Tíminn - 28.12.1990, Page 9
Tíminn 9
Saga
Borgaraflokksins
Fróði hf. hefur gefið út bókina
Ein með öllu — áfangaskýrsla
áhorfanda eftir Ásgeir Hannes
Eiríksson alþingismann. í bók-
inni rekur Ásgeir Hannes ein-
staka og stormasama sögu Borg-
araflokksins frá stofnun flokksins
fram á þennan dag.
Ásgeir Hannes hefur verið þátt-
takandi í starfi Borgaraflokksins
frá byrjun og margir segja raunar
að hann hafi átt stærstan þátt í
tilurð flokksins. í bókinni lýsir
Ásgeir Hannes reyfarakenndri
atburðarás er verið var að stofna
flokkinn og undirbúa framboð,
hann segir frá innri átökum í
flokknum allt fram á líðandi
stund og bregður skýru og
skemmtilegu ljósi á samflokks-
fólk sitt og starfsháttu þess. Lík-
lega er það einsdæmi að þing-
maður fjalli svo opinskátt um
eigin flokk og flokksmenn eins
og Ásgeir Hannes gerir í þessari
bók.
Útgáfubækur
Skjaldborgar
1990
Skjaldborg hf. gefur út á þessu
ári yfir 30 bókatitla. Þeir helstu
eru:
Forsetar íslenska lýðveldisins
eftir þá Bjama Guðmarsson og
Hrafn Jökulsson. Hreinskilin og
fræðandi bók um forsetana fjóra,
þá Svein Bjömsson, Ásgeir Ás-
geirsson, Kristján Eldjám og Vig-
dísi Finnbogadóttur.
Kveðja frá Sankti-Bemharðs-
hundinum Halldóri, um íslend-
inga í þjónustu þriðja ríkisins.
Bókin lýsir atburðum í heims-
styrjöldinni síðari frá öðmm
sjónarhóli en hingað til, og þátt-
töku íslendinga í þeim hildarleik.
Margir vildu hann feigann.
Kristján Pétursson löggæslumað-
ur segir frá lögreglustörfum sín-
um, sérstaklega rannsóknarstörf-
um á helstu sakamálum síðari
tíma. Einnig frá baráttu sinni við
háttsetta embættismenn og mis-
rétti manna fyrir íslenskum lög-
um.
„Þurrt og blautt að vestan".
Bjössi Bomm, Bjöm Jónsson
læknir í Kanada, rekur endur-
minningar sínar austan hafs og
vestan, af drykkjuskap og daðri
við fallegar konur og læknisstörf-
um á meðal indíána.
Hestar og menn 1990, eftir Guð-
mund Jónsson og Þorgeir Guð-
laugsson. Allt um hesta og menn
í máli og myndum frá þessu ári
og fyrr.
íslensk knattspyrna 1990, eftir
Víði Sigurðsson. Tíunda árbókin
um íslenska knattspymu, ítar-
legri en nokkru sinni fyrr.
Myrkraverk í Miðbænum eftir
Birgittu H. Halldórsdóttur,
bónda á Syðri- Löngumýri. Þetta
er áttunda bók höfundar.
Betri helmingurinn kemur nú út
í annað sinn og er rætt við eigin-
konur fimm landskunnra manna
í þjóðfélagi okkar tíma. Konumar
lýsa lífi sínu og starfi á fróðlegan
hátt, en umfram allt tala þær af
hreinskilni og einlægni. Fram-
setning viðtalanna er unnin af al-
úð og frágangur þeirra vandað-
ur. Þessar konur eru: Helga Jó-
hannsdóttir, eiginkona Ómars
Ragnarssonar sjónvarpsfrétta-
manns og skemmtikrafts. Skrá-
setjari er Ami Gunnarsson. Unn-
ur Ólafsdóttir, eiginkona Pálma
Matthíassonar sóknarprests Bú-
staðakirkju í Reykjavík. Skrásetj-
ari er Kristján Bjömsson. Gunn-
þómnn Jónsdóttir, eiginkona Óla
Kr. Sigurðssonar forstjóra Olíu-
verslunar íslands hf. Skrásetjari
er Hermann Sveinbjömsson. Ól-
afía Ragnarsdóttir, eiginkona Sig-
urðar Geirdal bæjarstjóra Kópa-
vogskaupstaðar. Skrásetjari er
Óm Bjamason. Sigríður Hafstað,
eiginkona Hjartar Þórarinssonar
formanns Búnaðarfélags íslands
og bónda á Tjöm. Skrásetjari er
Jón Daníelsson.
Þýddar bækur em:
Pelli sigurvegari - unglingsár
eftir Martin Andersen Nexö.
Þetta er önnur bókin í ritverkinu
um Pella sigurvegara í þýðingu
Gissurar Ó. Erlingssonar. Nú
heldur Pelli út í heiminn og í
bamslegri einfeldni heldur hann
að allir vegir séu færir, en svo
reynist ekki vera.
Konuhjarta, fjórða bók Mayu
Angelou. Ný bók eftir Mciry
Higgins Clark, Vökult er vargs-
augað. Dauðinn á prestssetrinu
eftir Agöthu Christie og Hersveit
hinna fordæmdu eftir Sven Has-
sel. Þótt ótrúlegt sé, bók um
furðuleg uppátæki og skopleg at-
vik. Fjölfræðibókin um Spádóma
og spásagnalist. Útskýrðar em
flestar aðferðir spásagnalistar,
svo sem Tarot, kristalspár, Ai
Ching, talnaspá, vestræn stjömu-
speki, kínversk stjömuspeki o.fl.
Allt um nudd, ný bók um nudd
sem inniheldur skýrar leiðbein-
ingar sem koma öllum að notum.
Megmn í áföngum, bók sem hef-
ur farið sigurför um heiminn og
kemur öllum að gagni.
Matreiðslubækur: Kínversk mat-
reiðsla, ítölsk matreiðsla, Ind-
versk matreiðsla og Frönsk mat-
reiðsla. Handhægar, litprentaðar
og ódýrar matreiðslubækur.
Af bama- og unglingabókum
gefur Skjaldborg út þessar:
Öfrísk af hans völdum, ung-
lingasaga sem kemur beint úr ís-
lensku umhverfi. Höfundurinn
starfar á meðal unglinga, en kýs
að skrifa undir dulnefni.
Pétur Pan og Vanda í þýðingu
Vilborgar Dagbjartsdóttur rithöf-
undar. Hænsnin á Hóli eftir Atla
Vigfússon frá Laxamýri, teikn-
ingar eftir Hólmfríði Bjartmars-
dóttur kennara. Ævintýrið um
hina undursamlegu kartöflu,
saga kartöflunnar í máli og
myndum í þýðingu Vilborgar
Dagbjartsdóttur. Þrjár bækur um
Fríðu framhleypnu: Fríða fram-
hleypna, Svei... Fríða fram-
hleypna og Fríða framhleypna í
fríi, bækur um einstaklega
hressa stelpu. Sögur úr sveitinni,
þijú ævintýri úr sveitinni. Skó-
fólkið, fjórar bækur fyrir smá-
fólkið sem heita: Þrammi - Kalli
- Margot - Dáti, öll þekkt úr
bamaþáttum Stöðvar tvö, í þýð-
ingu Vilborgar Dagbjartsdóttur.
Sumar þessara bóka em þegar
komnar í verslanir.
Siðaskiptin II
Bókaútgáfa Menningarsjóðs hef-
ur gefið út annað bindi af ritinu
um siðaskiptin - tímabilið 1300-
1517 - eftir bandaríska sagnfræð-
ingirtn og heimspekinginn Will
Durant, en það er hluti hins
mikla ritverks höfundar um sögu
siðmenningarinnar er út kom á
frummálinu í tiu bindum árin
1935-75.
Útgefandi kynnir ritverk þetta
svo á kápu:
„Bandaríkjamaðurinn Will Dur-
ant (1885-1985), höfundur þess-
arar bókar, hóf árið 1927 að semja
risavaxið verk um sögu mann-
kynsins undir heitinu „The Story
of Civilization". Til að kynnast
söguslóðum af eigin raun ferðað-
ist hann m.a. tvívegis kringum
hnöttinn. Fyrsta bindið, um
fmmsögu austrænna þjóða, birt-
ist árið 1935, en ellefta og síðasta
bindi, um frönsku byltinguna og
Napoleon, kom út 1975.
Annað bindi, Grikkland hið
foma, var gefið út hjá Menning-
arsjóði í íslenskri þýðingu Jónas-
ar Kristjánssonar í tveimur hlut-
um, 1963-64. Auk þess gaf Menn-
ingarsjóður 1985 út bókina í ljósi
sögunnar eftir Durant og konu
hans, Ariel, sem vann með
manni sínum að þessum um-
fangsmiklu ritstörfum.
Árið 1989 kom út í íslenskri þýð-
ingu Bjöms Jónssonar skólastjóra
upphaf sjötta bindis verksins,
sem fjallar um siðaskiptin. Nú
birtist annar hluti í þýðingu
hans, þar sem áfram er greint frá
tímabilinu 1300-1517, frá John
Wyclif til Marteins Lúthers. Á
þessu tímabili „urðu straum-
hvörf sem settu svip á vestræna
siðmenningu og áttu þátt í mót-
un þeirrar heimsmyndar sem
blasir við okkur á líðandi stund",
eins og þýðandinn komst að orði
í formála fyrra bindis."
Siðaskiptin II er 213 bls. að stærð
og prýdd myndum. Á kápu er
mynd af hollenska siðbótar-
manninum og menntafrömuðin-
um Erasmusi frá Rotterdam.
Bókin er unnin í Prentsmiðju
Hafnarfjarðar.
ÞETTA ERU SOLUSTAÐIR OKKAR:
&
REYKJAVIK
Skátahúsiö, Snorrabraut 60,
Stilling, Skeifunni,
Hekla v/ Laugaveg,
við Kaupstaö, Mjódd,
Seglageröin Ægir, Eyrargðtu 7, Örfirisey,
Bilaborgarhúsið, Fosshálsi 1,
söluskúr viö Miklagarð,
á efra bílaplani v/ Kringluna,
Bílabúö Benna, Vagnhöfða.
OBARÐASTRÖND
Hjálparsveitin Lómfell.
OíSAFJÖRÐUR
Skátaheimilið.
Oblönduós
Hjálparsveitarhúsiö Efstubraut 3.
O DALVÍK
Flugeldamarkaöur í söluskúr neöan við
Hafnarbraut.
*
AKUREYRI
Stór-flugeldamarkaöir í Lundi,
söluskúr við Hagkaup, Noröurgötu 2,
söluskúr viö verslunina Siðu,
söluskúr viö Verslunarmiðstöðina Sunnuhlið,
Glerárgata28.
•0- AÐALDALUR
Hjálparsveit skáta Aðaldal.
^EGILSSTAÐIR
Stór-flugeldamarkaður í nýja áhaldahúsinu
við Tjarnarás.
VESTMANN AEYJAR
Skátaheimilið við Faxastíg 38.
Oflúðir
Hjálparsveitin Snækollur.
^fSELFOSS
Við Tryggingu hf., Austurvegi 22,
við Fjölbrautarskólann Tryggvagötu 25,
Hrísmýri 5.
NJARÐVÍK-
KEFLAVÍK
Hjálparsveitarhúsið við Holtsgötu 51,
íþróttavallarhúsið,
söluskúr v/ Hitaveituplanið,
Stakkshúsið,
Skátahúsiö, Keflavík,
söluskúr v/ Skrúðgarðinn.
&
O SAURBÆJAR-
HREPPURí
EYJAFIRÐI
Hjálparsveitin Dalbjörg.
GARÐABÆR
Hjálparsveitarhúsiö v/ Bæjarbraut,
við Lyngás,
á Garðstorgi,
á Álftanesi.
OkÓPAVOGUR
Toyota, Nýbýlavegi 8,
Skátaheimiliö, Borgarholtsbraut 7,
viö Sparisjóð Kópavogs,
Dalvegur 14 (við Reykjanesbraut).
A
FLUGELDAMARKAÐIR
HJÁLPARSVEITA SKÁTA