Fréttablaðið - 27.02.2009, Side 17
16 27. febrúar 2009 FÖSTUDAGUR
Umsjón: nánar á visir.is
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
Fjöldi viðskipta: 86 Velta: 218 milljónir
OMX ÍSLAND 15 OMX ÍSLAND 6
284 +3,80% 851+ 6,81%
MESTA HÆKKUN
ALFESCA 20,00%
STRAUM. - BURÐ. 11,92%
BAKKAVÖR 4,55%
MESTA LÆKKUN
MAREL FOOD SYS. -0,39%
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Alfesca 3,90 +20,00% ... Atlantic
Airways 168,00 +0,00% ... Atlantic Petroleum 443,00 +0,00% ...
Bakkavör 1,84 +4,55% ... Eik Banki 91,50 +0,00 ... Eimskipafélagið
0,50 +0,00% ... Føroya Banki 99,00 +0,00% ... Icelandair Group
12,71 +0,00% ... Marel Food Systems 51,00 -0,39% ... SPRON 1,90
+0,00% ... Straumur-Burðarás 1,69 +11,92% ... Össur 92,60 +2,78%
Samningurinn um Evrópska efna-
hagssvæðið kynni að vera í upp-
námi neiti Íslendingar að standa
við skuldbindingar sínar vegna
Icesave í samræmi við tilskip-
un Evrópusambandsins um inn-
stæðutryggingar. Þetta kemur
fram í skriflegu svari Össurar
Skarphéðinssonar utanríkisráð-
herra við fyrirspurn Sivjar Frið-
leifsdóttur, þingmanns Framsókn-
arflokks, í gær.
Fram kemur að fyrir liggi um
málið allnokkur fjöldi lögfræði-
legra álitsgerða auk álitsgerða
Breta, Hollendinga og Evrópusam-
bandsins. Utanríkisráðherra segir
trúnað gilda um gögnin en upplýsir
þó að „þungvæg“ lögfræðileg rök
séu talin hníga að því að túlka til-
skipunina um innstæðutrygging-
ar þannig að íslenska ríkið verði
að hlaupa undir bagga með trygg-
ingarsjóðnum. Þó hafi verið færð
lögfræðileg rök fyrir gagnstæðri
skoðun, en því sjónarmiði hafi
stjórnvöld haldið fram á samn-
ingafundum. Hvorki stofnanir Evr-
ópusambandins né aðildarríki (þar
með talin Norðurlöndin og Nor-
egur, sem hluti af EES-svæðinu)
fallist þó á að lagaóvissa ríki um
það hvort ábyrgð á bankainnstæð-
um sé fyrir hendi.
„ESB-ríkin hafa mjög skýra
afstöðu til þess hverjar skyldur
Íslands eru í máli þessu og hafa
skoðanir verið látnar í ljós um
að Ísland sé að virða að vettugi
skyldur sínar á innri markaði sam-
bandsins. Það gæti valdið uppnámi
á EES-samningum,“ segir í svari
Össurar og tiltekið að mat bæði
núverandi og fyrrverandi ríkis-
stjórnar sé að „lausn deilunnar
með aðstoð alþjóðasamfélagsins
og þeirra ríkja sem næst okkur
standa, fyrst og fremst Norður-
landanna, sé ein af forsendum end-
urreisnar íslensks efnahagslífs.“
- óká
SIV
FRIÐLEIFSDÓTTIR
ÖSSUR
SKARPHÉÐINSSON
Deilan ógnaði EES-samningi
Verð á íslenskum sjávarafurðum
lækkaði um 4,7 prósent í erlendri
mynt í janúar síðastliðnum og
hefur þar með lækkað sjö mánuði
í röð. Í umfjöllun IFS Greining-
ar kemur fram að í erlendri mynt
hafi afurðaverð lækkað um 12,8
prósent síðustu sex mánuði.
„Eftir þessa lækkun er afurða-
verð álíka hátt og um mitt ár
2006,“ segir í greiningunni og
tiltekið að þróunin sé í samræmi
við lækkun á öðrum hrávörum á
heimsvísu. Raunar hafi íslensk-
ar sjávarafurðir lækkað minna
en ýmis önnur matvæli á heims-
markaði. Búast megi við frekari
verðlækkunum þó nokkuð hafi
hægt á þeim að undanförnu.
„Vegna veikrar stöðu krón-
unnar er afurðaverð hátt mælt í
íslenskum krónum. Vegna þessa
er framlegð í íslenskum sjáv-
arútvegi góð. Á móti kemur að
skuldir sjávarútvegsfyrirtækja
eru háar vegna erlendra skulda,“
segir í umfjöllun IFS, samkvæmt
upplýsingum fyrirtækisins hafa
birgðir hjá framleiðendum auk-
ist mikið undanfarna mánuði.
Erlendir kaupendur eru sagðir
meira hikandi en áður og vilja
lágmarka birgðahald við ríkjandi
markaðsaðstæður. - óká
Kreppan hefur áhrif á sjávarútveginn:
Verð sjávarafurða hefur
lækkað sjö mánuði í röð
Fleiri bogna en Baugur
Willams-liðið í Formúlu eitt kappakstrinum
finnur, eins og væntanlega fleiri keppnislið,
rækilega fyrir fjármálakreppunni sem ríður yfir
heiminn. Um daginn missti liðið samninginn við
leikfangaverslunina Hamley‘s eitt dótturfélaga
Baugs í Bretlandi og nú í gær var tilkynnt að ekki
ómerkara fyrirtæki en Royal Bank of Scotland
(RBS) myndi ekki endurnýja auglýsingasamn-
ing sinn við Williams. Hann rennur þó ekki út
fyrr en við lok keppnistímabilsins 2010. Hins
vegar þarf tæpast nokkurn að undra
þótt RBS skeri niður
kostnað hvar sem
bankinn getur,
enda var hann
að skila mesta
tapi sem um
getur í breskri
fyrirtækjasögu
til þessa.
Veljum leiðinlegan bankastjóra
Seðlabankastjóri á að vera grár og gugginn,
helst leiðinlegur og með áhuga á hagfræði.
Á þessum nótum lýsti Gylfi Zoëga, prófessor í
hagfræði við Háskóla Íslands, fyrirmyndarbanka-
stjóra Seðlabankans. Bankinn ætti þannig ekki
að vera ruslakista fyrir stjórnmálamenn
því engin leið sé að vita hvaða hags-
muna þeir séu að gæta í ákvarð-
anatöku sinni. Gylfi, sem var með
framsögu á þingi Alþjóðamálastofnun-
ar rannsóknaseturs um smáríki í gær,
tók það skýrt fram að hann legði
það ekki í vana sinn að tala út
fyrir efnið og blanda saman
hagfræði og stjórnmálum. En
þar sem stjórnmálamenn hafi
kollsteypt efnahagslífinu hér
hljóti hann að hafa heimild til
þess nú.
Peningaskápurinn …
Fyrsta nýja opnun verslunar í
Smáralind á árinu átti sér stað í
gær þegar barna- og unglinga-
fataverslunin Zink opnaði þar á
ný undir nýju eignarhaldi.
Zink var lokað um áramót en
hefur nú verið opnuð á ný eftir að
eigendur barnafataverslunarinnar
Adams keyptu reksturinn. Versl-
anirnar eru hlið við hlið á fyrstu
hæð.
Eggert Aðalsteinsson, eigandi
verslananna, segist hafa trú á
Smáralindinni í þesum efnum
og segir tækifæri í sölu barna-
fata. „Við erum með ungbarnaföt
í Adams og teljum að líka þurfi að
sinna eldri börnum vel.“
- óká
Fyrsta opnunin
í Smáralind í ár
Þröngsýni Íslendinga gagn-
vart alþjóðlegri samvinnu
varð til þess að landið var
fimmtán árum á eftir ná-
grannaþjóðunum að laga sig
að breyttu umhverfi eftir
seinni heimsstyrjöldina,
segir fyrrverandi efnahags-
ráðgjafi Viðreisnarstjórn-
arinnar.
„Íslendingar eiga erfitt með sam-
vinnu við aðrar þjóðir. Það eru,
held ég, leifar frá árum sjálfstæð-
isbaráttunnar þegar Uppkast-
ið var fellt 1908,“ segir Jónas H.
Haralz, fyrrverandi bankastjóri
Landsbankans og efnahagsráð-
gjafi Viðreisnarstjórnarinnar.
Ákvörðun Íslendinga að standa
utan við alþjóðlega samvinnu
varð til þess að landið missti af
blómlegu uppgangsskeiði í Evr-
ópu eftir seinna stríð, að hans
sögn.
Jónas hélt erindi um þátttöku
Íslands í alþjóðlegum viðskipta-
og fjármálasamtökum á vegum
Alþjóðamálastofnunar og Rann-
sóknaseturs um smáríki í gær
ásamt Gylfa Zoëga, hagfræðingi
við Háskóla Íslands og dr. Rainer
Kattel, stjórnmálafræðiprófess-
or við Tækniháskólann í Tallinn
í Eistlandi.
Uppkastið sem Jónas nefn-
ir var tillaga sem fela átti í sér
stóraukið sjálfstæði Íslendinga
frá Dönum en gæti takmarkað
fullt sjálfstæði næstu áratugi.
Það var fellt í dramatískum þing-
kosningum 1908 og róttækari leið
að sjálfstæði valin.
Jónas rifjaði upp að gjaldeyr-
ishöft og skilaskylda á erlendum
gjaldeyri ásamt innflutningshöft-
um hafi verið tekin upp hér í síð-
ustu kreppu sem tímabundin ráð-
stöfun.
Sænskur ráðgjafi, sem hingað
kom 1936 hafi hins vegar bent á
hættuna sem af þeim stafaði fyrir
smáríki á borð við Ísland og mælti
fyrir viðskiptafrelsi.
Ráðleggingar Svíans hlutu
dræmar undirtektir og drógu
Íslendingar lappirnar í alþjóð-
legri samvinnu í skugga hafta-
stefnu þar til Viðreisnarstjórn-
in tók við stjórnartaumum 1959.
Þá fyrst hafi Alþjóðagjaldeyris-
sjóðurinn, sem Ísland var stofn-
aðili að frá 1944 en hunsaði fyrstu
árin, gert þjóðinni kleift að létta
á haftastefnu og gefa innflutning
frjálsan.
„Íslendingar voru ekki að flýta
sér,“ sagði Jónas og bætti við að
stjórnvöld hér hefðu verið fimmt-
án árum lengur að bregðast við
breyttu umhverfi eftir seinna
stríð en nágrannalöndin vegna
ranghugmynda um fjárhagsstöðu
landsins og styrks krónunnar,
sem hafi verið rangt skráð.
Jónas, sem lengi hefur mælt
fyrir aðildarviðræðum við Evr-
ópusambandið, sagði nauðsyn-
legt að breyta viðhorfum manna
til alþjóðlegrar samvinnu, svo
sem Sjálfstæðisflokksins, sem
vilji halda þeirri ranghugmynd á
lofti að Evrópusambandið sé sósí-
aldemókratísk hyldýpi sem gleypi
allt sem nálægt því komi.
Vísaði hann til þess að hagfræð-
ingurinn Benjamín Hj. Eiríksson,
ráðunautur ríkisstjórnar Íslands
í efnahagsmálum á sjötta ára-
tug síðustu aldar og hugmynda-
fræðingur Seðlabankans, hafi
bent sjálfstæðismönnum á galla
gjaldeyris- og tollahafta og kosti
alþjóðlegrar samvinnu á sínum
tíma. „Hann vísaði til fyrsta
formanns flokksins, Jóns Þor-
lákssonar, sem var mjög hlynnt-
ur alþjóðlegri samvinnu,“ sagði
Jónas. jonab@markadurinn.is
Þröngsýni Íslendinga
tefur fyrir viðreisn
STÓRKANÓNUR Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi formaður Alþýðuflokksins og
utanríkisráðherra, spurði ræðumenn gærdagsins um gildi alþjóðlegrar samvinnu á
milli þess sem hann gekk út af fundi og sinnti farsímasímtölum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Bifreiðaeigendur athugið!
Tímareimaskipti.
Bremsuviðgerðir.
Kúpplingsviðgerðir.
Smurþjónusta.
Tímapantanir í síma
5355826
Mat á umhverfi sáhrifum
- Ákvörðun Skipulagsstofnunar um matsskyldu
framkvæmda
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að efnistaka
úr námu í landi Sigluvíkur, Svalbarðsstrandarhreppi, skuli
ekki háð mati á umhverfi sáhrifum samkvæmt lögum um
mat á umhverfi sáhrifum nr. 106/2000 m.s.br.
Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofnun,
Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Hana er einnig að fi nna á
heimasíðu Skipulagsstofnunar: www.skipulag.is.
Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til
umhverfi sráðherra og er kærufrestur til 30. mars 2009.