Tíminn - 11.04.1991, Qupperneq 4
4 Tíminn
Fimmtudagur 11. apríl -991
UTLOND
Griðasvæði Sþ. í Irak fyrir Kúrda:
Bretar leggja fram til-
lögu fyrir Öryggisráðið
Bresk stjómvöld hafa ákveðið að leggja fram ályktun fyrir Öryggisráð
Sameinuðu þjóðanna um griðasvæði fyrir kúrdiska flóttamenn í norð-
urhluta íraks undir vemd Sþ. Hugmyndin að griðasvæðinu er eignuð
John Major, forsætisráðherra Bretlands, en hann kynnti hana á fundi
EB í Lúxemborg á þriðjudag og veitti bandalagið henni brautargengi.
írakar hafa harkalega mótmælt hugmyndinni og segjast ætla að beita
öllum ráðum til að hindra framkvæmd hennar. Þeir segja að hún sé
bein ógnun við sjálfstæöi íraks. Bresk stjómvöld telja ekki útilokað að
beita þurfi íraka hemaðarvaldi til að koma griöasvæðinu á.
John Major skýrði í gær Mikhail
Gorbatsjov Sovétforseta og Li Peng,
forsætisráðherra Kína, frá hug-
myndum sínum en bæði þessi stór-
veldi hafa neitunarvald í Öryggisráð-
inu ásamt Bretlandi, Bandaríkjun-
um og Frakklandi. Búist er við að
Sovétríkin og Kína setji einhver skil-
yrði fyrir griðasvæðinu.
Tálsverð óvissa hefur ríkt um
stuðning Bandaríkjamanna við til-
lögu Majors en í gær sagði talsmað-
ur breska forsætisráðherrans að þeir
styddu hana.
Nokkrir breskir embættismenn
hafa gefið í skyn að griðasvæðið geti
verið fyrsta skrefið í myndun sjálf-
stæðs ríkis Kúrda í Norður-írak en
þeir leggja áherslu á að það sé ekki
markmiðið heldur sé það einungis
mannúðarlegt.
írakar líktu hugmyndum Breta nú
við Balfour yfirlýsinguna í nóvember
árið 1917 sem var undanfari stofn-
unar ríkis gyðinga við Miðjarðarhaf.
Þeir sögðust ekki vilja að íraskir
Kúrdar hrepptu sömu örlög og Pal-
estínuarabar. íraski utanríkisráð-
herrann Ahmed Hussein Khudayer
sagði að það kæmi Kúrdum best að
viðskiptaþvingununum gegn írak
væri aflétt. Hann sagði að aðgerðir
vestrænna ríkja til að aðstoða Kúrd-
ana væru einungis sýndarmennska.
íranir sögðust í gær vilja að mynd-
uð yrðu griðasvæði undir vemd
Sameinuðu þjóðanna fyrir Kúrda í
norðri og einnig fyrir sjítamúslíma í
suðri. Utvarpið í Teheran vitnaði
orðrétt í Velayati, utanríkisráðherra
írans. Utanríkisráðherrann gagn-
rýndi viðbrögð vesturveldanna við
flóttamannavandamálinu og sagði
að aðeins átta flugfarmar af hjálpar-
gögnum hefðu borist frá þeim til ír-
ans en fjöldi flóttamanna í íran nálg-
aðist nú milljón og væri mikið
vandamál. Reuter-SÞJ
Þinghús og skrífstofúbygging
Sameinuðu þjóðanna í New
Iraski herinn:
Varaður við að beita
sér gegn f lóttamönnum
Nu fyrr í þessari viku bönnuðu
bandarísk yfirvöld íraska flughern-
um að fljúga í írösku lofthelginni
norðan 36. breiddargráðu en það
útilokar loftárásir á kúrdiska flótta-
menn. Þetta kom fram í gær í máli
eins af bandarísku embættismönn-
unum sem fýlgja James Baker, utan-
Fréttayfirlit
London - Bresk stjómvöld hafa
ákveðið að flytja ályktun fyrir Ör-
yggisráði Sameinuöu þjóðanna um
griðasvæði fyrir kúrdiska flótta-
menn f norðurhluta írak undir vemd
Sameinuðu þjóðanna Irakar tefja
þessa hugmynd Breta ógna sjátf-
stæði þeirra og segjast ætla að
beita öllum ráðum til aö koma f veg
fyrír að hún nái fram að ganga
Nokkrir breskir embættismenn
hafa sagt að þetta geti veríð upp-
hafið að sjálfstæðu ríki Kúrda.
Kairó - Bandarísk sQómvöld bönn-
uðu íraska flughemum f byrjun
þessarar viku að fljúga í írösku loft-
heigínni nonðan 36. brekfdargráöu
en það kemur f veg tyrir loftárásir á
kúrdiska flóttamenn f norðurhluta
Iraks. Banninu er ætiað aö koma f
veg fyrir ánekstra milli flug-
véla/þyrina fraska flughersins og
bandariskra, breskra og franskra
flugvéla, sem varpa hjálpargögn-
um til kúrdiskra flóttamanna, og F-
15 og F-16 bandrfskra orrustuþota
sem fyfgja þeim. Þá vöruðu þau
írösk stjómvöld við þvf í gær að
beita landhemum gegn flóttamönn-
unum.
Nikósfa - Irösk stjómvöld sögðu f
gær að þau væru að senda neyð-
arbirgðir og hjúkrunariiö til Kúrda f
norðurhluta landsins en þau hafa
verið ásökuð um að kæfa niður
uppreisn Kúrdanna á grimmdarieg-
an hátt og hrekja þá á flótta
Ankara - Tyrknesk stjómvöld
sögðu f gær að frösk stjómvöld
heföu lofað þeim að vinna sameig-
inlega að neyðaraðstoðinni viö þau
hundruð þúsunda Kúrda sem flúið
hafa til tyrknesku landamæranna
Kúvæt - Nokkur hundruð Kúrda
söfnuðust saman fyrir utan sendi-
ráð Bandarikjanna f Kúvætborg f
gær og kröföust þess að fjölþjóöa-
herinn hefði „Eyðimerkurstorm" að
nýju og ytti Saddam Hussein úr
sessl
Kaupmannahöfn - Danir munu
senda 115 hermenn í nafni Sam-
einuðu þjóðanna til landamæra Kú-
væts og fraks en þeir munu verða
hluti 1.440 hermanna samtakanna
sem eiga að gæta hlutlauss svæð-
is mflli rfkjanna tveggja. Dönsku
hermennimir verða flutör firá Kýpur
þar sem þeir hafa veríö við gæslu
hlutiauss svæðis mflli tyrkneska og
gríska hluta eyjunnar.
Moskva - Verkamenn í Mínsk, höf-
uöborg Hvfta Rússlands, lögðu nlð-
urvinnu í gærog efndu tif mótmæla
og Ögruðu þannig fyrirhuguðu
banni Gorbatsjovs Sovétforseta á
verkföllum og mótmælum í ertt ár.
Lome - Þúsundir stúdenta og
ungra manna söfriuðust saman í
Lome, höfúðborg vestur-afnska
rikislns Togo, og mótmæltu rikis-
stjóm landsins og kröföust lýðræð-
is. Komið hefúrtil átaka mflli óeirða-
lögreglu og mótmæienda og vitað
er um einhver dauðsfölf. Næturút-
göngubann hefúr verið sett á.
Höföaborg - Afríska þjóðanáðið
(ANC) sagðist í gær vera tilbúið að
falla frá kröfum sínum um afsögn
tveggja ráðherra í ríkisstjóm Suður-
Afríku en ftrekaði að ríkisstjómin
yrði að gera eitthvað til að koma f
veg fyrir átök mflli blökkumanna
Houston - Bandaríska geimferjan
Atlantis átti aö lenda f Kalifomíu í
gær en gat það ekki vegna mikilla
vinda Reynt verður að lenda henni
fdag.
ríkisráðherra Bandaríkjanna, í ferð
sinni um Miðausturlönd.
Bannið var sett svo ekki kæmi til
árekstra milli íraskra flugvéla/þyrlna
og bandarískra, breskra og franskra
flugvéla, sem flytja kúrdiskum
flóttamönnum hjálpargögn, og F-15
og F-16 bandarískra orrustuþota
sem fylgja hjálparflugvélunum.
Baker fór að landamærum íraks og
Týrklands þegar hann var í lýrklandi
til að kynna sér ástandið með eigin
augum og að sögn bandarískra emb-
ættismanna varð sú ferð til þess að
Baker lét hraða aðstoðinni við írösku
Kúrdana.
Þá vöruðu Bandaríkjamenn í gær
íraka við öllum landhernaði á þeim
svæðum sem flóttamennirnir hafa
flúið til. Reuter-SÞJ
Svíþjóð:
SEXTIU MILLJ-
ARÐAR GEGN
ATVINNULEYSI
Ríkisstjórn jafnaðarmanna í Sví-
þjóð hefur ákveðið að veita 6
milljörðum sænskra króna eða
sem svarar um 60 milljörðum ísl.
króna til að minnka atvinnuleysi í
landinu.
Atvinnuleysi hefur farið vaxandi í
Svíþjóð síðustu misseri og hefur
þetta valdið jafnaðarmönnum
áhyggjum ekki síst þar sem þing-
kosningar verða haldnar í landinu
í haust og Jafnaðarmannaflokkur-
inn hefur ekki komið vel út í ný-
legum skoðanakönnunum.
I mars var atvinnuleysi í Svíþjóð
2,2% eða 102 þúsund manns.
Þetta er nokkru minna en al-
mennt gerist í Evrópu og kemur
sér illa fyrir Jafnaðarmannaflokk-
inn sem setur baráttuna gegn at-
vinnuleysi efst á stefnuskrá sína
og hælir sér af almennu velferðar-
kerfi.
Markmiðið er að fækka atvinnu-
lausum um 40 þúsund og á að
verja peningunum í endurmennt-
un og starfsþjálfún þeirra sem
vinna allt árið um kring þannig að
skólafólk og aðrir fái tímabundna
atvinnu. Reuter-SÞJ
Mínsk, Hvíta Rússlandi:
TUgþúsundir í verkfalli
Tugþúsundir verkamanna lögðu
niður vinnu í gær í Mínsk, höfuð-
borg Hvíta Rússlands, og kröfðust
m.a. afsagnar Gorbatsjovs Sovét-
forseta og stjórnvalda lýðveldisins
og Iýstu yfir stuðningi sínum með
róttækar efnahagsumbætur. Opin-
bera fréttastofan Tass sagði að um
50 þúsund manns hefðu safnast
saman í miðborg Mínsk en leiðtog-
ar verkamanna sögðu mannfjöld-
ann vera um 100 þúsund.
Vinna Iá niðri í allt að sjötíu fyrir-
tækjum og starfsmenn fleiri fýrir-
tækja lögðu niður vinnu eftir því
sem leið á kvöldið.
Leiðtogar verkfallsmanna hafa
ákveðið að halda verkfallinu áfram
þangað til stjórnvöld Hvíta Rúss-
lands vilja ræða við þá en í gær
þvertóku þau fyrir allar viðræður
við verkfallsmenn.
Þá hvöttu stjórnvöld í Georgíu
verkamenn sem starfa í fyrirtækj-
um í lýðveldinu sem stjórnað er frá
Kreml til að fara í verkfall. Róttæk-
ir umbótasinnar eru við völd í Ge-
orgíu og samþykkti þing lýðveldis-
ins takmarkað sjálfstæði þess á
þriðjudag. Stjórnvöld í Georgíu
vilja að aukahersveitir Rauða hers-
ins, sem sendar voru til lýðveldisins
í kjölfar átaka Ossetíumanna og
annarra Georgíubúa, verði fluttar
úr lýðveldinu. Þeir hyggjast ná
fram kröfum sínum með verkföll-
um.
Reuter-SÞJ
Umboðsmaður Alþingis
skrifar útvarpsráði
Heimastjórnarsamtökin hafa bor-
ið fram kvörtun við umboðsmann
Alþingis vegna mismunar sem
sjónvarpið gerir á stjórnmála-
flokkum sem eiga þingmenn á Al-
þingi og þeirra sem ekki eiga þar
þingmenn. Gaukur Jörundsson,
umboðsmaður Alþingis, hefur
skrifað formanni útvarpsráðs bréf
og óskað eftir skýringum á
ákvörðun útvarpsráðs.
Heimastjórnarsamtökin kvarta
yfir því að þeim skuli vera gert að
greiða kostnað við kynningarþátt í
sjónvarpi um samtökin, en stjóm-
málaflokkarnir sem sæti eiga á Al-
þingi fá styrk úr ríkissjóði til
kynningarstarfs. Heimastjórnar-
samtökin kvarta einnig yfir því að
fulltrúi þeirra fái ekki að vera með
í umræöuþætti í sjónvarpi tveim-
ur dögum fyrir kosningar. -EÓ