Tíminn - 28.12.1990, Qupperneq 4
4 Tíminn
Föstudagur 28. desember 1990
Sovétríkin:
Gennady Janajev
kosinn varaforseti
eftir aöra kosningu
Gennady Janajev var kjörinn varaforseti Sovíetríkjanna í gær eftir
aöra kosningu, en hann náði ekki nægum meirihíuta í fyrri kosn-
ingunni sem fór einnig fram í gær. Mikhail Gorbatsjov, forseti Sov-
étríkjanna, valdi Janajev sem varaforsetaefni, en hann var opinber
starfsmaður sovéska kommúnistaflokksins og meðlimur í hinni áð-
ur allsráðandi framkvæmdastjóm flokksins.
Eftir fyrri kosninguna fór Mikhail forsetaembættið, þar sem Gennady
Gorbatsjov strax í ræðustól og bað Janajev var eini frambjóðandinn.
um að kosið yrði að nýju um vara- „Ég þarf einhvern við hlið mér sem
ég get treyst,“ sagði Gorbatsjov, en
hann minnti líka á að nú væri síð-
asta tækifæri fyrir forustu Sovétríkj-
anna að þrýsta á um umbætur eða
víkja.
„Þetta er okkar síðasta tækifæri og
eftir það, ef þessi forusta nær ekki að
koma á breytingum, ætti hún að
víkja af hinum pólitíska vettvangi,"
sagði Gorbatsjov í harðorðri ræðu
c MS....■...'■. ÆL c ■ WC* ■ rnmmmm
■ WMSl WSIm m 1 fm r I Hr «5. wLw I
BAGDAD - (rak fordæmdi að
„friðarskipi til (raks“ væri snúið
við af vestrænum skipsvörðum
og hvöttu þá sem um borð voru
til að ögra vestrænum vömum
á Persaflóa. Þúsundir kvenna
og barna mótmæltu þessu með
kröfugöngu fyrir utan banda-
ríska sendiráðið i Bagdad. Á
skipinu voru 250 friðarbaráttu-
konur og fleiri, auk matvæia
svo sem sykurs, hrísgrjóna,
matarolíu og annars varnings
sem bannaö er að flytja til (raks
samkvæmt viðskiptabanni
Sameinuðu þjóðanna.
AMMAN - Ríkisrekið dagblað í
Jórdaniu bölvaði Bandarikjun-
um fyrir að kalla heim flesta
starfsmenn sína fyrir 15. janú-
ar. Sawt al-Shaab vísar til opin-
berrar heimildar sem segir að
þetta sé „refsing til Arabaþjóða
sem kalta á frið og tausn
vandamáta Palestinu". I Brus-
sel réð belgíski utanríkisráð-
herrann þegnum sinum frá því
að ferðast til landa við Persa-
ftóa ef þeir mögutega gætu.
TIRANA - Nýja stjómarand-
staðan í Albaníu, Lýðræðis-
flokkurinn, krafðist þess að
ákvörðun um daginn sem fyrstu
fjölflokkakosningarnar þar í
landi fari fram verði lagt undir
þjóðaratkvæðagreiðslu, eftir að
stjórn Kommúnistaflokksins
neitaöi beiðni þeirra um frest-
un. Framkvæmdastjórn löggjaf-
arþings fólksins úrskurðaði á
mánudag að kosningin skuli
eiga sér stað 10. febrúar n.k.
BOSTON - Jelena Bonner
mannréttindakona spáir því að
öryggisherir geri atlögu að and-
stæðingum Mikhails Gorbat-
sjov Sovéttelðtoga og segir að
Bandarikin ættu að snúa stuðn-
ingi sinum frá Gorbatsjov að
minnihlutaríkjunum.
MADRID - Saddam Hussein,
forseti íraks, sagði að Banda-
ríkin vanvlrtu heilaga jörð mús-
lima með þvl aö staðsetja her-
lið sitt i Saudi-Arabiu og myndu
þurfa aö þola refsingu Guðs
fyrir. [ útsendingu í spænsku
einkastöðinni Telecino sagði
Saddam að ef til árásar banda-
riska herliðsins kæmi myndu ír-
akar brennimerkja (sraei sem
árásaraðilann, vegna þess aö
þeir bæru ábyrgö á vandamái-
um Arabaheimsins.
PEKING - Sheikh Sabah al-
Ahmed al- Sabah, hinn útlægi
utanríkisráðherra Kúvæts,
sagði að nú væri orðiö of seint
fyrir ný frumkvæöi að lausn
Persaflóadeilunnar og aö ef ír-
akar færu ekki frá Kúvæt myndi
koma til stríðs.
BANGALORE, Indlandi -
Dómsrannsókn á flugslysi flugs
Indverska flugfélagsins A-320
sem varð i febrúar s.l., þar sem
92 týndu lífi, er lokið með þeirri
niðurstöðu að fiugmennirnir
áttu sökina, aö sögn opinberra
aðila.
SEÚL - Forsetl Suður-Kóreu,
Roh Tae- woo, útnefndi helsta
samstarfsmann sinn sem nýjan
forsætisráöherra i míkilli upp-
stokkun I stjórninni þar i landi,
en það er hluti af endurskipu-
lagningu til að vekja að nýju
traust fólksins á stjóm hans.
Forsetaritarinn Ro Jai-bong
tekur viö forsætisráðherraemb-
ættinu af Kang Young-hoon.
TOKYO - Umhverfisráðherra
Japans, Toshiyki Inamura, hef-
ur verið kærður fyn'r að svíkja
undan skatti allt að 1.7 milljarði
jena (um 697 milljónir íslenskra
króna), samkvæmt frétt frá jap-
anska ríkissjónvarpinu NHK.
Japanskt dagblaö sagði að
hann hefði fengið mikinn óupp-
gefinn gróða í samstarfi við
Mitsuhiro Kotani, (burðarmikinn
fjármálaspámann sem var
handtekinn í júní s.l. fyrir að
falsa verö verðbréfa.
BANGKOK - Herstjórnin í
Burma hefur rekið átta þing-
menn sem flýðu til landamær-
anna til að stofnsetja bráða-
birgðastjórn, segir í fréttum frá
rikisútvarpinu i Burma. Þessir
átta menn voru meölimir i
keppinautastjóm Sein Win for-
sætlsráðherra sem tilkynntl
þetta I uppreisnarhug I síðustu
viku.
Danmörk:
Nýja stjórnin til starfa
Paul Schliiter, forsætisráöherra
Dana, fór þess á leit í danska þing-
inu í gær að almenn samvinna næð-
ist þegar hann lagði fram breyting-
ar á skattakeríinu sem urðu til þess
að kosið var fyrr en áætlað var.
Sósíaldemókratar unnu nokkurn
sigur í kosningunum, en gáfu mið-
og hægriflokkunum fimm örlítinn
meirihluta. Þessar niðurstöður gera
það að verkum að Schliiter gat
myndað minnihlutastjórn íhalds-
flokksins og Lýðveldisflokksins með
59 þingmönnum af þeim 179 sem
sæti eiga á danska þinginu.
í setningarræðu nýja þingsins
sinm.
Gennady Janajev hlaut 1237 at-
kvæði í seinni kosningunni, en
hann þurfti 1120 til að ná kjöri; 563
greiddu atkvæði á móti. í fyrri kosn-
ingunni hlaut hann 1089 atkvæði.
Þá greiddu alls 583 þingmenn at-
kvæði á móti, en talið er að þeir sem
voru á móti þessari kosningu séu
fulltrúar úr samtökum róttæklinga
og fulltrúar ríkja innan Sovétríkj-
anna sem vildu ekki að Rússi fengi
stöðuna. Aðrir þingmenn sátu hjá.
Gagnrýni á Gorbatsjov hefur auk-
ist, en róttæklingar ásaka hann um
hægristefnu og harðir kommúnistar
ásaka hann um að yfirgefa sannan
kommúnisma.
Gorbatsjov hefur einnig látið þau
boð frá sér fara að hann sé tilbúinn
til uppgjörs við Boris Jeltsin, forseta
Rússlands og einn harðasta and-
stæðing hans, vegna sjálfstæðisyfir-
lýsinga sovésku ríkjanna. Fjármála-
ráðherra Rússlands mun hafa sagt af
sér á dögunum vegna óánægju með
það sem hann Iýsti sem fullkomnum
mistökum í Rússlandi og landinu í
heild að koma á markaðskerfi.
Fyrr hafði Gorbatsjov sagt sovéska
þinginu að Nikolai Ryshkov forsæt-
isráðherra væri enn alvarlega veikur
eftir hjartaáfall á þriðjudagskvöld.
Ryshkov hefur verið orðaður við
íhaldssöm öfl innan sovéskra stjórn-
mála, barðist við að halda sínu sæti í
æðsta ráði Kremlar.
Reuter-GEÓ
Brigitte Bardot
ætiar aldrei
að leika aftur
Brigitte Bardot, heimsþekkta
franska Ieikkonan og kynbomban,
sagði í viðtali við franska blaðið Li-
beration í gær að hún afneiti öllum
myndum sínum nema einni, af
þeim tugum mynda sem hún hefur
leikið í. Bardot segir jafnframt að
hún ætli aldrei að leika aftur.
,AHt sem ég kom fram í á þessum
tíma mætti hverfa að eilífu, mér
gæti ekki verið meira sama,“ sagði
Bardot í viðtalinu. „Ef einhverjar
menjar um tíma minn á hvíta tjald-
inu lifðu áfram, vildi ég að það væri
La Verité (Sannleikurinn) ... þar
sem mér fannst ég vera virkileg
Ieikkona,“ sagði Bardot, sem nú
berst fremst í flokki fyx\r verndun
dýra.
„La Verité" er frá 1960 og var leik-
stýrt af Henri-Georges Clouzot.
Hún sýndi alvöru atvik þar sem ung
frönsk kona drap elskhuga sinn.
Myndin fékk Óskarsverðlaun fyrir
bestu erlendu myndina.
„Hvað mér viðkemur, er kvik-
myndin tengd svo miklum umróta-
tíma í mínu (persónulega) lífi að ég
vil aldrei heyra um það aftur, og
augljóslega vil ég aldrei leika aftur,"
sagði Brigitte Bardot sem lék í sinni
síðustu kvikmynd árið 1973.
—Reuter-GEÓ
Salman Rushdie
gagnrýnir bresk
stjórnvöld fyrir
grandaleysi
sagði Schluter að þrjú meginatriði
lægju nú fyrir þinginu: fjárlög 1991,
lög sem varða bætta vinnuþjálfun og
betri atvinnuleysisbætur og endur-
bætur á skattakerfinu. Þær endur-
bætur, sem hann boðar á skattakerf-
inu, munu skila 8 milljörðum
danskra króna. —Reuter, GEÓ
Salman Rushdie, indversk-breski
rithöfundurinn sem er í felum und-
ir vemdarvæng breskra stjómvalda,
gagnrýndi Breta fyrir að taka ekki
harðar á endumýjuðum dauðahót-
unum frá írönskum Ieiðtogum
gegn honum, í viðtali á bandarískri
sjónvarpsstöð í gær.
„Ég er mjög þakklátur breskum
stjórnvöldum fyrir að hafa boðið
mér þessa vernd og að halda því
áfram,“ sagði Salman Rushdie í við-
talinu þar sem aðeins heyrðist rödd
hans. „En ég er farinn að verða dálít-
ið leiður á því hve lítil viðbrögð
bresk stjórnvöld sýna við endur-
teknum hótunum."
Ayatollah Ali Khamenei, andlegur
leiðtogi írans, sagði á miðvikudag
að dauðadómur yfir Rushdie væri
óafturkræfur, þrátt fyrir tilraunir
Rushdies til að bæta fyrir að hafa
skrifað bókina Söngvar Satans sem
misbauð mörgum múslimum.
Salman Rushdie hefur verið í fel-
um síðan Ayatollah Khomeini gaf út
dauðadóm á hendur honum vegna
guðlasts fyrir 22 mánuðum.
Rushdie endurnýjaði trú sína á is-
lam opinberlega á mánudag og
þvoði hendur sínar af þeim and-
múslimska boðskap sem persónur
bókar hans sýna.
Rushdie sagði einnig í viðtalinu að
stjórn Margaretar Thatcher, fyrrver-
andi forsætisráðherra Bretlands,
hefði tekið strangt á því þegar
dauðadómur var fyrst upp kveðinn,
og sagðist ekki sjá ástæðu til þess að
svo væri ekki gert nú. En samstarf
milli Bretlands og írans var tekið
upp að nýju í september eftir árás ír-
aka í Kúvæt, en því var slitið í mars
1989 vegna Rushdie- málsins.
Rushdie sagði að hann hefði ekki
búist við því að yfirbót hans myndi
leiða til þess að dómurinn yrði tafar-
laust afturkaliaður, en sagðist full-
viss um að málið væri á batavegi.
Reuter-GEÓ