Tíminn - 20.12.1990, Qupperneq 12
12 Tíminn
Fimmtudagur 13. desember 1990
samzKA<9<ESISINS<A 2ú.m
Ættbók og saga
íslenska hestsins
6. bindi
í tilefni af 75 ára afmæli Gimn-
ars Bjamasonar þann 13. desem-
ber kemur á mcirkaðinn 6. bindi
af Ættbók og sögu íslenska hests-
ins á 20. öld. Þar með hefur
Gunnar unnið það afrek að koma
í eina aðgengilega ritröð lýsingu
stóðhesta að nr. 1176 og lýsingu á
hryssum að nr. 8071. Hvergi ann-
ars staðar geta hestamenn og
áhugamenn um hrossarækt
gengið að öllum þessum upplýs-
ingum.
Prentun og bókband Prentverk
Odds Bjömssonar hf.
Grimm ljóðasala
Bókaútgáfan Goðorð hefur sent
frá sér 2. útgáfu af ljóðabók Þórð-
ar Helgasonar „Þar var ég".
Ljóðabókin kom fyrst út fyrir ári
og hefur salan verið stöðug og
heldur meiri nú en fyrir jólin í
fyrra.
Ljóð Þórðar eru endurminningar
frá því að höfundur var drengur
í sveit í Fljótshlíðinni og hreifst af
fegurð landsins þar sem persón-
ur Njálu verða ljóslifandi og end-
urspeglast í fólkinu í sveitinni.
Atburðirnir verða stundum létt-
vægir samanborið við þekkt at-
vik úr íslendingasögum, en eigi
að síður duga þeir til að móta til-
finningalíf lítils drengs og sitja
þar ætíð síðan.
Vinsældir bókarinnar stafa ef-
laust af því að ljóð Þórðar grípa
lesandann strax með einfaldleik
sínum, óvenjulegri kímni og
hlýju. Um leið sækir bókin á þvi
oftar sem gripið er í hana.
Þórður Helgason er einn úr hópi
Orðmanna sem í fyrra gerðu víð-
reist um borgina og lásu upp úr
verkum sínum, m.a. í Borgarleik-
húsinu og Þjóðleikhúskjallaran-
um.
Það er sjaldgæft að ljóðabók höf-
undar seljist upp á fyrsta ári og
er forlagið stolt af því að setja 2.
útgáfu á markað eftir svo
skamman tíma.
„Þar var ég" er 70 blaðsíður.
Kápuna gerði Magnús Tómas-
son. Verð bókarinnar er 1180
krónur.
Dagbók -
í fullum trúnaði
eftir Kolbrúnu Aðalsteinsdóttur.
Fyrir jólin 1989 kom út hjá Emi
og Örlygi unglingabókin Dagbók
— í hreinskilni sagt, eftir Kol-
brúnu Aðalsteinsdóttur. Bókin
vakti strax talsverða athygli og
svo fóru leikar að hún er orðin
ein útlánahæsta unglingabókin á
íslenskum bókasöfnum. Nú er
komið út framhald þessarar bók-
ar og nefnist Dagbók — í fullum
trúnaði. Hér fylgjumst við áfram
með Kötu, aðalpersónu sögunn-
ar, í gleði og sorg. Nú er hún að
verða 17 ára og ánægð með lífið
þegar stjúpi hennar stingur aftur
upp kollinum og verður henni
erfiður sem fyrri daginn. Margt
skemmtilegt gerist þó í lífi Kötu.
Hún er ástfangin — og það er
ósköp gaman en líka stundum
erfitt, og hún þarf að takast á við
ný viðfangsefni. Pabbinn ný-
fundni kemur vð sögu, svo er
Spánarferð og enn meiri ást, en
líka undirferli og vonbrigði. í
bókarlok eru þær Kata og Reb-
ekka, vinkona hennar, á leið á vit
nýrra ævintýra.
Eyðilandið
The Waste Land eftir T.S. Eliot
Iðunn hefur gefið út Ijóðabálk-
inn Eyðilandið eftir bandaríska
skáldjöfurinn T.S. Eliot í þýðingu
Sverris Hólmarssonar. Þetta er
það verk Nóbelsskáldsins sem
mest jók hróður þess og varð
þegar við útkomu sína afar um-
deilt, hneykslaði marga og heill-
aði aðra, og er eitthvert þekktasta
bókmenntaverk síðari tima á
sviði ljóðlistar.
Eyðilandið eða The Waste Land
hefur haft meiri og langærri áhrif
á skáldskap nútímans en flest
önnur ljóð. Ljóðmál bálksins
þykir einkar margrætt og auðugt
og skáldið seilist víða til fanga í
tíma og rúmi. Ljóðunum fylgja
athugagreinar skáldsins þar sem
tilvísanir eru skýrðar og raktar til
bókmennta fortíðar og samtíðar.
Þýðing Sverris Hólmarssonar
birtist hér ásamt enskum frum-
texta ljóðanna, auk þess sem
Sverrir ritar um skáldið og ljóð
þess og gerir ítarlega grein fyrir
hvoru tveggja.
Bókin er prentuð í Odda hf.
Bernskan
Lif, leikir og störf íslenskra
bama fyrr og nú
eftir Símon Jón Jóhannsson og
Bryndísi Sverrisdóttur.
í þessari nýútkomnu bók frá
Erni og Örlygi er varpað ljósi á
heim íslenskra bama. Þau bjuggu
fyrrum við misjafnt atlæti og
urðu furðu fljótt virkir þátttak-
endur í harðri lífsbaráttu kyn-
slóðanna. Samt hafa leikir alltaf
verið bömum jafn eðlilegir og
það að borða og sofa og stutt í
glens og gaman, þótt leikföng
væm oft fábreytt og stundir stop-
ular.
Við lestur og skoðun glæsilegs
myndefnis munu þeir sem
komnir eru á miðjan aldur eða
eldri rifja upp hálfgleymd atvik
og atburði frá þvf skeiði ævinnar
þegar lífið var einfalt og framtíð-
in full af fyrirheitum, en þeir sem
yngri em fá innsýn í furðulega
og forvitnilega veröld sem virðist
nú langt að baki.
Aðalkaflar bókarinnar bera þessi
heiti: Á misjöfnu þrífast börnin
best, Stórar stundir, Bamagaman,
Hver sem vill fá brauð verður að
vinna og Uppfræðingin.
í bókinni er gifurlegur fjöldi ljós-
mynda sem safnað hefur verið
saman hvaðanæva af landinu af
ívari Gissurarsyni þjóðfræðingi,
fyrmm forstöðumanni Ljós-
myndasafnsins.
Rauntrúr
Kristján
Iðunn hefur gefið út bókina
Kristján eftir Garðar Sverrisson. í
bókinni er dregin upp rauntrú
mynd af Kristjáni Jóhannssyni
ópemsöngvara og hann segir þar
sögu sína frá bemskudögum á
Akureyri uns hann stendur á
sviði þekktasta ópemhúss heims.
Þetta er hreinskilin frásögn og
einlæg, þar sem Kristján kemur
til dyranna eins og hann er
klæddur. í kynningu útgefanda á
bókinni segir meðal annars:
Maðurinn, eldhuginn og lista-
maðurinn Kristján Jóhannsson er
viðfangsefni þessarar tæpitungu-
lausu frásagnar. Hér lýsir hann af
einlægni æsku sinni og uppvexti,
þar sem ekki ríkti alltaf dúna-
logn, og segir einnig frá námi
sínu á Ítalíu og söngferlinum
heima og erlendis, frá vonbrigð-
um sínum og glæstum sigmm á
sviði og utan þess, frá töfraljóma
sviðsljósanna og skuggum öf-
undar og umtals, en ekki síst frá
ást og sorgum í stormasömu lífi
litríks listamanns.
Höfundur bókarinnar, Garðar
Sverrisson, hlaut mikið lof fyrir
fyrri bók sína, Býr íslendingur
hér?, minningar Leifs Muller,
sem út kom árið 1988.
Bókin er prentuð í Odda hf.
Ensk-íslensk
viðskiptaorðabók
eftir doktor Terry G. Lacy og
Þóri Einarsson prófessor
Út er komin hjá Emi og Örlygi
aukin og endurskoðuð útgáfa
ensk-íslensku viðskiptaorðabók-
arinnar sem kom fyrst út árið
1982 og hafði þá að geyma 9.000
orð og orðasambönd. Hin nýja
útgáfa geymir hins vegar 15.000
orð og orðasambönd, auk 202
landaheita og upplýsinga um
íbúafjölda, helstu borgir og höf-
uðborgir. Þá er gerð grein fyrir
mun á breskri og amerískri
ensku og skýrðir viðskiptaskil-
málar.
Þessi bók kemur hverjum þeim
íslendingi vel sem þarf að tala
eða lesa um ensk viðskipti og
efnahagsmál. Hið sama á við um
þá sem þurfa að gera eða lesa
samning á ensku, eða eru á fund-
um þar sem enska er einungis
töluð.
Skip vonarinnar
Öm og Örlygur hafa gefið út
ljóðabók eftir Guðrúnu Guð-
laugsdóttur, blaðamann og rit-
höfund. Þetta er önnur ljóðabók
Guðrúnar, hin fyrri nefndist á
leið til þín og kom út árið 1988.
Guðrún hefur ritað tvær ævi-
minningabækur, í veiðihug eftir
Tryggva Einarsson í Miðdal 1978
og Það hálfa væri nóg, lífssögu
Þórarins Tyrfingssonar 1990.
í hinni nýju ljóðabók koma fram
hugleiðingar Guðrúnar um eigið
líf og veröld okkar allra, settar
fram með lifandi, kliðmjúku
tungutaki og heillandi myndlík-
ingum.
Keflavík - Opin skrifstofa
Félagsheimili framsóknarmanna að Hafnargötu 62 er opið alla virka daga
milli kl. 17 og 18.
Starfsmaður framsóknarfélaganna, Guðbjörg, verður á staðnum.
Síml 92-11070.
Framsóknarfélögin.
Suðuriand
Skrifstofa Kjördæmasambandsins á Eyrarvegi 15, Selfossi, er opin á
þriöjudögum og fimmtudögum kl. 15.00-17.00. Siminn er 22547.
Félagar eru hvattir til aö Ifta inn.
K.S.F.S.
Norðurland vestra
Skrifstofa Einherja, kjördæmisblaðs framsóknarmanna, hefurverið flutt
frá Sauðárkróki á heimili ritstjóra að Ökrum I Fljótum. Hægt er að ná I rit-
stjóra alla daga I slma 96-71060 og 96-71054.
K.F.N.V.
Borgnesingar - Bæjarmáiefni
(vetur verður opið hús á mánudagskvöldum frá kl. 20.30-22.30 á skrifstofu
Framsóknarflokksins að Brákarbraut 1.
Bæjarfulltrúar flokksins I Borgarnesi verða á staðnum og heitt á
könnunni. Allir sem vilja fylgjast með og hafa áhrif á málefni
Borgarnesbæjar eru velkomnir.
Framsóknarfélag Borgamess.
Jólahappdrætti S.U.F.
Eftirfarandi númer hafa verið dregin út I Jólahappdrætti S.U.F.:
1. des. 1. vinningur 2036, 2. vinnlngur 974
2. des. 3. vinningur 3666, 4. vinningur 20
3. des. 5. vinningur 3203, 6. vinningur 3530
4. des. 7. vinningur 5579, 8. vinningur 1452
5. des. 9. vinningur 3788,10. vinningur 5753
6. des. 11. vinningur 3935,12. vinningur 3354
7. des. 13. vinningur 5703,14. vinnlngur48l5
8. des. 15. vinningur 2027,16. vinningur 2895
9. des. 17. vinningur 3261,18. vinningur 2201
10. des. 19. vinningur 3867,20. vinningur 5194
11. des. 21. vinningur 5984,22. vlnningur 864
12. des. 23. vinningur 1195,24. vinningur 4874
13. des. 25. vinnlngur 1924,26. vlnnlngur 716
14. des. 27. vinnlngur 5840,28. vinningur 5898
15. des. 29. vlnnlngur 2517,30. vinningur 750
16. des. 31. vinningur 4582,32. vinningur 3085
17. des. 33. vinningur 1142,34. vinningur4416
18. des. 35. vinningur 3284,36. vinnlngur 3227
19. des. 37. vinningur 5252,38. vinnlngur 5168
Dregin verða út tvö númer á hverjum degi fram til 24. des.
Munið að greiöa heimsenda giróseðla.
Nánari upplýsingar á skrifstofu Framsóknarflokksins, Hafnarstræti 20.
Simi 91-624480 eða 91-28408.
Með kveðju. S.U.F.
Reykjanes
Skrifstofa kjördæmasambandsins að Hamraborg 5, Kópavogi, er opin
mánudaga til fimmtudaga kl. 17-19. Slmi 43222. K.F.R.
Jólahappdrætti
Framsóknarflokksins 1990
Dregið verður ( Jólahappdrætti Framsóknarflokksins 24. desember nk.
Velunnarar flokkslns eru hvattir til að grelða helmsenda gíróseðla
fyrir þann tíma.
Allar frekari upplýsingar veittar á skrifstofu flokksins eða I sima
91- 674580.
Framsóknarflokkurinn
Rangæingar,
spilakvöld
Framsóknarfélag Rangæinga gengst að vanda fyrir hinum áriegu spila-
kvöldum sunnudagana 11. og 25. nóvember, 9. desember og 13. janúar (
Hvoli kl. 21.00. Fjögurra kvölda keppni, 3 gilda.
Heildarverðlaun ferð til Akureyrar fyrir 2, glst á Hótel KEA 2 nætur.
Góð kvöldverðlaun. Mætið öll.
Stjómin
FUFarar
á höfuðborgarsvæðinu
Hittumst og drekkum glögg I Naustskjallaranum fimmtudaginn 20. desem-
ber. Mætum öll.
Stjómimár.