Tíminn - 10.07.1990, Side 4
4 Tíminn
ÞriðjudagurlO. júlí 1990
FRÉTTAYFIRLIT
HOUSTON - Bandaríkja-
stjórn vill ekki að banda-
menn hennar styrki Mikael
Gorbatsjov leiðtoga Sovét-
ríkjanna með Ijárhagsað-
stoð. Á leiðtogafundi sjö
stærstu iðnríkja heimsins í
Houston er búist við miklum
umræðum um þetta. Ljóst er
að Bandaríkjamenn munu
beita bandamenn sína þrýst-
ingi svo þeir hætti við slík
áform. Þeir munu líka reyna
að fá leiötogana sjö til að
fallast á aðgerðirtil að draga
úr aðstoð við landbúnað I
löndum sínum og efla með
því frjálsa samkeppni land-
búnaðarvara.
MOSKVA - Sovéski komm-
únistaflokkurinn greiddi at-
kvæði um að breyta stjórn
sinni. Útkoma atkvæða-
greiðslunnar var álitin mikill
sigur fyrir Gorbatsjov. Full-
trúar greiddu því atkvæði
með miklum mun að 15 leið-
togar kommúnistaflokka
sovétlýðveldanna skyldu
sitja í stjórnarnefnd komm-
únistaflokssins, „Politburo".
Eftir þessa breytingu er talið
að harðlínumenn geti ekki
myndað meirihluta gegn
Gorbatsjov í stjórnarnefnd-
inni.
MOSKVA - Stjórnarnefndar-
maðurinn Alexandir
Yakovlyev varð í gær bitbein
vinstri og hægri manna á
sovéska flokksþinginu.
Yakovlyev er óvinsæll meðal
harðlínumanna kommúnista
og rússneskra þjóðernis-
sinna þar sem hann er helsti
höfundur „Perestrojka“-um-
bóta Gorbatsjovs. Hann
sagði á 28. þingi sovét-
kommúnista í gær að hann
hefði orðið fórnarlamb lyga
og níðskrifa andstæðinga
sinna.
NAIRÓBÍ - Stjórn Kenýa
sakaði bandaríska sendiráð-
ið í Nairóbí um að skipta sér
af innanríkismálum landsins.
Lögreglumenn og andófs-
menn tókust á í úthverfi höf-
uöborgarinnar í gær, þriðja
daginn í röð, en andófsmenn
mótmæla „lýðræði eins
flokks" í landinu.
JÓHANNESARBORG
Vopnaðir hægri menn hót-
uðu í gær að grípa til ofbeld-
is gegn umbótasinnaöri rík-
isstjórn landsins ef haldið
yrði áfram að handtaka
menn grunaða um þátttöku í
sprengjutilræðum.
FRANKFURT - Vestur-
þýsku sigurvegararnir í
heimsmeistarkeppninni í fót-
bolta héldu heim í gær. Þeim
var fagnað innilega en hátíð-
arhöld vegna sigursins í
Þýskalandi mörkuðust af of-
beldi og að minnsta kosti þrír
menn létu lífið.
MANAGUA - Verkamenn (
verkalýðsfélögum hliðhollum
Sandínistum eru nú I verk-
falli í Nikaragúa. Þeir reistu
vegartálma á götum og tók-
ust á við stuðningsmenn rík-
isstjórnarinnar. Litið er á
þetta verkfall sem mikla ógn-
un við ríkisstjóm Viólettu
Chamorro.
Albanir
flýja yfir
„múrinn(í
Austur-þjóðverjar standa rólegir í biðröð utan við banka fýrír 1. júlí. Biðlund þeirra fér nú minnkandi
Austur-Þjóðverjar fá annan skammt af þýskum mörkum:
Brúnin þyngist
á A-Þjóðverjum
Austur-Þjóðveijar stóðu í biðröðum
á mánudag til að skipta austur- þýsk-
um mörkum fyrir (vestur)-þýsk.
Margir létu í ljós reiði vegna verð-
hækkana og aukins atvinnuleysis.
Þegar Austur-Þjóðverjar skiptu pen-
ingum í síðustu viku stóðu þeir þolin-
móðir í biðröðum en mannfjöldinn á
mánudag var ekki jafn skapgóður og
lét í ljós óánægju sína með hrinding-
um og blótsyrðum. „Yttu ekki á mig“
hrópaði ungur maður að næsta manni
í röðinni utan við Berliner Sparkasse
í Austur-Berlín. „Guð, ég þakka fyrir
að búa hér ekki lengur -Þetta versnar
daglega," sagði Gerd Voss 47 ára
gamall slátrari sem fluttist úr landi til
Numberg í april.
Samkvæmt efnahagssáttmála þýsku
ríkjanna mátti hver Austur-Þjóðveiji
taka 2000 mörk af bankareikningi
sínum í síðustu viku en í gær mátti
hver taka út eins og hann vildi. Marg-
ir tóku út háar fjárhæðir. „Hátt verð-
lag hefúr leitt til þess að marga vant-
ar peninga," sagði Kurt Loeffler, tals-
maður austur-þýskra sparisjóða.
Austur-þýsk heildverslun er enn i
höndum stórra ríkisrekinna einokun-
arhringa og þótt samkeppni eigi að
ríkja er verðlag hátt jafhvel þótt mið-
að sé við verðlag á Vesturlöndum.
Kjöt, grænmeti og brauð kostar mis-
mikið í A-Þýskalandi en verðið er
allt að tvöfalt hærra en í V-Þýska-
landi en þar em meðallaun þrefalt
hærri. „Verðlag er almennt of hátt,“
sagði Manfried Ortlieb, deildarstjóri
í austur- þýska efhahagsráðuneytinu
en ráðuneytið gekkst fyrir könnun í
mörg hundmð verslunum í Austur-
Þýskalandi í síðustu viku. „Verslun-
areigendur neyða með þessu við-
skiptavini sína til að fara vestur fyrir
landamærin til að versla en það vild-
um við koma I veg fyrir“ sagði hann.
Opinberar verðlagshömlur em enn á
sumum vömtegundum en þær skipta
marga neytendur litlu þar sem hið op-
inbera verð er líka of hátt. Til marks
um það er verkfall leigubílsstjóra I
Austur-Berlín á mánudag en þeir
kröfðust þess að verð á þjónustu
þeirra yrði lækkað. Þeir segja að til-
skipun ríkisstjómarinar um tvöfold-
un á taxta leigubílsstjóra hafi hrakið
frá þeim viðskiptavinina. I Austur-
Þýskalandi em verkalýðsfélög óróleg
og von er á aðgerðum þeirra til að
vemda lífskjör félagsmanna sinna.
Félag jámiðnaðarmanna IG í Austur-
Þýskalandi hefúr hótað verkfalli ef
ekki næst fram mikil kauphækkun og
stytt vinnuvika. Stjómvöld hvetja
verkalýðsfélög til að sýna biðlund og
segja að kaupkröfúr stefni I hættu
rekstri margra fyrirtækja og geti auk-
ið enn á atvinnuleysið. í júní vom
142.000 menn atvinnulausir og hafði
atvinnuleysi aukist um 50% ffá fyrri
mánuði.
Nú er skemmra en ár ffá því að
fjöldaflótti Austur-Þjóðveija varð til
að steypa kommúnistastjóm Austur-
Þýskalands. Sams konar flótti Al-
bana úr landi virðist nú ógna síðustu
harðlínustjóm kommúnista I Evrópu.
Aldrei áður hefúr orðið vart jafn
mikillar óánægju í Albaníu en 6000
Albanir hafa nú „greitt atkvæði gegn
stjóminni“ með því að leita hælis I
erlendum sendiráðum I höfúðborg-
inni Tirana þar sem þeir biða þess að
fá hæli á Vesturlöndum. Astandið I
sendiráðunum þykir minna á ástand-
ið í v-þýskum sendiráðum í Austur-
Evrópu á síðasta ári. Þá flúðu 50.000
Austur-Þjóðveijar til Vestur-Þýska-
lands og leiddi það til almennrar
uppreisnar sem kom a-þýsku komm-
únistastjóminni ffá völdum. Flótti
Albana úr landi hefúr orðið til þess
að umbótamenn hafa eflst í ríkis-
stjóm Albaníu. Innanrikisráðherrann
Simon Stefani var rekinn á laugar-
dag ásamt nokkmm öðmm harðlínu-
mönnum og í gær vom kynntar enn
ffekari breytingar á ríkisstjóminni en
þá vom fjórir ráðherrar sem farið
hafa með efnahagsmál reknir úr rík-
isstjóminni. Enn er ekki vitað hvort
þessar breytingar boða vemleg um-
skipti í Albaníu.
Albanimir sem nú hafast við í er-
lendum sendiráðum óska flestir eftir
að flytjast til „öflugs ríkis sem sé
langt í burtu“. Þetta land er I hugum
flestra Vestur-Þýskaland og hefur
Genscher utanríkisráðherra Vestur-
Þjóðveijar boðið þá velkomna. Tal-
maður utanríkisráðuneytisins í
Bonn, Hans Schumacher, sagði að
enn hefði ekki fengist leyfi til að
senda hjálpargögn til vestur-þýska
sendiráðsins í Tirana þar sem flestir
flóttamennimir hafast við. Hann
sagði að vegna tafa við flutningana
hefði reynst erfiðara að aðstoða Al-
bani en Austur-Þjóðveija fyrir ári
síðan en reynslan af flótta Austur-
Þjóðveija kæmi nú að gagni.
Helmingur stórra borga nær ekki endum
saman á þessu ári:
Bandarískar borgir
nálgast gjaldþrot
Borgir víðs vegar um Bandaríki
Norður-Ameriku berjast nú við að ná
endum saman. Gert er ráð fyrir að um
helmingur borga og bæja með meira
en 10.000 íbúum lendi í greiðsluerf-
iðleikum á þessu ári. Borgarstjóm
höfúðborgarinnar Washington til-
kynnti í síðustu viku að hún gæti
hvorki greitt 55 milljón dala I lífeyr-
issjóð borgarinnar né 30 milljón dali
til almenningssamgangna í lok fjár-
lagaársins 30. september. „Við höfum
fyrr átt í greiðsluerfiðleikum en aldr-
ei jafnmiklum og nú,“ sagði talsmað-
ur fjármálaskrifstofu borgarinnar,
Willy Lynch, í samtali við fréttamann
Reuters. „Lausafjárstaða okkar er
erfið og það sama á við um margar
aðrar borgir í Bandarikjunum, sér-
staklega á austurströndinni," sagði
hann.
í könnun sem „Samband banda-
rískra borga“ (National Leage of
Cities) birti í þessum mánuði kemur
fram að Washingtonborg er ekki ein
um að eiga í fjárhagserfiðleikum.
Helmingur þeirra 576 borga og bæja
sem hafa flciri en 10.000 íbúa býst
við að tekjur dugi ekki til að mæta út-
gjöldum. Tekjur hafa minnkað þar
sem hagnaður fyrirtækja hefur dreg-
ist saman og minni söluskattur er inn-
heimtur. Kostnaður hefúr aukist til
dæmis vegna umhverfisvemdar og
við heilbrigðisþjónustu m.a. vegna
eyðnisjúkdómsins.
í New-York borg var spáð miklum
greiðsluhalla en til að mæta honum
hafa borgaryfirvöld hækkað tekju- og
eignaskatta en dregið úr framlögum
til almenningsgarða, bókasafna og
annarrar þjónustu við almenning.
Talsmaður borgarinnar, Charles Bra-
dy, sagðist óttast greiðsluhalla líka á
næsta ári. „Þá veit ég ekki hvað ger-
ist,“ sagði hann fféttamanni Reuters.
„Það er ekki hægt að hækka skatta
endalaust en draga úr þjónustu sér-
staklega þar sem kröfúr um bætta
þjónustu hins opinbera aukast I sí-
fellu“.
Borgarstjómir kenna ríkisstjóm
Ronalds Reagans um ástandið en
hann lét skera niður framlög ríkisins
til sveitarfélaga um marga milljarða
dala.
Fang Lizhi segir stjórnina of lina við
kommúnista í Kína:
Andófsmaður gagnrýnir
stefnu Bandaríkjanna
Frægasti andófsmaður Kínverja,
Fang Lizhi, sagði í gær að stjóm
Bandaríkjanna væri of lin í sam-
skíptum sínum við harðlínu-
kommúnista í Kína. Fang dvaldi
ásamt konu sinni rúmt ár í banda-
riska sendiráðinu í Peking. Hann
sagði í viðtali við dagblaðið Los
Angeles Times að hann væri
þakklátur bandariskum stjóm-
völdum fyrir að hafa veitt sér hæli
eftir blóðbaðið á Torgi hins him-
neska ffiðar í júm' 1989 en hann
sagði að þau gætu gert meira til
að auka þrýsting á stjómvöld í
Kína.
Viðtalið við Fang var tekið i
Cambridge háskóla þar sem hann
gegnir stöðu gestaprófessors I
stjömufræði. Kínveijar leyfðu
honum að yfirgefa bandaríska
sendiráðið og fara úr landi 23.
júni og þá hélt hann til Bretlands.
Fang sagði að hann ætti ffelsi sitt
að þakka erlendum þrýstingi á
kínversku ríkisstjómina. Hann
sagði að Bandaríkjamenn hefðu
átt að beita Klnveija meiri þrýst-
ingi. „Kinversk stjómvöld virða
aðeins vald og -láta því aðeins
undan að þeim sé sýnd harka“.
Harrn var spurður nánar um hvað
Fang Lizhi og kona hans Ll.
Kínverjar sögðu að Fang hefðf
heitið þvl að gagnrýna ekki
Kína á eríendrí grund.
Bandarikjamenn hefðu átt að gera
og svaraði hann því að þau hefðu
átt að krefjast iausnar fólks sem
var fangelsað og þau hefðu átt að
biðja um lista með nöfnum þeirra
sem vom teknir af lífi. „Þau hefðu
getað sagt að meðan beðið væri
eftir slíkum lista myndi haldið
áffam að beita þá einhveijum
efnahagsþvingunum“. Fang sagð-
ist ekki telja að andófsöfl í Kina
hefðu verið kveðin í kútinn.
„Mótmælin vom svo umfangs-
mikil að fólk fór að hugsa sjálf-
stætt og þótt fólki sé nú bannað að
láta I ljós hug sinn þá birgir það