Tíminn - 18.12.1990, Side 7
Þriðjudagur 18. desember 1990
Tíminn 7
VETTVANGUR .
Guðmundur Jónas Kristjánsson:
Flokksleg lausn á að finnast
Það fer ekki fram hjá neinum þessa dagana, að deilur eiga sér nú
stað meðal framsóknarmanna í Reykjavík. Deilur þessar snúast
um framkvæmd skoðanakönnunar sem fram fór fyrir nokkru á
vegum framsóknarfélaganna þar. Það sem veldur þó hvað mest-
um vonbrigðum er, að þetta gerist á sama tíma sem Framsóknar-
flokkurinn hélt sitt flokksþing með mikilli samstöðu og baráttu-
hug, þegar algjör einhugur er um alla flokksforystu, stefnu og
markmið, þegar mikil og góð samstaða er um framboðsmál
flokksins annars staðar um land, og þegar flokknum er auk þess
spáð góðu gengi í komandi kosningum. Það eina sem skyggir á
eru þessar deilur í Reykjavík.
Deilumar ekkert
einkamál
Það eru útaf fyrir sig sjónarmið, að
framboðsmál framsóknarmanna í
Reykjavík komi ekki öðrum flokks-
mönnum við en þeim. En svo er þó
ekki, ef betur er að gáð. Eitt mikil-
vægasta atriðið í því sambandi er,
að þetta er jú einu sinni langstærsta
og fjölmennasta kjördæmi lands-
ins, og því geta deilur eins og þess-
ar stórskaðað flokkinn í heild.
Nefna má sem dæmi að við á Vest-
fjörðum, sem lögðum mikið kapp á
að ná góðri samstöðu um okkar
framboðslista að aflokinni skoðana-
könnun, teljum okkur hafa nú góð-
an möguleika á að endurheimta
annan þingmanninn, og fá tvo
menn þar kjörna við næstu kosn-
ingar. Deilurnar í Reykjavík gætu
hins vegar haglega gert þær fyrir-
ætlanir okkar að engu, finnist á
þeim ekki skynsamleg lausn. Og
þannig er eflaust farið um fleiri
framboð flokksins út um land, ekki
síst þar sem uppbótarþingsæti
gætu komið til greina með vaxandi
fylgi við flokkinn. Þær deilur sem
nú eru að gerast í Reykjavík eru
þess vegna alls ekkert einkamál
flokksmanna þar. Því fer víðs fjarri.
Þetta er mál allra framsóknar-
manna, og verður því að leysast
sem slíkt.
Ljóst er að Steingrímur Her-
mannsson, formaður Framsóknar-
flokksins, hefur lagt sig allan fram
við að bera klæði á vopn og sætta
menn í þessu máli. — Því miður
hafa þær tilraunir ekki borið árang-
ur enn sem komið er. Deilan virðist
illleysanleg þessa stundina. Þó má
alls ekki útiloka að lausn finnist á
næstunni.
Flokksleg lausn á að
finnast
Hér verður alls ekki tekin eftiisleg
afstaða til þessarar deilu, enda sá
sem þessar lfnur skrifar búsettur
vestur á fjörðum og er því innan-
flokksmálum framsóknarmanna í
Reykjavík alls ókunnugur. Þá er sá
hinn sami persónulega ókunnugur
báðum þeim aðilum sem hvað mest
hafa látið að sér kveða í deilu þess-
ari, þeim Finni Ingólfssyni og Guð-
mundi G. Þórarinssyni.
Hvatinn að skrifum þessum er því
á engan hátt kominn til vegna
stuðnings við annan hvom þessara
aðila. Hann er einungis sprottinn af
áhyggjum framsóknarmanna víðs-
vegar um land, sem telja að viðun-
andi lausn á deilu þessari þurfi að
fást sem allra fyrst.
Með hliðsjón af þeim stórpólitísku
Ljóst er að Steingrímur
Hermannsson, formaður
Framsóknarflokksins,
hefur lagt sig allan fram
við að bera klæði á vopn
og sætta menn í þessu
máli. — Því miður hafa
þær tilraunir ekki borið
árangur enn sem komið
er. Deilan virðist
illleysanleg þessa
stundina. Þó má alls
ekki útiloka að lausn
finnist á næstunni.
Öll nótt er enn ekki úti
um að framsóknarmönn-
um í Reykjavík takist að
ná samstöðu um einn
framboðslista þar. Það
er beinlínis gerð krafa til
þeirra um að svo verði,
enda þeirra flokkslega
skylda. Lokist á það hins
vegar öll sund, verða
flokkshagsmunir hins
vegar að ráða ferð.
atburðum sem nú hafa gerst síð-
ustu daga (sbr. umrótin um bráða-
birgðalögin) og með tilliti til þess,
hvað mikið er í húfi fyrir hina ís-
lensku þjóð að Framsóknarflokkur-
inn komi út sem sigurvegari kom-
andi kosninga (sbr. Evrópubanda-
lagsumræðuna), er ljóst að enginn
hlekkur má bresta til að svo megi
verða. Sérhvert atkvæði verður því
að nýtast flokknum að fullu. Ekkert
atkvæði má fara forgörðum. Allra
síst atkvæði hinna stóru og mikil-
vægu stuðningshópa Framsóknar-
flokksins í íjölmennasta kjördæmi
landsins, Reykjavík. Það ætti hverj-
um manni að vera ljóst. Það væri
stórkostlegt pólitískt slys, ef það
gerðist, og ljóst að einungis flokks-
leg lausn á að finnast í umræddri
deilu í Reykjavík. Persónulegar erj-
ur mega þar alls ekki ráða ferð.
Tíminn er hins vegar naumur, og er
senn hlaupinn frá okkur. Niður-
staðan í Reykjavík má því ekki drag-
ast á langinn. Pólitísk staða í land-
inu er slík, að til kosninga getur
komið hvenær sem er. Meginmálið
er, að Framsóknarflokkurinn sem
slfkur skaðist sem minnst á lands-
vísu, þannig að ekki komi til stór-
fellt atkvæðatap ofan á allt sem á
undan er gengið.
Öll nótt ekki úti
Öll nótt er enn ekki úti um að
framsóknarmönnum í Reykjavík
takist að ná samstöðu um einn
framboðslista þar. Það er beinlínis
gerð krafa til þeirra um að svo
verði, enda þeirra flokkslega skylda.
Lokist á það hins vegar öll sund,
verða flokkshagsmunir hins vegar
að ráða ferð.
Komið hefur fram hjá öðrum
deiluaðila, að náist ekki lausn í
þessu máli sem samstaða gæti orð-
ið um, verði boðinn fram annar listi
í Reykjavík á vegum framsóknar-
manna, en til þess að svo geti orðið
verður sá listi að fá samþykkta lista-
bókstafma BB. AIIs ekki er tryggt,
að það verði samþykkt, og getur þá
allt gerst. Fordæmi eru hins vegar
fyrir því í öðrum kjördæmum, að
það hafi verið leyft þar sem svipaðar
deilur hafa orðið. Mikilvæg rök fyr-
ir því að leyfa slíkt eru þau, að þá
nýtast öll atkvæði flokknum í heild
(t.d. til uppbótarþingsæta), áfram-
haldandi möguleikar til sátta
standa opnir, og ekki þarf að koma
til fjöldaúrsagna úr flokknum með
ófyrirsjáanlegum afleiðingum. í
slæmri stöðu hefúr því komið fyrir,
að menn hafi verið raunsæir og val-
ið álíka leið sem skásta kostinn, og
auðnast þannig að koma í veg fyrir
afdrifaríkar afleiðingar, en haldið
um leið öllum dyrum opnum til
framtíðarsátta.
Á næstu dögum munu mál vænt-
anlega skýrast hver niðurstaðan
verður f Reykjavík. Verði hún ekki á
þá leið, að um hana geti myndast
þolanlegur friður og samstaða, er
illt í efrii, því eins og komið hefur
fram, er Reykjavík eitt þýðingar-
mesta kjördæmi landsins atkvæða-
lega séð. Komi hins vegar til kasta
framkvæmdastjómar flokksins,
sem hefúr æðsta úrskurðarvald f
máli sem þessu, ber henni skylda til
að horfa á málið með heildarhags-
muni allra flokksmanna í huga. Á
það verður treyst, ef til hennar
kasta kemur.
Flateyri, 13. desember 1990.
BÓKMENNTIR
Undir illgresinu
eftir Guörúnu Helgaaottur. Gunnar Karisson
myndskreytti.
Útgefandi: löunn
Guðrún Helgadóttir kann að segja
sögu, hvort sem hún velur sér hreina
ævintýragerð eða speglun hversdags-
lífsins. Hér notar hún enn eina sögu-
gerð, sambland af því tvennu sem
menn hafa einkum kynnst áður í bók-
um hennar. Nú er hversdagslegt nú-
tímafólk vafið í ævintýraheim að
hálfu og úr verður dálítið reyfaraleg
spennusaga sem þeir fullorðnu
kunna að skýra með duldu táknmáli.
Undir illgresinu leynist margt í hin-
um dularfulla garði, en íslenskum
börnum kann að þykja það nokkuð
þroskamikill gróður sem felur heilu
marmarastyttumar og garðhúsin.
Hvað um það, bókin er skemmtileg
og kemur vel til skila þeim sannleika
að börn skynja oft fyrr en fullorðnir
vilja trúa, að verið sé að dylja sann-
leikann fyrir þeim og að það verður
oft þungbærara en sár vitneskja.
Skuggamir í
íjallinu
eftir Iöunni Steinsdóttur.
Útgefandi: Almenna bókafclagiö
Iðunn Steinsdóttir þekkir vel sögu-
svið það sem krakkamir fjórir hrær-
ast á í fjölskrúðugu mannlífi, þar sem
þeir sjást líka sem ekki falla að öllu
inn í hinn viðtekna ramma. Þetta er
Seyðisfjörður skömmu eftir lok styrj-
aldarinnar.
Margt verður ungum félögum að
viðfangsefni og heimur þeirra sem
eru sex og sjö ára er sannarlega ekki
áhættulaus. Erfiðleikar spretta bæði
upp í eigin hugarheimi og af þeirri
ægilegu hættu sem hrekkjusvínin úti
á Tánga búa varnarlitlum vegfarend-
um. Sem betur fer er þó víða í ömggt
skjól að sækja, sem og skýringar á
ýmsum fyrirbæmm.
Það er reglulega gaman 4ð eiga sam-
Ieið með félögunum fjómm þetta
sumar og vel er þeim lýst sem um
margt em öðmm frábmgðnir, en eiga
þó sinn sess í samfélaginu. Þeim er
lýst af skilningi og án væmni eða vor-
kunnsemi. Samhjálp og traust vin-
áttubönd ungra sem aldinna em
Guðrún Helgadóttir.
varnarveggurinn sem umlykur
mannlífið á Öldunni og gefur þeim
ungu áræðni og þor.
Á baðkari til
Betlehem
eftir Sigurð G. Valgeirsson og Sveinbjöm I.
Baldvinsson.
Myndin Brian Pilkington, útg. Almenna bókafé-
lagið.
Góðu heilli er horfm sú kenning, sem
upp kom fyrir nokkmm ámm, að æv-
intýri væm bömum óholl, fyrir þau
ætti að matreiða lífsvandamálin sem
fyrst.
Án efa er — eða verður — þetta æv-
intýri kunnara íslenskum bömum nú
fyrir jólin en nokkurt annað sem fram
kemur í ár, þar sem gerðir em sjón-
varpsþættir eftir því og óþarft að rekja
atburðarásina. Tvö böm ætla til
Betlehem til að hitta Jesúbamið og
það er tónlistin sem fær það hlutverk
að vekja þeim þrá og trú að komast
megi að kjama jólaboðskaparins, hve
undarlegur sem farkosturinn sé.
Ekki skortir höfundana hugmynda-
auðgi, en sá góði gmnntónn ber uppi
söguna að til þess að komast á leiðar-
enda verði bömin fyrst og fremst að
temja sér góðvild og tillitssemi, en
vara sig þó á illum öflum sem ágim-
ast fjársjóðina sem þau ætla að gefa
Jesúbarninu í jólagjöf. Lýsingamar á
því hvers vegna svo fer að þau gefa
öðmm allar gjafimar em ákaflega vel
gerðar.
Iðunn Steinsdóttir.
Emil, Skundi og
Gústi
cftir Guömund Ólafsson.
Útgefandi: Vaka-Helgafell
Búi Kristjánsson geröi káputcikningu.
Höfundur fékk bamabókaverðlaun
1986 fyrir bók um Emil og hundinn
Skunda. Gústi er vinur og skólafélagi
Emils. Tvær fjölskyldur í Breiðholt-
inu, dæmigerðar nútímafjölskyldur,
koma hér við sögu. Foreldrar Emils,
sem er einbirni, stríða við húsbygg-
ingu við þröngan fjárhag og verður
heimilisföðurnum það lítið fagnaðar-
efni í fyrstu að von er á öðm bami.
Móðir Gústa er einstæð móðir með
tvö börn. Drengimir tveir selja blöð
eftir skólatíma til tekjuauka.
Það sem fyrst kemur á óvart er það
að Emil kemst að því að Gústi fæst við
ritstörf, hefur meira að segja skrifað
leikrit. Með aðstoð kennara stofna
þeir leikfélag til að sýna leikritið í
skólanum og koma þá margir fleiri til
sögunnar. En skömmu fyrirfmmsýn-
inguna gerist Gústi undarlegur í hátt-
um, kemur ekki í skólann og vill við
engan tala. Loks kemst Emil að því
hvað hrjáir hann. Faðir hans er of-
drykkjumaður sem lifir á útigangi í
borginni og drengnum verður það
mikið áfall að sjá hann í því ástandi.
Það linar þó harm hans að ræða mál-
ið við Emil og hann fær kjark til að
fara í skólann og vinna að leiksýning-
unni sem tekst ágæta vel.
Sagan fjallar um marga eðlilega
þætti daglegs lífs með gamansömu
ívafi. Lesandinn er í góðum félags-
skap.
Bókin er í kiljubroti en frágangur
snotur.
Markús Árelíus
cftir Helga Guðmundason.
Ólafur Pétursson myndskreytir
Útgefandú Mál og menning.
Myndir bókarinnar gefa strax bend-
ingu um að þessi saga sé nokkuð tví-
bent. Markús Árelíus er eins konar
manngerði kattar, sem er jafnfær um
að eiga orðastað við menn og tjá sig
við aðra ketti. Ferill Markúsar er
hvorki hnökralaus meðal katta né
manna. Á vegi hans verða margar
freistingar, svo sem þegar svuntu-
böndin dansa á bakhluta húsfreyj-
unnar og gætu þá sem best verið stór-
hættuleg lifandi aðskotadýr sem sjálf-
sagt er að bregðast við með snöggri
árás. Fundir hans og hinnar lokkandi
síamslæðu bæjarstjórans valda ekki
einasta meiriháttar kattaslagsmálum,
heldur líka úfúm með mannfólkinu.
Markús á sér trausta vöm hjá hús-
bónda og heimasætu sem og Pétri
bróður sínum í næsta húsi, þótt hann
hafi orðið fyrir alvarlegri fötlun af
völdum mannfólksins. Ekki veit ég
hve sennilegt getur talist að köttur
ráðist á mink, enda er þetta engin
dýrafræði heldur fjörug spennusaga.
Sigríður Thorlacius