Tíminn - 24.01.1991, Qupperneq 8

Tíminn - 24.01.1991, Qupperneq 8
8 Tíminn Fimmtudagur 24. janúar 1991 VIÐSKIPTAMAL EB: Forysta Itala ekki að skapi annarra bandalagsríkja Gianni de Michelis, hinn fyrirferðarmikli utanríkisráð- herra Ítalíu, er að gera evrópska starfsfélaga sína grá- hærða. Hamagangurinn í honum og stórstílshugmynd- ir hans eru að ganga fram af útkeyrðum embættis- mönnum samstarfsaðila Ítalíu í EB, sem nú gnísta tönnum yfír aðferðum ítala til að koma málum sínum fram. Of margir fundir og of lítill tími til að undirbúa þá ítalir, sem nú sitja í forsetaemb- ætti bandalagsins hafa svo sannar- lega verið framtakssamir, hug- myndaríkir og aðferðir þeirra hafa verið ólíkar fyrirrennara þeirra. En embættismenn kvarta undan því að þeir verði nú að mæta á of marga fundi og hafi of lítinn tíma til að undirbúa sig fyrir þá. Þeir saka de Michelis og samstarfs- menn hans um að einblína alltaf stöðugt á stórkostlegan sjóndeild- arhring, í stað þess að einbeita sér að raunverulegum aðferðum til að komast svo langt. Nú eru EB-ríkin búin að heita því að hefja víðtækar samningavið- ræður um stjórnmálalega og efna- hagslega sameiningu þegar í des- ember nk., en embættismennirnir óttast að smáhlutirnir sem halda hjólunum gangandi séu langt í frá að vera fyrir hendi. Nú, þegar sex mánaða forsetaforysta ítala í EB er hálfnuð, er stundaskráin sífellt að verða ofmettaðri. Embættismenn kvarta undan töfum á pappírs- vinnu, illa skipulögðum fundar- dagskrám, fundum sem ekki eru skipulagður með fyrirvara og fylgja síðan ekki þeim tíma sem til- tekinn er. Siðvenju hrundið á fundi utanríkisráð- herra Snemma í október skarst í odda á óformlegum fundi utanríkisráð- herranna á Ítalíu. Að venju lá ekki fyrir skipulögð dagskrá enda á fundurinn að vera vettvangur fyrir utanríkisráðherrana 12 til að spjalla í hreinskilni um hvaðeina sem þeim liggur á hjarta. En í stað þess að fylgja venjunni lagði starfsfólk Michelis fram skjal með tillögu um sameiginlega stefnu Evrópu í stjórnmálum og öryggismálum og heilmargar djarftækar áætlanir sem ollu breskum embættismönnum hrolli. „ítalirnir hafa hent þessu óforvarandis framan í okkur. Þetta eru nýjar hugmyndir sem de Mich- elis hefur kastað fram,“ segir hátt- settur breskur embættismaður. Sá sami Breti lýsti ítalska utanrík- isráðherranum, sem reyndar er fyrrverandi prófessor í efnafræði og höfundur bókar um nætur- klúbba Rómar, svo að af honum neistaði og hann væri alltaf að senda frá sér gáfulegar upphrópan- ir. „Óvenjuleg og ein- kennileg afstaða Breta“ Frakkar og Þjóðverjar voru að vísu meðal þeirra þjóða sem gjarn- an vildu ræða ítölsku tillögurnar, en Bretar og Danir létu sér fátt um finnast. ítalska utanríkisráðuneyt- ið fór síðar út á ystu nöf þess orða- forða sem viðgengst í diplómat- íunni þegar það lýsti afstöðu Breta sem „óvenjulegri og einkenni- legri“. Að nokkru leyti mættust þarna ólíkar pólitískar hefðir, raunsæis- stefna Norður-Evrópuríkja tekur á sig mynd stjórnunarstfls sem fell- ur ekki alltaf að þeim ítalska. ítalir gripu til varnar fyrir stórbrotnar hugmyndir sínar og sögðu að allar þessar tillögur væru einfaldlega andsvar við sögulegu tímabili í Evrópu og hæfðu nútímanum. ítalirnir héldu því fram að þær væru ítölsk endurreisn hugmynda til handa meginlandi sem verði að horfast í augu við víðtækar breyt- ingar. ítalir verjast árásum með gagnárás ítalir hafa tekið illa upp gagnrýni á forystu þeirra í EB og slegið frá sér. Giovanni Castelanetta, tals- maður utanríkisráðuneytisins, hefur skrifað í The Wall Street Journal til að mótmæla frásögn blaðsins af skapraunum þeim sem forysta ítala hefur valdið evrópska samfélaginu. Blaðið hafði haft eftir starfs- mönnum Martins Bangemanns, sem fer með iðnaðarmál af hálfu Þjóðverja hjá EB, að hann hefði sagt að hann „hefði ekki hug- mynd“ um hvert yrði fundarefni næsta fundar iðnaðarráðsins vegna þess að ítalir hefðu ekki frætt hann um það. Gianni de Michelis, ítalski utan- ríkisráðherrann, fer svo hratt yfir og hefur svo víðan sjóndeildar- hríng að starfsbræður hans frá öðrum EB-löndum fýlgja honum ekki eftir. Til varnar afrekaskrá ítala tiltók Castelanetta 11 dæmi um „raun- hæft frumkvæði" ítala, og hélt því fram að sumum þessum markmið- um hefði verið náð. Opinberlega eru viðbrögð ítala undrun. ítalska utanríkisráðu- neytið stendur á því fastar en fót- unum að samviska þar á bæ sé í góðu lagi. En þó að haft sé í huga að ítalir tóku að erfðum heilmik- inn lista um umbætur á bandalag- inu, á sama tíma og geysilegar breytingar eiga sér stað í Evrópu, er augljóst að þeim hefur ekki gengið eins hratt að nálgast aðal- markmiðin á sviði bandalags milli ríkisstjórna og efnahagsmála, og írum og Frökkum þegar þeir gegndu forystunni íyrir skemmstu. Deilur um Brússel og Strasbourg Nú eru jafnvel ítalskir fjölmiðlar farnir að taka þátt í árásunum. Dagblaðið La Repubblica í Róm fjallaði um meinta óstjórn á áætl- unum um að gera Strasbourg að höfuðstöðvum Evrópuþingsins. Það atriði hefur lengi verið.kapps- mál embættismanna sem eru orðnir þreyttir á að vera á sífelld- um flækingi milli Briissel og norð- ur- frönsku borgarinnar. Meiriháttar deila er nú í uppsigl- ingu á evrópska leiðtogafundinum í Róm, þar sem Beigir munu berj- ast fyrir því að þingið verði sett niður í Brussel, þar sem 2.000 skrifstofur bandalagsins, til við- bótar þeim sem fyrir eru, eru í byggingu. Frakkar hóta því að beita neitun- arvaldi hverja þá ákvörðun sem ekki dregur taum Strasbourg. De Michelis veitti þeim þöglan stuðn- ing sinn þegar hann sagði að ef ráðstefna um öryggi og samvinnu í Evrópu (RÖSE), sem haldin verður í nóvember, velji Strasbourg sem framtíðarstaðsetningu, þá ætti Evrópuþingið að gera slíkt hið sama. Enn er ótekin ákvörðun um hvar alríkisseðlabanka bandalagsins, sem verður samferða sameiningu EB- ríkjanna í eitt efnahagssvæði, verði valinn staður. Álitið er að nöldrið um forystu ítala í banda- laginu þessa dagana blikni í sam- anburði við það rifrildi sem á eftir að verða vegna staðsetningar alrík- isseðlabanka EB. Mat Lawsons á inngöngu Bretlands í EMS II. HLUTI „Þótt, per impossible, Bundesbank (ath. þýski seðlabankinn) yrði gripinn óráði og byndi trúss við verðbólgu, væri (Bretlandi) frjálst, meira að segja í gengis- samknýt- ingunni, að hækka gengi sterlings- punds til að forðast smit. Það hrek- ur bersýnilega þjóðsöguna um „glötun fullveldis". Einungis höf- um við tengt sterlingspund þýsku marki vegna þess, að það kemur okkur vel og agar okkur að nauð- syn gegn verðbólgu um fyrirsjáan- lega framtíð. Þyngra vegur sú mótbára efa- semdarmanna, að þá Bretland sé í (samknýtingu gjaldmiðla) komið, muni fé streyma yfir í hágæða- gjaldmiðil sem sterlingspund og knýja okkur til að lækka vexti meira en samræmist þörfum stefnu í peningamálum til að halda (gengi) sterlingspunds innan marka gengis-samknýtingarinnar. Líklegt er satt að segja, að í önd- verðu verði skeið óróa. Með tilliti til þess var það rétt af ríkisstjórn- inni að ganga til (gengis-samknýt- ingarinnar) með víð mörk fyrst í stað sem hin spænsku, eins og ég lagði til í stuttu framlagi mínu til umræðnanna um fjárlögin í ár, — þótt ég voni, að innan t.d. sex mán- aða megi hverfa til þrengri marka. (Af tæknilegum ástæðum tel ég, að betur fari á, að hin þröngu mörk verði plús eða mínus 3% fremur en plús eða mínus 2 1/4 sem nú, en það varðar ekki miklu.) En meginatriðið er, að fátíðir og skammvinnir verði væntanlega þeir árekstrar, sem efasemdamenn óttast. Sú hefur vissulega verið reynsla skipunar evrópskra pen- ingamála (EMS) þau 11 ár, sem hún hefur viðgengist. Þegar mjög mishá verðbólgustig voru í aðild- arlöndum, þá voru vextir það líka. Og gildar ástæður liggja til þess. Til umræddra árekstra kemur því aðeins, að markaðnum fatist, þ.e.a.s. að markaðnum sjáist yfir þann verðbólgu-þrýsting, sem þröngvar (aðildar)landi til að hafa háa nafnvexti á einum eða öðrum tíma. Ef markaðurinn áttaði sig á því, óttaðist hann, að af óhóflegri lækkun vaxta hlytist, að jafngengi (parity) yrði ekki uppi haldið, og að gjaldmiðillinn nyti þess sakir af- rakstrar (af verðbréfum). Að sjálf- sögðu getur markaðnum skjátlast, og skjátlast; en eins og ég hef sagt, er það í rauninni sjaldan og um stuttan tíma, og þá ber við að bregðast með íhlutun (til að halda uppi stöðugleika (gengis)). Alröng er sú skoðun, sem sums staðar heyrist, að dylja skuli óhyggilega lækkun vaxta, en vega upp á móti henni með hertum fjár- lagatökum, hærri sköttum. Það væri í senn mjög viðsjárvert og mestmegnis til lítils að reyna að beita þeim fjárlagatökum. ■ ■■ ■ -r ■ on W Cl). Var álitsgerðin ti lefni áreiðanlega kostnaði? ... Hag- stofn iinarinnar, sem eiga meira umfjöllunar í Economist 15. fræðingar, sem kynnt hafa sér afolfi r og gasi í jörðu. Kostnaður september 1990: málin, hafa aðallega fengist við þróur tarlanda af því að halda út- „í fyrsta lagi spyr starfshó pur- framsetningu ágiskunartalna um streyi ni kolefnistvísýrings við ur munu á, að lofttegundir, út- 11111, HVG UllEll U|iJiLHLLlll gengist á reikistjömu v orri, einn mikilsvirtur hagfræðingur, til 10 l X tlilV*' Mlg pCSð ÍRCIUI il At % (í Kína) af vergri þjóðar- blásnar eöa að öðruni hætti hvort sem er með tUlltí til al )SÓ1- William Nordhaus við Yale-há- framl eiðslu þeirra.“ leystar úr læöingi, einkum kol- efnistvísýringur, eyði ózonlagi til iHÚlkú cötí áölu^Uildillð Og svarið er tim aðlögunarh efni. æfni skoldf reyut koiuá tólmu yflr mTcJ) ávinninginn... Alan Manne við fyrirv :a verður slikum tölum með ara. örlítil breyting á for- yfir lofthjúpi hnattarins, þannig 0,1 stig á áratug, en um 2,5 stig Stanford University og Richard sendi im framreikninga um Öld að andrúmsloft fari hitnandi. um absólút möric. Alþjóc Hegt Richels við Electríc Power Rese- hleðu r feiknarlega upp á sig. Ro- Um það vandamál hefur alþjóð- samkomulag um veradun ve ður- arch Institute telja, að kostnaður bert 1 ViIIiams við Centre for En- leg ráðstefna verið boðuð og fars setti á jörðu allri skorðu r við Bandaríkjanna af því að halda til ergy md Environmental Studies margt er um það rætt og ritað. I útblæstri kolefnistvísýrings út í 10. í aldarloka útblæstri kolefniství- við ‘rinceton- háskóla hefur sumar kom út í enskri þýðingu andrúmsloftlð fram til 210 sýrings á sama stigi sem 1990 vakið máls á, að áreiðanieiki at- álitsgerð hollenskra sérfræðinga álitsgerðinni er talið, að jii rðin og að minnka hann síðan um hugai ía Manne og Richels fari á sviði veðurfars og orkumála, geti enn í 55 ár tekíð við út- fimmtung, næmi um 3% vergrar mjög eftir því, að þeír hafi komið Energy Policy in the Green- blæstri kolefnistvísýrings í nú- þjóðarframleiðslu, þegar liðlð réttrn n tölum yfir sjáifkrafa (au- house: From Warming Fate to verandi mæli...“ væri fram tíl 2030. Kostnaður- tonor nous) hækkandi nýtingar- Warming Limlt (Earthscan Pucl- „Svarar ávinningur af þ\ n að inn yrði minni fyrir önnur aðild- stig c rku.“ ications, 3 Endsleigh St., Lond- hefta upphitun (lofthjúps) j: irðar arlönd Efnahags- og framfara- Stígandi

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.