Tíminn - 27.09.1990, Blaðsíða 5
Fimmtudagur 27. september 1990
Tíminn 5
Guðmundur J. vill að ríkisstjórnin auki ekki skattheimtu vegna hækkandi olíuverðs:
„Ríkið verður að róa
verðbólguvillidýrin“
„Ef þetta springur í Ioft upp, en sú hœtta er alltaf tll staðar
meðan þetta ástand varir, þá kemur hér æðandi djöfulsins
verðbólga. Það eru hér blóðþyrst yillidýr með bankana í far-
arbroddi sem eru óð í hækkanir. Ég held að það myndi virka
ákaflega róandi á þessa aðila ef ríkið afsalaði sér þessari ol-
íuverðhækkun.“
Þetta sagði Guðmundur J. Guð-
mundsson formaður Dagsbrúnar í
samtali við Tímann, en stjórn Dags-
brúnar hefur sent frá sér ályktun þar
sem ríkisstjórnin er hvött til þess að
auka ekki skattlagningu á olíu og
bensín í tengslum við veentanlega
hækkun á þessum vörum. Stjórn
Dagsbrúnar leggur til að sú krónu-
tala, sem nú er tekin af þessum vör-
um, verði látin haldast óbreytt.
Guðmundur J. óttast mjög afdrif
þjóðarsáttarinnar verði olíuverð-
hækkun látin bitna á landsmönnum
af fullum þunga. Hann segir að
Dagsbrún sé ekki að tala um að rík-
isstjórnin eigi að greiða niður af-
leiðingar styrjaldarástandsins við
Persaflóann. Aðeins sé verið að fara
fram á að ríkið haldi óbreyttum
skatttekjum af olíu en auki þær
ekki.
Guðmundur sagði menn hafa
skilning á því að ríkissjóður hefði
þörf fyrir auknar tekjur. Hann
minnti á að hér væri um svo mikla
hagsmuni að ræða að ríkisstjórnin
hlyti að taka tilmæli Dagsbrúnar til
alvarlegrar íhugunar.
„Það töluðu margir um að þessi
rauðu strik væru óraunhæf. Nú hef-
ur verið sýnt fram á að þau eru
raunhæf. Ef bankarnir hefðu staðið
sig hefðu þessi 0,27% aldrei komið
til. Ég held að það sé fyllilega einnar
messu virði að ríkisstjórnin fresti
þessum hækkunum, a.m.k. til ára-
móta,“ sagði Guðmundur. Hann
Iagði jafnframt áherslu á að ef ríkis-
stjórnin færi þessa leið myndi það
virka mjög hvetjandi á aðila vinnu-
markaðarins. Þeir myndu þá leggja
sig fram um að viðhalda þeim ár-
angri, sem þegar hefúr náðst, og
vera frekar tilbúnir til að taka á sig
hluta af hækkuninni. í þessu sam-
bandi benti Guðmundur á að betri
hagur útgerðarinnar þýddi að hún
gæti vel tekið á sig aukinn kostnað
vegna olíuverðhækkunarinnar.
Verðlagsráð fjallar um hækkana-
beiðni olíufélaganna á fundi á morg-
un. Olíufélögin leggja mikla áherslu
á að málið verði afgreitt á fundin-
um, en verð á gasolíu getur lögum
samkvæmt aðeins hækkað um mán-
aðamót. Forystumenn í verkalýðs-
hreyfingunni vilja að ríkisstjórnin
taki afstöðu til tilmæla hennar fyrir
fundinn eða að Verðlagsráð fresti
ákvörðunum. Óvíst er hvort ríkis-
stjórnin getur tekið ákvörðun í mál-
inu fyrir helgi vegna þess að forsæt-
isráðherra, fjármálaráðherra, utan-
ríkisráðherra og viðskiptaráðherra
eru ekki á landinu. -EÓ
Iðnaðarráðherra heldur fund með forstjórum Atlantal fyrirtækjanna í New York á morgun:
Álsamningarnir verða
undirritaðir 5. október
Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra
heldur á morgun fund í New York
með aðalforstjórum álfyrirtækjanna
þriggja í Atlantal hópnum. Ráð-
herra áætlaði að undirrita á fundin-
um samning við fyrirtækin um
byggingu nýs álvers á íslandi. Ólík-
legt er talið að til þess komi. Búist
er við að samningar verði undirrit-
aðir í Reykjavík 5. október næst-
komandi.
Álmálið var síðast rætt í ríkisstjóm-
inni 18. september síðastliðinn. Þá
lagði Jón Sigurðsson hart að ríkis-
stjóminni að veita sér umboð til að
undirrita samning við Atlantal fyrir-
tækin á fundinum, sem halda á á
morgun. Félagar Jóns í ríkisstjóm-
inni voru ekki tilbúnir til þess og
niðurstaða fundarins varð að ræða
málið áfram á fundi 1. október. Tím-
inn spurðist fyrir um það í iðnaðar-
ráðuneytinu í gær hvort ráðherra
ætlaði að undirrita eitthvað á fund-
inum á morgun. Engin svör fengust
þar. Tíminn reyndi þá að ná tali af
iðnaðarráðherra, en hann er nú
staddur á aðalfundi Alþjóðabankans
og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í Wash-
ington. Það tókst ekki, en Tíminn
náði tali af Jóhannesi Nordal, for-
manni álviðræðunefndar iðnaðar-
ráðuneytisins, en hann er staddur á
sama fundi. Jóhannes sagðist ekkert
geta sagt um hvað myndi gerast á
fundinum á morgun. Það væri ráð-
herrans að taka ákvörðun um hvem-
ig skyldi haldið á málum.
Ekki eru taldar miklar líkur á því að
iðnaðarráðherra undirriti eitt eða
neitt á fundinum á morgun. Til þess
hefur hann ekkert umboð frá ríkis-
stjóminni. Reyndar má fullyrða að ef
ráðherra kemur heim með undir-
skrifaðan samning eftir helgina
verði sprenging í ríkisstjórninni,
hugsanlega stjórnarslit ef eitthvað
er að marka yfirlýsingar ráðherra Al-
þýðubandalagsins.
Tíminn hefur heimildir fyrir því að
samningar verði undirritaðir í
Reykjavík 5. október. Þá vonast
menn til að búið verði að jafna
ágreining í ríkisstjóminni um málið
og ganga frá tæknilegum atriðum í
sambandi við sjálfa samningana.
Lögfræðingar frá samningsaðilum
hafa verið að vinna að þeim í þessari
viku. Reyndar er ekki rétt að tala um
að álsamningamir verði undirritaðir
nú um mánaðamótin eins og iðnað-
arráðherra hefur talað um. Það
plagg sem væntanlega verður undir-
ritað 5. október er aðeins minnis-
blað sem hefur að geyma viljayfirlýs-
ingu um að ganga frá samningum.
Þar verður einnig tekið fram að fyrir
liggi samningsdrög og greint frá efni
þeirra. Minnisblaðið bindur ekki
hendur samningsaðila. Þeir geta eft-
ir sem áður hætt við allt saman.
Eftir að iðnaðarráðherra hefur und-
irritað minnisblaðið mun hann
leggja fram á Alþingj frumvarp um
byggingu álvers á íslandi. Frum-
varpið hefur þegar verið samið. Þá
hefjast að öllum lfkindum pólitískar
skylmingar sem vonast er eftir að
leiði til niðurstöðu fljótlega eftir ára-
mót. Það verður síðan einhvem tím-
ann í vetur, hugsanlega í desember,
sem hinir eiginlegu álsamningar
verða undirritaðir.
Talið er mjög mikilvægt fyrir fram-
gang málsins að minnisblaðið verði
undirritað 5. október. Hinn 3. sama
mánaðar koma aðalsamningamenn
Atlantal fyrirtækjanna til íslands.
Það eru þeir, sem munu skrifa undir
5. október, en ekki aðalforstjóramir
sem Jón Sigurðsson hittir á morg-
un. -EO
Akureyri:
Norðurland
kemur út
að nýju
í nóvembermánuði hefst á ný
útgáfa á blaðinu Norðurlandi,
málgagni Alþýðubandalags-
manna á Norðuriandi eystra.
Ritstjóri hefur verið ráðinn
Heimir Már Pétursson, blaða-
maður á Þjóðviljanum, og mun
hann hefja störf í byrjun nóvem-
ber.
Stefnt er að því að Norðuriand
verðl gefið út hálfsmánaðariega
til að byija með og verður blað-
inu dreift ókeypis, en augiýslng-
ar standi undir útgáfukostnaði.
Útgáfa Norðuriands hefur legið
niðri um tveggja ára skeið.
Endanleg uppbygging blaðsins
er ekki frágengin. Þó er ákveðið
að blaðið flytji fréttir víðs vegar
að af Norðuriandi, auk þess sem
það mun verða vettvangur fyrir
pólitíska umfjöllun Alþýðu-
bandalagsmanna.
hiá-akureyri.
Hlutabréf í Útgerðarfélagi Akureyringa:
Eftirspum þrefalt
meiri en framboðið
Nýir hluthafar í Útgerðarfélagi Ak-
ureyringa fá í sinn hlut um 38% af
nýútgefnum hlutabréfum í félaginu.
Þegar frestur til áskriftar að nýjum
hlutabréfum rann út, höfðu borist
óskir um kaup á bréfum að nafnvirði
rösklega 64 milljónir króna eða tæp-
lega þreföld eftirspurn. Boðin voru
út bréf að nafnvirði 24.3 milljónir
króna, og verða þau seld á genginu
3.0, eða á um 73 milljónir króna.
Óskir kaupenda námu hins vegar
um 193 milljónum. Samkvæmt
ákvörðun stjórnar Útgerðarfélagsins
var hámark hlutafjár, sem einstakir
kaupendur gátu skráð sig fyrir, 300
þúsund krónur.
Á aðalfundi Útgerðarfélags Akur-
eyringa var samþykkt að auka hluta-
fé félagsins um 100 milljónir, í 430
milljónir. Að þessu sinni voru boðin
út hlutabréf að nafnvirði 50 milljón-
ir. Núverandi hluthafar nýttu sér
forkaupsrétt að ríflega helmingi
hlutabréfanna, en það sem eftir var,
24.269.250 kr.- var boðið út á al-
mennum markaði. Fyrirfram gerðu
forsvarsmenn Útgerðarfélagsins sér
vonir um góðar undirtektir, en eng-
an óraði þó fyrir jafn sterkum við-
brögðum og raunin varð. Því má bú-
ast við að það verði handagangur í
öskjunni síðar á árinu, því stefnt er
að því að bjóða út þær 50 milljónir,
sem eftir eru, fyrir næstu áramót.
Hátt á fimmta hundrað einstak-
lingar, fyrirtæki, lífeyrissjóðir og
verðbréfasjóðir keyptu hlutabréf í
Útgerðarfélagi Akureyringa að þessu
sinni. Þar af nýttu 120 sér hámarks-
tilboðið. Kaupendur eru alls staðar
að af landinu, þar af um 40% úr
Reykjavík.
Söluaðilar bréfanna voru Kaupþing
Norðurlands hf. og Kaupþing hf.
hiá-Akureyri.
Hinn fiórða október verður frumsýnt á Lrtia Sviði Borgarleikhússins verk eftir Hrafnhildi Hagalín Guð-
mundsdóttur, „Ég er meistarinn". Hrafríhildur hætti fyrirvaralaust í grtamámi, sem hún haföl stundað í
mörg ár, og snéri sér að bókmenntum og er þetta frumsmíð hinnar ungu skáldkonu fyrir svið. Leikritið ger-
ist á stuttum tíma í lífi þriggja gítarieikara, ungs pars og meistara þeirra. Kjartan Ragnarsson leikstýrir
verkinu en Pétur Jónasson gítaríeikari flytur tónlist Elva Ósk Ólafsdóttir, Ingvar E. Sigurðsson og Þor-
steinn Gunnarsson leika og er myndin tekin ffá æfingu á veridnu. Hlín Gunnarsdóttir gerir leikmynd og
búninga. Tfmamynd:Ámi Bjama