureyrar. Leikfélagi Akureyrar
voru veittar 200 þúsund krónur til
viðbótarviðhalds á Samkomuhúsinu.
Eigendum tveggja húsa við Aðal-
stræti voru veittir styrkir, samtals að
upphæð 500 þúsund krónur, en 13
aðilar sóttu um styrk. Þá var fjórum
aðilurn veitt lán úr húsfriðunarsjóði,
samtals um 3.4 milljónir króna. Einn-
ig hlaut Sverrir Hermannsson húsa-
smíðameistari sérstaka viðurkenn-
ingu fyrir ffamlag sitt til endurbygg-
ingar gamalla húsa á Akureyri.
Viðurkenningar og lánveitingar af
þessu tagi hafa verið veittar á Akur-
eyri um nokkurt skeið. Markmiðið er
að stuðla að varðveislu gamalla húsa
í bænum, og hvetja fólk til ffekari að-
gerða í þeim efhum.
Að þessu sinni hlutu viðurkenningu
hjónin Kristín Aðalsteinsdóttir og
Hallgrímur Indriðason, en þau hafa
endurbyggt og byggt við húsið Aðal-
stræti 52. Þá hlaut Stefán Jóhannes-
son viðurkenningu fyrir Aðalstræti
30, hús sem hann flutti úr Laxagötu
og endurbyggði. hiá-akureyri.
Þeir sem þurfa á akstri að halda á kjörstað, í Reykajvík, er bent á að hafa sam-
band við Bflþjónustu B- listans í síma 67 92 25 - 67 92 26 og 67 92 27.
Upplýsingar um kjörskrá og skiptingu gatna í kjörhverfi verða veittar á
kosningaskrifstofu B-listans að Grensásvegi 44 í síma 68 09 62 og 68 09 64