Tíminn - 06.06.1990, Side 1
MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ1990 - 106. TBL. 74. ÁRG. - VERÐ í LAUSASÖLU KR. 90,-
Dýraverndunarfélagið vill ganga úr skugga
kunnir knapar misþyrmi ekki hrossum fyrir sýningu
Dýraverndunarfélag Islands hefur
kært til Rannsóknariögreglu ríkisins
meintar misþyrmingar landskunnra
hestamanna á reiðhrossum. Misþyrm-
ingar þessar felast í svokölluðum
„brýningum“ þar sem knapinn lúber
hrossið með písk til að ná fram ótta hjá
dýrinu, sem aftur gerir það viljugra og
næmara fyrír ábendingum knapans.
Tilefni kærunnarer grein, sem rituð var
í tímaritið Eiðfaxa, þar sem höfundur
fullyrðirað hann hafi horftá landskunn-
an hestamann berja hross rétt fýrir
keppni í þeim tilgangi að ná fram ótta-
vilja. Slíkar aðfarir eru fordæmdar af
flestum hestamönnum, enda ekki veríð
að leggja beisli við góðan reiðhest,
heldur er með ógeðfelldum hætti verið
að beisla óttann í nafni hestaíþrótta.
• Blaðsíða 5
Gífurleg ásókn í sumarbústaði í uppsveitum Arnessýslu:
Sumarhús borgarbúa jafn
mörg og allir heimamenn
Opnan