Tíminn - 20.11.1990, Síða 4
4 Tíminn Þriðjudagur 20. nóvember 1990
ÚTLÖND
Ráðstefna um öryggi og samvinnu í Evrópu (RÖSE) í París:
Kalda stríðinu
formlega lokið
Nú fer fram í París ráðstefna um öryggi og samvinnu í Evrópu, en
hana sækja leiðtogar og ráðamenn 34 ríkja. Á RÖSE í gærmorgun
var undirrítað samkomulag milli 22 aðildarríkja Atiantshafsbanda-
lagsins og Varsjárbandalagsins sem formlega lýkur kalda stríðinu.
Samkomuiagið „CFE“ kveður á um fækkun hefðbundinna vopna í
Evrópu, utan kjamorkuvopna, um tugir þúsunda og snýr þar með
við mesta vígbúnaðarkapphlaupi sem um getur. Að auki var undir-
rítuð yfirlýsing um að bandalögin tvö skuii ekki ógna hvort öðru.
Undirritun CFE samkomulagsins,
sem fór fram við athöfn í bústað
Frakklandsforseta, Elysee höll í Par-
ís, er aðalviðburður RÖSE ráðstefn-
unnar, en hún hófst í gær og stend-
ur yfir í 3 daga. Francis Mitterand
Frakklandsforseti undirritaði samn-
inginn fyrstur og sagði af því tilefni
að þessi dagur yrði tvímælalaust rit-
aður á spjöld sögunnar og að „þetta
samkomulag sé mikil sönnun þess
að þau lönd sem lengi hafa ógnað og
hótað hvert öðru, séu nú ákveðin í
að byggja samskipti sín á samvinnu
og öryggi". Steingrímur Her-
mannsson forsætisráðherra og Jón
Baldvin Hannibalsson utanríkisráð-
herra undirrituðu samninginn fyrir
hönd íslands.
CFE samkomulagið er fyrsti samn-
ingurinn um fækkun hefðbundinna
vopna síðan síðari heimstyrjöldinni
lauk og nær yfir hervæddasta land-
svæði heimsins, eða frá Atlantshaf-
inu til Uralfjalla og frá íshafinu til
Miðjarðarhafsins. Hvort bandalag
um sig skuldbindur sig til að fram-
fylgja ákvæðum hans fyrir 1994.
CFE samkomulagið takmarkar
bandalögin tvö til þess að minnka
vopnamagn sitt niður í 20.000
skriðdreka, 30.000 herbfla, 20.000
stórskotaliðstæki, 6.800 herflugvél-
ar og 2.000 herþyrlur hvort í Evr-
ópu. Varsjárbandalagið hefur átt
mun meira af þessum vopnum en
Atlantshafsbandalagið, en sam-
kvæmt samningum eiga nú bæði
bandalögin að standa jafnt að vígi.
í samningnum eru ítarleg ákvæði
til að hindra svik, í þeim eru m.a.
ákvæði um eftirlit með hergögnum
sem mun jafnvel fara fram með
mjög stuttum fyrirvara. í samningn-
um eru þó engin ákvæði um fækkun
hermanna á þessu svæði, en það
málefni mun verða tekið fyrir á
áframhaldandi ráðstefnu aðildar-
ríkjanna í Vín innan viku.
CFE samkomulagið var undirritað
af 16 aðildarríkjum Atlantshafs-
bandalagsins og 6 aðildarríkjum
Varsjárbandalagsins. Að sögn Manfr-
ed Woerner, aðalritara Atlantshafs-
bandalagsins, þá mun þetta sam-
komulag ekki koma í stað þess, því
Atlantshafsbandalagið hefur staðið
fyrir sameiginlegum málum aðild-
arríkja þess í 40 ár. En þetta kom
fram í viðtali við Woerner í franska
blaðinu Le Figaro.
Eftir undirritunina afhenti Mitter-
and Frakklandsforseti Hans Van Den
Broek, utanríkisráðherra Hollands,
160 síðna skjalið og sagði um leið að
„samningur þessi er nú í góðum
höndum", en það er hlutverk Hol-
lands að varðveita hann.
Á RÖSE ráðstefnunni eru, eins og
fyrr sagði, viðstaddir leiðtogar og
ráðamenn 34 ríkja þar á meðal eru
George Bush Bandaríkjaforseti og
Michael Gorbatsjev leiðtogi Sovét-
ríkjanna ásamt fulltrúum allra sjálf-
stæðra ríkja í Evrópu utan Albaníu,
auk Kanada og Bandaríkjanna.
Eftir athöfnina í Elysee höll héldu
menn til ráðstefnuhallarinnar þar
sem Parísarfundur ráðstefnunnar
um öryggi og samvinnu í Evrópu
var settur.
í hléi milli funda ráðstefnunnar
sást Bush Bandaríkjaforseti í við-
ræðum við yfirmann í Bandaríkja-
her, en sá hélt á svartri leðurtösku
sem var hlekkjuð við úlnlið hans.
Taskan, sem er þekkt undir nafninu
„fótboltinn", inniheldur fjarsam-
bandstæki og dulmálslykil sem gera
forsetanum kleift að fyrirskipa
kjarnorkuárás innan sekúndna.
Hermaður þessi fylgir Bush hvert
sem hann ferðast og þar á meðal alla
fundi hans í París.
—GEÓ, Reuter
Leiðtogabaráttan í Bretlandi:
Thatcher og Hesel-
tine skattyrðast
Baráttan um forsætisráðherraembætti Bretlands var í fullum gangi
í gærkvöldi, kvöldið fyrir kosningar um leiðtogaembætti íhalds-
flokksins. Margaret Thatcher og Michael Heseltine voru óspör á að
láta í ljós skoðanir sínar hvort á öðru.
Margaret Thatcher, sem nú er á evr-
ópsku öryggisráðstefnunni í París,
svaraði bíaðamönnum sem spurðu
hvort hún teldi sig hljóta meirihluta
fkosningunum:
„Ég er alveg sannfærð um að við
verðum í Downing stræti 10 í lok
þessarar viku og mun lengur en það.“
Áður hafði hún ráðist harkalega á
Heseltine í orðum. Hún sagði fyrrum
varnarmálaráðherra sinn rekinn
áfram af persónulegum metnaði.
Hann myndi örugglega hækka skatta
og spilla fyrir frjálsu framtaki. Hann
minnti helst á frambjóðanda fyrir
Verkamannaflokkinn, sagði hún.
Stuðningsmenn Heseltine sögðu að
hún virtist nánast móðursjúk. En
Heseltine hafði líka ýmislegt til mál-
anna að leggja.
Hann sagði að eftir 11 ára veru
hennar í forsæti væri þjóðin orðin
dauðleið á einræðishyggju hennar.
Hann sagði ennfremur að hún hefði
eitt sinn falsað skýrslu til stjórnar
sinnar varðandi fund sem aldrei hefði
verið haldinn.
Heseltine, sem sagði sig úr ríkis-
stjórn í fússi árið 1986 eftir rifrildi
við Thatcher, sagðist öruggur um
stuðning vel yfir 100 þeirra 372 þing-
manna sem ganga til kjörs um for-
manninn.
Reglumar varðandi formannskjör
innan íhaldsflokksins að meirihluta
upp á 15% — eða 214 ef enginn þing-
manna er fjarverandi — þurfi til að
sigur vinnist í fyrstu umferð kosn-
inganna í dag. Seinni umferð, ef þörf
krefur, verður haldin 27. nóvember.
Einn stuðningsmanna Heseltines,
David Howell, fyrrverandi ráðherra,
sagði: „Ég held að það sé mjög út-
breidd skoðun að breytinga sé þörf og
ég held að syo sé einnig meðal þing-
manna."
En Douglas Hurd utanríkisráðherra
spáir Thatcher sigri í formannskjör-
inu.
Dagblaðið Daily Mail, sem er dyggur
stuðningsaðili Thatchers, sagði að ef
hún verði felld í kosningunni jafnað-
ist það á við pólitískt móðurmorð.
Skoðanakannanir, sem gerðar voru
um helgina, spáðu Heseltine mun
betra gengi en Thatcher í komandi
alþingiskosningum sem verða um
mitt árið 1992.
Efnahagsstjómin hefur alltaf verið
sterkasta hlið Thatchers en nú er svo
komið að Bretar búa við 11% verð-
bólgu. Vextir hafa verið hækkaðar til
að berjast gegn verðbólgunni sem
hefur aftur orðið til þess að þrengt
Skoðanakannanir sýna að breskur almenningur styður ekki lengur
Margaret Thatcher.
hefur að atvinnuvegunum og veðlán
kjósenda hækka. Tölur sem stjórnin
-''birti í gær sýna að þjóðarframleiðsl-
an hefur dregist saman um 1% pró-
sent júní- september miðað við
næstu þrjá mánuði á undan og er það
mesti samdráttur sem orðið hefur í
10 ár.
Þar af leiðandi geta skoðanakannan-
irnar haft áhrif á þingmenn sem ótt-
ast um sæti sín.
Ásakanir hennar í garð Heseltine
um að skoðanir hans séu fengnar að
láni frá Verkamannaflokknum eru
taldar eiga rætur sínar að rekja til
frumvarps sem hann lagði fram um
breytingu á nefskattinum illræmda
sem nota átti til að borga opinbera
þjónustu, allt frá skólum til sorphirð-
ingar og átti að deilast jafrit á alla,
ríka sem fátæka.
Skattur þessi hefur leitt til mikilla
andmæla og uppþota og er talin hafa
kostað íhaldsflokkinn mörg atkvæði.
En Thatcher segir Heseltine hafa í
hyggju að hækka tekjuskatt.
Tilboö I
Tílboð Saddams Hussein um að
láta lausa alla gísla mill) jóla og
marsioka varð til þess að ob'uverð
lækkaði verulega í Evrópu í gær.
Verð fyrir olíu sem verður af-
greidd á heimsmarkaði í janúar
lækkaði um átta sent á alþjóðaol-
íumarkaðinum í London.
„Þetta er klókt útspil hjá Sadd-
am tíl að slá hernaðaraðgerðum á
frest," sagðí Lawrence Eagles,
sérfræðingur hjá GNI Commod-
ities í London.
Olíumarkaðir:
íraski leiðtoginn setti fram
þetta tUboð um helgina með því
skilyrði að friður héldist þennan
tíma.
Lækkunin núna kemur í kjölfar
lækkunar sem hefur verið hæg
og sígandi undanfama viku og er
verðið nu fjórum dollurum lægra
en fyrir víku.
Tölur yfir birgðir og neyslu í
Bandaríkjunum ásamt tiltölulega
mUdu veðri á helstu eftirspum-
arsvæðum og minnkandi ótta við
yfirvofandi styrjöld hefur komið
á jafnvægi í eftirspum.
Fréttir herma að Saudi-Arabar
geti haldið áfram að framleiða
8,5 milljón tunnur á dag út des-
ember. Framleiðsla í október var
7,8 milljónir tunna.
Saudi-Arabar hafa nú aukið
framleiðslu sína um þijár millj-
ónir tunna á dag frá því írakar
réðust inn í Kúvæt 2. ágúst sl. og
spannar sú aukning 75% af
þeirri olíu sem tapast vegna við-
skiptabanns Sameinuðu þjóð-
anna á írak og Kúvæt
SÖgusagnir em uppi um að Lí-
býa aðstoði íraka við að losna við
olíu sína með því að markaðs-
setja hana sem sína eigin. Líkur
em taldar á að Líbýumenn hafi
sett 2,5 milljónir tunna á mark-
að á þennan hátt á verði sem er
einn til tveir dollarar fyrir neðan
markaðsverð. Þessar upplýsing-
ar hafa þó ekki fengist staðfest-
ar.