Tíminn - 26.05.1990, Blaðsíða 19
APflt- iRtn 89 ■njpfiJÝiBpt.iR I nnim i 06
Laugardagur 26. maí 1990 Tíminn 31
ilÞROTTIR
PV " p
Knattspyrna — Hörpudeild:
Stórsigur Fram á Skagamönnum
- Framarar hefja Islandsmótið með tveimur stórsigrum
Framarar, sem sigruðu IBV í
fýrstu umferð fslandsmótsins 4-0
á útivelli, endurtóku þann leik á
fímmtudaginn er þeir tóku á móti
Skagamönnum á Valbjamarvelli í
Laugardal. Aðstæður til knatt-
spymuiðkunar á veilinum voru
mjög bágbomar, völlurínn var lítt
gróinn og miklu af sandi hafði ver-
ið ekið í hann. Leikmenn áttu því í
miklum erfiðleikum með að fóta
sig í sandinum.
Framarar sóttu mjög í byijun leiks-
ins og ekki leið á löngu áður en fyrsta
markið leit dagsins ljós. Það var á 15.
mín. að Pétur Ormslev tók hom-
spymu frá hægri, Kristinn R. Jónsson
fékk boltann við vítateiginn og skaut
í stöng, en Guðmundur Steinsson
fylgdi á eftir og skoraði, 1-0.
Tíu mín. síðar fengu bæði liðin
tækifæri til að skora. Fyrst Framarar
er Ríkharður Daðason skallaði rétt
framhjá eftir aukaspymu Péturs og
síðan Skagamenn er Bjarki Pétursson
skaut yfir markið, eftir að Jón
Sveinsson hafði misst knöttinn
klaufalega. Bjarki var aftur á ferðinni
10 mín. síðar, en Birkir varði skot
hans úr þröngu færi. Á lokamínútu
fyrri hálfleiks fengu Skagamenn á sig
mikið klaufamark, Baldur Bjamason
lék inní vítateig ÍA og upp að enda-
mörkum þar sem hann gaf fyrir
markið á Guðmund Steinsson, sem
skaut í Fleimi Guðmundsson Skaga-
mann og í markið, 2-0.
Allur vindur var úr Skagamönnum
eftir þetta slysalega mark og Framar-
ar sóttu mjög allan síðari hálfleik.
Strax á 47. mín. varði Gísli Sigurðs-
son tvívegis, fyrst ffá Guðmundi og
síðan ffá Ríkharði. Tveimur mín. síð-
an bjargaði Gísli með úthlaupi, en þá
vom fyeir Framarar komnir í gegnum
vöm íA. Á 54. mín. skaut Pétur ffam-
hjá úr góðu færi, en þrír Framarar
vom þá gegn tveimur Skagamönnum
í vítateignum. Þriðja mark Fram lá í
loftinu og það leit dagsins ljós á 54.
mín. Mikil atgangur var þá í vítateig
IA, Rikharður náði ekki skoti og
renndi því boltanum á Baldur Bjama-
son sem skoraði með fostu skoti af
stuttu færi, 3-0.
Framarar sóttu áffam og óðu í fær-
um á næstu mín. Ríkharður skaut
ffamhjá eftir undirbúning Viðars á
57. mín. en Skagamenn fengu líka
sitt færi í síðari hálfleik. Dæmd var
óbein aukaspyma á Fram innan víta-
teig og upp úr henni átti Guðbjöm
Tryggvason gott skot að marki Fram,
en Birkir varði það ömgglega.
Ríkharður Daðason fékk síðan enn
eitt tækifærið til að skora í leiknum, á
66. mín. eftir fyrirgjöf Antons Mark-
ússonar ffá vinstri. Að þessu sinni
skaut Ríkharður hátt yfir. Fjórða
markið varð síðan staðreynd á 69.
mín. Pétur Ormslev lék upp miðjuna,
gaf boltann á Kristin R. Jónsson sem
skoraði af öryggi, 4-0. Eftir markið
jafnaðist leikurinn nokkuð, en
Skagamenn náðu ekki að ógna marki
Fram.
Tíu mín. fyrir leikslok komu þeir in-
ná sem varamenn í ffemstu víglínu
Fram þeir Amljótur Davíðsson og
Jón Erling Ragnarsson. Þeir fengu
báðir þokkaleg færi til að bæta við
markatöluna. Gísli varði frá Amljóti
úr þröngu færi, en Jón Erling „kikks-
aði“ fyrir opnu marki.
Leikurinn var mjög fjörugur eins og
ffam kemur hér að ofan, en skilyrði
vom ekki eins og best verður á kosið.
Framliðið var mjög sterkt í heild í
þessum leik, með Pétur Ormslev sem
besta mann, en hjá Skagamönnum
var fátt um fina drætti. Gísli í mark-
inu stóð þó vel fyrir sínu.
Góður dómari leiksins var Ólafur
Lámsson.
Liðin Fram: Birkir Kristinsson, Þor-
steinn Þorsteinsson, Kristján Jóns-
son, Pétur Ormslev, Viðar Þorkels-
son, Kristinn R. Jónsson, Jón Sveins-
son, Guðmundur Steinsson (varam. á
80. mín. Jón Erling Ragnarsson),
Baldur Bjamason, Anton Bjöm
Markússon (varam. á 80. mín. Am-
ljótur Davíðsson), Ríkharður Daða-
son. IA: Gísli Sigurðsson, Jóhannes
Guðlaugsson, Heimir Guðmundsson,
Alexander Högnason, Sigurður B.
Jónsson, Stefán Viðarsson (varam. á
56. mín. Amar B. Gunnlaugsson),
Brandur Sigurjónsson, Sigursteinn
Gíslason, Bjarki Pétursson, Guð-
bjöm Tryggvason (varam. á 70. mín.
Guðmundur Matthíasson), Haraldur
Ingólfsson.
Ahorfendur: 1.256. BL
Krístinn R. Jónsson skorar fjórða
mark Fram f leiknum gegn Skaga-
mönnum á fimmtudag, án þess aö
Heimir Guðmundsson komi vömum
viö. Jóhannes Guöiaugsson fylgist
með gangi máli. Á innfelldu myndinní
er annað mark Fram að verða stað-
reynd, boltinn er á ieiðinni f netið eftir
skot Guðmundur Steinssonar f Heimi
Guðmundsson. TímamyndirÁmiBjama.
Knattspyma:
Islandsmeistarar KA töpuðu öðrum
leik sínum í 1. deild í gær á Valsvelli 0-
2. Fyrrum leikmaður þeirra KA-
manna, Antony Karl Gregory, skoraði
bæði mörk Valsmanna í leiknum. Leik-
urinn var lítt spennandi á að horfa, en
úrslitin sanngjöm.
Öruggt hjá Víkingum
Víkingar unnu ömggan sigur á FH-
ingum á Víkingsvellinum í gærkvöld
2-0. Hörður Theodórsson skoraði fyrir
Víkinga á 30. mín. eftir stórskotahríð
þeirra röndóttu i mark Hafhfirðinga. 4-
5 skot höföu hafhað í vamarmönnum
og markverði FH áður en boltinn fór í
netið.
Síðara markið kom á 71. mín. er Hörð-
ur skallaði boltann fyrir markið á Gor-
an Micic sem skoraði af stuttu færi.
Víkingar vom nærri þvi að skora fleiri
mörk, en Þorsteinn Bjamason mark-
vörður FH bjargaði einu sinni glæsi-
lega með úthlaupi.
FH-ingar vom næst því að skora á 77.
mín. er Andri Marteinsson skaut í stöng
úr aukaspymu. BL
Heimasigur í Eyjum
ÍBV vann 2-0 sigur á Þór á fimmtudags-
kvöld. Hlynur Stefánsson og Jón Bragi Am-
arsson geröu mörk Eyjarskcggja bæði í síð-
ari hálfleik.
Staðan í 1. deild - Hörpudeildinni:
Fram..................2 2 0 0 8-0 6
KR....................2 2 0 0 5-2 6
Valur.................2 2 0 0 3-0 6
Víkingur..............2 10 13-23
Stjaman...............2 10 13-33
FH ...................2 10 11-23
ÍBV...................2 10-2-43
KA....................2 0 0 2 0-3 0
Þór...................2 0 0 2 0-4 0
ÍA....................2 0 0 2 0-5 0
Úrslit leikja í fyrstu umfcrð 2. deildar,
Pepsi-dcildarinnar, í gærkvöld urðu þessi:
Brciðablik-Víðir.................0-0
Grindavík-Tindastóll ............1-1
ÍR-Fylkir........................1-2
Leiftur-Selfoss..................1-1
KR-INGAR NYTTU FÆRIN
KR-ingar unnu öruggan 3-1 sig-
ur á Stjömunni á fimmtudags-
kvöld í fýrsta 1. deildaríeiknum
sem fram fer í Garðabæ. Leikur-
inn var nokkuð harður og fengu
sjö leikmenn áminningu í leikn-
um, oft fýrír óþarfa brot og geð-
Bsku
Ragnar Margeirsson lék nú sinn
fyrsta heila leik fyrir KR í deildinni
og er ekki annað hægt að segja en
hann hafði byrjað vel. Tvö mörk
skoraði Ragnar í leiknum, en KR-
ingar nýttu sér vel þau tækifæri sem
þeir fengu; Stjömumenn vom hins-
vegar ekki á skotskónum.
Ragnar skoraði fyrsta mark KR á
15. mín. Hilmar Bjömsson gaf á
Ragnar þar sem hann var á auðum
- sjö leikmenn fengu
sjó og skot hans fór undir Jón Otta
Jónsson í markinu, 0-1. Stjömumenn
áttu eitt hættulegt færi í fyrri hálfleik,
er Ingólfur Ingólfsson átti skot rétt
yfir mark KR úr þröngu færi. Fyrri
hálfleikur var að örðu leyti tíðindalít-
ill, en hart var barist á miðjunni.
Stjömumenn jöfhuðu leikinn á 49.
mín. Lárus Guðmundsson fékk
sendingu frá Valdimar Kristófers-
syni, lék á Stefán Guðmundsson og
kom inn að markteig vinstra megin,
rétt við endalínu. Skot Lámsar fór í
Ólaf Gottskálksson og inn, 1-1.
Á 56. mín. björguðu Stjömumenn á
síðustu stundu í hom, en upp úr því
skoraði Ragnar Margeirsson annað
mark sitt og KR með góðu skoti af
markteig, 1-2. Stuttu síðan átti Láms
áminningu í leiknum
hættulegt skot að marki KR en fram-
hjá. Þriðja mark KR kom á 71. mín.
Pétur Pétursson gaf þá á Bjöm
Rafnsson sem skaut í Jón Otta og
inn, 1-3. Á 80. mín. var Láms á ferð-
inni hinu megin á vellinum, skallaði
til Valdimars sem skaut framhjá. Jón
Otti varði síðan skot frá Pétri Péturs-
syni á lokamínútu leiksins.
Stjömumennimir Sveinbjöm Há-
konarson, Ami Sveinsson og Ragnar
Gíslason fengu allir að sjá gula
spjaldið fyrir gróf brot og KR- ing-
amir Sigurður Björgvinsson, Hilmar
Bjömsson, Þorsteinn Halldórsson og
Bjöm Rafnsson sömuleiðis.
Sigur KR var sanngjam, en full stór
miðað við tækifærin í leiknum. KR-
ingar verða ekki auðsigraðir í sumar
og Stjömumenn eiga eftir að standa
sig vel, svo mikið er vist.
Akveðinn dómari leiksins var Gísli
Guðmundsson.
Liðin Stjaman: Jón Otti Jónsson, Birgir
Sigfiísson, Bjami Bcncdiktsson, Svcin-
bjöm Hákonarson, Láms Guðmundsson,
Ingólfur Ingólfsson, Ami Sveinsson,
Ragnar Gíslason, Valdimar Kristófcrs-
son, Magnús Bergs, Ami Kvaran (varam.
á 63. mín. Hcimir Erlingsson). KR: Ólaf-
ur Gottskálksson, Sigurður Björgvinsson,
Stefán Guðmundsson, Þormóður Egils-
son, Hilmar Bjömsson, Ragnar Margcirs-
son, Gunnar Skúlason, Þorsteinn Hall-
dórsson, Bjöm Rafitsson (varam. á 88.
mín. Sigurður Ómarsson), Amar Amar-
son, Pétur Pétursson.
Áhorfendur 1.215. BL