Tíminn - 13.03.1991, Síða 2
2 Tíminn
• Miðvikudagur 13. mars 1991
Innflutningur á nýjum hænsnastofni til kjöt- og eggjaframleiðslu hefst í lok vikunnar:
SKILAR SÉR í LÆGRA
VERÐI TIL NEYTENDA
Samtök eggja- og kjúklingaframleiðenda á íslandi munu í vikunni
skrifa undir samning við samtök eggja- og kjúklingaframleiðenda í
Noregi, Norsk fjörfeavlslag, um innflutning á nýjum stofni varp-
hænsna og kjúklinga. Sem dæmi má nefna að hver varphæna af
þessum stofni skilar um 18 kílóum af eggjum að meðaltali á ári,
meðan þær sem nú eru í landinu skila 13-14 kílóum á ári. Forsvars-
menn kjúklinga- og eggjaframleiðenda segja það augljóst að þetta
muni skila sér í mun lægra verði til neytenda.
Eiríkur Einarsson, starfsmaður Fé-
lags eggjaframleiðenda, sagði að um
þessar mundir héldi stjóm Norsk
fjörfeavlslag fund á íslandi og ástæð-
an fyrir því væru þessi fyrirhuguðu
viðskipti. Eiríkur sagði að sá stofn
sem nú væri í landinu kæmi upphaf-
lega frá Noregi en endurnýjun í hon-
um hefði ekki verið nægileg og hann
væri orðinn úrkynjaður og væri því
ekki eins hentugur til framleiöslu.
Hann sagði að ástæðan fyrir því að
þeir völdu að hafa viðskipti við Norð-
menn væri sú að þeirra stofn væri
mikið til laus við sjúkdóma miðað
við önnur lönd. Einnig standi þeir
sig mjög vel á alþjóðlegan mæli-
kvarða og þessi stofn þeirra komi
mjög vel út í samanburði við stofna
frá öðmm löndum.
Eiríkur sagði að fyrirkomulagið
yrði þannig að frjóvguð egg yrðu
flutt inn á nýja einangrunar- og inn-
flutningsstöð sem verið sé að koma í
gang á Hvanneyri. Afkomendur
þeirra fugla yrðu síðan notaðir til
kjöt- og eggjaframleiðslu. Hann
sagði að engin kynbótastarfsemi sem
slík yrði stunduð hér á landi þar sem
erfitt sé að koma því við á svo smá-
um markaði. Frjóvguð egg þarf að
flytja inn þrisvar á ári fyrir kjúk-
lingabændur en aðeins einu sinni á
ári fyrir eggjabændur og þannig
mun þetta ganga fyrir sig á hverju
ári í framtíðinni. Hann sagði að
fyrsta sendingin af frjóvguðum eggj-
um kæmi í lok vikunnar.
Eiríkur sagði að þó svo að innflutn-
ingurinn á eggjunum hæfist bráð-
lega þá kæmu egg eða kjöt af þessum
stofni ekki á markaðinn fyrr en eftir
eitt til eitt og hálft ár. Aðspurður
sagði Eiríkur að það væri dýrt að
flytja þetta inn en afkastageta þessa
nýja stofns væri mikiu meiri. „Stofn-
kostnaðurinn er töluverður en það
er alveg pottþétt að þetta kemur til
með að lækka verð á kjúklingum og
eggjum til neytenda. Hversu mikið
það lækkar er erfitt að segja nú,“
sagði Eiríkur. Hann sagði að þessir
fuglar nýttu fóðrið betur, verptu
fleiri eggjum og stækkuðu hraðar.
Jón M. Guðmundsson, bóndi á
Reykjum í Mosfellsbæ, sagði að-
spurður að ástæðan fyrir þessu væri
sú að þeir væru einfaldlega að sækj-
ast eftir því að fá afurðameiri fugla.
Hann sagði að þessi fuglar ætu jafn-
mikið af fóðri og þeir fuglar sem þeir
væru með nú, en verptu 3-4 kílóum
meira á ári. Þannig næðist hagræð-
ing sem skilaði sér í lægra verði til
neytandans. Hann sagði að munur-
inn á kjúklingunum væri sá að í stað
þess að slátra þeim 7-8 vikna þegar
hver væri búinn að éta tæplega 4 kíló
af fóðri, þá myndi þeir slátra þeim 6-
7 vikna og þá væri hann búinn að éta
rúmlega 3 kíló af fóðri. Hann sagði
að þarna sparaðist mikill fóður-
kostnaður og neytendur fengju jafn-
stóra og góða fugla eftir sem áður.
Hann sagði að enginn munur yrði á
kjötinu því það færi fyrst og fremst
eftir fóðrinu og þeir notuðu alltaf
sömu fóðurblöndurnar og væru nú
með góðar blöndur. Jón sagði að
undirbúningur fyrir þetta hafi staðið
í um tvö ár og loksins nú sjái þeir
fyrir endann á því. „Það þurfti að ná
samstarfi milli félaganna hér á landi,
það þurfti að ná samstöðu milli ein-
stakra bænda og manna sem eru í
þessum bransa og þetta hefur allt
tekið sinn tírna," sagði Jón. Hann
sagði að hér væri í raun um mikla
breytingu að ræða. Fram að þessu
hefðu þeir flutt inn á 2-3 ára fresti og
blandað mismunandi línum saman.
Það hafi að lokum leitt til úrkynjun-
ar sem minnki afurðirnar. „Nú flytj-
um við inn á hverju ári og þá fáum
við alltaf bestu fuglana í gagnið á
hverju ári,“ sagði Jón.
Einar J. Einarsson er framkvæmda-
stjóri Norsk fjörfeavlslag. Hann
sagði að kynbótastarf þeirra hefði
hafist um 1920 þegar fyrstu línurnar
hefðu komið fram og sú yngsta væri
aðeins ársgömul. „Við erum alltaf að
Einar J. Einarsson, framkvæmdastjórí Norsk fjörfeavlslag, og Eiríkur
Einarsson, starfsmaður Félags eggjaframleiðenda. Timamynd: Pjetur
prófa nýjar línur og prófum 4000
hænur á hverju ári,“ sagði Einar.
Hann sagði að þeir væru sífellt að
þróa sínar Iínur, bæði innbyrðis og
einnig með blöndun við aðrar línur,
m.a. hefðu þeir nýlega keypt fjórar
línur frá Skotlandi. Hann sagði að
þeir hefðu einnig borið sínar hænur
saman við hænur frá öðrum löndum
í alþjóðlegri prófun sem fram fór í
Finnlandi. Þar hefðu verið bomar
saman hænur frá Frakklandi, Þýska-
landi, Svíþjóð og Finnlandi og þar
hafi þeirra hænur komið' best út.
Hann sagði að kynbæturnar væm
stöðugar og þeir gætu aldrei stoppað
því þá myndu þeir einfaldlega missa
af lestinni.
Menn em sammála um það að þessi
innflutningur sé til mikilla bóta fyrir
bændur sem og neytendur. Allt starf
verði nú mun betur skipulagt og
áætlanir verða gerðar tvö ár fram í
tímann. Einnig megi nú í fyrsta sinn
á íslandi bólusetja dýrin gegn löm-
unarveiki á einangmnarstöðinni á
Hvanneyri og það geri það að verk-
um að mun færri dýr deyja vegna
sjúkdóma. Norðmenn hafa einnig
leyfi til að bólusetja gegn þessari
Iömunarveiki. Mun fleiri fuglar deyja
hér á ári hverju heldur en í Noregi og
búast menn við því að þessi bólu-
setning muni minnka afföllin hér á
landi.
—SE
Sigrún Elsa Smáradóttir, ungfrú Suðuriand, ásamt hinum stúlkunum sem tóku þátt í keppninni.
Timamynd: Öm Helgason
Vestmannaeyjadís valin
ungfrú Suðurland 1991
Sigrún Elsa Smáradóttir, 18 ára
Vestmannaeyjastúlka, var valin ung-
frú Suðurland á Hótel Örk á föstu-
dagskvöldið. Hún var einnig valin
Síðdegis í gær var búið að kalla
slökkviliðið sex sinnum út vegna
sinuelda og er það heldur minna en
í fyrradag, þegar það var kallað
rúmlega 15 sinnum út.
Fossvogsdalurinn er víða orðinn
svartur en samt sem áður finnast
ljósmyndafyrirsæta Suðurlands en
Margrét Ýrr Sigurgeirsdóttir, 18 ára
frá Hellu, var valin vinsælasta stúlk-
an.
þar blettir sem hægt er að kveikja í.
Ástæða er að brýna það enn og aftur
fyrir börnum að sinueldar geta verið
stórhættulegir og vert að benda for-
eldrum á að koma því til skila til
barna sinna.
—SE
Dís Sigurgeirsdóttir, ungfrú Suður-
land frá í fyrra, krýndi arftaka sinn.
Sigrún Elsa hlaut góðar gjafir, s.s. ut-
anlandsferð og módelsmíðaðan gull-
hring. Hún er borin og bamfædd í
Eyjum. Hún stundar nám á náttúru-
fræðibraut Framhaldsskólans í Vest-
mannaeyjum. f framtíðinni segist
hún stefna í gullsmíðanám.
Húsfyllir var á Örkinni, enda hefur
keppnin vissan ljóma í skemmtanalífi
Sunnlendinga. Hermann Gunnars-
son og Dengsi kynntu dagskrána og
Eyjólfúr Kristjánsson söng nokkur
lög. Að síðustu var stiginn dans við
undirleik Stjómarinnar fram undir
morgun. -sbs.
Víða slökkt í sinu
Hringl í afstöðu borgarstjórnarmeirihlutans í Reykjavík:
Fella tillögu
og bera hana
svo upp sjálfir
Á fundi borgarráðs í gær kom fram
athyglisverð bókun frá Sigrúnu
Magnúsdóttur, borgarfulltrúa
Framsóknarflokksins, varðandi
undirbúningsvinnu við nýja stúku
við Laugardalsvöllinn.
Sigrún flutti tillögu við afgreiðslu
fjárhagsáætlunar borgarinnar þess
efnis að 10 milljónum yrði varið til
undirbúnings slíkrar stúku, enda
hafi því verið lýst yfír að Alþjóða
knattspyrnusambandið teldi það
vellinum til tekna við ákvörðun um
hvort heimila ætti íslendingum að
leika þar heimaleiki, að undirbún-
ingur að nýrri stúku væri hafinn.
Meirihluti sjálfstæðismanna í borg-
arstjórn felldi þessa tillögu Sigrúnar.
í bókun Sigrúnar frá því í gær er
vakin athygli á því að fyrir aðeins
hálfum mánuði hafi borgarstjómar-
meirihlutinn hafnað tillögu fram-
sóknarmanna um að hafinn yrði
undirbúningur við gerð stúku á
Laugardalsvelli. Nú beri svo við að
einn fulltrúi þessa sama meirihluta,
Sveinn Andri Sveinsson, beri upp
samhljóða tillögu í íþrótta- og tóm-
stundaráði. Slík vinnubrögð veki at-
hygli.
Látinn er Þórður Pálmason
Þórður Pálmason, fyrrverandi
kaupfélagsstjóri, lést sl. sunnu-
dag.
Þórður var fæddur að Höfða á
Höfðaströnd í Skagafirði 1899.
Hann lauk námi frá Samvinnu-
skólanum 1920 og stundaði síðan
framhaldsnám hjá samvinnufé-
lögum í Englandi og Danmörku.
Hann var kaupfélagsstjóri hjá
Kaupfélagi Skaftfellinga í Vík
1928-32 og síðan kaupfélagsstjóri
í Borgarnesi 1932-68. Þá gerðist
hann framkvæmdastjóri Dvalar-
heimiilis aldraðra í Borgarnesi og
sá um byggingu þess. Þórður
gegndi fjölmörgum trúnaðar-
stöðum fyrir samvinnuhreyfing-
una og þau sveitarfélög þar sem
hann bjó Þórður kvæntist Geir-
laugu Ingibjörgu Jónsdóttur og
eignuðust þau þrjú börn.