Tíminn - 18.01.1991, Side 3

Tíminn - 18.01.1991, Side 3
Föstudagur 18. janúar 1991 Tíminn 3 í fyrsta sinn um árabil: FLEIRI KARLAR EN KONUR VINNULAUSIR í fyrsta sinn um langt árabil voru atvinnulausir karlar fleiri heldur en konur án vinnu í desember s.l., eöa um 1.180 á móti 810 konum, miðað við allan mánuðinn. Atvinnulausum körlum hafði þá fjölgað um 400 frá næsta mánuði á undan en konum um 200 á sama tíma. Miðað við desembermánuð árið áður voru atvinnulausar konur nú 390 færri en þá, en atvinnulausum körlum fækkaði aðeins um 60 á sama tíma. Allt árið 1990 var skráð atvinnu- leysi meira en dæmi eru um síðan skráning hófst fyrir 15 árum. Það svaraði til þess að um 2.300 manns hafi að jafnaði verið án vinnu allt árið, eða um 1,7% af áætluðum mannafla á vinnumark- aði. Hæst var hlutfall atvinnuleys- is meðal kvenna á Vesturlandi og Austurlandi, um 5,1% að meðal- tali allt árið. Atvinnuleysi meðal kvenna var allstaðar meira en 3% yfir árið, nema á höfuðborgar- svæðinu og á Vestfjörðum. At- vinnuleysi karla var mest á Norð- urlandi eystra, nær 3% að meðal- tali yfir árið, og sömuleiðis yfir 2% á Austurlandi. í desember svaraði skráð at- vinnuleysi á höfuðborgarsvæðinu til þess að 420 karlar hafi gengið íslenskir námsmenn taka í fyrsta skipti þátt í „Norrænu dagsverki": íslenskir námsmenn ætla að aðstoða námsmenn í Brasilíu Horfur eru á að í ár taki íslenskir námsmenn í fyrsta skipti þátt í samnorrænu verkefni sem kallað er Norrænt dagsverk. Verkefnið felst í því að námsmenn gefa eins dags vinnu til hjálparstarfs í þriðja heiminum. Stefnt er að því að framlag Norðurlandanna í ár verði um 600 milljónir íslenskra króna. Ríkisstjómin fjallaði um málið í gær og tók vel í hugmyndir námsmannasamtakanna. Stefnt er að því að söfnunardagurinn verði 10. október. t.d. verið fólgin í að mála, þvo glugga, taka til o.fl. Óvíst er í hvaða formi vinnan verður unnin hér á landi, en námsmannasamtökin hyggjast þróa þetta á næstu mánuðum og kynna í skólum landsins. Ríkisstjómin hefur gefið vilyrði fyrir því að taka þátt í kostnaði við að undirbúa verkefnið. Fjármunirnir sem safnast hér á landi verða að öllum líkindum notaðir til að aðstoða námsmenn í Brasilíu. Þessi aðstoð Norðurlandanna þykir hafa tekist mjög vel og fengið hrós víða um heim. „Með þessu átaki verð- ur einnig reynt að skapa áhuga og skilning á stöðu þróunarlandanna, en á það hefur mikið skort hér á landi. Ég lít á að þetta sé annað af aðalmark- miðum „Norræns dagsverks". Fræðsla um þessi mál á hinum Norð- urlöndunum er komin miklu lengra en hér,“ sagði Jónas Þórisson, fram- kvæmdastjóri Hjálparstofnunar kirkjunnar. -EÓ Námsmenn á Norðurlöndunum hafa í mörg ár safnað fé til stuðnings námsmönnum í þróunarlöndunum. Fyrir fáeinum árum kom til tals að ís- lendingar yrðu með í þessu verkefni, en ekkert varð af því vegna þess að þá- verandi menntamálaráðherra taldi ekki fært að gefa nemendum frí, en þetta ár höfðu kennarar staðið í langri verkfallsbaráttu. Núverandi menntamálaráðherra hefur tekið vel í að framhaldsskólanemendur fá frí 10. október til að safna fé í þróunarhjálp. Það eru samtök framhaldsskólanema á íslandi, Bandalag íslenskra sér- skólanema og Iðnnemasamband ís- lands sem hafa haft frumkvæði að þessu verkefni hér á landi í samvinnu við Hjálparstofnun kirkjunnar. Á hinum Norðurlöndunum hafa nemendur farið í fyrirtæki og til ein- staklinga og unnið í einn dag. Af- rakstur vinnunnar hefur síðan runn- ið til þróunarhjálpar. Vinnan hefúr Ný staða og nýr bankastarfsmaður án starfa allan mánuðinn. Þar af voru 290 í Reykjavík einni, þar sem karlar án starfa voru yfir tvö- falt fleiri en konur (140). Körlum án starfa fjölgaði á þessu svæði um nokkra tugi frá næsta mánuði á undan, á sama tíma og konunum fækkaði svo tugum skipti. Svipað var uppi á teningnum á Akureyri þar sem atvinnulausir karlar voru 130, borið saman við 90 konur. Svipað var um að ræða á nokkrum öðrum stöðum. T.d. voru atvinnulausir karlar í Vest- mannaeyjum þrisvar sinnum fleiri en konur (35 á móti 11). Hlutfallslega mest atvinnuleysi í desember var þó meðal kvenna á Austurlandi, 6,6%. Nær 20. hver maður á Austurlandi var án vinnu allan mánuðinn, eða nær 280 manns sem var meira en þreföld- un frá nóvember. Um fjórðungur þeirra voru á Vopnafirði, þar sem einhver hefur gengið án vinnu á meira en fjórða hverju heimili. Atvinnuleysi var einnig verulegt að vanda á Norðurlandi eystra, eða 4% allra karla og kvenna. Yfir 100 atvinnulausir á Húsavík er mjög hátt hlutfall miðað við íbúafjölda. Það sama má segja við um 70 án starfa á Ólafsfirði og rúmlega 50 á Dalvík. - HEI Ríftunarmál þrotabús Kjötmiðstöðvarinnar gegn Sláturfélaginu: Buist vio ao ____■_ mm ■ ■ _ enaurtiytja ■ -ÉtZ_______rT 15 X purTi mano Búist er við að taka þurfl upp riftunarmál sem þrotabú Kjöt- mlðstöðvarinnar höfðaði á hend- ur Sláturfélagi Suðurlands. Mál- ið var flutt fyrir borgardómi í október sl. og Uggur dómur ekki enn fyrir. Eggert Óskarsson borgardómari sagðist í samtali við Tímann í gær búast við því að Endurgreiðslukrafa þrotabúsins á hendur SS nemur 12,5 milijón- um króna. Ástæða þess að farið er fram á riftun og endurgreiðslu er sú að skömmu áður og eftir að greiðslustöðvun var sett á Kjöt- miðstöðina haustið 1988, áttu sér stað viðsidpti milli hennar og SS með greiðslukortanótur. I september 1988 var gert sam- komulag milli SS og Kjötmið- stöðvarinnar um það að SS fengi afhentar allar greiðslukortanótur vegna verslunar út á Eurocard- kreditkort í Kjötmiðstöðinni. Samkomulagið gekk út á það að helmingurinn af því fé yrði not- aður til að borga eldri skuldir Kjötmiðstöðvarinnar og hinn helmingurinn notaður til að versia út á hjá SS. Viðskiptin héldu áfram eftir að greiðslu- stöðvunin var sett á rúmlega tveimur vikum seinna og fram að gjaldþrotinu 10. nóvember 1988. „Riftunarmállð snýst um það að þarna hafl öðrum þræðl verið um að ræða tryggingaráðstöfun með samkomulagi og öðrum greiðslu eldri skulda,“ sagði Hlöðver Kjartansson, bú- stjóri þrotabús Kjötmiðstöðvar- innar. Hann sagði að endur- greiðslukrafan, sem þrotabúið settl fram, væri með þeim hætti að þeir færu fram á að allir þeir peningar og annað, sem greitt var inn á þessum tíma, verði iyrst dregið frá öilum vörukaupum, síðan yerði kortaseðlunum ráð- stafað eins og til þurfi til að borga viðskiptin sem áttu sér stað á greiðslustöðvunartíman- um og mismunurinn verði síðan endurgreiddur. Hlöðver sagði að aðalkrafa þrotabúsins væri end- urgreiðsla upp á 12,5 milljónir, —SE Launamiðum ber að skila í síðasta lagi 21. janúar Allir sem greitt hafa laun á árinu 1990 eiga nú að skila launamiðum á þartil gerðum eyðublöðum til skattstjóra. Skilafrestur rennur út 21. janúar. Þór Þoriáksson, forstöðumaður útlánastýringar Landsbankans. Þór Þorláksson hefur verið ráð- inn forstöðumaður útlánastýr- ingar Landsbanka íslands, sem er ný deild innan bankans. Þór er viðskiptafræðingur og stundaði framhaldsnám við há- skólann í Freiburg í Þýskalandi. Hann hóf störf við hagdeild lána- sviðs Landsbankans 1985 og hefur starfað þar hingað til. Hann er 32 ára gamall, giftur Áslaugu Gunn- arsdóttur píanókennara og eiga þau tyær dætur. Útlánastýring Landsbankans mun semja nýjar útlánareglur fyr- ir bankann, meta og hafa eftirlit með útlánum hans til fyrirtækja, athuga lánsbeiðnir sem leggja á fyrir lánanefnd bankastjóra og hafa eftirlit með vafasömum út- lánum og stjórna vanskilainn- heimtu. —sá /slX. " *' ' 1 irrniMi ---- - RSK RÍKISSKATTSTJÓRI 'HVÍTA HÚSIO / SÍA

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.