Tíminn - 11.04.1991, Blaðsíða 2

Tíminn - 11.04.1991, Blaðsíða 2
2 Tíminn Fimmtudagur 11. apríl 991 Á áfengisneysla fólks stærri þátt í bágum fjárhag fjölskyldna heldur en almennt er viðurkennt? Guðmundur J. Guðmundsson, formaður Dagsbrúnar: AFENGISVANDAMALIÐ MUN ALVARLEGRA EN FÓLK ÁTTAR SIG Á Guðmundur J. Guðmundsson, formaður Dagsbrúnar og Verkamannasam- bandsins, sagði á fundi hjá Framsóknarflokknum í Reykjavík um helgina að áfengisvandamál íslendinga væri mun alvarlegra en menn áttuðu sig á eða vildu viðurkenna. Fleira og fleira fólk stundaöi reglulega helgameyslu og það litla kaup sem það hefði úr að spila, einfaldlega þyldi það ekld. Guð- mundur sagði í samtali við Tímann í gær, að athyglisvert væri það sem komið hefði fram í tveimur síðustu spumingakeppnum framhaldsskólanna í sjónvarpinu, að mikil drykkja ungmenna hér á landi hefði komið skipti- nemum frá öðmm löndum mest á óvart. Guðmundur sagði aðspurður að þeir merktu þessa aukningu á mö>’gum stöðum, m.a. á sjúkrasjóðnum þó svo að þeir væru ekki að telja það eftir. „Það er í svo ótrúlega mörgum tilfell- um sem rekja má upplausn og erfið- leika til áfengis og þetta vandamál virðist vera vaxandi ár frá ári og við merkjum mjög greinilega aukningu núna,“ sagði Guðmundur. Aðspurður sagði Guðmundur að rekja mætti vandamál nokkur ár aftur í tímann en það hefði hægt og hægt verið að síga yfir. Þeir yrðu varir við ótrúlegan íjölda sem væri í botnlaus- um þrotum, og það einskorðaðist ekki við Dagsbrúnarmenn heldur væri ástandið svona í öllum stéttum þjóð- félagsins. „Þegar maður fer að kynna sér hvað valdi vandræðum fólks, þá er áfengið óhugnanlegur orsakavaldur og miklu meiri en menn gera sér grein fyrir,“ sagði Guðmundur. Hann sagði að það væri mikill misskilning- ur að unga fólkið ætti í mestum erfið- leikum þó svo að þeirra erfiðleikar væru miklir. Guðmundur sagði að auðvitað ættu menn ekki aðeins að líta á dökku hlið- arnar, það væri heilsubylgja í gangi hjá ungu fólki sem væri mjög af hinu góða. „Hins vegar getum við ekki horft framhjá því að biðlistar kom- ungs fólks á Vogi em óhugnanlega langir," sagði Guðmundur. Hann sagði að þessi mikla neysla drægi oft fjárhag fólks, sem yfirleitt væri ekki of góður fyrir, alveg niður í svaðið. „Ég er ekki að segja að þetta sé orsökin fyrir Sala léttvína aukist um 13-27% og á vodka um 6% milli ára. Áfengissala í heild meiri þrátt fyrir að landanum virðist vera farið að leiðast ölgutlið: Bjórsala dróst saman um rúm 10% á einu ári Af sölutölum ÁTVR má ráða að landanum sé byrjað að leiðast bjór- gutlið en kjósi í auknum mæli að væta kverkamar með kraftmeiri dryklqarföngum. Á fyrsta fjórð- ungi þessa árs var sala á borðvín- um nær 15% meiri en á sama tímabili í fyrra og sala sterkra vína og brenndra um 3-4% meiri. Aukninguna skýra ÁTVR- menn m.a. með því að í ár hafi kaup á „páskaglaðningnum" lent á fyrsta fjórðungi ársins, en aftur á móti á öðrum ársfjórðungi í fyrra. Þrátt fyrir það — og jafnvel þrátt fyrir bruggun ölverksmiðjanna á sér- stöku „páskaöli" — seldist nú um 8%, eða 100.000 lítrum minna af bjór heldur en á sama tímabili í fyrra. Niðurstaðan úr þessu dæmi er sú, að mælt í hreiriu alkóhóli var áfengissalan 0,4% meiri nú en í fyrra. Svo virðist sem bjórlystin hafi byrjað að dala síðari hluta ársins 1990. Á síðasta fjórðungi ársins var bjórsala um 13% minni en á sama ársfjórðungi árið 1989. En sala borðvína jókst þá hins vegar veru- lega á ný og sömuleiðis nokkuð á gamla þjóðardrykknum vodka. Þau tvö ár síðan bjórinn var leyfð- ur hefur sala hans frá einum árs- fjórðungi til annars þróast sem hér segir, mælt í þúsundum lítra: Bjórsala eftir ársfjórðungum mars 1989 1.170 þús.l. apr./júní »> 2.420 „ júl./sep. >» 1.600 „ okt./des. 1.760 „ jan./mars 1990 1.360 þús.l. apr./júní » 1.760 „ júl./sep. » 1.810 „ okt./des. » 1.530 „ jan./mars 1991 1.260 þús.l. Tölur síðustu sex mánaða leiða m.a. í ljós að sala á bjór hefur þá verið um 330 þúsund lítrum, eða rúmlega 10% minni heldur en á sama sex mánaða tímabili einu ári áður. Sala sterkari drykkja hefur þar á móti verið að þokast upp á við, sérstaklega framan af þessu ári sem áður segir. Hvað léttu vínin áhrærir seldist nú t.d. 13% meira af rauð- og hvít- víni en á fyrsta ársfjórðungi í fyrra, 27% meira af rósavíni og 17% meira af portvíni. Sala á koníaki og vodka óx um 6%, á viskí um 4%, gini 7%, rommi 12% og líkjörum um 11% miðað við sama tímabil í fyrra. Salan á íslensku brennivíni heldur hins vegar áfram að minnka, nú um 9% milli ára. Og færri virðast líka hafa fundið ástæðu til að skála í kampavíni framan af þessu ári heldur en því síðasta. Þeir sem enn halda tryggð við bjórinn virðast þó í mjög vaxandi mæli velja að bæta bæta sér í munni með einhverju bragðsterk- ara. Sala á bitterum hefur allt í einu þrefaldast á þrem árum og virðist halda áfram að aukast. Árið 1987 seldust um 4.700 lítrar af bitterum og árið 1988 um 6.800 lítrar. Fyrsta bjórárið nær tvöfald- aðist salan svo í 12.000 lítra og jókst síðan enn í 15.200 lítra á síð- asta ári. Og bitterasala á fyrsta fjórðungi þessa árs var um 3.500 lítrar, sem var 16% aukning frá fyrsta ársfjórðungi 1990. - HEI mikilli fátækt og erfiðleikum fólks, en þetta er miklu stærri þáttur en viður- kennt er,“ sagði Guðmundur. Að- spurður sagði Guðmundur að þeir yrðu einnig varir við mikla aukningu í neyslu harðari fíkniefria, en það væri mest um það hjá fólki undir þrítugu. „Mér sýnist enginn þora að segja frá þessum vanda, þetta er svo sem eng- inn nýr vandi en aukning er alveg ískyggileg," sagði Guðmundur. Hann sagði að því miður sæi hann fátt sem spymti á móti þessari þróun. —SE Breyttar reglur um snjómokstur Vegagerð ríkisins hefur breytt regl- um um snjómokstur á þjóðvegum. Helstu breytingarnar eru að fjölgað verður mokstursdögum á ýmsum mikilvægum leiðum. Á sumum leiðum verður moksturs- dögum fjölgað úr tveimur í þrjá í viku. Þetta verður gert á þjóðvegi 1 milli Víkur í Mýrdal og Heydala í Breiðdal, frá Selfossi að Laugarvatni, Reykholti og Flúöum, á Barða- strandarvegi milli Brjánslækjar og Patreksfjarðar og loks á milli Akur- eyrar og Húsavíkur. Á nokkrum veg- um sem mokaðir hafa verið viku- lega, með heimild til opnunar tvisv- ar í viku þegar snjólétt hefur verið, skal nú moka tvisvar í viku og þrisv- ar þegar snjólétt er. Þær leiðir þar sem þetta mun gilda eru: Ólafsvíkur- vegur milli vegamóta Heydalsvegar og Ólafsvíkur, Kerlingaskarð, milli Búðardals og Reykhóla, milli Þing- eyrar og Flateyrar og loks á milli Húsavíkur og Vopnafjarðar. -sbs. Kartöfluræktendur í startholunum: Sala á kartöfluútsæði er hafin Sala á kartöfluútsæði er nú að hefj- ast, en útsæðiskartöflur á markaðn- um koma að mestu úr Eyjafirði og Hornafirði. Vegna plöntusmitsjúk- dómahættu eru í gildi sérstakar regl- ur um ræktun, meðferð og sölu á út- sæðiskartöflum. Sigurgeir Ólafsson, sérfræðingur í jurtasjúkdómum hjá Rannsóknastofnun landbúnaðarins, segir að einungis þeir sem hafa svo- kallað útsæðisleyfi frá RALA og hafa staðist gæðakröfur stofnunarinnar, hafi leyfi til að selja útsæði á almenn- um markaði. Sama gildir um útsölu- aðila, þeir þurfa einnig sértsakt leyfi til sölunnar. Á síðasta ári kom upp í fyrsta sinn svokallað hringrotssmit í kartöflum í Eyjafirðinum. Áður en söluleyfum var úthlutað í ár var tekið sýni hjá framleiðendum og einungis þeim sem ekkert smit fannst hjá var út- hlutað útsæðisleyfi að sögn Sigur- geirs. Hringrotssmit er erfiður sjúkdómur í kartöflum því smitið getur verið í kartöflustofni í mörg ár án þess að það komi fram á útliti kartaflnanna á neinn hátt. „Sjúkdómseinkenni eru þannig að það kemur fram rotnun í leiðsluvef sem liggur utarlega í kart- öflunni og myndar þar hring, þegar hún er þverskorin, þannig að það sést þá skemmd í þessum hring og er kartaflan þá óæt,“ segir Sigurgeir. Af íslensku kartöfluútsæði sem nú er til sölu má nefha Gullauga, Helgu og Rauðar íslenskar, en einnig er til sölu Premiere og Bintje útsæði frá Hol- landi svo og eitthvað af Gullauga frá Noregi og Dore frá Hollandi. Þeir dreifingaraðilar sem hafa leyfi til sölu á -útsæði á höfuðborgarsvæðinu eru Sölufélag garðyrkjumanna, Ágæti hf„ Blómaval, Bananar hf. og Mata hf. en auk þess eru nokkrir aðilar á lands- byggðinni sem hafa útsöluleyfi. —GEÓ

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.