Tíminn - 06.06.1990, Page 14
,t4-Tíminn
Miðvikudagur 6..júní 1990
+
Alúöarþakkir sendum viö þeim sem sýndu okkur samúö og vináttu og
veittu okkur hjálp við fráfall og útför frænda okkar
Péturs Albertssonar
bónda,
Kárastöðum
Sérstakar þakkir til lækna og hjúkrunarfólks á deild 11E Landspítalans
og allra þeirra sem heimsóttu hann í veikindum hans.
Ættingjar.
t
Þökkum af alhug öllum þeim fjölmörgu sem auðsýndu okkur samúö
og hlýhug við andlát og jarðarför dóttur minnar og systur okkar
Sigríðar Höllu Sigurðardóttur
Guö blessi ykkur öll.
ína Jensen og börn.
+
Okkar innilegustu þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur
vináttu og hlýhug meö blómum, kortum og skeytum viö andlát og útför
eiginmanns míns, fööur okkar, tengdaföður og afa
Guðbjörns Benediktssonar
Dalbraut 27
Guö blessi ykkur öll.
Guðrún Björnsdóttir
dætur, tengdasynir og barnabörn
Heyvinnuvélar til sölu
Til sölu heydreifikerfi, heyblásari, súgþurrkunar-
blásari, 10 hestafla rafmótor, CLAAS heyvagn 28
rúmmetra, Massey Ferguson 35X árg. ’64 dráttar-
vél. Upplýsingar í síma 93-66667.
“I
BÍLALEIGA
meö útibú allt í kringum
landið, gera þér mögulegt
að leigja bíl á einum stað
og skila honum á öðrum
Reykjavík
91-686915
Akureyri
96-21715
Pöntum bíla erlendis
Ert þú að hugsa um að
byggja t.d. iðnaðarhúsnæði,
verkstæði,
áhaidahús, gripahús,
bílskúr eða eitthvað annað?
Þá eigum við efnið fyrir þig.
Uppistöður, þakbitar og lang-
bönd eru valsaðir stálbitar og
allt boltaö saman á byggingar-
staö. Engin suöuvinna, ekkert
timbur. Allt efni í málmgrind
galvaniseraö.
>
interRent
Europcar
Upplýsingai gefa:
MÁLMIÐJAN HF.
SALAN HF.
Sími 91-680640
Bryndís Ólöf Lilja
Óskarsson
Fædd 27. júní 1966
Dáin 27. maí 1990
Um sama leyti og Island var að
brjóta af sér síðustu vetrarviðjamar
og klæddist sem óðast grænum möttli
endumýjaðs lífs, barðist ung íslensk
stúlka við illvígan sjúkdóm á erlendri
gmnd og beið lægri hlut. Hennar vil
ég nú minnast.
Bryndís Ólöf Lilja Óskarsson fædd-
ist 27. júní 1966 og andaðist í sjúkra-
húsi í Gautaborg 27. maí 1990. Jarð-
arforin hefur farið ffam í kyrrþey.
Hún var einkadóttir Björgvins Osk-
arssonar læknis og konu hans Þór-
hildar Jónasdóttur meinatæknis. Einn
bróður átti hún, Kolbein, sem leggur
stund á verkfræði við Chalmers
tækniháskólann. Hann er fæddur
1964. Svo stutt var á milli þeirra
systkina og einstakur kærleikur.
Snemma bar á óvenjulega fjölbreytt-
um gáfum og mannkostum hjá litlu
stúlkunni og varð hún hvers manns
hugljúfi og augasteinn sinna nánustu.
Sökum óvenjulegs þokka og framúr-
skarandi framkomu var Bryndís
fengin til að bera tískufatnað á sýn-
ingum og tókst henni það með ágæt-
um. Ekki vom þó sýningarstörfm
nema ígripavinna því hugurinn
steftidi í aðrar áttir. Þegar hún lauk
stúdentsprófi yngri en algengt var,
aðeins 17 ára gömul, stóð þessi stór-
gáfaða og glæsilega stúlka ffammi
fyrir erfiðu vali. Varð fyrst fyrir
söngnám sem hún stundaði ásamt pí-
anó- og orgelleik með ágætum ár-
angri í tvö ár. Þá gerði hún upp hug
sinn og hóf nám í verkfræði við sama
skóla og hjartkær bróðir hennar og
Tímaritið
Fyrsta hefti fimmta árgangs tímarits-
ins Utvarðar er komið út.
Utgefandi er samnefnd byggða-
hreyfing sem áður gekk undir nafn-
inu Samtök um jafnrétti milli Iands-
hluta.
Auk forystugreinar formanns Ut-
varðar, Hlöðvers Þ. Hlöðverssonar,
eru í heftinu meðal annars 18 greinar
eftir jafnmarga höftinda um hin
margvíslegustu efni, sem skarast
meira og minna í byggðamálaum-
ræðu, sem undirstrikar um hve víð-
feðan og mikilvægan málaflokk er að
ræða.
Sérstök ástæða er til að vekja at-
hygli á greinaflokki um kjarasamn-
ingana í febrúar sl. og áhrif þeirra á
byggðaþróun, en þær skrifa forystu-
menn aðila vinnumarkaðarins, þeir
Asmundur Stefánsson ASÍ, Ami
Benediktsson VS, Einar Oddur Krist-
jánsson VSÍ, Haukur Halldórsson SB
og Ögmundur Jónasson BSRB.
Sömuleiðis er vakin athygli á
merkri grein eftir dr. Hannes Jóns-
son, fyrrverandi sendiherra, sem
hann nefnir „Fómum ekki meiri
hagsmunum fyrir minni í EFTA/EB-
samningunum um efnahagssvæði
Evrópu“, en þar er komið víða við,
og m.a. fjallað um líkleg áhrif slíkra
samninga á byggðaþróun og sjálf-
stæði i landinu. Þá heldur Sigurður
Helgason, fyrrverandi sýslumaður,
áfram að fjalla um byggðaþróun á
Norðurlöndum, en auk þess em
greinar eftir Svein Þórarinsson verk-
fræðing, Egilsstöðum, Skúla G.
Johnsen borgarlækni, Rafnar L. Þor-
grimsson kennara, Litlulaugum,
Önnu Olafsdóttur Bjömsson þing-
konu, Halldór Ámason, fiskmati rík-
isins, Ingunni Svavarsdóttur sveitar-
stjóra, Kópaskeri, Aðalgeir Krist-
jánsson, fyrrverandi skjalavörð,
Kristínu Halldórsdóttur, ferðamála-
lágu nú leiðir þeirra systkinanna
saman enn um sinn. Varla hafði
Bryndís stigið fæti inn fyrir dyr há-
skólans en eftir henni var tekið og á
hana hlóðust trúnaðarstörf og brátt
var hún í forsvari fyrir samstúdenta
sína í mikilvægum málum. Hlaut hún
í tvígang heiðursmerki fyrir vel unn-
in störf í þágu skólans. Alla þessa
námshæfileika, listhneigð, fágaða
ffamkomu og traust samferðamanna
sinna átti hún ekki langt að sækja.
Best þekki ég til foðurömmu hennar,
Ólafar J. Jónsdóttur skáldkonu. Bera
ljóð hennar fagran vott um hlýhug
með öllu sem lifír. Fer vel á því að
birta hér kvæði Ólafar, Kveðja, sem
hún orti eftir ungan vin.
Vöktu fyrrum
hjá vöggu þinni
himins heilladísir,
Útvörður
ráði, og Guðjón Guðmundsson,
framkvæmdastjóra Sambands sveit-
arfélaga á Suðumesjum.
Þá er í heftinu birt kvæði eftir hinn
kunna hagyrðin Hákon Aðalsteins-
son á Egilsstöðum um komu Svía-
konungs í Fljótsdalinn og hreindýra-
veiðar, ásaat kvæðum eftir nemendur
bamaskólans á Eiðum.
I þessu tölublaði, fyrra af tveim sem
gefin era út á ári, er að venju að finna
dagskrá næsta landsfiindar byggða-
hreyfmgarinnar Útvarðar, en hann
verður að þessu sinni haldinn að
Glaðheimum í Vogum á Vatnsleysu-
strönd dagana 23. og 24. júní nk.
Meðal ræðumanna þar em Jón
Helgason, fyrrverandi ráðherra og
formaður nýskipaðrar nefndar um
byggðamál og Júlíus Sólnes um-
hverfismálaráðherra.
Þá verður fjallað sérstaklega um rit-
gerð eftir Sigurð Helgason o.fl.
stjómarmenn Utvarðar um byggða-
þróun hér með hliðsjón af aðgerðum
á hinum Norðurlöndunum í því efni.
Fundurinn er opinn öllu áhugafólki
um byggðamál.
lögðu þér i lófa
Ijúfar gjafir
og skópu örlög œvL
Lögðu þér i lófa
Ijúfar gjafir
disir hulins heima:
Ljóðstafi á varir,
liknstafi á tungu,
fljöta hönd til hjálpar,
ástúð i auga,
eld i hjarta,
styrk og mildi i muna,
samúð i sál
og sálarbirtu,
dáð í dagsins önnum.
Bind ég blómsveig
bestu óska
völdum dreng og vinL
Hjartans þakkir:
Heillir allar
varði þinn veg og greiðL
Föðursystir Bryndísar er Sveinbjörg
Alexanders sem einna fyrst íslenskra
dansara bar hróður landsins til ann-
arra landa. Er hún þekkt víða fyrir
hæfni sína, bæði sem dansari, stjóm-
andi og danshöfundur. Auðséð er að
arftir Bryndísar var fjölskrúðugur,
þótt ég nefni hér aðeins þau ættmenni
hennar sem ég þekki best.
Nú ríkir sorg og myrkur í fjölskyldu
Bryndísar eftir tíu vikna sleitulausan
bardaga við sláttumanninn miskunn-
arlausa. Foreldrar hennar og bróðir
viku aldrei frá, á nóttu eða degi,
hvorki til að stunda nám né vinnu.
Heima á íslandi beið Ólöf amma há-
öldruð og heilsuveil eftir því hver úr-
slitin yrðu. í síðasta símtali Bryndís-
ar við ömmu sína, eftir að hún var
orðin sjúk en þó enn í heimahúsum,
sagði hún: Elsku besta amman í
heiminum! Það er svo skrýtið að vera
allt í einu orðin veik og kippt svona
skyndilega út úr öllu — ég var meira
en á hundrað!
Amman bað heitt og beðið var fyrir
heilsu og lífi Bryndísar í kirkjum hér
og erlendis, en örlög voru ráðin, tími
elsku stúlkunnar þeirra á þessari jörð
var liðinn.
Nú mun hún, laus við þjáning og
vanmátt, ganga á ljóssins vegum þar
sem slíkrar sálar hljóta að bíða verð-
ug verkefni.
Aðstandendum Bryndísar bið ég
guðs hjálpar til að ná aftur fótfestu og
frið í sál sinni. Eg vil enda þessi
kveðjuorð með ljóðinu Bæn eftir
Ólöfu ömmu hennar:
Allra faðir, örliig veistþti min.
I angist hrópa ég i bœn til þin.
Þú, sem skilur dulinn hugarharm,
hjarta minu lyft að þínum barm.
Leiði mig þin blessuð hjáiparhönd
heim á bjarta ódauðleikans strönd.
Þar er hvildin þreyttu barni vís
þegar sól á efsta degi ris.
Vinkona.