Tíminn - 23.01.1991, Side 5
Miðvikudagur 23. janúar 1991
Tíminn 5
Jón EBalclvin Hannibalsson utanríkisráöherra
kominn heim úr för sinni til Eystrasaltslanda:
Þjóðir Eystrasaltslanda
biðja evrópska þingmenn
aó standa með sér vakt
Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra gaf Alþingi í gær skýrslu um
för sína til Eystrasaltslandanna. Hann sagði að forystumenn í löndunum
bæðu þjóðþing í löndum Evrópu að senda sendinefndir til landanna þriggja
og sýna þannig stuðning sinn í verki. Búist er við að fljótlega fari sendi-
nefnd alþingismanna til landanna. Þingmenn frá Sviþjóð og Noregi koma
þangað í þessari viku og munu væntanlega standa vakt í opinberum bygg-
ingum í Vilnius, Rigu og Tallinn. Ólíklegt er talið að Rauði herinn láti til
skarar skríða meðan sendinefndimar eru þama á ferð.
Jón Baldvin sagði að Riga, höfuð-
borg Lettlands, og Vilnius, höfuð-
borg Litháens, hefðu komið sér fyrir
sjónir sem borgir í herkví. Götuvígi
hefðu verið við opinberar byggingar.
í borginni hefði átt sér stað óvopnuð
uppreisn borgara, sem voru að verja
sjálfstaeði sitt. Jón Baldvin sagði jafn-
framt að þama hefði verið þjóðhátíð.
Fólk hefði sungið ættjarðarsöngva. í
Eistlandi hefði ástandið verið betra,
en fólk vissi á hverju það gat átt von.
Utanríkisráðherra lagði áherslu á að
saga þessara landa væri mikilvægur
þáttur í atburðum síðustu daga.
Hann sagði að stjórn kommúnista í
löndunum þremur væri glæpasaga.
Fimmtungur Eistlendinga hefði ver-
ið drepinn í fjöldamorðum eða farist
í Gúlaginu þar sem tugir eða hundr-
uð þúsunda voru fluttir nauðungar-
flutningum. Sovétvaldið hefði reynt
að uppræta menningu Eystrasalts-
landanna og þjóðarvitund þeirra.
Með baráttu Eystrasaltsþjóðanna nú
væru þær að sanna fyrir sér og um-
heiminum að ætlunarverk kommún-
ista hefði ekki tekist.
Jón Baldvin sagði að menn, sem
hann hefði rætt við í ferðinni, hefðu
tjáð sér að ráðamenn í Moskvu hefðu
sett upp áætlun um að koma í veg
fyrir að tilraunir landanna þriggja til
að ráða málum sínum sjálfar næðu
fram að ganga. Bak við áætlunina
stæðu sovéska leyniþjónustan KGB,
Rauði herinn og innanríkisráðuneyt-
ið. Áætlunin gengi út á að sérsveitir
Rauða hersins kæmu af stað óeirðum
í löndunum, sem yrði síðan átylla
fyrir herinn að skakka leikinn undir
því yfirskini að verið sé að koma á
friði. Koma átti réttkjömum ríkis-
stjórnum frá völdum og setja lepp-
stjórnir í staðinn. Þetta átti að gerast
á meðan athygli heimsins beindist að
Persaflóa.
Jón Baldvin sagði að ýmislegt hefði
orðið til að raska þessari áætlun. í
fyrsta lagi hefðu viðbrögð fólks í
löndunum þremur orðið miklu harð-
ar en búist var við og nú væri Ijóst að
ekki væri hægt að fylgja áætluninni
eftir nema að til kæmi gífurlegt blóð-
bað. í öðru lagi hefðu viðbrögð Vest-
urlanda verið harðari en Moskuvald-
ið reiknaði með og í þriðja lagi hefðu
hörð viðbrögð Jeitsíns, forseta Rúss-
neska lýðveldisins, sett strik í reikn-
inginn.
Utanríkisráðherra sagði að forystu-
menn í fjórum lýðveldum Sovétríkj-
anna hefðu uppi plön um að stofna
nýtt samband fúllvalda ríkja og segja
sig úr lögum við Sovétríkin, líkt og
Eystrasaltsríkin vilja gera. Lýðveldin
áforma m.a. að skiptast á sendiherr-
um. Jón Baldvin sagði að gangi þessi
áætlun eftir, muni þetta hafa gífurleg
áhrif á alla þróun mála í Sovétríkjun-
um. Um þessa kröfú lýðveldanna
væri m.a. tekist í Eystrasaltslöndun-
um.
Jón Baldvin sagðist hafa spurt for-
ystumenn í Eystrasaltslöndunum að
því hvað Vesturlönd gætu gert frekar
til að styðja við bakið á málstað
þeirra. Hann sagði að svarið hefði
verið: „Sendið sendinefndir frá þjóð-
þingunum til að standa vaktina með
okkur í þinghúsinu og öðrum opin-
berum byggingum í Vilnius, Riga og
Tállinn." Sama á við um Evrópuþingi
og aðrar alþjóðlegar samkundur. í
öðru lagi hefðu forystumenn ríkj-
anna beðið Vesturlönd um að sjá til
þess að Sovétríkin virði skriflega
samninga, s.s. Parísaryfirlýsinguna
og Helsinkisáttmálann. í þriðja lagi
að málefni Eystrasaltslandanna verði
rædd á vettvangi Sameinuðu þjóð-
anna og þá helst í Öryggisráðinu. f
fjórða lagi að hætt verði við frekari
efnahagsstuðning við Sovétríkin eða
a.m.k. haga henni á þann veg að hún
styðji umbótaöflin í Sovétríkjunum.
Evrópubandalagið og ýmis lönd í
Evrópu hafa þegar gert áætlun um
víðtækan efnahagsstuðning við Sov-
étríkin. Um er að ræða stuðning upp
á hundruð milljóna Bandaríkjadoll-
ara. Jón Baldvin sagði að þessa dag-
ana væri verið að ræða um að hætta
við hrinda þessum áætlunum í fram-
kvæmd eða að finna þeim annan far-
veg.
Jón Baldvin sagði að Landsbergis,
forseti Litháen, hefði óskað eftir því
að ísland tæki upp stjómmálasam-
band við Litháen og staðfesti þannig
með formlegum hætti að ísland við-
urkenndi fullveldi Litháens. Jón
Baldvin sagði að á þessu væru ýmsir
agnúar. Sendiherra íslands í Litháen
gæti t.d. ekki fengið vegabréfsáritun
til landsins nema frá Moskvu og ef
hann færi þangað án vegabréfsárit-
unar yrði honum vísað úr landi. Jón
Baldvin sagði að nú væri verið að
skoða hvort hægt væri að leysa þetta
mál. Til greina kæmi að ísland til-
nefndi fastafulltrúa við þingið í Vilni-
us. Jón Baldvin sagði að ráðamenn í
Lettlandi og Eistlandi óskuðu ekki
eftir að löndin skiptust á sendiherr-
um við ísland. -EÓ
Eyþór
Stefánsson
tónskáld
níræður
Eyþór Stefánsson tónskáld á Sauð-
árkróki er níræður í dag. Eyþór
lagði á yngri árum stund á tónlistar-
og leiklistarnám í Reykjavík og í
Hamborg. Hann hefur samið fjölda
þekktra sönglaga, þar á meðal Gígj-
una. Eyþór hefur verið heiðursborg-
ari Sauðárkrókskaupstaðar síðan ár-
ið 1971.
Mælt fyrir þingsályktunartillögu:
Verður virkjun sett í
mynni Hvammsfjarðar?
írakar gera eldflaugaárás á Tel Aviv. Ótti við
hefndir ísraelsmanna og afleiðingar þeirra:
____ w
Tekst Irak að sundra
anastæomgum sinum ■
írakar gerðu þriðju og hörð- skemmdlr verulegar á íbúða- lögðust Bandaríkjamenn og
ustu eldflaugaárás sína á ísrael hverfínu eftlr árásina. Talsmað- Bretar á ísraelsmenn í þelm til-
um kl. 18.30 í gærkvöldi að fs- ur ísraelshers sagði að um 60 gangi að koma í veg fyrir að þeir
lenskum tíma. Scud-eldflaugum manns hefðu verið fluttir særðir hefndu árásanna og drægjust
íraka, hlöðnum sprengiefni en á sjúkrahús eftir árásina og um þannig inn í styrjöldina, Saddam
ekki eitri eða sýklum, var beint það bil 20 heimili hefðu eyði- Hussein til þjónkunar.
að höfuðborginni Tel Aviv og lagst. Eftir árásina í gærkvöldi sagði
kom ein fíaugin niður í þétt- Arásin í gær var þriðja og jafn- Ehud Olmert, heilbrigðisráð-
byggðu íbúðahverfí í borginni og framt skeleggasta tilraun Sadd- herra ísraels, við fréttamenn
gjöreyðilagði hluta stórrar ams Hussein til þessa, til þess breska ríkissjónvarpsins að
íbúðablokkar. Talsmenn hersins að draga ísrael inn í styrjöldina israelsmenn myndu endurgjalda
segja að einn hafi Iátist af hjart- við Persafióann, en það gæti IrÖkum árásina og veita þeim
aslagi í árásinni og um 60 orðið til þess að sundra sam- ráðningu sem dygði. Spurningin
manns slasast. stöðu bandamanna á þann hátt væri ekki lengur um hvort þeir
Árásin í gærkvöldi var sú fyrsta að Arabaþjóðirnar sem nú eru hefndu sín, heldur hvenær.
eftir að Bandaríkjamenn höfðu hluti ijölþjóðahersins, þar á Nachman Shai, yfirhershöfð-
komið fyrir svonefndu Patriot- meðal Sýrland, sem í raun á í ingi ísraels, sagði við útvarpið í
varnareldflaugakerfí í ísrael. styrjöld við ísrael, snerust á Tel Avlv í gærkvöld að árásirnar
Samkvæmt fregnum í gær- sveif með írökum og gangur sýndu að ísrael ætti í stríði.
kvöldi var Patriot-flaugum skot- stríðslns yrði annar og alvar- Vandséð væri þó hvort hugsan-
ið á Ioft til að verjast árásinni, legri en hann er nú þegar. Eftir legar hefndarárásir flughers
en ein Scud-flaug náði þó í síðustu atburði er nú mjög ótt- landsins bættu miklu við yfir-
gegnum varnarvegginn með of- ast um að einmitt þetta kunni að standandi árásir fjöiþjóðahers-
angreindum afleiðingum. gerast nú. ins á Irak.
Að sögn sjónarvotta voru Eftir tvær fyrstu árásir íraka —sá
Samgöngubót í Biskupstungum: Piltur í Árbæjarskóla:
Tungufljótsbrú
Þingmenn Vesturlandskjördæmis
hafa lagt fram á Alþingi þingsálykt-
unartillögu um að rannsaka hvort
hagstætt sé að virkja sjávarfóll við
strendur íslands. í greinargerð
með tillögunni er sérstaklega bent á
aðstæður fyrir mynni Hvamms-
fjarðar, en þar er hæöarmunur sjáv-
arfalla sex metrar og sjávarstraum-
ar því mjög miklir.
Lítið hefur verið kannað hvort hag-
stætt er að virkja sjávarföll hér við
land. Steingrímur Jónsson, (yrrver-
andi rafmagnsveitustjóri, flutti er-
indi um virkjun sjávarfalla árið
1955, en síðan hafa fáir menn velt
þessum möguleika fyrir sér í nokk-
urri alvöru. Einn maður hefur þó
haft mikinn áhuga á að láta kanna
hvort hægt er að framleiða rafmagn
úr sjávarföllum með hagnaði, en
það er Steinólfur Lárusson, bóndi í
Ytri-Fagradal í Dalasýslu.
Steinólfur er ekki vafa um mikil
virkjanleg orka er í Hvammsfirði.
Mestur munur flóðs og fjöru er um
6 metrar og 18 mílna straumhraði
er í Hvammsfjarðarröst, sem er milli
Steinakletta og Embruhöfða. Frakk-
ar hafa mikla reynslu af sjávarfalla-
túrbínum og smíði þeirra. Þær eru
einfaldlega staðsettar í straumnum
þar sem hann er stríðastur. Þær
snúast sjálfkrafa eftir því í hvaða átt
straumurinn fellur. Stíflugerð er
nánast óþörf, en fer að vísu eftir að-
stæðum.
Vigfús J. Hjaltalín, bóndi í Brokey,
setti upp sjávarfallarafstöð um síð-
ustu aldamót í Brokey í mynni
Hvammsfjarðar. Stöðin var í notkun
í 20-25 ár og var notuð við að mala
korn.
-EÓ
Steingrímur J. Sigfússon sam-
gönguráðherra opnaði sl. laugardag
formlega nýja brú yfir lúngufíjót,
sem tengir saman eystri og ytri
hluta Biskupstungna.
Brúin er skammt frá stað þar sem
fyrrum var ferjustaður, í grennd við
bæinn Krók. Hún leysir af hólmi
gömlu jámbrúna sem er nokkru ofar,
skammt frá svonefndu Fossvaði.
Gísli Einarsson, oddviti Biskups-
tungnahrepps, sagði í samsæti, sem
haldið var í Aratungu í tilefni af opn-
un brúarinnar, að áratugir væru síð-
an farið var að ympra á nýrri brú á
þessum stað yfír fljótið í stað þeirrar
gömlu.
Samvinna væri nú milli Biskups-
tungnahrepps, Hmnamannahrepps,
Gnúpverjahrepps og Skeiðahrepps
um atvinnuuppbyggingu. Árangur
samstarfsins hefði þegar sýnt sig í
límtrésverksmiðju, sem er starfrækt
að Flúðum í Hmnamannahreppi, og
nýrri yleiningaverksmiðju að Braut-
arhóli, skammt frá Reykholtshverfi í
Tungum.
Verði vegur lagður áfram frá nýju
brúnni þvert austur yfir Eystri-
Tungu og Hvítá brúuð á mörkum
Tlingna og Hreppa, myndu samgöng-
ur mjög batna milli þessara sveitarfé-
laga og möguleikar á frekara sam-
starfi milli þeirra eflast. —sá
Hefur
viðurkennt
íkveikju
Piltur í áttunda bekk Árbæjarskóla
hefur viðurkennt að hafa kveikt í
mslafötu á gangi skólans sl. mánu-
dag. Eins og Tíminn greindi frá í
gær var allt tiltækt lið slökkviliðsins
í Reykjavík kallað að skólanum, þar
sem mikinn reyk lagði út um glugga
á annarri hæð. Engum varð meint
af, en kennsla féll niður eftir hádegi
meðan skólinn var hreinsaður. Mál
piltsins var leyst innan skólans, eins
og það var orðað, og kemur því ekki
frekar til kasta yfirvalda. —SE