Tíminn - 14.07.1990, Síða 1
Halldór Guðbjarnason, fýrrverandi bankastjóri,
um söluna á Utvegsbankanum:
Fengu gefinn hátt
á annan milljarð
Halldór Guðbjamason, fýrrver-
andi bankastjóri Útvegsbankans,
gagnrýnir harðlega söluna á Út-
vegsbankanum í helgarviðtali
Tímans. Halldór segir ríkisvaldið
hafa gefið kaupendum bankans,
Iðnaðarbankanum, Verslunar-
bankanum og Alþýðubankanum,
á annan milljarð. Hann segir
samning ríkisins og bankans vera
vitlausan. Þannig hafi t.d. veríð
samið um að öll „erfið“ mál skuli
lenda á ríkissjóði, en það mun
hafa í för með sér mikinn kostnað
fýrir skattgreiðendur. Halldór seg-
ir að viðskiptaráðuneytið neiti að
horfást í augu við þessar stað-
reyndir og noti blekkingar til að
reyna að breiða yfir kostnaðinn.
Hann segir að eðliiegt hefði verið
að Alþingi hefði tekið ákvörðun í
þessu máli en ekki einn ráðherra.
Halldór ræðir um Hafskipsmálið,
sem hann segir hafa veríð sér
harður reynsluskóli. í því hafi ver-
ið beitt hinum andstyggilegustu
brögðum til að hafa æruna af
heiðarlegum mönnum. Halldór
var í síðustu viku sýknaður í
Sakadómi Reykjavíkur af öllum
ákærum í Hafskipsmálinu.
• Blaðsíða 8
Halldór Guðbjarnason segir að Útvegsbankinn hafi verið seldur fyrir slikk.
Síðasti pöntunardagur næsta hluta ríkissamningsins til
kaupa á Macintosh tölvubúnaði með verulegum afslætti er:
Innkaupastofnun ríkisins
Ú Apple-umboðið Radíóbúðin hf.