Tíminn - 08.12.1990, Page 5

Tíminn - 08.12.1990, Page 5
Laugardagur 8. desember 1990 Tíminn 5 í yfirliti um þróun og horfur í efnahagsmálum frá Seðlabankanum kemur fram mikil aukning í hlutabréfaútgáfu skráöra fyrirtækja: Útgáfa nýrra hlutabréfa á þessu ári 4 milljarðar Jón Sigurðsson, viðskipta- og iðnaðarráðherra kynnti á ríkisstjóm- arfundi í gær almennt yfirlit um þróun og horfur í peninga-, gjald- eyris- og gengismálum frá Seðlabanka íslands. Yfirlit þetta kemur frá Seðlabankanum tvisvar á árí. Jón sagði að í þessu yfirliti benti bankinn á að með þeirri víðtæku sátt í kjaramálum sem tekist hefði á árinu og með aðgerðum ríkisvalds- ins til þess að styðja hana, hefði ver- ið lögð betri undirstaða að stöðugu verðlagi en oftast nær áður. „Bank- inn bendir á að verðbólgustigið sé núna 7-8 af hundraði miðað við heilt ár og bankinn telur það brýnt að þetta verði upphaf að varanlegri jafnvægisstefnu í efnahagsmálum. Árangur í þessum efnum verði best tryggður með því að beita peninga- málum og ríkisfjármálum saman til að hemja heildareftirspurnina í hag- kerfínu og bankinn bendir líka á að með afnámi hafta á fjármagnsflutn- ingum komi nýjar aðstæður til skjalanna fyrir hagstjórn á íslandi og þörfin fyrir samræmi milli efna- hagsskilyrða á íslandi og í öðrum löndum verði brýnni", sagði Jón. Jón sagði í sambandi við þróunina á lánamarkaðnum að það væri nokkuð ljóst að þar hefðu orðið miklar breytingar. „Það sem er kannski athyglisverðast á fjár- magnsmarkaðnum er þrennt. í fýrsta lagi það, að ríkissjóður hefur náð því að fjármagna stærstan hluta af sinni fjárþörf innanlands, með út- gáfu spariskírteina og ríkisvíxla, að miklu leyti með viðskiptum við inn- lánsstofnanir og verðbréfasjóði. Þarna er að myndast nýr markaður, sem að stórum hluta hefur náðst án þess að það yrði útlánaþensla eða peningamyndun úr hófi fram, enda hefur þetta gerst á sama tíma og það hefur dregið úr lánsfjáreftirspurn hjá fyrirtækjunum vegna afturkipps í hagkerfínu. í öðru lagi er það hlutabréfaútgáfan. Með því að út- gáfa nýrra hlutabréfa í skráðum hlutafélögum verður líklega nokkuð á 4 milljarð á þessu ári, samanbörið við ca. 1350 milljónir í fyrra, sem þó var aukning, kemur eigið fé í veru- legu mæli í stað lánsfjár hjá fyrir- tækjunum sem er mjög jákvæð þró- un. í þriðja lagi hefur þessi mikla aukning innanlandsfjármögnunar ríkissjóðs tekist án þess að meiri hækkun hafi orðið á raunvöxtum spariskírteina ríkissjóðs en úr 6% í 7%. Á sama tíma hafa raunvextir á vísitölubundnum útlánum banka og . sparisjóða hækkað um 0,4 af hundr- áði, í 8,2%. Nafnvextirnir hafa hins '^vegar lækkað mjög mikið á þessu ári úx 32% f árslok í fyrra í 13,2% í nóv- emberlok. Lækkun raunvaxta á nafnvaxtakjörum hefur einnig orðið mjög mikil", sagði Jón. —SE Lögreglan kemur upp um umtalsverða landasölu: Mjólkurhúsi breytt í bruggverksmiðju Lögreglan hefur nú upplýst um- fangsmikið bruggmál, þar sem mjög skipulega var framieiddur og seldur landi, mestmegnis til ung- menna. Um er að ræða eitt um- fangsmesta bruggmál sem komist hefur upp nú hin síðari ár. Lögreglan hefur haft grun um sölu og dreifingu á landa, sem virtist ekki stoppa þrátt fyrir að tvær bruggverksmiðjur hafi verið gerðar upptækar. Síðastliðið þriðjudags- kvöld voru teknir tveir ungir dreng- ir við skemmdarverk í Reykjavík og voru þeir nokkuð ölvaðir. Þeir við- urkenndu að hafa verið að drekka landa, sem þeir sögðust hafa fengið hjá ákveðnum manni í Hafnarfirði. Tveir menn voru síðan handteknir og í framhaldi af því sá þriðji í Mos- fellsbæ. Hjá honum fundust tæpir 100 lítrar af landa og við yfirheyrslu vísaði hann á sjálfa bruggverk- smiðjuna, sem reyndist vera stað- sett á bóndabæ í Landeyjum. Rannsóknardeild lögreglunnar í Reykjavík fór þangað til rannsókna ásamt lögreglunni á Hvolsvelli. Þar fundust í mjólkurhúsi eimingartæki og tæpir 100 lítrar af kláruðu víni og einnig var hellt niður um 650 lítr- um af hálfkláruðu. Þá vísaði eigand- inn á vörubíl sem hann hafðt keypt fyrir hagnaðinn af sölunni. Bærinn hefur ekki Ieyfi til mjólkurfram- leiðslu og engin mjólkurframleiðsla var á bænum. Bóndinn var með sauðfé og nokkrar kýr til eigin nota. Óvíst hvenær loðnuflotinn siglir aftur: Fylgst með miðum Rannsóknarskipið Árni Friðriksson er farinn á loðnumiðin til frekari rannsókna á loðnugengd í kjölfar þess að loðnuflotinn hefur lagst við bryggju. Ekki hefur verið tekin nein ákvörðun um hvenær flotinn heldur aftur til veiða, en að sögn Halldórs Ásgrímssonar verður sú ákvörðun tekin í ljósi þeirra upplýsinga sem Árni Friðriksson veitir. Það kom sjávarútvegsráðuneytinu á óvart þegar fréttir bárust af því að tvö loðnuskip héldu til veiða í gær- morgun. „Við beindum þeim tilmæl- um til loðnuflotans að þeir hættu veiðum sem fyrst, en settum ekki nein ákveðin tímamörk á það. Nið- urstaðan varð, eftir samtöl á milli manna, að gera það strax, enda var veðrátta ekki góð á þeim tíma. Það kom okkur síðan alveg á óvart að tvö skipanna skyldu fara á veiðar", sagði Halldór. Eftir að þetta fréttist hafði ráðuneytið samband við útgerðar- menn skipanna og varð niðurstaðan sú að skipin eru nú aftur komin að landi. Halldór gerði á fundi ríkisstjórnar- innar grein fyrir þeim alvarlegu af- leiðingum sem loðnubrestur gæti haft fyrir þjóðfélagið. „Ef ekki veiðist nein loðna á næsta ári, muni tekjur samfélagsins minnka um fjóran og Ljóst er að þessi framleiðsla hefur staðið yfir síðan í apríl og einhver hundruð lítra hafa verið seld. Lítr- inn fór til fyrsta dreifingaraðila á um 1000 krónur, eða 750 eftir magni. Til neytenda fór lítrinn á um 1500 krónur. Viðskiptavinahópur- inn voru aðallega ungmenni á höf- uðborgarsvæðinu. Að sögn lögregl- unnar er þetta með stærri brugg- málum sem upp hafa komist í seinni tíð. -hs. HAGDEILD SEÐLA- BANKA HARÐ- LEGA GAGNRÝND Jóhannes Nordal og Tómas Áma- son bankastjórar Seðlabankans sendu í gær ftá sér yfirlýsingu þar sem beðist er afsökunar á álití hag- deildar Seðlabankans á verðbólgu- þróun næstu mánaða. Forsætísráð- herra bað um álitið en það birtíst fyrst í minnihlutaáliti Friðriks Sop- hussonar sem lagt var fram á Alþingi í fvrradag. í álitinu er spáð litlum verðbreyt- ingum á næstu mánuðum þó að laun BHMR hækki um 4,5%. Farið er lítilsvirðingarorðum um verð- bólguspá I>jóðhagsstofnunar. Rankastjóramir biðjast sérstaklega afsökunar á orðalagi sem má túlka sem ásakanir á hendur I^jóðhags- stofnunar og aðíla vinnumarkaðar- ins. Oiðrétt segir síðan í yfirlýsingunni: „Þótt vissulega sé hægt að hafa mis- munandi skoðanír á framvindu efna- hagsmála, ef að bráðabirgðalögin yrðu felld, telur bankasljómin miklu meiri hættu framundan við þær að- stæöur en álit hagfræðideildar Seðlabankans virðist gefa í skyn.“ Bjami Bragi Jónsson, aðstoðar- bankasfjóri og yfirmaður hagdelldar Seðlabankans, kveðst sammála bankastjóminni um að orðalagið í áliti deildarinnar hafi verið ógætí- legt -EÓ hálfan milljarð. Að sjálfsögðu myndi svo alvarlegt áfall hafa mikil áhrif, ekki einungis á það fólk sem nú á um sárt að binda, heldur mun það valda mikilli tekjuminnkun hjá ríkissjóði, sveitarfélögum, þjónustufyrirtækj- um o.s.fr.“. Halldór sagði að ekki hefði verið rætt um í ríkisstjórninni til hvaða aðgera skyldi gripið ef illa færi eftir áramót og engin íoðna fyndist. Hann benti á að betur hefði verið fylgst með loðnustofninum á þessu hausti en oftast áður. Bæði rannsóknarskip- in hafa verið í rannsóknum og nú hefur verið ákveðið að senda Áma Friðriksson á loðnumiðin, til að fylgjast með ástandinu. „Síðan fara bæði rannsóknarskipin út strax eftir áramót, en það hefur þó ekki ennþá verið ákveðið hvenær flotinn fer út á miðin aftur. Það munum við ræða næstu daga og hafa í því sambandi hliðsjón af því sem kemur út úr ferð Árna Friðrikssonar", sagði Halldór. „Það er alveg Ijóst að rannsóknar- skipin komust mjög vel yfir allt svæðið, gagnstætt því sem var á síð- asta ári. Við teljum nægjanlegt að Árni Friðriksson fari á svæðið nú, en síðan munum við taka ákvörðun um það hvenær flotinn fer út“, sagði Halldór að lokum. -hs. DLA AUGU OG DIKSVÖM HEMPA eftar Tryggva Emilsson Tryggvi Emilsson varð þjóðkunnur þegar bók hans Fátækt fólk kom út. Nú kemur hann enn á óvart meö skáldsögu um stórbrotin örlög og sterkar persónur. 1- UTGEFANDI: STOFN Blá augu og biksvört hempa er örlagasaga einstaklinga og þjóóar þar sem raunsannir atburöir og þjóðsagnakenndir renna saman í eina listræna heild. Þetta er sagan af prestinum sem missti hempuna vegna vinnukonunnar meó bláu augun. Frásagnarlist Tryggva er einstök, tungumáliö fjöl- skrúðugt, gaman og alvara haldast ávallt í hendur. DREIFING: VAKA-HELGAFELL

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.