Tíminn - 23.01.1991, Qupperneq 6
6 Tíminn
Miðvikudagur 23. janúar 1991
Tímirm
MÁLSVARI FRJÁLSLYNDIS, SAMVINNU OG FÉLAGSHYGGJU
Útgefandi: Framsóknarflokkurinn og
Framsóknarfélögin (Reykjavlk
Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason
Ritstjórar: Indriði G. Þorsteinsson ábm.
Ingvar Gíslason
Aðstoðarritstjóri: Oddur Ólafsson
Fréttastjórar: Birgir Guðmundsson
Stefán Ásgrlmsson
Auglýsingastjóri: Steingrímur Gíslason
SkrifetofurLyngháls 9,110 Reykjavík. Síml: 686300.
Auglýsingasími: 680001. Kvöldsímar Áskrift og dreifing 686300,
ritstjórn, fréttastjórar 686306, iþróttir 686332, tæknideild 686387.
Setning og umbrot: Tæknideild Tímans. Prentun: Oddi hf.
Mánaðaráskrift kr. 1100,-, verð í lausasölu kr. 100,- og kr. 120,- um
helgar. Grunnverð auglýsinga kr. 725,- pr. dálksentimetri
Póstfax: 68-76-91
Efnahagshorfur
Ásmundur Stefánsson, forseti Alþýðusambands ís-
lands, bendir á í blaðaviðtali að ef ætlunin sé að halda
í þann ávinning sem orðið hefur af þjóðarsáttinni til
þessa verði framhaldið að byggjast á þeirri víðtæku
samstöðu aðila vinnumarkaðar og stjórnvalda sem
var og er grundvöllur þjóðarsáttar.
í þessum orðum forseta ASÍ felst í fyrsta lagi viður-
kenning á því að þjóðarsáttin hafi orðið til ávinnings
launþegastéttinni og í öðru lagi að leiðin til þess að
viðhalda slíkum ávinningi sé að aðilar vinnumarkað-
ar og valdaöfl þjóðfélagsins móti launa- og efnahags-
stefnu í sameiningu, samræmi þróun kjaramála al-
mennri þróun efnahagsmála.
Full ástæða er til að taka undir þá skoðun sem Ás-
mundur Stefánsson er að lýsa með þessum orðum.
Því ber að fagna að aðilar vinnumarkaðar hafa á síð-
ari árum aðhyllst heildarhyggju í samskiptum sínum í
stað þess að brjótast áfram á kjaramálasviði undir
gunnfánum örlögþrunginna átaka og úrslitabaráttu
milli ósættanlegra afla. Slíkur hugsunarháttur er úr-
eltur og ólýðræðislegur, tilheyrir löngu liðnum tíma.
Þar með er ekki sagt að hagsmunaárekstrar séu ekki
eðlilegur hlutur á vinnumarkaði. Þeir hljóta alltaf að
verða fyrir hendi. Þjóðarsátt og heildarhyggja eyða
ekki átakatilefnum, heldur draga úr óheillaáhrifum
harkalegra árekstra mismunandi hagsmuna og kröfu-
gerðar.
Ávinniisig og árangur sameinaðrar efnahagsmála-
stefnu og kjaramálastefnu má meta á margvislegan
hátt. Þjóðin hefur það fyrir augum að efnahags- og at-
vinnulífið í landinu hefur tekið stakkaskiptum síðan
haustið 1988, þegar núverandi stjómmálaforysta hóf
endurreisnaraðgerðir sínar og gerði það pólitískt og
félagslega mögulegt að koma á því heildarsamkomu-
lagi um kjaramál, sem stofnað var til með þjóðarsátt-
inni fyrir næstum einu ári. Þetta tvennt hefur verkað
saman og er ætlað að haldast fram á haust samkvæmt
gildandi samkomulagi, enda mikilvægt að það verði
endumýjað í ljósi fenginnar reynslu eins og orð for-
seta ASl gefa í skyn að vilji sé fyrir hendi um.
Slík endumýjun verður að gerast af raunsæi. Meta
verður stöðu efnahags og atvinnulífs rétt, og taka þá
tillit til þeirrar staðreyndar að hagvöxtur hefur ekki
orðið þótt efnahagskerfíð sigli sléttan sjó. Horfur í
því efni em engan veginn bjartar eins og ástatt er um
útlitið í loðnuveiðunum. Þótt vel hafí tekist um opin-
berar efnahagsaðgerðir og samninga á vinnumarkaði
þegar á heildina er litið, hafa íslendingar ekki fýrir
augunum nýtt hagvaxtarskeið á næstunni. Reyndar
em hagvaxtarhorfur dökkar víðar en hér á landi. Það
á ekki síst við um Bretland og Bandaríkin. Þessi stór-
veldi og iðnaðarrisar eiga við mikinn flárhags- og
efnahagsvanda að stríða. Hagfræðingar spá þar sára-
litum hagvexti á nýbyrjuðu ári, enda ýmis samdrátt-
areinkenni á lofti í þessum ríkjum, sem óvíst er til
hvers muni dfaga.
Aðhaldsstefna í efnahagsmálum er án alls efa mikil-
vægasta málefni innlendra stjómmála á íslandi um
þessar mundir og verður svo áfram.
GARRI
menn í röngum
Ekfcj cr ofsögum sagt af því hve
allt gerist tneð sfcjótum hætti nú á
dögutn. Oft hefur sést til flofcka-
hlaupara á harðaspretti, en að þeir
séu fcomnir í framboð til efstu
sæta sama daginn og þeir eru inn-
ritaðir er nýmælí.
Þröstur okkar Ólafsson var eitt
sinn ungur framsóknarmaður og
þótti efnilegur þar til hann var
fcostinn formaður Alþvðubanda-
lagsfélags tteyfcjavíkur. Þar ienti
eru þeir famir að
þraut, að fclífa
í sömu
iiiii
ballar hreínsuðu allt sem minnti á
ómenntaðar lágstéttir úr sfnum
húsum. Þá fór Þröstur í KRON og
var áfcafur samvinnumaður þar til
félagið fór á hausinn undir hans
leiðsögn. Þá var honum fengin ut-
anríkisversiunin að sýna kunnáttu
sína á og situr þar undir verfc-
stjóm Birgls Dýríjðrð sem fann
upp aðfcrð til aö hita upp beljur og
spara fcjamfóður.
Úr utanríkisráðuneytinu hoppaði
Þröstur inn í innsta Marna Al-
þýðuflokksins og hittir þar fyrir
fétaga Össur Skarphéðinsson, og
anna.
Síðast þegar Össur var í fram«
boði var hann ritstjórí Þjóðviljans
Og innsti koppur í búrí Alþýðu-
handalagsins og veitti Ölafi Kagn-
arí vel. Það atfyigi lefddi piltinn út
af málgagni sósíalisma og verka-
lýðs og eftir að hafa sökkt sér í svo
dularfuil fyrirbrigði eins og kynlif
iaxfiska og tryggingamál sá hann
Ijósið og vonarglætan er Alþýðu-
fiokkurínn, flokkur Guðmundar í.
og Stefáns Jóhanns og annarra af-
bragðsmamia f stefnnmótun ís-
jenskra þjóðmála á ofanverðri öld-
inni sem er að líða.
Nú fá kratar og velunnarar Al-
þýðufiokksins tækifærí til að
fágna fundnum sauðum, þótt þeir
hafi aldrei verið týndir og hvergi
saknað, Þeir taka þátt í próffcjöri
ásamt slatta af öðmm lærisvein-
um Marx, sem heUlast hafa af
hugsjónum Alþýðuflokksfns í for-
tíð. nútíð og fagurri framtíð.
Péiagi Þröstur og félagi Össur
eru svo hugulsamir að bjóða sig
aðeins fram í 3. og 4. sæti svo að
rúm er fyrir Jón Baldvin, sem
týndi töskunni, og Jóhönnu, sem
heldur fast um sitt, í vonarsœtum
listans. T
Hins vegar eru einhverjir eðal-
kratar að sletta sér fram í kosn-
ingabaráttu allaballanna f próf-
kjöri kratanna, enþeireru einfald-
iega ekki f tfsku meðal Aiþýðu-
tsern
óli frýs.
Þriðjungur þeirra allaballa sem
höfðu kosningarétt í Reyfcjavfkur-
próffcjöri Jétu sig hafa það að
ráðinu þann gríkk að kjósa Guð-
rúnu í annað sætið. Svavar hefur
enn ekki tilkynnt hvort hann tek-
ur fyrsta sætið eftir þá útreið.
En hver er hvað og hvur er hvurs
veit enginn og hver er krati og
hver aUabalH sfdptir ekki lengur
máJi vegna þess að jafnaöarstefo-
an er búin að gleypa ftjálshyggj-
una hráa og hrátt verður ölluin
bumbult. Garrí.
Spáð í fortíðina
Þegar fregnir bámst um það í gær-
morgun að írakar væm farnir að
sprengja olíuhreinsunarstöðvar og
oiíulindir í Kuwait nefndu spámenn,
sem sagðir em hafa vit á olíuverði,
að fatið gæti ailt eins rokið upp í 100
dollara. Lætur nærri að það sé
fimmföldun á því verði sem áltið var
heimsmarkaðsverð í fyrradag. Eng-
inn þorir að spá neinu um hvert
verður líklegt olíuverð þegar fram í
sækir og hvert framboð verður á ol-
íu yfirleitt.
Veður öll em válynd í þeim heims-
hluta sem hefur að geyma megnið af
öllum þekktum olíubirgðum jarðar-
innar. Ekkert er líklegra en að orku-
gjafinn olía hækki vemlega í verði
og að svo verði til frambúðar. En
framsýni iðnvæddrar mannskepn-
unnar er ekki meiri en svo að enginn
veit hvemig mæta á olíuskorti og
hvernig hjól framleiðslu og annarrar
athafriasemi verða látin snúast þegar
framboðið annar ekki lengur eftir-
spuminni.
Markaðslögmálin hlýða þá sínu
kalli og verðið hækkar eðlilega í
hlutfalli við mismuninn á framboði
og eftirspurn.
Snúast hjólin áfram?
Þegar menn fóm að ranka við sér
eftir fyrsta rothöggið sem olíukrepp-
an veitti iðnríkjunum 1973 vom
settar í gang mifclar áætlanir um ol-
íuspamað og ieit hafin að nýjum
orkugjöfum.
Þá þegar sáu flestir að atómstöðvar
sköpuðu geigvænlegri vandamál en
þær leystu og á áframhaldandi at-
ómstöðvavæðing sér formælendur
fáa og er fengin nasasjón af því víti
sem þar ber að varast
800 þúsund börn í Hvíta-Rússlandi
þjást af hvítblæði. Það var ekki að-
eins birta og ylur sem atómstöðin í
Chernobyl veitti.
Samgöngur nútímans byggjast all-
ar nær eingöngu á olíu. Eitt af því
fyrsta sem Bandaríkjamenn ráku sig
á í olíukreppunni miklu var að það
heyrði til sjaldgæfra undantekninga
að til væri brúklegt kerfi almenn-
ingssamgangna í fylkjum og borg-
um neyslusamféiaganna vestur þar.
Flugsamgöngur milli fjarlægra
staða em í ágætu lagi. Þær jám-
brautir sem eftir em skrölta hálf-
tómar og hægt er að komast í rútu-
bílum á langferðaleiðum.
En annars byggist allt samgöngu-
kerfið á einkabílisma. Það er aöeins í
örfáum borgum sem hægt er að not-
ast við almenningssamgöngur til
daglegra ferða, svo sem milli heimil-
is og vinnustaðar, eða milli heimilis
og verslunar. Allt athafnalíf er háð
einkabílnum og án hans kemst helst
enginn lönd eða strönd og bregðist
einkabfilinn af einhverjum orsök-
um, stöðvast framleiðsla og þjón-
usta, verslun og margþætt athafna-
semi daglegs lífs. Þjóðlífið leggst i
dróma.
Á sínum tíma var mikið bollalagt
hvemig koma mætti á fót virkum al-
menningssamgöngum og með
hvaða hætti tryggja ætti að þjóðfé-
lagið gengi sinn gang þegar olíu-
skortur færi að sverfa að.
Svo lækkaði olíuverðið aftur. Sam-
tök olíusöluríkja sprungu í loft upp
og það voru ekki nema nokkrir sér-
vitringar sem héldu áfram að vara
við olíuskorti, og var og er enginn
þeirra í hópi stjórnmálamanna.
Það er ekki vænlegt til kjörfylgis að
tala um skort og svo geti farið að
elsku hjartans einkabfilinn verði af-
lóga einn góðan veðurdag.
Og nú er önnur olíukreppa í aðsigi.
Manníjandsamlegt
skipulag
Á sínum tíma tókst víðast hvar
miklu betur að spara olíu en í
Bandaríkjunum. í Evrópu t.d. voru
og eru enn vel virkar almennings-
samgöngur og það er ekkert mál fyr-
ir einsklinginn eða atvinnuvegina að
einkabfllinn sé skilinn eftir heima.
Andstætt því sem gerist í Bandaríkj-
unum kemst fólk leiðar sinnar fyrir
því.
Olíukreppan náði auðvitað einnig
til íslands og reynt var að spara
brennsluna eftir föngum og útgerð-
armenn stundu þungan og enn
finnst fiskimönnum vera farið ráns-
hendi um hlut þeirra þegar þeir eru
látnir taka þátt í olíukostnaði út-
gerðanna.
En samgöngukerfið á íslandi hefur
aldrei verið eins háð olíubrennslu og
nú og stendur Mörlandinn orðið
jafnfætis Bandaríkjamönnum hvað
varðar bfiaeign.
Bfll er heldur ekki lúxus heldur dýr
og þurftafrek nauðsyn.
Ef litið er til höfuðborgarsvæðisins,
sem ríflega helmingur landsmanna
býr á, er engu líkara en að bflasalar
og olíufélög séu látin um allt skipu-
lag.
Otalinn fjöldi íbúa svæðisins verður
nauðugur, viljugur að ferðast tugi
kflómetra daglega til að stunda
vinnu eða skóla. Hjón halda iðulega
í gagnstæðar áttir til vinnustaða
sinna og á fjölda heimila þykir síst í
of mikið lagt þótt tveir bflar séu til
ráðstöfunar.
Einstaka eru svo heppnir að geta
notast við strætisvagna án tíma-
frekrar fyrirhafnar, en það heyrir til
undantekninga.
Fjögur máttvana fyrirtæki halda
uppi svokölluðum almenningssam-
göngum á höfúðborgarsvæðinu og
er þjónustan í lágmarki.
íbúagreyin þekkja ekkert annað og
annað tveggja láta sig hafa það að
nota strætó eða kaupa og reka einka-
bfl, og það gera allir sem geta og
margir fleiri.
Skipulag höfuðborgarsvæðisins er
gert með það fyrir augum að ekki sé
hægt að koma við nothæfúm al-
menningssamgöngum. Hverfi eru
teygð og toguð út um allar koppa-
grundir með óbyggðum högum og
heiðaflákum á milli og er eðlilega
ekki hægt að koma fyrir neinum
skipulegum almenningssamgöng-
um um svæðið.
Þeir sem skipuleggja hafa einvörð-
ungu hagsmuni Shell og Ræsis og
allra þeirra í huga og hafa aldrei
heyrt minnst á hættu á olíukreppu
eða á neinu því sem aftrað getur sí-
aukinni útbreiðslu einkabflsins.
Það verður ekki fyrr en allt kemst í
stikk og sto að farið verður að hyggja
að skipulagi og lífsstfl sem verður
vonandi í takt við það sem framtíðin
býður upp á.
OÓ