Tíminn - 13.09.1990, Síða 3
Fimmtudagur 13. september 1990
Tíminn 3
Aflamiðlun ætlar ekki að úthluta útflutningsleyfum til meintra lögbrjóta:
VERÐA L0GBRJ0T-
ARNIR KÆRÐIR?
Verið er að kanna að beiðni sjávarútvegsráðuneytisins hvort
fjórir aðilar hafi flutt út ísaðan fisk umfram heimildir. Á fundi
stjómar Aflamiðlunar 10. september sl. var það ákveðið að út-
hluta ekki útflutningsleyfum til flögurra aðila fýrr en Ijóst væri
hvemig stjómvöld myndu framfýlgja eftirliti með því að úthlut-
anir Aflamiðlunar séu virtar.
Gylfi Gautur Pétursson, lögfræð-
ingur i sjávarútvegsráðuneytinu,
sagði í Morgunblaðinu í gær að
slíkt athæfi varði við 146. grein ai-
mennra hegningarlaga en þar segir
að hafi maður gefið opinberu
stjómvaldi ranga yfirlýsingu um
málefni, sem honum er skylt að að
gefa upplýsingar um, skuli hann
sæta sektum eða varðhaldi allt að 6
mánuðum eða fangelsi allt að 4
mánuðum.
Þeir aðilar sem um ræðir eru
Skipaþjónusta Suðurlands, Þorláks-
höfh, Gámavinir í Vestmannaeyj-
um, Skipaafgreiðsla Vestmanna-
eyja og Kleifar-Sæhamar, Vest-
mannaeyjum. Auk þess var ákveðið
að skerða útflutningsheimildir
fimm annarra útflytjenda um 30%
en þeir hafa nokkrum sinnum flutt
út ísfisk umffam heimildir. Þessir
aðilar eru Hrellir hf. á Höfn í
Homafirði, Vísir í Grindavík, Berg-
ur-Huginn í Vestmannaeyjum, Jón
Asbjömsson og Seifur sem em í
Reykjavík. Það em sem sagt niu að-
ilar af þeim 55 sem flytja út isaðan
fisk sem hafa ekki hreinan skjöld að
mati Aflamiðlunar. Stjóm Afla-
miðlunar vill taka það ffam að
gefnu tilefni að úthlutanir hennar
em aðgreindar eftir tegundum og að
útflytjendum er óheimilt að flytja
leyfi ffá einni tegund til annarrar.
—SE
Stjóm Verktakasambands
fslands ályktar:
Ótti viö
að deilur
spilli ffyr-
ir álveri
Stjórn Verktakasambands fs-
lands hefur sent rOdsstjórninni
bréf þar sem varað er við þeim
ágreiningi sem upp er kominn í
rildsstjórninni um staðsetningu
nýs ólvers hér á landi. Stjórn
Verktakasambandsins telur ein-
sýnt að deilur og átok innan rík-
isstjórnarfiokkanna um stað-
setningu álvers muni leiða til
þess að málið dragist enn á lang-
inn og verulegar llkur séu á þvi
að slík átök verði til þess að hin-
ir erlendu aðilar falli alfarið frá
áformum sínum um byggingu
álvers hér á landi.
Þá beinir stjórn Verktakasam-
bandsins þeirri eindregnu
áskorun til rikisstjórnar íslands
að hún gangi nú þegar til endan-
legra samninga við Atlantsál
fyrirtækin um byggingu álvers á
grundvelli þeirrar stöðu sem
fyrir liggur í málinu. - EÓ
Aðalfundur Sambands sveitarfélaga á Austurlandi:
Alver verði staðsett
nálægt virkjuninni
Bjöm Jónsson, markaðsstjóri hjá
Fróða hf.
Nýr markaðsstjóri
hjá Fróða hf.
Bjöm Jónsson tók nýlega við starfi
markaðsstjóra hjá útgáfufyrirtækinu
Fróða hf. Bjöm er 29 ára að aldri og
útskrifaðist sem viðskiptaffæðingur
ffá Háskóla íslands árið 1986 og
stundaði síðan nám í þýsku og við-
skiptafræði í Universitat in Bremen í
Vestur- Þýskalandi.
Bjöm starfaði hjá Pósti og síma og
vann m.a. við að stofnsetja markaðs-
deild stofhunarinnar og skipuleggja
starf hennar. Þá starfaði hann einnig
um skeið hjá Basel Kantonalbank í
Sviss.
Bjöm er kunnur íþróttamaður. Hann
hefur verið fyrirliði handknattleiks-
liðs Breiðabliks og leikið nokkra
landsleiki i handknattleik, auk þess
að hafa leikið handknattleik bæði í
Vestur- Þýskalandi og Sviss. Bjöm er
kvæntur Helgu Sigurðardóttur og
eiga þau eitt bam.
(FréttatUkynning)
Nýr út-
varps
stjóri
Helgi Pétursson dagskrárgerðarmað-
ur tók við starfi útvarpsstjóra Aðal-
stöðvarinnar í gær. Þangað kemur
Helgi ffá Stöð 2 þar sem hann hefur
unnið að dagskrárgerð undanfarin
misseri. Fyrrverandi útvarpsstjóri
Aðalstöðvarinnar, Bjami Dagur
Jónsson, lét að eigin ósk af störfum.
Á aðalfundi Sambands sveitarfé-
laga í Austuriandskjördæmi, sem
haldinn var á Eskifirði 24. og 25.
ágúst, var samþykkt ályktun þar
sem fagnað er ákvörðun rikis-
sþ'ómarinnar um stótvirkjun í Fljóts-
dal. Jafriffamt er skorað á Alþingi
og ríkisstjóm að velja nýju álveri
stað á Reyðarfirði.
Aðalfundurixm telur þetta vera besta
tækifæri sem gefist hefur í langan tíma
til að snúa byggðaþróuninni við og ótt-
ast að verði það ekki nýtt sé vist að
langt verði í það nassta. Mótmælt er
hugmyndum um að nýta orku nýrra
virkjana á Austurlandi á þann hátt að
auka enn frekar byggðaröskun sem
orðin er í landinu. Fjölmargar aðrar
ályktanir voru gerðar á fundinum.
M. a. var hvatt til áffamhaldandi rann-
sókna á hugsanlegri jarðgangagerð á
Austurlandi og óskað eftir að ffam-
kvæmdir við jarðgöng eystra hefjist
sem fyrst. Fundurinn beindi þvi til
Vegagerðar ríkisins að áætlanir um
snjómokstur á Austurlandi verði sam-
ræmdar og snjómokstur aukinn. Því
var beint til stjómvalda að fé það sem
lögum samkvæmt á að renna til vega-
mála verði ekki skert.
Fundurinn skoraði á Alþingi og rikis-
stjóm að hætta þeirri ósvinnu að
skerða markaðan tekjustofn Ferða-
málaráðs, enda væri dijúgum hluta af
því fé varið til uppbyggingar í kjör-
dæmum landsins. Þá fagnaði fundur-
inn þeim áfangasigrum sem unnist
hafa á síðasta ári varðandi þjónustu op-
inberra stofnana við landsbyggðina. í
þessu sambandi minnti fundurinn á
flutning höfuðstöðva Skógræktar rík-
isins og hinar svokölluðu grænu síma-
línur sem nokkrar opinberar stofnanir
hafa tekið upp. Fundur taldi þó að gera
mætti betur í þessu efni. -EÓ
S J AVARUTVEGSSYNINGIN
SETT19. SEPTEMBER
íslenska sjávarútvegssýningin verður
haldin í þriðja sinn í Laugardalshöll-
inni dagana 19. til 23. september.
Sýningin verður sett formlega mið-
vikudaginn 19. september kl. 9:30 en
verður opin daglega milli kl. 10 og
18.
íslenska sjávarútvegssýningin er nú
sem áður haldin á vegum enska sýn-
ingarfyrirtækisins Reed Exhibiton
Companies Ltd. Starfsmenn þess eru
nú sem óðast að koma til landsins
enda styttist í opnun sýningarinnar.
—SE
EINDAGI
STAÐGREIÐSLUFJÁR
ER15. HVERSMÁNAÐAR
Launagreiðendum ber að skila afdreginni staðgreiðslu af launum og
reiknuðu endurgjaldi í hverjum mánuði. Með gírókerfi staðgreiðslu er unnt
að greiða í öllum bönkum, sparisjóðum og pósthúsum.
Eindagi staðgreiðslufjár er 15. hvers mánaðar.
Munið að gera skil tímanlega!
RSK
RÍKISSKATTSTJÓRI
<3AÐGQ@S§£