Fréttablaðið - 27.02.2009, Side 33
20 27. febrúar 2009 FÖSTUDAGUR
Ljóðskáldið George Byron tók sæti
í lávarðadeild breska þingsins árið
1811. Það var þó ekki fyrr en nokkr-
um mánuðum síðar að hann steig
í pontu og hélt jómfrúarræðu sína,
eða á þessum degi árið 1812.
Byron lávarður var ákafur tals-
maður sósíalískra umbreytinga. Í
fyrstu ræðu sinni hélt hann sér-
staklega uppi vörnum fyrir iðn-
verkamenn, sem höfðu valdið
spjöllum á verksmiðjum í Notting-
hamshire en með vélvæðingunni
misstu mörg hundruð verkamenn
atvinnuna og efndu til óeirða í kjöl-
farið. Ræða skáldsins var kald-
hæðnisleg ádeila á „kosti“ þess að
fólk yrði atvinnulaust og sylti, og
hlaut hún mikið lof.
ÞETTA GERÐIST: 27. FEBRÚAR 1812
Byron flytur jómfrúarræðu
Bjarni Tryggvason geimfari flaug
eftirlíkingu af Silver Dart-flugvél í
bænum Baddeck í Nova Scotia í Kan-
ada síðastliðinn sunnudag. Flugið var
farið í tilefni af hundrað ára flugsögu
Kanada en verið var að leika eftir
fyrsta flug vélknúinnar flugvélar sem
farið var þann 23. febrúar árið 1909.
Þá flaug J.A. Douglas McCurdy Silver
Dart vélinni af ísilögðu vatni á Cape
Breton eyju.
Vel viðraði til flugferða þegar
Bjarni lyftist frá jörðu fyrir framan
um þúsund áhorfendur.
„Það var fyrir algera tilviljun að ég
var beðinn um að fljúga vélinni,“ segir
Bjarni, sem á sjálfur gamla flugvél af
gerðinni Pit Special sem hann hefur
verið að gera upp. „Maðurinn sem
var að mála vélina mína var einnig að
vinna við endurgerð Silver Dart vélar-
innar,“ segir Bjarni en þannig komst
hann í kynni við þann hóp manna sem
hefur unnið að byggingu Silver Dart
flugvélarinnar. Einn þeirra er barna-
barn fyrsta flugmannsins McCurdy.
„Ég fór að heimsækja þessa menn og
úr varð að þeir báðu mig um að fljúga
vélinni.“
Bjarni segir vissulega nokkuð
annað að fljúga svo gamalli vél en að
fljúga nútímavélum. „Fyrir hundr-
að árum var fólk enn að læra hvern-
ig ætti að gera þetta,“ segir Bjarni,
sem tók verkefni sitt mjög alvarlega.
Hann kom sér upp módeli af vélinni
og gerði ýmsar tilraunir á því. Not-
aði hann til þess aðstöðu í háskólan-
um í Vestur Ontario þar sem hann er
gestaprófessor. Þá þróaði hann einn-
ig tölvumódel af því hvernig flugvél-
in myndi fljúga. „Það leiddi til þess að
ég fann nokkur atriði sem betur máttu
fara í byggingu vélarinnar til að auka
jafnvægi,“ segir hann.
Kalt var í veðri á sunnudaginn
þegar flugið var farið, en Bjarni seg-
ist lítið hafa hugsað út í það enda
þurfti hann á öllum skilningarvitun-
um að halda til að koma vélinni á loft
og lenda henni. „Það var ekki fyrr en
eftir á sem ég áttaði mig á mikilleika
þessarar reynslu. Bara sú staðreynd
að þetta fyrirbæri skyldi lyftast frá
jörðu á nákvæmlega þann hátt sem
hafði verið spáð til um og að ég gæti
stýrt henni nokkuð vel var ótrúlegt,“
segir Bjarni glaður í bragði og bætir
við að gleðin hafi verið mikil hjá fé-
lögum sínum sem byggðu vélina enda
höfðu þeir eytt fjórum árum í endur-
gerðina.
Silver Dart vélin mun fara á Bell
safnið í Baddeck en þó ekki fyrr en
hópurinn hefur farið með hana í ferð
um allt Kanada. Bjarni mun sem fyrr
sitja við stjórnvölinn þegar almenn-
ingi gefst kostur á að sjá flugvélina á
flugi í nokkur skipti í viðbót.
solveig@frettabladid.is
BJARNI TRYGGVASON: FLÝGUR EFTIRLÍKINGU AF HUNDRAÐ ÁRA GAMALLI FLUGVÉL
Þetta var himnesk tilfinning
Á FLUGI Bjarni Tryggvason flýgur Silver Dart-flugvélinni sem er endurgerð af vél sem flogið var
fyrst fyrir hundrað árum í Kanada. RÉTTABLAÐIÐ/AP
LEIKKONAN ELIZABETH TAYLOR
ER 77 ÁRA.
„Ég held að Bush forseti sé
ekki að gera neitt varðandi
alnæmisfaraldurinn. Í raun
efast ég um að hann kunni
að stafsetja orðið alnæmi!“
Elizabeth Taylor lék í sinni
fyrstu kvikmynd aðeins níu
ára og hefur síðan leikið í
ótal myndum. Hún dró sig í
hlé frá leiklist árið 2003. Tayl-
or hefur í mörg ár barist gegn
útbreiðslu alnæmis.
Ástkær eiginkona mín, dóttir, móðir,
tengdamóðir, amma og systir,
Ingibjörg Finnbogadóttir
Sandbakkavegi 4, Hornafirði,
lést á hjúkrunarheimili HSSA, Hornafirði, 24. febrúar
sl. Sérstakar þakkir færðar starfsfólki hjúkrunar-
heimilisins fyrir mjög góða umönnun. Útförin
verður auglýst síðar.
Ingólfur Waage
Hulda Bjarnadóttir
Herdís Waage Jón B. Karlsson
Hulda Waage Jón V. Níelsson
Hrefna Waage Benedikt H. Stefánsson
ömmubörn og systkini hinnar látnu.
60 ára afmæli
Á morgun, laugardaginn
28. febrúar, verður
Hörður Ó. Helgason
skólameistari Fjölbrautaskóla
Vesturlands, sextugur. Í tilefni af því
býður hann til veislu á sal
Fjölbrautaskóla Vesturlands á
Akranesi frá kl. 14-17 á afmælis-
daginn og vonast til að sjá sem fl esta.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Kristín Guðjónsdóttir
Rauðagerði 67,
lést á Landspítalanum Hringbraut mánudaginn
23. febrúar. Hún verður jarðsungin frá Bústaðakirkju
mánudaginn 2. mars kl. 13.00.
Margrét Kristjánsdóttir
Jónína Kristjánsdóttir Ólafur Ívan Wernersson
Fanný Sigurþórsdóttir Ívar Bergmundsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Hulda Regína Jónsdóttir
áður til heimilis að Túngötu 38, Siglufirði,
lést á Heilbrigðisstofnun Siglufjarðar föstudaginn
20. febrúar. Jarðarförin auglýst síðar.
Elva Regína Guðbrandsdóttir Friðleifur Björnsson
Alma Elísabet Guðbrandsdóttir Páll Þórðarson
Bryndís Sif Guðbrandsdóttir Þorsteinn Símonarson
Jón Sigurðsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, sonur, faðir,
tengdafaðir, afi og bróðir,
Gunnlaugur Þorláksson
stýrimaður, Grundarfirði,
verður jarðsettur frá Fríkirkjunni í Reykjavík mánudag-
inn 2. mars kl. 13.00.
Þórdís Jeremíasdóttir
Þorlákur Ó. Snæbjörnsson
Agnar Þór Gunnlaugsson Ingileif Ágústsdóttir
Ásdís Emilía Gunnlaugsdóttir Friðjón A. Marínósson
Steinunn Marta Gunnlaugsdóttir Styrmir Kristjánsson
Kristófer Andri, Róbert Aron, Sara Rut, Helena,
Gunnlaugur,
systur og aðrir aðstandendur.
Móðir okkar,
Pálína Halldórsdóttir
frá Ólafsvík,
lést á Hrafnistu í Hafnarfirði föstudaginn 20. febrúar.
Jarðsett verður frá Ólafsvíkurkirkju laugardaginn
28. febrúar kl. 14.00.
Börn hinnar látnu og fjölskyldur þeirra.
Bróðir okkar, mágur og frændi,
Arnór Karlsson
fyrrum bóndi á Bóli, síðar Arnarholti
í Biskupstungum, Bjarkarbraut 10 í
Bláskógabyggð,
lést á Landspítalanum í Fossvogi miðvikudaginn
25. febrúar.
Systkini hins látna og aðrir venslamenn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Kristín Ólafsdóttir
Stangarholti 5, Reykjavík,
lést á Landspítalanum miðvikudaginn 25. febrúar.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Örn Guðjónsson Sigurósk Garðarsdóttir
Vilhelm Valgeir Guðbjartsson Guðrún Ragnarsdóttir
Ólöf María Guðbjartsdóttir Jónas Pétur Sigurðsson
Svanur Guðbjartsson Ólöf Magnúsdóttir
Þröstur Guðbjartsson
Guðrún Guðbjartsdóttir Benedikt Bjarni Albertsson
Unnur Guðbjartsdóttir Garðar Benediktsson
Kristín Þóra Guðbjartsdóttir Sigurður Stefán Jónsson
Birna Guðbjartsdóttir Sölvi Rúnar Sólbergsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Jónína (Stella)
Þorbjörnsdóttir
lést á Hrafnistu í Reykjavík, mánudaginn 23. febrúar.
Jarðarförin fer fram í Áskirkju föstudaginn 6. mars
kl. 13.00.
Þórdís Hildur McDonald
Friðlín Valsdóttir
Benedikt Valsson
Jóna Vala Valsdóttir
Jón Haukur Valsson
Eyjólfur Valsson
Sverrir Valsson
Örn Valsson
Ída Valsdóttir
Ína Valsdóttir
tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn hinnar látnu.
timamot@frettabladid.is