Tíminn - 23.01.1991, Blaðsíða 15
Miðvikudagur 23. janúar 1991
Tíminn 27
ÍÞRÓTTIR
Knattspyrna — U-21 árs landsliðið:
MARTEINN GEIRSSON
LEYSTUR FRÁ STÖRFUM
Marteinn Geirsson, þjálfari U-
21 árs landsliðsins í knatt-
spymu, hefur óskað eftir því að
vera leystur frá störfum.
Ástæðan er þétt leikjadagskrá
landsliðsins í vor, en Marteinn
mun þá hafa í nógu að snúast
sem þjálfari 2. deildarliðs Fylk-
is. KSÍ hefur orðið við ósk Mar-
teins.
U-21 árs landsliðið á að leika þrjá
leiki með stuttu millibili í vor, gegn
Albaníu á útivelli 25. maí, heima-
leik gegn Tékkóslóvakíu 4. júnf og
loks heimaleik gegn Svíþjóð 16.
Marteinn Geirsson.
júní. Á þessum tíma er keppni í 2.
deildinni komin á fulla ferð og því
ómögulegt fyrir Martein að sam-
ræma þessi verkefni.
í fréttatilkynningu frá KSÍ segjr
meðal annars að sambandið skilji
vel aðstæður þær sem liggi að baki
ákvörðunar Marteins og hafa beri í
huga að störf Marteins hjá Fylki
gangi fyrir, þar sem hann hafi starf-
að þar þegar hann tók að sér þjálfun
U-21 árs landsliðsins. Ljóst sé því að
félagsliðið gangi lyrir í þessu tilviki.
Jafnframt þakkar KSÍ Marteini fyrir
góð störf í þágu knattspyrnuhreyf-
ingarinnar og óskar honum velfarn-
aðar í sínu þjálfarastarfi. BL
Körfuknattleikur— NBA-deildin:
FER DIVAC Á NÝ
TIL JÚGÓSLAVÍU?
— Þegar samningur hans við LA Lakers rennur út á næsta ári
Júgóslavneski landsliðsmaðurinn
Vlade Divac, sem leikið hefur með
Los Angeles Lakers í bandarísku
NBA- deildinni síðan 1989, hyggst
snúa aftur til Júgóslavíu þegar
samningur hans við Lakers rennur
út á næsta ári.
„Draumur minn um að leika í
NBA- deildinni hefur ræst. Næst
ætla ég að snúa aftur til Evrópu,
leika fyrst með liði mínu í Júgó-
slavtu, Partizan Belgrade, og síðan
halda til Ítalíu eða Spánar," sagði
Divac í viðtali við útvarpsstöð í
Vlade Divac á förum frá Lakers.
Belgrad í gær.
Divac hóf að leika með Lakers
haustið 1989 og er nú á öðru tíma-
bili sínu með liðinu. Hann hefur
verið í stöðugri sókn sem leikmað-
ur og hefur meðal annars notið
handleiðslu forvera síns, sjálfs
Kareem-Abduls Jabbar.
Lakersliðinu hefur gengið mjög
vel í undanförnum leikjum og liðið
er enn í öðru sætinu í Kyrrahafs-
riðli vesturdeildarinnar. Portland
er á toppnum í riðlinum, sem og
deildinni, með aðeins 7 tapleiki.
Boston Celtics hefur tapað tveim-
ur síðustu leikjum sínum, fyrir
New Jersey Nets á föstudaginn og
gegn Detroit Pistons á mánudag.
Keppni í miðriðli austurdeildar-
innar er mjög spennandi sem fyrr,
Chicago leiðir eins og er, en Detro-
it, Milwaukee og Atlanta eru
skammt undan.
í miðvesturriðli vesturdeildarinn-
ar er San Antonio Spurs enn í efsta
sæti, en Utah Jazz fylgir fast á eftir.
Úrslitin í NBA-deildinni um helg-
ina:
Föstudagur
Boston Celtics-NJ Nets...........106-111
Philadelphia-Golden State .......138-141
Miami Heat-NY Knicks ............107- 86
Atlanta Hawks-Chicago Bulls......114-105
Knattspyrna — Akureyri:
Guómundur Benediktsson
íþróttamaður Þórs 1990
Guðmundur Benediktsson knatt-
spymumaður var valinn íþróttamað-
ur Þórs á Akureyri árið 1990. Úrslit-
in voru kunngerð í hófi í Hamrí, fé-
lagsheimili Þórs, um síðustu helgi.
Einnig voru veittar viðurkenningar
þeim íþróttamönnum sem skara
þóttu framúr í einstökum greinum á
síðasta ári. Skíðamaður Þórs var
kjörinn Haukur Eiríksson, körfu-
knattleiksmaður Þórs Jóhann Sig-
urðsson, handknattleiksmaður Þórs
Kristinn Hreinsson og Guðmundur
Benediktsson var kjörinn knatt-
spymumaður Þórs.
Guðmundur Benediktsson hefur
leikið bæði með drengjalandsliðinu
og unglingalandsliðinu í knatt-
spymu. Þá hefur hann staðið sig vel
á íslandsmótinu í knattspymu.
Hann var markahæsti leikmaður 3.
flokks s.l. sumar og var auk þess
kjörinn besti leikmaður 3. flokks. Þá
hafa erlend lið, bæði á meginlandinu
og í Englandi, sóst eftir að fá Guð-
mund til liðs við sig. Guðmundur er
einnig liðtækur í handknattleik, og
hefur m.a. verið valinn í unglinga-
landsliðið, en hann gaf ekki kost á
sér.
Kjör íþróttamanns Þórs fór nú fram
eftir 15 ára hlé. Á 75 ára afmæli fé-
lagsins á síðasta ári færði Ragnar
Sverrisson, kaupmaður í JMJ, félag-
inu að gjöfveglegan farandbikar sem
árlega skal veita þeim íþróttamanni
sem þykir hafa staðið sig besL Þá
færði Ragnar félaginu einnig eignar-
bikar til handa íþróttamanni Þórs, og
4 eignarbikara til bestu íþrótta-
manna einstakra deilda.
hiá-akureyri.
Cleveland Cavaliers-Utah Jazz ....99-106
Milwaukee Bucks-Orlando Magic......125-106
Dallas Mavericks-LA Clippers ....112-119
SA Spurs-Charlotte Hornets.........110-117
Phoenix Suns-Detroit Pistons...........103-102
LA Lakers-Seattle Supersonics ...105- 96
Portland Trail Bl.-Washington.....123- 99
Laugardagur
Philadelphia-NY Knicks..................97-112
Atlanta Hawks-NJ Nets..............114- 84
Indiana Pacers-Utah Jazz...........117-104
MinnesotaTimb.-GoldenState.........121-113
Houston Rockets-LA Clippers.......107- 96
Dallas Mavericks-Charlotte........110- 95
Sacramento Kings-Phoenix Suns.....101- 97
SeattleSupers-Washington Bull....:....ll 1- 89
Sunnudagur
Portland Trail Bl.-Milwaukee.....116-112
Mánudagur
NY Knicks-Philadelphia frl.........117-116
Washington-Orlando Magic...........121-119
Miami Heat-Chicago Bulls...........106-117
Detroit Pist.-Boston Celtics ....101- 90
Indiana Pacers-LA Lakers ........114-120
Denver Nuggcts-Minnesota...............115-110
Sacramento Kings-Houston Rock......97- 94
Staðan í deildinni er nú þessi,
heildarleikir, unnir, tapaðir, vinningshlutfall:
Austurdeild-Atlantshafsriðill:
Boston Celtics..............38 29 9 76,3
Philadelphia ‘76ers .......39 22 17 56,4
Washington Buliets .........38 17 21 44,7
New York Knicks.............38 17 21 44,7
New Jersey Nets.............37 11 26 29,7
Miami Heat..................38 11 27 28,9
Austurdeild-Miöriðill:
Chicago Bulls...............38 27 11 71,1
Detroit Pistons.............40 28 12 70,0
Milwaukee Bucks.............40 27 13 67,5
Atlanta Hawks...............38 23 15 60,5
Indiana Pacers ............39 15 24 38,5
Charlotte Homets...........37 12 25 32,4
Cleveland Cavaliers........38 12 26 31,6
Vesturdeild-MiðvesturriðUl:
San Antonio Spurs...........36 26 10 72,2
UtahJazz....................39 26 13 66,7
Houston Rockets ...........39 20 19 51,3
Dallas Mavericks............37 13 24 35,1
Minnesota Timberwolves.....37 13 24 35,1
Orlando Magic .............40 10 30 25,0
Denver Nuggets..............39 9 30 23,1
Vesturdelld-Kyrrahafsrlðill:
Portland Trail Blazers.....41 34 7 82,9
Los Angeles Lakers.........37 26 11 70,3
Phoenix Suns...............37 25 12 67,6
Golden State Warriors.....38 21 17 53,3
Seattle Supersonics.......36 17 19 47,2
Los Angeles Clippers .....40 14 26 35,0
Sacramento Kings.............36 10 26 27,8
BL
Llverpool féll úr efsta sæti ensku 1. deildar-
innar ( knattspymu eftir 1-1 jafntefli gegn
Wimbledon. Arsenal skaust í efsta sætið,
sigraði Everton 1-0.
New York Giants og Buffalo Bills munu
leika til úrslita í ameríska fótboltanum í
næstu viku. Giants sigraði meistara San
Francisco 49ers f undanúrslitum sl. sunnu-
dag 17-13 með vallarmarki þegar 4 sek. voru
til leiksloka. Buffalo Bills rústuðu Los Ange-
les Raiders 51-3 í hinum undanúrslitaleikn-
Marc GirardeUi frá Lúxemborg bætti enn
Breytingar á reglugeröum FIFA:
„Hjólabuxur“
bannaðar!
Knattspymumönnum verður með legghltfar og hafa sokka
óheimilt að nota „hjólabuxur" uppi.
eða hitabuxur a komandi keppn- Leikmaður, sem er samsíöa
istímabili, en slíkar buxur hafa aftasta vamarmanni þegar
ratt sér mjög tll rúms á undan- knetti er spymt, er ekid rang-
fomum áram. Það er Alþjóða- stæður.
knattspymusambandið sem Ef leikmanni blæðir skal
breytt hefur reglugerðum sín- hann/hún víkja af velli til að fá
um á þennan hátt. Hinar nýju aðhlynningu.
reglur taka þegar gildi hér á Eins og áður seglr taka þessar
landi. nýju reglur þegar gildi. Eflaust
Reglugerðabreytlngaraar eru í eru margir knattspyraumenn,
Qórumiiðum. sem fjárfest hafa f .Jhjólabux-
Ólöglegt er að lcika í svokölluð- um“, ósáttlr við reglugerðar-
um „hjólabuxum" ef skálmara- breytinguna. Spuraingin nú er
ar eru síðari en skáimar stutt- hvort liðin láti ekki bara sikka
buxna sem leikmaður klæðist. stuttbuxumar og leiki í „ítölsk-
LeikmÖnnum er skylt að leika tun stuttbuxum". 'BL
Svelnbjöm Hákonarson og Ámi Sveinsson, leikmenn syöm-
tar, f „hjólabuxum" ínnanundir stuttbuxunum. Timamynd Pjotur
einum verðlaunapeningnum í safn sitt í gær
er hann varð heimsmeistari í svigi á HM í
Saalbach í Austurríki. Silfrið fékk Thomas
Stangassinger frá Austurríki og bronsið fékk
Norðmaðurinn Ole Christian Furuseth.
Davis-bikarkeppnin, heimsmeistarakeppni
landsliða í tennis, heldur ekki fyrirhugaðri
áætlun vegna Persaflóastríðsins. Sjö leikj-
um, sem vera áttu í byrjun febrúar, hefur
verið frestað vegna stríðsátakanna.
Stjóm Badmintonsambandsins hefur
ákveðið að hætta við fyrirhugaða þátttöku í
Evrópukeppni B-þjóða, sem fram átti að fara
í Varna í Búlgaríu um næstu helgi. Vama er
skammt frá norðurlandamærum TVrklands
og því var ekki talið hættulaust að senda
keppendur þangað vegna Persaflóastríðsins.
Fleiri þjóðir hafa hætt við þátttöku í mót-
inu.
Lettneskir íþróttamenn og íþróttafélag hafa
hætt við keppni á sovéskum meistaramót-
um og dregið sig út úr sovéska landsliðinu, f
kjölfar árása svarthúfnasveitanna á lett-
neska innanríkisráðuneytið á sunnudag.
Arthur Irbe, besti íshokkfmarkvörður Sov-
étríkjanna, hefur tilkynnt að hann muni
ekki leika með sovéska landsliðinu f fram-
tíðinni.