Tíminn - 04.04.1991, Qupperneq 10
10 Tíminn
Fimmtudagur4. apríl : 991
SS selur Laugarneshúsið og flytur á Hvolsvöll:
Af i Ólafs Ragnars og kona
Steinþórs frumkvöðlarnir
„í bfltúr í Kópavogi sl. vor spuröi konan mín mig, kannski í ein-
hverjum hálfkæringi, hvers vegna SS flytti ekki kjötvinnsluna á
Hvolsvöll. Þegar ég hugsaði þetta aðeins betur sá ég að þetta var
lausnin. Á sunnudegi var hugmyndin útfærð, hún samþykkt af
stjórn SS á mánudegi, kynnt starfsfólki samdægurs og nú er fyrir-
séð að í byijun maí, 11 mánuðum eftir að konan mín kom með
þessa hugmynd, að kjötvinnsla SS mun hefja starfsemi á Hvols-
velli.“
Þetta sagði Steinþór Skúlason, for-
stjóri Sláturfélags Suðurlands, í
ávarpi sem hann flutti á Hvolsvelli
sl. miðvikudagskvöld. Þar staðfesti
stjórn SS samning ríkisins og SS
um kaup fyrrnefnda aðilans á húsi
þess síðarnefnda í Laugarnesi í
Reykjavík fyrir 430 milljónir. Eins
og Tíminn greindi frá sl. fimmtudag
greiöir ríkið þá upphæð með 10
húseignum í Reykjavík sem jafn-
gilda 300 milljónum. 50 milljónir
verða greiddar út í hönd og 80 millj-
ónir með skuldabréfum. I framtíð-
inni mun æðri listmenntun þjóðar-
innar fá inni í Laugarnesi.
Steinþór Skúlason sagði í ávarpi
sínu að aðdragandi þessara flutn-
inga væru miklir fjárhagserfiðleikar,
sem félagið hefði gengið í gegnum á
síðustu árum. Horfast hefði þurft í
augu við að ekki var hægt að ljúka
við bygginguna í Laugarnesi. Því
hefði þurft að leita nýrra leiða og
ódýrari. Og lausnin, sem kona hans
stakk upp á, reyndist vera sú ódýr-
asta og besta.
„Ég kom fyrst hingað á Hvolsvöll
vegna þessa máls fyrir um hálfu ári
síðan. Þá sannfærðist ég um að kaup
á húsi Sláturfélags Suðurlands í
Laugarnesi væru ekki aðeins í þágu
lista og menningar, heldur Ifka ein
stærsta aðgerðin til þess að flytja at-
vinnu frá höfuðborginni og út á
land. í reynd er verið að tryggja stór-
iðju á Suðurlandi," sagði Ólafur
Ragnar Grímsson fjármálaráðherra,
en það var hann sem undirritaði
samninginn um þessi kaup af hálfu
ríkisins.
„Það er gaman á stundum sem
þessari að finna að við erum á réttri
leið og að við eigum hug allra um að
þetta muni lánast," sagði Páll Lýðs-
son, stjórnarformaður SS.
„Vegna þessa máls hef ég oft hitt
Ólaf Ragnar að undanförnu. í hvert
sinn hef ég sagt honum sögur af afa
hans, Kristgeiri Jónssyni. Hann var
fátækur bóndi, bjó víða um sveitir,
en bar höfuðið ætíð hátt og flutti
ræður öllum mönnum betur,“ sagði
Páll Lýðsson. Hann sagði að nýlega
hefði heimsótt sig Þorsteinn Guð-
mundsson frá Skálpastöðum í Lund-
arreykjadal. „Hann kvaðst muna
Kristgeir þar sem hann hélt ræðu í
réttum í Lundarreykjadal í kringum
1910. Þorsteini var enn í minni hve
Kristgeiri mæltist vel og kom vel
efninu frá sér. En hvað var hann að
segja? Jú, sem deildarstjóri Sláturfé-
lagsins í Lundarreykjadal var hann
að skipuleggja flutninga á slátur-
fénu til Reykjavíkur," sagði Páll
Lýðsson. Hann sagði að svona
breyttust tímarnir og nú kæmist Ól-
afur í tæri við SS með eftirminnileg-
um hætti og í minningu afa síns,
sem hann væri talinn erfa sinn mál-
róm og ræðumennsku frá, sagðist
Páll halda að Ólafur Ragnar væri nú
að^era góða hluti.
„Eg hef sagt að það sé jafn sjálfsagt
að vinna kjötið hér og að fiskurinn
sé fullunninn á hverjum stað fyrir
sig. Það væri óeðlilegt að flytja fisk-
inn frá t.d. Vestmannaeyjum og Ól-
afsvík til vinnslu í Reykjavík," sagði
ísólfur Gylfi Pálmason, sveitarstjóri
á Hvolsvelli. -sbs.
Stefán Valgeirsson í 12.
sæti á lista Heimastjórnar-
samtakanna á Norðurlandi
eystra, en:
SJF-framboð
á landsvísu
„Ég ákvaö þetta sjálfur og þaö
ákveður enginn neitt fyrir mig,“
sagði Stefán Valgeirsson alþing-
ismaður, sem skipa mun 12. sæt-
ið á lista Heimastjómarsamtak-
anna á Norðurlandi eystra. Hann
segir að þó svo hann hafi tekiö
þessa ákvörðun þá stefni Samtök
jafnréttis og félagshyggju ennþá
að framboði á landsvísu.
SJF bjóða fram í sameiningu,
með Heimastjómarsamtökunum
á Norðurlandi eystra. Segir Stefán
að í raun sé stefna Heimastjómar-
samtakanna aðeins útvíkkun á
stefnu SJF. Hann hafi hins ekki
verið hvatamaður þess að þessi öfl
fæm í eina sæng.
Fyrir hálfu þriðja ári sagði Stefán
að ákveðið hefði verið að SJF
myndu færa út kvíamar og bjóða
fram á landsvísu. Að því væri enn
stefnt. Hann var spurður hvort
slíkt væri ekki borin von þegar
svo skammur tími væri til kosn-
inga. Hann svaraði því neitandi.
Eins og áður segir skipar Stefán
Valgeirsson 12. sætið á lista
Heimastjórnarsamtakanna á
Norðurlandi eystra, en Benedikt
Sigurðsson skólastjóri á Akureyri
er í því efsta. Stefán vildi ekkert
segja til um hvort sterkara hefði
verið ef hann hefði átt sæti ofar á
listanum eða ef listinn hefði verið
öðmvísi samsettur. Um það yrði
að segja til að kosningum af-
stöðnum. -sbs.
Ásgeir Hannes Eiríksson er alls ekki búinn
aö afskrifa framboð sitt til Alþingis:
ÝMSAR LEIÐ-
IR Á VALDI
KATTARINS
Ásgeir Hannes Eiríksson, þing-
maður Borgaraflokksins, sagði í
samtali við Tímann í gær að ein-
hveijar lflcur væm á því að sér-
stakur Reykjavíkurlisti yrði boð-
inn fram í Reykjavík í komandi
kosningum. Eins og kunnugt er
þá sótti Ásgeir Hannes ekki um
sérstakan listabókstaf hjá dóms-
málaráðuneytinu og var þá fram-
boð listans afskrifað af flestum.
„Hvað munar okkur félagana um
einn listabókstaf," sagði Ásgeir
Hannes þegar hann var inntur eft-
ir þessari staðreynd. Hann sagði
að það væru margir stafir til og
t.d. væri listabókstafur Bandalags
jafnaðarmanna úr síðustu kosn-
ingum á lausu. „Það eru ýmsar
leiðir á valdi kattarins, eins og
Ameríkumaðurinn segir,“ sagði
Ásgeir Hannes.
Áðspurður sagði Ásgeir Hannes
að ekki væri víst að hann yrði í
efsta sæti listans. Ef Guðmundur
G. Þórarinsson gæfi kost á sér á
listann þá myndi hann líklega vera
í efsta sæti, enda væri hann eldri
og maður stæði alltaf upp fyrir sér
eldra fólki í strætó. Ásgeir Hannes
sagði að hann yrði með kaffifund í
Breiðholti klukkan fimm á morg-
un þar sem þetta myndi allt skýr-
ast.
—SE
Ásgeir Hannes Eiríksson
Jón Steingrímsson opnar
sýningu í Gallerí Borg
í dag kl. 17.00 opnar Jón Stein-
grímsson málverkasýningu í Gallerí
Borg, Pósthússtræti 9.
Jón er búsettur í Bandaríkjunum.
Hann fæddist þar 1951, sonur
Steingríms Hermannssonar núv.
forsætisráðherra. Jón er verkfræð-
ingur og arkitekt að mennt og er
auk þess með háskólagráðu í mynd-
Iist frá Oregon-háskóla. Þar nam
hann hjá Frank Okada og síðar hjá
Fred Holle í Kalifomíu.
Jón hélt sína fyrstu einkasýningu í
Bandaríkjunum 1984. Síðan hefur
hann haldið þar nokkrar einkasýn-
ingar og tekið þátt í samsýningum.
Þetta er fyrsta sýning Jóns hérlend-
is.
Jón málar óhlutlægt í anda opna
málverksins svokallaða. Um það seg-
ir hann:
,Að mála óhlutlægt er listin að tala
við undirvitundina. Um leið og hug-
myndir skjóta upp kollinum, birtast
nýjar og þannig koll af kolli, þar til
uppspretta þeirra í undirvitundinni
kemur í ljós. Að mála verður þannig
eins konar hugleiðsla þar sem marg-
ar hugmyndir koma upp á yfirborð-
ið. Málverkið sjálft verður vitnis-
burður um hugleiðsluna sem getur
tekið nokkra mánuði eða ár. Ég veit
aldrei hversu lengi ég verð að mála
mynd, ekki fyrr en henni er lokið.
Jón Steingrímsson iistmálarí.
Tímamynd: Ami Bjama
Ég lagði stund á „open form paint-
ing“ hjá abstraktmálaranum Fred
Holle í Kaliforníu. Það varð stór-
kostleg opinberun fyrir mig að
kynnast „taumlausu aðferöinni"
sem beitt er til að komast að undir-
vitundinni. Hún felur í sér að kalla
fram hugmyndir í málverkið. Síðan
get ég jafnvel snúið léreftinu til að
kollvarpa hugmyndum um leið og
þær birtast, og notað þær til að nálg-
ast nýjar hugmyndir sem liggja
dýpra í undirvitundinni. Þar sem ein
hugmynd leiðir af annarri verður
málverkið eins og leiðarkort af
taugakerfi mannsins, sem vísar mér
veginn gegnum lög hugmynda sem
liggja í undirvitundinni.
Laxafluguserían er dæmi um „open
form painting", sem hófst þannig að
ég málaði flugu og notaði hana sem
leiðarhnoða eða tæki til að komast
að undirvitundinni. Fyrir mig sem
listamann hefur flugan orðið brott-
fararstaður til að kalla fram myndir
undirvitundarinnar. Að mála verður
að kalla fram hugmyndir sem verða
að eyðileggjast til að aðrar hug-
myndir komist að sem leiða mann
enn dýpra í eigin undirvitund. Þessi
ferill fæðingar og dauða hugmynda
heldur áfram þangað til ég stend fyr-
ir framan strigann og horfist í augu
við skaparann. Málverkinu er lokið.
Grundvallaratriðið er að trúa á eigin
tilfinningar og á hugmyndirnar sem
koma upp á yfirborðið," segir Jón
Steingrímsson.
Sýning Jóns stendur frá 4. til 16.
apríl. Á henni eru olíumáiverk og
kolateikningar. Öll verkin eru til
sölu. Gallerí Borg er opið virka daga
frá kl. 10.00 til 18.00 og um helgar
frá kl. 14.00 til 18.00.
Aðgangur er ókeypis.