Tíminn - 24.01.1991, Page 4

Tíminn - 24.01.1991, Page 4
4 Kminn Fimmtudagur 24. janúar 1991 ÍSRAEL MUN GERA GAGNÁRÁS Á ÍRAKA Þjoðverjar hjalpa Israelsmönnum Helmut Kohl, kanslari Þýskalands, tilkynnti í gær að Þjóðverjar ætluðu að veita ísraelsmönnum tafarlausa fjárhagsaðstoð og að Hans-Dietrich Genscher mundi fara í opinbera heimsókn til ísra- els til að sýna samstöðu með þeim. „ísrael á skilið allan þann stuðn- ing sem við getum veitt á þessum erfiðu tímum,“ sagði Kohl á fréttamannafundi sem hann hélt eftir að írakar gerðu þriðju árás- ina á ísrael með þeim afleiðingum að 3 Jétust og 96 slösuðust Hann fordæmdi árásina harkalega. Kohl sagði að Genscher og aðrir leið- togar hclstu stjórnmálaflokka í Þýskalandi mundu heimsækja ísrael, eins fljótt og unnt væri, til að undirstrika stuðning Þjóðverja við ísrael. Kohl sagði einnig að ákveöið hefði verið að veita Isra- elsmönnum fjárhagsaðstoð að upphæð 250 milljóna marka (5 milljarðar ísl. kr.) sem ætti að vera varið til mannúðarmála. Gyðingar í Þýskalandi hafa mót- mælt hve Þjóövcrjar hafa hingað til stutt lítið við bakið á fjölþjóða- hemum í Saudi-Arabíu og ísraels- mönnum og þeirri staðreynd að mörg þýsk fyrirtæki seldu Irökum vopn. En á móti hafa friðarsinnar í Þýskalandi mótmælt afskiptum Þjóðverja af stríðinu og sést hafa mótmælaskiiti sem á stendur „Gangi þér vel, Sam frændi“ og „Gyðingar eru aftur hræddir við þýskt gas“ og er þá vísað til seinni heimsstyijaldarinnar og þess að þýsk fyrirtæki hjálpuöu írökum við framleiðslu efnavopna. Þjóðvetjar hafa sent 18 orrustu- þotur til 'iyrklands til vamar gegn árásum iraka á landið, en þeir mega ekki samkvæmt alþjóðalög- um frá seinni heimsstyijöldinni taka þátt í hemaðaraðgerðum ut- an bemaðarsvæðis NATO. Skattahækkanir? Kohl sagði að hann útilokaði ekki þann möguleika að ffamlag Þjóð- veija vegna stríðsrekstrar banda- manna mundi hafa í för með sér skattahækkanir. Þjóðveijar hafa lofað að leggja fram 3,3 milljarða marka (um 120 milljarðar ísl. kr.) og fyrirhuga að auka við þá upp- hæð. Pjármálasérfræðingar hafa getið sér til um að viðbótarfram- lag Þjóðverja til stríðsrekstrarins geti orðið allt upp í 10 milljarðar marka (360 milljarðar ísl. kr.). Kohl sagði að auka þyrfti tekjur rílrisins til þess að fjármagna að- stoðina og skattahækkanir væru einn möguleiki. Reuter-SÞJ Peter Amett á Hótel Sögu árið 1986 þegar leiðtogar stórveldanna fund- uðu á íslandi. Vamarmálaráðherra ísraels sagði í gær að ísraelsmenn mundu svara eldflaugaárásum íraka á ísrael. Hann sagði einnig að þeir mundu taka tillit til óska Bandaríkjamanna og svar þeirra mundi kannski dragast. „Við verðum að taka tillit til ykkar (Bandaríkjamanna) og gerum það,“ sagði vamarmálaráðherrann. Hann talaði við fréttamenn eftir skyndifund helstu her- og stjórn- málaleiðtoga f ísrael, sem haldinn var í gærmorgun vegna þriðju eld- flaugaárásar íraka á Israel frá því að stríðið hófst. Hún var sú skaðsamasta til þessa. í Tel Aviv létust 3 menn og 96 slösuðust þegar Scudeldflaug komst í gegnum Patriotvarnarkerfi sem ísraelsmenn höfðu fengið ný- lega frá Bandaríkjamönnum. Tveim- ur Patriotflugskeytum var skotið á móti flauginni en misstu bæði marks. Patriotvarnarbúnaður- inn klikkar Patriotvarnarbúnaður Bandaríkja- manna er farinn að klikka. Loftvam- arflautur í Dhahran fóru í gang í gær og átta Patriotflugskeyti fóru á loft. Engin Scudflugskeyti voru hins veg- ar á leiðinni og gaf Patriotvamarkerf- ið falska viðvörun, samkvæmt upp- lýsingum breska hersins. Patriot- flugskeyin féllu því ósprungin á borgina. Slík mistök eru dýr, því hvert Patriotflugskeyti kostar 1 millj- ón dollara. Þá misstu tvö Patriotflug- skeyti af Scudflugskeytinu sem lenti í Tel Aviv, eins og áður segir. Bagdad írakar em nú famir að spara olíu fyrir herinn, því árásir bandamanna á olíuhreinsistöðvar íraka hafa verið árangursríkar. íraska olíumálaráðu- neytið tilkynnti í útvarpinu í Bagdad í gær að sölu eldsneytis til almenn- ings yrði hætt í stuttan tíma til þess að tryggja nægt magn fyrir starfsemi ríkisins. íbúar Bagdad eru komnir yfir byrj- unaráfallið sem stríðið hafði, að sögn Peters Arnett, sem er eini vestræni fréttamaðurinn sem er eftir í Bagdad. Hann sagði að matvæli væru farin að streyma til borgarinnar og vatns- tankbílar einnig. Matvæla- og vatns- skortur hefur hrjáð borgarbúa síðan stríðið braust út. Reuter-SÞJ Ein Scud-eldflaug komst í gegnum Patriot-vamarkerfiö. Reutermynd Einn fréttamaður eftir í Bagdad Aðeins einn fréttamaður er nú eftir í Bagdad, en írakar hafa vísað öllum öðrum úr landi. Þessi fréttamaður heitir Peter Amett og starfar fyrir CNN-sjónvarpsstöð- ina. Peter Arnett er gamalreyndur í faginu og kom m.a. hingað til íslands ár- ið 1986 þegar forsetar stórveldanna funduðu í Höfða. Persaflóastríðið: Landher aðverða tilbúinn Miklir flutningar landhers banda- manna til landamæra Kúvæts og ír- aks hafa nú staðið yfir. Hermenn, skriðdrekar, stórskotalið o.s.frv. hafa stíflað alla vegi til landamær- anna. Hemaðarsérfræðingar telja að herinn sé alveg að verða tilbú- inn. Von er á þremur landherdeild- um frá Þýskalandi. írakar hafa 545 þúsund hermenn, sem hafa grafið sig niður í Kúvæt og írak nærri landamærum Saudi-Ar- abíu og þar af eru rúmlega 100 þús- und í úrvalssveitum íraska hersins sem em vel tækjum búnar. íraska flughernum hefur nánast ekkert verið beitt og bandamenn ráða há- loftunum. Flugvélar þeirra hafa far- ið f yfir 10 þúsund árásarferðir til að veikja íraska herinn og draga þannig úr mannfalli bandamanna þegar landherinn lætur til skarar skríða. Bandamenn hafa lýst því yfir að flugvélarnar hafi náð 80% árangri, en þær raddir hafa heyrst, meðal annars frá sovéskum hershöfðingj- um, að árangurinn sé ekki nema 10%. Fjölþjóðaherinn telur nú um 660 þúsund hermenn og þar af eru um 474 þúsund bandarískir. Þeir sem eru hvað svartsýnastir telja að árás landhersins geti tafist fram í miðjan febrúar, en margir telja að árásin geti orðið núna á næstu dögum. Nokkrar skærur hafa orðið milli landherjanna, en aðeins fáeinir kíló- metrar eru nú á milli. Tveir her- menn bandamanna særðust lítillega og sex íraskir hermenn hafa verið teknir til fanga, að sögn fréttafull- trúa Bandaríkjahers. Reuter, Sky - SÞJ Bandamenn með áróður spyrnumannanna. Engin viðbrögð komu frá Pentagon, en það hefur ver- ið staðfest hjá fjölþjóðahernum í Saudi-Arabíu að þeir dreifi áróðurs- ritum í þeim tilgangi að hvetja íraska hermenn til að strjúka úr íraska hernum til að forðast sprengjuregn bandamanna. Reuter-SÞJ HERMENN TAKA DAGBLAÐAPAPPIR Flugvélar bandamanna dreifa áróð- ursritum yfir íraska hermenn, sam- kvæmt upplýsingum frá andspymu- hópi í Kúvæt. Talsmaður andspyrnuhópsins í Washington dreifði sýnishornum af áróðursritunum til fréttamanna á þriðjudag. Ritin eru í teiknimynda- stíl og textinn á arabísku. Myndirnar sýna einn skriðdreka í ljósum Iogum og annan í sprengjuregni frá flugvél bandamanna. Fyrir neðan þessa mynd er hræddur íraskur hermaður sem á að vera að ímynda sér útför sína og hugsa sem svo: ,Að dvelja hérna er sama og að deyja hérna!“ Yf- ir myndunum stendur: „Öflug skot- vopn, langdræg vopn og gereyðing- arvopn," samkvæmt þýðingu and- Vopnaðir sovéskir hermenn tóku geymslu undir dagblaðapappír í miðborg Vilnius í Litháen í gær, að sögn talsmanns litháíska þingsins. Talsmaðurinn sagði að tveir félagar úr kommúnistaflokki Litháens hefðu verið í fylgd með hermönnun- um. Annar þeirra sagði að þeir væru að fylgja tilskipun forsetans. Engin ofbeldisverk voru framin. Gorbatsjov, forseti Sovétríkjanna, sakaði Eystrasaltslýðveldin um ástandið á þriðjudag, en lofaði opin- berri rannsókn á ofbeldisverkunum sem hefðu verið framin í lýðveldun- um. Hann krafðist einnig þess að lýðveldin afnæmu lög sem hann sagði að stönguðust á við sovésk lög og tröðkuðu á rétti rússneskra minnihlutahópa, sovéska hersins og fjölskyldum þeirra. En forseti Lett- lands, Anatolijs Gorbunovs, sagði að Lettland mundi ekki virða kröfu Gorbatsjovs. Reuter-SÞJ

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.