Tíminn - 24.01.1991, Side 3

Tíminn - 24.01.1991, Side 3
Fimmtudagur 24. janúar 1991 Tíminn 3 / / Læknadeilan er enn óleyst en fundur er boðaður hjá sáttasemjara í dag: Sérfræðingar sinna nú aðeins bráðatilfellum Samningafundir í kjaradeilu sjúkrahúslækna og ríkis og borgar hafa verið haldnir hjá sáttasemjara alla þessa viku en enn hafa þeir ekki borið árangur. Fundur var haldinn á mánudag sem stóð fram á kvöld og þegar menn gengu til fundar á þriðjudag báru menn þá von í brjósti að samkomulag væri í sjón- máli en svo reyndist ekki vera, og eftir langan fund sem lauk seint á þriðjudagskvöld var deilan enn óleyst. Nú hafa sérfræðingar starfandi á sjúkrahúsunum boðað að þeir sinni einungis bráðavöktum. Þetta kom fram á fundi sem haldinn var hjá læknaráðum sjúkrahúsanna sl. sunnudag. Sérfræðingar hafa tekið vaktir að- stoðarlækna frá því í desember, en aðstoðarlæknar takmörkuðu yfir- vinnutíma sína í 90 tíma á mánuði frá 1. desember sl. til að þrýsta á kröfur sínar. Örn Smári Arnaldsson, formaður læknaráðs Borgarspítalans, sagði að „það væri greinilegt að sérfræðingar væru orðnir langþreyttir á því að standa vaktir aðstoðarlækna auk sinna vakta, eins og þeir hafa gert síðan í byrjun desember, og það er greinilegt að það er að verða ákveð- inn samdráttur." „Á fundinum á sunnudag var verið að mælast til þess að sérfræðingar sinntu fyrst og fremst bráðatilfell- um, því þeim verður að sinna og myndu því draga úr annarri starf- semi,“ sagði Örn Smári í samtali við Tímann í gær. með næstu mánaðamótum. Þeir hafa tveggja mánaða uppsagnarfrest og myndu því hætta á sjúkrahúsun- um frá 1. apríl nk. ef kjaradeilan verður ekki leyst. Örn Smári sagði að ef til þess kæmi myndi skapast verulega slæmt ástand á sjúkrahúsunum. „Ég býst við því að það þyrfti að draga mikið saman, það hlýtur að verða veruleg- ur samdráttur í sjúkrahússtarfsem- inni ef staðan fær að þróast í það.“ Verslunarráð íslands: VILL LATA LÆKKA FASTEIGNAGJÖLD í bréfí sem Verslunarráð ísland sendi til sveitarstjóma varar ráðið eindregið við því að hækka álögur á fyrirtæki við gerð fjárhagsáætlana fyrir yfírstandandi ár vegna þess að atvinnureksturinn þoli ekki hærri álögur. Einnig hvetur ráðið öll sveitarfélög til þess að lækka fast- eignagjöld og þá ekki síst þau sem hafa hækkað álögur á fyrirtæki á núverandi samdráttartíma í at- vinnulífínu og mótmælir sérstak- lega áformum um að nota sorpeyð- ingargjald til þess að íþyngja at- vinnurekstrinum. Þá vekur Verslunarráðið sérstaka athygli á því að fasteignagjöld fyrir- tækja utan Reykjavíkur hækkuðu al- mennt á síðasta ári vegna þess að þá var tekin upp viðmiðun við fast- eignaverð í Reykjavík við ákvörðun gjaldstofns. Ráðið bendir ennfremur á að 12% hækkun fasteignamats milli ára sé tæpast í samræmi við al- Aðstoðarlæknar hafa hótað því að menna verðþróun á atvinnuhús- segja allir upp störfum sínum frá og Á myndinni sjáum vjð þau sem hafa veg og vanda af Myrkum músík- dögum. Frá vinstrí: Öm Óskarsson, Hjálmar H. Ragnarsson, Karólína Eiríksdóttir og Leifur Þórarínsson. Tónskáldafélag íslands: MYRKIR MÚSIKDAGAR VIKUNA 9.-16. FEB. Vikuna 9.-16. febrúar nk. mun Tón- skáldafélag íslands standa fyrir Myrkum músíkdögum. Að sögn Hjálmars H. Ragnarssonar er mús- íkdögunum ætlað að vera einhvers konar ljósskíma í myrkasta skamm- deginu enda sé aldrei eins mikil ástæða og nú að lífga upp á tilver- una og leiða hugann aðeins frá hörmungum í heiminum sem nú dynja yfir. Hjálmar sagði einnig að músíkdag- arnir væru sannkölluð tónlistar- veisla enda væri boðið upp á níu tónleika á átta dögum þar sem fjöldi tónlistarverka væri fluttur og þarna fengju íslendingar tækifæri á að heyra sumt af því nýjasta erlendis frá. Myrkir músíkdagar hafa verið haldnir frá 1980 og núna verða flutt fjölmörg íslensk tónverk á hátíðinni og sum þeirra frumflutt. Þá verður næði, allavega ekki á þeim eignum sem keyptar hafa verið á nauðungar- uppboðum í kjölfar gjaldþrota fyrir- tækja. „Nýtt gjald, sorpeyðingargjald, hef- ur komið inn f fjárhagsáætlanir ým- issa sveitarfélaga við gerð þeirra nú. Verslunarráð telur óeðlilegt að leggja slíkt gjald á fyrirtæki án þess að fasteignaskattur lækki á móti. Má benda að Reykjavíkurborg hefur þann hátt á. Yfirstandandi ár er þriðja samdráttarárið í röð í at- vinnulífinu. Verulegt magn af at- vinnuhúsnæði stendur ónotað vegna þess að fyrirtæki hafa lagt upp iaupana. Leiga á atvinnuhúsnæði hefur lækkað a.m.k. um fjórðung samkvæmt mati þeirra sem til þekkja. Fasteignagjöld og önnur gjöld á atvinnuhúsnæði eru því sér- staklega íþyngjandi fyrir atvinnu- reksturinn eins og nú er ástatt og hefur Verslunarráð þegar farið fram á það við Reykjavíkurborg að hún lækki þau ef nokkur kostur er,“ seg- ir ennfremur í bréfinu. khg. Rafmagnssala Lands- virkjunar til (slenska stálfélagsíns: Lausna er enn leitað Bræðsluofninn hjá íslenska stálfélaginu sem valdið hefur rafmagnstruflunum hefur verið í rekstrí af og til um þessar mundir og er unnið að því að fínna varanlegar úrbætur. Hefur Landsvirkjun verið að aðstoða íslcnska stálfélagið hf. í þeim efnum, auk þess sem Lands- virkjun hefur unnið að raæling- um og staðsetningu á spennu- sveifíum í raforkukerfinu vegna bræósluofnsins. Guðmundur Helgason, rekstr- arstjóri hjá Landsvirkjun, segir að bræðsluofninn valdi enn truflunum, „athuganir á úrbót- um standa yfír og verða niður- stöður skoðaðar áður en tekin er ákvörðun um hvort rekstur ofnsins verði einungf s leyfður að næturlagi,“ sagði Guðmundur t samtali við Tímann í gær. En Landsvirkjun tók ákvörðun um það í síðustu viku að rekstur ofnsins verði aðeins leyfður að næturlagi, þ.e. frá kl. 0:00 til kl. 8:00 frá og með næstu viku ef úrbætur hafa ekki fundist, og verður haldið slíkum rekstri þar til varanlegar lausnir hafa fund- ist LAUNAGREIÐENDUR Innheimta tryggingagjalds sérstök áhersla lögð á flutning nýrr- ar franskrar tónlistar og af því tilefni mun hópur franskra hljóðfæraleik- ara koma til landsins og leika á há- tíðinni. Þá munu ýmsir aðrir frábærir lista- menn leika á hátíðinni, m.a. Manu- ela Wiesler flautuleikari, Edda Er- lendsdóttir píanóleikari, Roger Carlsson slagverksleikari, Kammer- sveit Reykjavíkur, Caput hópurinn, Sinfóníuhljómsveit íslands og hinn nýstofnaði Reykjarvíkurkvartett sem heldur sína fyrstu tónleika á há- tíðinni. Aðstandendur hátíðarinnar segja að allir eigi að geta fundið eitthvað við sitt hæfi á hátíðinni, auk þess sem fólki gefst tækifæri á að heyra splunkunýja tónlist enda sé umfang hátíðarinnar mikið og fjöldinn allur af góðum listamönnum. khg. Þann 1. janúar 1991 komu til fram- kvæmda lög um tryggingagjald. Tryggingagjald er sérstakt gjald sem launagreiðendum ber að inna af hendi af vinnulaunum, reiknuðu endurgjaldi o.fl. Með því er sameinuð innheimta launatengdra gjalda. Tryggingagjaldið kemur í stað launaskatts, lífeyristrygginga- gjalds, slysatryggingagjalds, atvinnuleysistryggingagjalds og vinnueftirlitsgjalds. Gjaldstig tryggingagjalds Tryggingagjald er lagt á í tveimur gjaldflokkum, þ.e. sérstökum og almennum. •í sérstökum gjaldflokki er gjaldið 2,5% af gjaldstofni. í þeim flokki eru landbúnaður, iðnaður og sjávar- útvegur. • í almennum gjaldflokki er gjaldið 6% af gjaldstofni. í þeim flokki eru allar aðrar gjaldskyldar atvinnu- greinar sem ekki falla undir sérstak- an gjaldflokk. Gjalddagi og eindagi Gjalddagi tryggingagjalds er 1. dagur hvers mánaðar vegna launa næstliðins mánaðar og eindagi er 14 dögum síðar. Gíróseðlar Á næstu dögum fá launagreið- endur sendan áritaðan gíróseðil vegna tryggingagjalds með upp- lýsingum um greiðanda, greiðslu- tímabil o.fl. Skil er unnt að gera í öllum bönkum, sparisjóðum og pósthúsum hjá innheimtumönnum ríkissjóðs, í Reykjavík hjá tollstjóra. Þeir sem ekki hafa gíróseðil en þurfa að standa skil á trygginga- gjaldi geta fengið sérstakan greiðslu- seðil, RSK 5.28, hjá innheimtu- mönnum tryggingagjalds. Upplýsingabæklingur Nánari upplýsingar um trygginga- gjald er að finna í sérstökum upplýs- ingabæklingi sem sendur verður launagreiðendum á næstu dögum. m RÍKISSKATTSTJÓRI

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.