Tíminn - 18.01.1991, Page 14

Tíminn - 18.01.1991, Page 14
14 Tíminn Föstudagur 18. janúar 1991 MINNING Sigfús Jónsson T ryggvason Fæddur 28. maí 1923 Dáinn 14. janúar 1991 Hann andaðist eftir langvarandi veikindi á Landspítalanum 14. janúar og verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju föstudaginn 18.1. kl. 3.00. Faðir: Tryggvi, f. 2.11.1892, d. í des. 1984, frá Þórshöfn á Langa- nesi, útvegsbóndi þar en síðar verkamaður í Reykjavík. Sonur Sig- fúsar, f. 16.6. 1865 að Hermundar- felli í Þistilfirði, Jónssonar bónda þar Gíslasonar er bjó á Hermundar- felli 1855 með konu sinni Lilju Pét- ursdóttur. Móðir: Stefanía Sigurbjörg Krist- jánsdóttir, f. 16.11.1893, d. 1.11. 1981, frá Leifsstöðum í Vopnafirði. Móðir hennar var Signý Sigurlaug Davíðsdóttir frá Höfn á Strönd Sig- mundssonar af Tjörnesi og Guð- rúnar Jónsdóttur. Faðir hennar var af Fjallabræðraætt, Gunnar Krist- ján Jakobsson, Sveinssonar á Djúpalæk og konu hans Hólmfríðar Guðmundsdóttur. Stefanía og TVyggvi gengu í hjóna- band 19.9.1919. Tryggvi vann áfram við útgerð föður síns, hann var góður verkmaður og afbragðs skytta og sjósóknari. Að vera virtur útvegsbóndi í sjáv- arþorpi var líkt og að vera konung- ur í ríki sínu á þessum árum. Út- gerðin á Skálum stóð þá með mikl- um blóma og Þórshöfn var upp- gangspláss og nokkurs konar höfuðstaður Langaness. Það var það líkt og nú, sjávarútveg- urinn réð mestu um afkomu íbú- anna. Á fyrri hluta aldarinnar fisk- aðist vel þarna norður frá, ef gaf á sjó, og það rétt upp við landsteina. Á þessum árum voru gerðir út 2 bátar frá heimili þeirra, og mann- aðir að nokkru með Færeyingum sem þáðu kost og aðsetur á heimili þeirra. Það segir sig sjálft að á æskuheimili Sigfúsar var alltaf mannmargt og oft glatt á hjalla. Það var spilað á hljóðfæri og sungið og þegar slegið var í Lomber, þá var nú líf í tuskunum. Menn þurftu að leggja hart að sér við vinnuna, en hvað var það, þeir voru frjálsir. Þessi stóru útvegheimili kröfðust líka mikillar vinnu af öllum sem vettlingi gátu valdið. Sigfús var vart kominn af barnsaldri þegar hann var farinn að standa við beitningu. Þegar heimsstyrjöldin síðari barst hingað upp að landsteinum í kjölfar kreppunnar miklu herti enn að litlu sjávarþorpunum. Tundurdufl- in flutu rétt fyrir utan flæðarmálið, svo illt var að elta þann gula og sjórinn nær uppurinn af fiski vegna erlendra fiskiskipa. En þó að Sigfús væri ungur að ár- um, varla tvítugur, var hann farinn að gera út eigin bát. Hann hafði lært það af föður sínum, að til þess að stunda sjó á opnum bátum, var það eftirtektin sem sagði allt. Sjó- lagið þurfti að þekkja og vita hvern- ig bregðast ætti við hverjum vanda. Þá voru ekki talstöðvar eða önnur öryggistæki í litlum trillum. Stefanía og Tryggvi höfðu eignast þrettán börn og þó að þau kæmust ekki öll til manns var það fyrir séð að þeirra biðu fá atvinnutækifæri á Þórshöfn. Haustið 1944 flutti öll fjölskyldan að norðan og settist að í Kópavogi, þeim tókst með samstilltu átaki að koma sér upp þaki yfir höfuðið, þá voru ekki lyftarar eða önnur stór- virk tæki komin til sögunnar. En það var Sigfús sem lyfti Grettistak- inu sem allri aðrir höfðu gengið frá. Sigfús hafði komið suður ári fyrr og stundað sjóróðra á Suður- nesjum. Þar fannst honum dapur- leg vistin, sofið var í óupphitaðri verbúð og viðurværið eftir því. Næstu árin var hann svo við sjó- róðra á ýmsum bátum. Systkini Sigfúsar urðu 13 talsins. 5 þeirra dóu í bernsku en þau sem upp komust voru: Guðrún, f. 22.4.1920, húsfreyja á Þurrstöðum í Borgarhreppi, m. Helgi Helgason, hann er látinn, börn 3. Helga, f. 1.6. 1924, hús- móðir, m. Pétur Hraunfjörð, skilin, börn 10. Jakob Sveinbjörn, f. 11.10.1926, m. Guðlaug Ingvars- dóttir, hún látin, börn 3. Ólafur, f. 19.3.1929, m. Halldóra Jóhannes- dóttir, börn 2. Sverrir, f. 25.3.1930, m. Sigríður Þorsteinsdóttir, börn 3. Ingólfur, f. 7.5. 1934, m. Ágústa Waage. Signý Sigurlaug, f. 8.10.1936, m. Haukur Þórðarson, börn 6. Alfreð Björnsson, f. 15.7.1915, m. Hulda Pétursdóttir, börn 4. Þann 26.11. 1955 gekk Sigfús að eiga Guðlaugu Pétursdóttur, f. 20.4.1930 í Reykjavík, Hraunfjörð, f. 14.5. 1885 að Valbjörgum í Helgafellssveit, og Ásta Kristjáns- dóttir, f. 6.6.1891 í Stekkjartröð í Eyrarsveit. Ungu hjónin bjuggu fyrst á heim- ili foreldra Guðlaugar að Sogabletti 17 í Sogamýri, en fluttu í Kópavog árið 1960 og hafa búið þar síðan. Sigfús var góður heimilisfaðir. Honum fannst ekkert of gott fyrir börnin og heimilið. Börn þeirra eru: Tryggvi, f. 21.3.1956, strætisvagnastjóri, m. Helga Jónsdóttir. Sturla, f. 20.6.1958, vélstjóri, m. Anna Guð- mundsdóttir hjúkrunarfræðingu, börn 3, Örvar, f. 21.1.1960, stúdent. Álfheiður, f. 15.11.1961, verslunar- og tölvumenntuð, m. Erlingur Er- lingsson bakari, börn 2. Asta, f. 27.10.1963, húsmæðraskólageng- in, m. Jökull Gunnarsson, nemur tæknifræði. Ómar Hafsteinsson stjúpsonur, f. 2.8.1953, rafvirki. Meðan börnin voru enn í æsku veiktist Sigfús og varð að dvelja á Vífilstöðum í einangrun frá heimili sínu. Það voru erfiðir tímar og lítið gert fyrir barnmörg heimili. Hon- um var það mikið áfall að geta ekki séð heimili sínu farborða og eflaust hefði batinn komið fyrr ef hann hefði ekki verið svona áhyggjufull- ur vegna barnanna. En Guðlaug kona hans studdi hann eftir mætti á þessum erfiðu tímum, hún útveg- aði sér vinnu á Kópavogshæli í eld- húsinu og þó hún hafi verið búin að vera 9 mánuði í húsmæðraskóla og húsmóðir í 15 ár varð hún að byrja á byrjandakaupi. Sigfús var starfsmaður hjá Kópa- vogskaupstað sl. 10 ár. Hann var vinur vina sinna og alltaf boðinn og búinn til þess að gera öðrum greiða og hirti lítt um þótt ekki kæmi borgun fyrir. Hann vann alla tíð hörðum höndum, bæði til sjós og lands, og var vel látinn í hverju starfi. Ég hef þekkt Sigfús frá því að ég kom inn í þessa fjölskyldu og ekki hef ég kynnst traustari manni. Það er óhætt að gefa honum sömu um- mæli og höfð voru um afa hans Sig- fús. „Hann var rammur að afli og fylginn sér við hvaðeina, nærgæt- inn og hjálpsamur." Þeir sem bágt áttu á einn eða ann- an hátt voru alla tíð velkomnir á heimili þeirra. Margur bitinn og sopinn hefur farið í gesti og gang- andi. Mörg börnin eru það sem þau hafa tekið upp á arma sína um lengri eða skemmri tíma. Þegar bróðir Guðlaugar missti konuna á besta aldri frá 10 börnum, sumum enn í æsku, var ekkert sjálfsagðara en þau kæmu inn á heimili þeirra og nytu þess sama og þeirra eigin börn. Fyrir 5 árum veiktist Sigfús af krabbameini og fór í aðgerð. Allt virtist hafa farið á betri veg og hann komst til starfa aftur en var ósköp þróttlaus. Á síðasta ári tók mein- semdin sig aftur upp. Hann hafði lengi þráð að geta veitt sér tóm- stundir. Siglt út á flóann á báti sín- um, veitt fisk og notið samveru- stunda með barnabörnunum er ellilífeyrisaldrinum væri náð, en margt fer öðruvísi en ætlað er. Við hjónin vottum eiginkonu og börnum innilega samúð. Friður guðs veri með honum. Hulda Pétursdóttir, Útkoti Jón Helgason Reykvíkingar Sigrún Magnúsdóttir borgarfulitrúi veröur til viötals mánudagana 21. janúar, 28. janúar og 4. febrúar nk. á skrifstofu Framsóknarflokksins aö Hafnar- stræti 20, kl. 15:00 til 18:00. Allir velkomnir. Borgarmálaráð. Skjrún Magnúsdóttir Sunnlendingar Arlegir stjórnmálafundir og viötalstimar þingmanna Framsóknarflokksins veröa haldnir á eftirtöldum stööum: Brautarholti f Skeiðahreppi, mánudaginn 21. jan. kl. 21. Aratungu f Biskupstungum, þrfðjudaginn 22. jan. kl. 21. Þorlákshöfn f Duggunni, flmmtudaginn 24. jan. kl. 20.30. Kópavogur Skrifstofa Framsóknarfélaganna i Kópavogi eropin á mánudags- og miö- vikudagsmorgnum kl. 9-12. Sími 41590. Stjóm fulltrúaráðs Norðurland vestra Skrífstofa Einherja, kjördæmisblaðs framsóknarmanna, hefur veriðfluttfrá Sauöárkróki á heimili ritstjóra að Ökrum i Fljótum. Hægt er að ná i ritstjóra alla daga I síma 96-71060 og 96-71054. K.F.N.V. Skagfirðingar Alþingismennirnir Páll Pétursson og Stefán Guömundsson og varaþing- maöurinn Elin Llndal verða í morgunkaffi á Sauðárkróki laugardaginn 19. janúar kl. 10:00-12:00. Allir velkomnir. Siglfírðingar Alþingismennirnir Páll Pétursson og Stefán Guömundsson og varaþing- maöurinn Elín Líndal veröa til viðtals I Suðurgötu 4, 3ju hæö, föstudaginn 18. janúar kl. 15:00- 18:00. Suðurland Skrifstofa Kjördæmasambandsins á Eyrarvegi 15, Selfossi, er opin á þriöjudögum og fimmtudögum kl. 15.00-17.00. Síminn er 22547. Félagar eru hvattir til aö llta inn. K.S.F.S. Borgnesingar - Bæjarmálefni I vetur verður opið hús á mánudagskvöldum frá kl. 20.30-22.30 á skrifstofu Framsóknarflokksins aö Brákarbraut 1. Bæjarfulltrúar flokksins f Borgarnesi veröa á staönum og heitt á könn- unni. Allir sem vilja fylgjast með og hafa áhrif á málefni Borgarnes- bæjar eru velkomnir. ___________________________Framsóknarfélag Borgarness. Austur-Húnvetningar Alþingismennirnir Páll Pétursson og Stefán Guömundsson og varaþing- maöurinn Elín Lindal verða til viðtals á Hótel Blönduósi sunnudaginn 20. janúar nk. kl. 15:00-17:00. Framsóknarvist Framsóknarvist verður spiluð nk. sunnudag þann 20. janúar ( Danshöllinni (Þórskaffi), kl. 14. Veitt veröa þrenn verðlaun karia og kvenna. Stutt ávarp i kaffihléi flytur Sigrún Magnús- dóttir borgarfulltrúi. Framsóknarfélag Reykjavikur. Sigrún Magnúsdóttlr Keflavík - Opin skrifstofa Félagsheimili framsóknarmanna aö Hafnargötu 62 er opiö alla virka daga milli kl. 17 og 18. Starfsmaður framsóknarfélaganna, Guöbjörg, veröur á staðnum. Sími 92-11070. Framsóknarfélögin. Akumesingar- nærsveitir Þorrablót verður haldiö föstudaginn 8. febrúar nk. i Kiwanishúsinu við Vesturgötu. Nánar auglýst síöar. Undirbúningsnefndin Þorrablót- Reykjavík Laugardaginn 9. febrúar verður hið landskunna þorrablót Framsóknarfé- laganna I Reykjavlk haldiö I Norðurijósasal I Þorskaffi. Verö miða er kr. 3500. Upplýsingar og miöapantanir fást hjá Þórunni eöa Önnu I sima 624480. SUF-arar athugið Fundur um Island og EB og EFTA veröur haldinn laugardaginn 19. janúar nk. aö Hafnarstræti 20, 3. hæð, kl. 10.00 árdegis. Gestur fundarins veröur Steingrlmur Gunnarsson, M.A. I alþjóöatengslum. Utanrikis- og þjóðmálanefnd SUF. Framkvæmdastjórnar- fundurSUF Fundur veröur haldinn I framkvæmdastjórn SUF mánudaginn 21. janúar nk. að Hafnarstræti 20, 3. hæö, kl. 19.00. Formaöur Kópavogur Opiö hús aö Hamraborg 5 alla laugardaga kl. 10-12. Heitt á könnunni. Fulltrúaráðið Reykjanes Skrifstofa kjördæmasambandsins aö Hamraborg 5, Kópavogi, er opin mánudaga til fimmtudaga kl. 17-19. Slmi 43222. K.F.R. Framsóknarfólk Húsavík Framvegis verður skrifstofan I Garöari opin á laugardagsmorgnum kl. 11- 12. Létt spjall og heitt á könnunni. Framsóknarfélag Húsavikur

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.