Tíminn - 08.06.1990, Qupperneq 9

Tíminn - 08.06.1990, Qupperneq 9
8 Tíminn I Föstudagur 8. júní 1990 Föstudagur 8. júní 1990 Tíminn 9 . ■ Niðurlag ræðu Guðjóns. B. Ólafssonar forstjóra Sambandsins á 88. aðalfundi í gær: FORTIDIN HEFUR BUNDIÐ ÞUNGAR AR A HERÐAR SAMBANDSINS Hér á eftir fer lokakaflinn í ræðu Guðjóns B. Ólafssonar, forstjóra Sambandsins, sem hann flutti á aðalfundi SÍS í gær. Sá kafli sem hér birtist eru hugleiðingar Guðjóns um vádamál í efnahag og rekstri Sambandsins sem og um skipulagsmál, en sá málaflokkur er áberandi á þessum 88. aðalfundi Sam- bandsins. Sökum plássleysis er hvorki unnt að birta í heild ítarlega umíjöllun Guðjóns um reksturinn á sl. ári og á fyrstu fjórum mánuðum ársins í ár né umfjöllun hans um rekstur og afkomu kaupfélaganna. Frásagn- ir af þessum þáttum birtast annars staðar í blaðinu. Undanfarin ár hafa islenskir samvinnu- menn vissulega mátt reyna sannleiksgildi hins gamla máltækis að tímamir breytast og mennimir með. Þeir dagar sem við lifum nú, em vægast sagt byltingarkenndir, ekki aðeins innan samvinnuhreyfingarinnar hér á landi, heldur einnig víða úti í hinum stóra heimi. Hvem hefði grunað fyrir einu eða tveimur árum að lönd Austur-Evrópu segðu skilið við kommúnismann hvert á fætur öðm og gerðust lýðræðisþjóðir? Hvem hefði órað fyrir því, að sú gamla hugsjón að gera Evrópu að einni viðskipta- heild yrði að veruleika, eins og nú er að verða raunin á? Og hver hefði getað ímyndað sér það fyrir fáum ámm, að Samvinnutryggingar og Samvinnubankinn ættu eftir að sameinast öðrum fyrirtækjum, að KRON yrði breytt úr kaupfélagi í hlutafélag og að rætt yrði um það í fullri alvöru, að Sambandið tileinkaði sér hlutafélagsformið? Engu að síður er allt þetta staðreyndir. Allt er í heiminum hverfúlt og sífelldum umskiptum háð; um það vitnar mannkyns- sagan. En tímabilin hafa jafhan verið ærið misjöfn í aldanna rás; stundum er stöðug- leiki og kyrrstaða svo áratugum skiptir, en skyndilega dynja svo yfir róttækar breyting- ar og algjör stakkaskipti verða. Slika tíma lifúm við nú. Þegar ör þróun á sér stað, óstöðugleiki rík- ir og hættur steðja að, er lífsnauðsyn að tapa ekki áttum. Menn verða að halda ró sinni, einblína ekki um of á það sem er á fallanda fæti og verður ekki bjargað, heldur leitast við að skynja og skilja nútímann og aðlaga sig breytingum hans. Islensk samvinnusaga er orðin löng og hefúr verið hluti af sögu landsins í meira en hundrað ár. Hún hófst i gamla bændasamfélaginu, þegar vörur voru pantaðar tvisvar á ári, vor og haust, á lægra verði en kaupmenn gátu boðið. Breyttir tímar Hvílíkur óravegur er ekki frá þeim árum og til okkar tíma, sem eru dagar stórmarkað- anna, þegar vöruúrvalið ætlar aldrei að verða nóg, verslanir þurfa helst að hafa opið allan sólarhringinn og allt landið er orðið einn markaður. Þótt vöxtur og velgengni samvinnuhreyf- ingarinnar hafi verið ævintýri líkast, hafa skin og skúrir skipst á alla tíð. Okkur hefúr þó alltaf tekist að lifa af; við höfúm staðið af okkur kreppur, verslunaróffelsi og harð- snúna pólitíska andstöðu. í Tímabréfxnu 21. október sl. var birt upp- haf á ræðu Hallgríms Kristinssonar forstjóra á aðalfúndi Sambandsins 1922. Þau voru rifjuð upp í tilefni af því að kaup Lands- bankans á hlutabréfúm Sambandsins í Sam- vinnubankanum urðu skyndilega að stór- pólitísku fjölmiðlamáli, en Hallgrímur hóf ræðu sína þannig: „Tíu mánuðir eru liðnir siðan við komum hér saman síðast á aðalfúnd. Yður er kunn- ugt, að mánuðum saman áður en hann var haldinn breiddu sumir keppinautar vorir og mótstöðumenn þann orðróm um landið, að Sambandið væri að fara á höfúðið. Rak svo langt, að stjóm þess og forstjóri sáu sig til- neydd til að fara á fúnd aðallánardrottins síns, Landsbankans, og biðja haiui um yfir- lýsingu, sem hnekkti þessum orðrómi. Yfir- lýsingin var fúslega látin í té og síðan birt í öllum blöðum landsins.“ Þetta voru orð forstjóra Sambandsins fyrir 68 árum, en þau gætu sem hægast hafa ver- ið sögð í dag. Enn er um stórfelldan taprekstur að ræða hjá Sambandinu á árinu 1989, þrátt fyrir margvíslegar hertar aðhaldsaðgerðir í rekstri, auknar tekjur, mixmi útgjöld og sölu eigna til að grynnka á skuldum. Vandinn hefur safnast upp á löngum tíma Hvemig stendur á þessu? spyija menn og það er von. Meginvandi Sambandsins er uppsafhaður á löngum tíma. Það tókst að dylja þennan vanda og ýta honum á undan sér, þar til breyttar aðstæður í efnahagsmálum þjóðar- innar gerðu það ókleift. Sambandið er einfaldlega of skuldsett. Það hefúr of lítið eigið fé, þar sem það hefúr ekki haft nægan hagnað. Sem dæmi um það get ég nefnt, að allt árabilið frá 1976 til 1987 hafði Sambandið samtals rúmlega hundrað milljónir króna í halla. Það var niðurstaðan úr rekstrinum þetta rúmlega áratugsskeið. Á sama tímabili tók fyrirtækið á sig töp vegna utanaðkomandi starfsemi að fjárhæð sem nálgast 3 milljarða króna á núvirði. Þannig hefúr Sambandið fjármagnað bæði stuðning við atvinnulif úti um landið og tilraunir til uppbyggingar nýrrar atvinnustarfsemi. Sem dæmi má þar nefna vel yfir hálfan milljarð króna vegna ffystihúsa á vegum Sambands- ins, meira en 3/4 úr milljarði vegna gjald- þrota og greiðslustöðvana kaupfélaga, um 300 milljónir vegna Islandslax, milli 400 og 500 milljónir vegna Álafoss og þannig mætti lengi telja. Þessi töp voru ekki fjár- mögnuð úr hagnaði af rekstri eða eigin sjóð- um heldur með einu dýrasta fjármagni í vestrænum heimi. Þannig hafa skuldir Sam- bandsins vaxið umfrarn greiðslugetu rekstr- ar. Þess vegna er eignasala óhjákvæmileg og þess vegna er ýtrasta aðhald í rekstri nauðsynlegt. Og kannski fyrst og ffemst vegna þessarar stöðu eru samvinnumenn löngu hættir að geta skilið eðli þess vanda sem hijáð hefúr Sambandið á undanfömum árum og þeir eiga erfitt með að skilja hvem- ig á því stendur að nú þegar birtir til í rekstri kaupfélaganna skuli vandi ennþá steðja að Sambandinu. Svarið er einfaldlega þetta: Frá aðalfundi Sambandsins í gær. Sambandið hefúr tekið á sig gífúrlegar byrðar vegna þess að margs konar atvinnu- rekstur á vegum Sambandsins eða á vegum kaupfélaganna sem mikið fjármagn hefúr verið lagt í á undanfomum einum til tveim- ur áratugum, hefúr af einum eða öðrum ástæðum ekki gengið eða getað skilað arði. Sambandið hefúr lagt mikið fé í fasteignir og eignahluta i félögum og þessar eignir hafa ekki skilað arði í gegnum árin. Önnur samvinnufélög með fáum undantekningum, hafa ekki tekið á sig slíkar byrðar og hafa þar af leiðandi haft meiri möguleika og meira svigrúm til að ná árangri með spam- aðaraðgerðum í rekstri. Auk þess hafa sem betur fer möig kaupfélögin átt þess kost að endurskipuleggja sinn fjárhag með aðstoð opinberra sjóða, en slíku hefúr Sambandið aldrei átt kost á að neinu marki. SÍS, félags- og fjármálastofnun Sambandinu hefúr með öðrum orðum löngum verið ætlað það hlutverk að vera allsheijar félagsmála- og íjármálastofúun samvinnuhreyfingarinnar á íslandi en á sama tíma gera viðskiptalegir hagsmunaað- ilar í vaxandi mæli þá kröfú til Sambandsins að það veiti hámarksþjónustu fyrir lágmark- stilkostnað. Um árabil má segja að samvinnumenn hafi litið til Sambandsins nánast eins og hinn al- menni borgari hefúr litið til ríkiskassans — þaðan eiga greiðslumar að koma en öllum er illa við að borga skatta. Nú, þegar á bjátar, virðast ólíkir hagsmun- ir kristallast hjá þeim aðilum sem hinar ýmsu deildir Sambandsins þjóna. Þegar á móti blæs, er hver sjálfúm sér næstur. Fáir eru þeir sem gera sér grein fyrir þeim þungu byrðum sem fortíðin hefúr þannig bundið á herðar Sambandsins. Flestir munu aftur á móti ætlast til þess af Sambandinu að það geti að öllu leyti staðist samanburð við keppinauta í þeim greinum sem Sambandið starfar í, bæði í verði og þjónustu. Þetta er sambærilegt við það, finnst mér oft, að tveir fjallgöngumenn keppi um það hver fyrr komist á tindinn; annar þarf að bera þunga byrði en hinn enga. Það er ljóst, að þær byrðar sem á Sambandinu hvíla hafa ekki aðeins reynst erfiðar fyrir Sambandið sem fyrirtæki. Þær hafa líka lagt miklar kröfúr á starfsmenn Sambandsins sem sifellt eru að glíma við gamla drauga í sínu starfi og hafa ekki átt þess kost að njóta jákvæðs árangurs og viðurkenningar af þrotlausu starfi. Það hefúr gleymst að gæta þess að þeir þurfa líka sína hvatningu og tækifæri til þess að njóta viðurkenningar fyrir vel unnið dags- verk. Reksturinn nú í góðu horfi Ég fúllyrði hér að flestir þættir í daglegum rekstri Sambandsins eru í góðu horfl nú; sumir e.t.v. í því besta sem þeir hafa nokk- um tímann verið. Þannig erum við ekki fyrst og fremst að glíma við vandamál í rekstri, þótt þau séu vissulega fyrir hendi i sumum deildum. Ég vil þvert á móti segja, að þær aðgerðir sem við höfúm staðið fyrir undanfarin tvö ár eða svo eru einmitt núna að skila verulegum árangri. En sá bati næg- ir ekki enn, þar sem skuldsetningin er svo kostnaðarsöm í því efnahagsástandi sem við búum við nú á dögum. Hér á eftir verður fjallað um skipulagsmál Sambandsins undir sérstökum dagskrárlið. Sigurður Markússon, ffamkvæmdastjóri Sjávarafúrðadeildar, mun hafa ffamsögu um það efni og skýra ffá starfi skipulagsnefndar á vegum ffamkvæmdastjómar sem ég skip- aði í janúarmánuði sl., i kjölfar umræðna í Sambandsstjóm seint á sl. ári um þau efhi. Skipulagsmálin Sigurður Markússon var formaður þessar- ar skipulagsnefndar en með honum störfúðu Olafijr Friðriksson, ffamkvæmdastjóri Verslunardeildar, og Sigurður Gils Björg- vinsson, hagffæðingur Sambandsins. Þeir félagar hafa unnið mikið starf, en ffamkvæmdastjóm og stjóm Sambandsins hafa fylgst með því starfí allan tímann. Nefndin komst fljótlega að þeirri niður- stöðu að áffamhaldandi rekstur Sambands- ins í núverandi formi væri tæpast viðunandi kostur. Við ítarlega skoðun á kostum og göllum samvinnurekstrar annars vegar og rekstrar í formi hlutafélags hins vegar, komst nefndin fljótlega að þeirri niðurstöðu að hlutafélagaformið hefði maiga afgerandi yfirburði, ekki síst vegna lagabreytinga sem gerðar hafa verið hér á landi á undanfömum árum, hlutafélögunum í hag. Athugun nefndarinnar snerist því fljótlega að skoðun á því hvort fysilegt væri að breyta Sambandinu, annars vegar í eitt al- menningshlutafélag eða hins vegar í fleiri hlutafélög sem yrðu þá aðskilin eftir at- vinnugreinum og aðaldeildum Sambandsins eins og þær em i dag. Ég skal skjóta því hér inn í að það var lengi mín ósk og von að Sambandið gæti haldið áffam að starfa sem eitt fyrirtæki, ffemur en mörg aðskilin. Ég hef séð fyrir mér rekstur Sambandsins í formi hlutafélags með fimm manna stjóm sem í sitja fúlltrúar allra helstu starfsgreina og sem beri fúlla ábyrgð á rekstri og fjárhagsstöðu fyrirtækisins. Hags- munaaðilar gætu þá haft með sér sín hags- munafélög sem myndu reka sín erindi i gegnum stjóm og forstjóra Sambandsins, en ráðgefandi fagstjómir sem ynnu með við- komandi deildum yrðu sem slíkar lagðar niður. Þar með fengjum við liprara og léttara stjómkerfí fyrir fyrirtækið sem væntanlega tryggði skjótari og ábyrgari ákvarðanir en tekist hefúr með núverandi fyrirkomulagi. Þannig skapaðist nýtt tækifæri til að endur- spegla eiginfjárstöðu Sambandsins í efna- hagsreikningum kaupfélaganna. Sambandið sem almenningshlutafélag myndi síðan bjóða hlutabréf til sölu til allra félagsmanna samvinnufélaganna og almennings i landinu og í gegnum slíka hlutabréfaeign myndu skapast nýir möguleikar til beinna félags- legra og fjárhagslegra tengsla á milli Sam- bandsins og hins almenna félagsmanns sem nú væri orðinn beinn eignaraðili að Sam- bandinu. Það má e.t.v. orða það þannig að þetta gæti verið kærkomin leið fyrir sam- vinnufélögin til að finna aftur eigendur sína. Ef sú verður hins vegar niðurstaðan að vegna fjárhagsvanda Sambandsins og við- varandi rekstrarvanda m.a. á verslunarsvið- inu, að hinir ýmsu hagsmunaaðilar telji sér ekki lengúr fært að starfa saman í einu fé- lagi, þá mun ég sem forstjóri að sjálfsögðu heils hugar styðja þær hugmyndir sem stjóm Sambandsins hefúr einhuga lýst stuðningi við og verða lagðar hér fram í til- löguformi síðar á fúndinum. Ýtrustu aögætni þörf Hér eru miklar breytingar fyrirhugaðar sem munu krefjast nákvæmrar og faglegrar útfærslu og ýtmstu aðgætni í samskiptum við alla okkar umbjóðendur, hvort sem um er að ræða kaupfélög landsins, viðskipta- og hagsmunaaðila eða lánastofnanir. Við emm hér að tala um veigamestu breytingar sem til umræðu hafa verið fra því að samvinnufé- lög vom stofnuð á Islandi fyrir meira en hundrað árum og sú skylda hlýtur að hvíla á okkur öllum að rasa hér í engu um ráð ffarn. Vandamálin verður ekki aðeins að leysa miðað við þarfir dagsins í dag eins og við skynjum þær nú, heldur ber okkur að hugsa til ffamtíðar og reyna eflir fremsta megni að sjá fyrir þær breytingar í þjóðfélagsháttum, viðskiptaháttum, bæði innanlands og utan, og fyrirtækjarekstri sem kunna að verða á næstu árum. Aðskilin rekstrarfélög eftir starfsgreinum bjóða vissulega upp á möguleika á skilvirk- ari stjómun og gera verður ráð fyrir því að fyrr en hingað til verði gripið til viðeigandi ráðstafana þegar um hallarekstur verður að ræða. Á hinn bóginn verður að benda á að af þessu mun hljótast nokkuð skattalegt óhag- ræði, þar sem þau fyrirtæki sem hafa hagn- að munu boiga skatta þó að önnur fyrirtæki undir regnhlif eignarhaldsfélagsins séu rek- in með tapi. Ég mun að öðm leyti ekki tjá mig um vænt- anlegar skipulagsbreytingar í þessari ffarn- söguræðu, en vísa til ítarlegrar skýrslu sem Sigurður Markússon ffamkvæmdastjóri mun flytja hér á eftir. Það er vissulega ljóst eftir þau miklu áföll sem Sambandið hefúr orðið að taka á sig, að breytinga er þörf. Möguleikar samvinnu- manna til jákvæðrar þátttöku í margs konar atvinnurekstri em sannarlega miklir í ffam- tiðinni. Til þess að nýta þessa möguleika er nauðsynlegt að styrkja nú stoðimar og létta byrðamar eftir föngum áður en haldið er á brattann á ný. Ég hvet alla samvinnumenn til að láta engan bilbug á sér finna, heldur sækja enn á brattann og vera óhræddir við róttækar breytingar í anda nýrra tíma. Mannabreytingar Góðir fundarmenn, máli mínu fer nú senn að ljúka. Ég vil geta um helstu mannabreyt- ingar sem urðu í stjómunarstörfúm hjá Sam- bandinu á sl. ári. Eins og kunnugt er var um sl. áramót starfsemi Búnaðardeildar, Bíl- vangs sf. og Jötuns hf. sameinuð i eina deild sem hlaut nafhið Jötunn og er til húsa með alla sína starfsemi að Höfðabakka 9 í Reykjavík. Framkvæmdastjóri Jötuns er Sigurður Á. Sigurðsson sem áður stjómaði Iceland Seafood Limited í Hull. Ólafúr Jónsson var ráðinn framkvæmdastjóri Ice- land Seafood Limited i hans stað, en Rik- harð Jónsson tók við starfi ffamkvæmda- stjóra Útvegsfélags samvinnumanna hf. af Ólafi Jónssyni. Jón Þór Jóhannsson, ffam- kvæmdastjóri Búnaðardeildar, kom til starfa á forstjóraskrifstofú sem fúlltrúi forstjóra. Kjartan R Kjartansson íét af störfúm sem ffamkvæmdastjóri Fjárhagsdeildar að eigin ósk um sl. áramót. Ég vil nota þetta tækifæri til að flytja Kjartani þakkir fyrir farsæl og ötul störf fyrir Sambandið um 37 ára skeið. Ég færi honum og fjölskyldu hans þakkir fyrir góða viðkynningu og flyt þeim bestu ffamtíðaróskir. Bjöm Ingimarsson hagffæð- ingur tók við starfi íjármálastjóra Sam- bandsins ffá og með 1. janúar 1990. Frá sama tíma var Fjárhagsdeild sem slík lögð niður en starfsemi sem þar fór ffam samein- uð forstjóraskrifstofú. Þá vil ég færa sérstakar þakkir til félaga minna í ffamkvæmdastjóm Sambandsins fyrir vel unnin störf og fyrir góða samvinnu. Ég þakka starfsmönnum, stjóm og öllum velunnurum Sambandsins gott starf á liðnu ári. Sérstakar þakkir fyrir gott samstarf og ánægjuleg kyimi vil ég flytja formanni Sambandsstjómar og fjölskyldu hans, en eins og kunnugt er hefiir Ólafúr Sverrisson gefið yfirlýsingu um að hann gefi ekki aftur kost á sér til formanns. Ykkur, góðir fúndarmenn, þakka ég gott hljóð. \ m |í|||j ’iPH n |§|g i- '\::\::S;: * i }■;. &| p- l i|| |jj : 1 |HÍ Épf H ilH 1 l||l Wíi plll Wi 'WM mm :

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.