Tíminn - 11.04.1991, Page 12

Tíminn - 11.04.1991, Page 12
12 Tíminn Fimmtudagur 11. apríl 1991 ÁRNAÐ HEILLA Sextugur: Haukur Guðlaugsson Það er síðsumarvika í Skálholti, kominn fimmtudagur og sólin hefur skinið dag hvern frá því á sunnudag. Þótt rigni í dag heldur sólin áfram að skína hér innan veggja. Alla vik- una hafa organistar og söngvarar, víðs vegar af landinu og misjafnlega lærðir, fyllt stofur Skálholtsskóla og setið er við kirkjuorgelið mestallan sólarhringinn. í kvöld og fyrramálið fiölgar Skálhyltingum úr 70 í 250, því kórfólk kemur hingað langar leiðir, hittir hér fyrir organistana sína, félaga frá fyrri námskeiðum, nágranna úr næsta þorpi, frænku úr Fríkirkjunni í Hafnarfirði, Hólmara, Súðvíkinga, Miöfirðinga, Langdæ- linga, Skagfirðinga, Björgu í Lóni o.fl. Allir hafa safnast í einum kór síðdegis á föstudegi og að morgni laugardags vakna allir eins og heimamenn í Skálholti. Hvernig hefur þessi stóra íslandsdeigla skap- ast? Hvar á fólkið að borða og hvar er hægt að kenna sópran, sem telur 120 konur? Maður bjartsýninnar, sá sem staðið hefur fyrir þessum námskeiðum síð- an 1975, heitir Haukur Guðlaugs- son og gegnir starfi söngmálastjóra Þjóðkirkjunnar. Til að ná þessu markmiði hefur hann sinnt geysi- mikilli undirbúningsvinnu og sýnt mikinn kjark og einbeitni. Ekki hef- ur verið blásið í lúðra vegna þessa starfs, fjölmiðlar oftast víðs fjarri, en ýmiss konar ræktunar- og menning- arstarf lendir oft í þessum dilk. Haukur Guðlaugsson er fæddur á Eyrarbakka 5. aprfl 1931 og ólst þar upp hjá foreldrum sínum. Hann gekk ungur tóngyðjunni á hönd og hún gerði úr honum riddara Ijúf- mennskunnar. Nám í orgelleik stundaði hann hjá M.G. Förstemann í Hamborg 1955-60, en síðar var hann við framhaldsnám hjá Fern- ardo Germani í Róm. Haukur starf- aði við tónlistarskóla á Siglufirði og síðar á Akranesi til 1974 er hann var skipaður söngmálastjóri Þjóðkirkj- unnar. Það er lán kirkjunnar að menn með hans lífsviðhorf skuli sækjast þar eftir embættum. Hann hefur glætt sjálfstraust íslenskra organista og kóra. Árleg námskeið hans í Skálholti og víðar um land hafa skilað góðri uppskeru bæði innan kirkju og utan. Ekki sér á Hauki að þar fari sextug- ur maður. Hann er síkvikur og sí- starfandi að sínum fjölmörgu verk- efnum. Á hverju ári hefur hann safn- að efni til söngmöppu, sem síðan er notuð í Skálholti og send öllum org- anistum á landinu. Hann hefur sam- band við fjölda tónlistarfólks hér- lendis og erlendis. Sumir koma og kenna á námskeiðum hans, en sum- ir halda tónleika eða koma með fyr- irlestur. Öll störf Hauks einkennast af hlýju og Ijúfmennsku og þannig hefur hann laðað margan til starfa sem ella sæti með hendur í skauti. Hann leggur sig fram um að kenna nem- endum sínum iðni og þrautseigju. í einkalífi sínu er Haukur ham- ingjumaður. Kona hans er Grím- hildur Bragadóttir, en heimili sitt eiga þau á Akranesi. Þau eiga tvo syni: Braga Leif og Guðlaug Inga. Frá fyrra hjónabandi á Haukur eina dóttur, Svanhildi Ingibjörgu, hús- móður á Eyrarbakka. Kynni mín af Hauki hafa orðið mér dýrmæt og mótandi og ég sendi þeim hjónum hugheilar framtíða- róskir á þessum tímamótum. Heiðmar Jónsson Kvöld-, nætur- og helgidagavarsla apóteka i Reykjavik 5. apríl tll 11. apríl er I Apóteki Austurfaæjar og Brelðholts Apóteki. Það apó- tek sem fyrr er nefnt annast eitt vörsluna ffá kl. 22.00 að kvöldi til kl. 9.00 að morgni virka daga en kl. 22.00 á sunnudögum. Upplýsingar um læknis- og lyfjaþjónustu eru gefnar í síma18888. Neyðarvakt Tannlæknafélags fslands er starfrækt um helgar og á stórhátiðum. Slm- svari 681041. Hafnaríjöröur Hafnarfjarðar apótek og Norð- urbæjar apótek eru opin á virkum dögum frá kl. 9.00-18.30 og til skiptis annan hvern laug- ardag kl. 10.00-13.00 og sunnudag kl. 10.00- 12.00. Upplýsingar I símsvara nr. 51600. Akuneyri: Akureyrar apótek og Stjömu apótek eru opin virka daga á opnunartlma búða. Apó- tekin skiptast á slna vikuna hvort að sinna kvöld-, nætur- og helgidagavörslu. Á kvöldin er opiö i þvl apóteki sem sér um þessa vörslu, tii kl. 19.00. Á helgidögum er opiö frá kl. 11.00- 12.00 og 20.00-21.00. Á öðrum timum er lyfja- fræðingur á bakvakt. Upplýsingar eru gefnar I slma 22445. Apótek Keflavíkur Opið virka daga frá k. 9.00- 19.00. Laugardaga, helgidaga og almenna frl- daga kl. 10.00-12.00. Apótek Vestmannaeyja: Opið vlrka daga frá kl. 8.00-18.00. Lokaö i hádeginu milli kl. 12.30- 14.00. Selfbss: Selfoss apótek er opið til kl. 18.30. Opið er á laugardögum og sunnudögum kl. 10.00-12.00. Akranes: Apótek bæjarins er opið virka daga til kl. 18.30. Opið er á laugardögum kl. 10.00- 13.00 og sunnudögum kl. 13.00-14.00. Garðabær Apólekið er opið rúmhelga daga kl. 9.00-18.30, en laugardaga kl. 11.00-14.00. Læknavakt HJONAMINNING Jón Sveinn Jónsson Fæddur 8. september 1900 — Dáinn 29. júlí 1980 sóma, umfaðma þann sem minna má sín, bera kærleika til Drottins og hans helgidóms, slíkir safna fjár- sjóði sem mölur og ryð fá ekki eytt. Vissulega sitja Nonni og Dóra að sínum fjársjóðum nú. Blessuð sé minning þeirra. Halldóra Guðrún Guðmundsdóttir Kristjón Benediktsson Ég krýp og faðma fótskör þína, Frelsari minn á bœnastund. Ég legg sem bamið bresti mína, Bróðir, íþína líknarhönd. (Matth. Joch.) Fædd 20. nóvember 1900 — Dáin 18. mars 1991 frá Sæbóli, Ingjaldssandi Mig langar til að skrifa nokkur kveðju- og þakkarorð um Halldóru Guðmundsdóttur, sem lést þann 18. mars á Elli- og hjúkrunarheimilinu Læknavakt fyrir Reykjavik, Seltjamames og Kópavog er i Heilsuvemdarstöð Reykjavlkur alla virka daga frá kl. 17.00 til 08.00 og á laugardög- um og helgidögum allan sólarhringinn. Á SeHjamamesi er læknavakt á kvöldin kl. 20.00-21.00oglaugard. kl. 10.00-11.00. Lokaðá sunnudögum. Vitjanabeiðnir, slmaráðleggingar og tlmapant- anir I síma 21230. Borgarspftalinn vakt frá kl. 08- 17 alla virka daga fyrir fólk sem ekki- hefur heimilislækni eða nær ekki til hans (slmi 696600) en slysa- og sjúkravakt (Slysadeild) sinnir slösuðum og skyndiveikum allan sólar- hringinn (sími 81200). Nánari upplýsingar um lyfjabúðir og læknaþjónustu emgefnar i sím- svara 18888. Ónæmisaðgetðir fyrir fulloröna gegn mænusótt fara fram á Heilsuvemdarstöð Reykjavfkur á þriðjudögum kl. 16.00-17.00. Fólk hafi með sér ónæmisskirteini. Garöafaær Heilsugæslustöðin Garðaflöt 16-18 er opin 8.00-17.00. slmi 656066. Læknavakt er í síma 51100. Hafnarflötður. Heilsugæsla Hafnarfjaröar, Strandgötu 8-10 er opin virka daga kl. 8.00- 17.00, sími 53722. Læknavakt slmi 51100. Kópavogur. Heilsugæslan er opin 8.00-18.00 virka daga. Slmi 40400. Keflavík: Neyðarþjónusta er allan sólarhringinn á Heilsugæslustöð Suðumesja. Simi: 14000. Sálræn vandamál: Sálfræðistöðin: Ráðgjöf I sál- fræðilegum efnum. Sími 687075. Mig langar í örfáum orðum að minnast Jóns og Halldóru. Það hefur verið sagt að ef marka mætti minningargreinar, hljóti að búa afbragðsgott fólk á íslandi. Eftir lestur þessara orða kann þér að þykja að ég hafi fylgt þessari hefð dyggilega. Ef svo er, þá hefur þú ekki þekkt Nonna og Dóru. Þau tóku að sér móður mína og ólu hana upp. Hjá þeim átti hún öruggt athvarf. Eftir að hún fór að heiman gat hún alltaf treyst því að ef bjátaði á, brugðust þau ekki. Ég kom fyrst til dvalar á Sæbóli 10 ára gamall. Systkini mín höfðu dval- ið þar áður, Eðvarð fyrstu árin og síðan á sumrin til 13 ára aldurs, Ár- ný á sumrin 6 ára til 13 ára og Guð- mundur nokkur sumur. Ingjaldssandur er mjög sérstök og falleg sveit. Yst í Önundarfirði undir Barðanum, frjósamur og vinalegur dalur. Ég hef engan hitt sem hefur dvalið þar um lengri eða skemmri tíma að Ingjaldssandur hafi ekki skilið eftir spor. Þessi afskekkta byggð á Vestfjörðum var um margt sérstök. Nýjungum í búskaparhátt- um var tekið opnum örmum. Jafn- vel höfðu bændur forystu. Votviðra- söm tíð var ekki vandamál á In- gjaldssandi. Þar höfðu bændur náð góðum tökum á votheysverkun og unnu brautryðjendastarf í þeirri verkunaraðferð. Býli voru frekar smá, en með samheldni og sam- vinnu var fjárfest í nýjustu tækjum. Samvinnustefna sem ekki skerti sjálfstæði einstaklingsins. Á bæjunum á Sæbóli voru enn stundaðir róðrar á opnum bátum á vorin. Ingjaldssandur er opinn fyrir haföldunni. Það var sérstök lífs- reynsla þegar bátur kom að landi. Menn komu frá bæjum á bflum eða dráttarvélum. Dráttarvél tengd við spilið, vaðið með vír móti bátnum sem var dreginn á hlunnum upp sandinn. Við pollarnir höfðum það hlutverk að sækja hlunna, maka þá grút og bjarga þeim frá öldunni þeg- ar þeirra hlutverki var lokið. Mann- lífinu, stemmningunni allri sem fylgdi er í raun ekki hægt að lýsa, aðeins að upplifa. Fjaran á Ingjaldssandi, grýtt að hluta, en þó að mestu hulin hvítum sandi, hafði einstakt aðdráttarafl. Fögur, björt og kyrrlát á sumardög- um, en þó iðandi af lífi. Á brimdög- um, stórbrotin og hrikaleg. Seinni árin bjuggu Dóra og Nonni félagsbúi að Sæbóli með Finni Þor- lákssyni, fóstursyni sínum. Mig langar til að þakka Finni það sem hann var mér og mínum. Eg hugsa til þess, að það hlýtur að hafa verið þreytandi á köflum, að hafa síma- landi, síspyrjandi skugga. En þetta umbar Finnur af geðprýði sem öll- um er kunn. Nonna og Dóru reynd- ist hann einstakur. Hann og Svandís ásamt börnunum Dagnýju og Jóni Halldóri, léttu gömlu hjónunum síðustu árin. Þegar ég hugsa tilbaka og rifja upp samskipti og minningar um þau Dóru og Nonna kemur í hugann hugljúf mynd. Þau áttu það sameig- inlegt að þau fóru ekki í manngrein- arálit. Sú virðing sem ríkti í þeirra samskiptum, ríkti í öllu þeirra sam- neyti við annað fólk. Börn umgeng- ust þau af virðingu og nærgætni. Eg minnist samræðna við Dóru, þar sem hún leyfði mér barninu, að finna að ég var manneskja. Tvívegis reiddist hún mér og vandaði um. Ekki hafði ég gert á hennar hlut, en ég kom ekki rétt fram við aðra. Þetta lýsir henni vel. Hún krafðist einskis, en veitti. Bað ekki um þakkir, en þakkaði. Hún bar ekki tilfinningar á torg, en átti hlýju og nærgætni sem snerti. Oft finnst börnum og unglingum fullorðnir sýna ósanngirni. Ekkert slíkt er til í minningunni um Nonna og Dóru. Nonni hafði þann hátt við öll verk, að allt vann hann á sama hraða. Hann fór sér hægt, en afkast- aði miklu. í fjallgöngu byrjaði hann aftastur, en var fyrstur þegar á topp- inn var komið. Sífellt að, með verk- lagni og dugnaði. Aldrei reiddist hann hortugum smápjakki, en um- bar og leiðbeindi. Aldrei íþyngjandi, heldur með ró og hlýju þegar hann fann að áhugi var til að taka á móti. í orði eilífs lífs er okkur kennt að þeir sem lifa í hógværð og lítillæti, skila sínu dagsverki með fullum Grund. Halldóra ólst upp á Brekku á In- gjaldssandi í stórum systkinahóp, en þau voru alls 21. Hún var dóttir heiðurshjónanna Guðrúnar Magn- úsdóttur og Guðmundar Einarsson- ar refaskyttu, sem bæði voru ættuð úr Borgarfirði. Halldóra var alin upp á miklu menningar- og myndarheimili, þar sem þrifnaður og reglusemi voru í hávegum höfð. Halldóra giftist Jóni Sv. Jónssyni frá Sæbóli í sömu sveit. Þau tóku við búi af móður hans, Sveinfríði Sigmundsdóttur, sem var orðin ekkja. Halldóra var sérstök dugnaðar- og myndarmanneskja til allra verka og gerði ætíð miklar kröfur til sjálfrar sín. Halldóru og Jóni varð ekki barna auðið. En nokkru eftir að þau byrjuðu búskap kom ég undirrituð til þeirra fjögra ára gömul, vegna heilsubrests móður minnar og fór ekki frá þeim fyrr en ég var orðin fullorðin. Einnig ólu þau upp son, Finn Þorláksson, systurson Hall- dóru. Jafnframt var hjá þeim fjöldi barna og unglinga um lengri og skemmri tíma og börnin mín voru hjá þeim mikið á sumrin. Mann sinn missti hún árið 1980 og var það henni mikill missir, því þeirra hjónaband var einstakt og gagnkvæm virðing mikil. Finnur hefur alla tíð reynst henni sem besti sonur og ekki síður kona hans Svandís Jörgensen. Fyrir það þakka ég af öllu hjarta. Ég þakka íyr- ir það sem hún var mér og mínum börnum. Nú er hún komin til mannsins síns ástkæra og annarra ástvina, sem á undan eru farnir. Ég bið henni blessunar Guðs í dýrðar- heimi hans. Innilegar samúðar- kveðjur sendi ég til systkina hennar og annarra vandamanna. Ólöf Ragnheiður Jónsdóttir Landspítalinn: Alla daga kl. 15 til 16 og kl. 19 til kl. 20.00. Kvennadeildin: kl. 19.30-20.00. Sængurkvennadeild: Alla daga vikunnar kl. 15- 16. Heimsóknartlmi fyrir feður kl. 19.30-20.30. Bamaspitali Hríngsins: Kl. 13-19 alla daga. Öldrunaríækningadeild Landspítalans Hátúni 10B: Kl. 14-20 og eftir samkomulagi. - Landa- kotsspítali: Alla virka kl. 15 til kl. 16 og kl. 18.30 til 19.00. Barnadeild 16-17. Heimsóknartimi annarra en foreldra kl. 16-17 daglega. - Borg- arspitalinn i Fossvogi: Mánudaga til föstudaga kl. 18.30 til 19.30 og eftir samkomulagi. Á laug- ardögum og sunnudögum kl. 15-18. Hafnarbúðir Alla daga kl. 14 til kl. 17. - Hvfta- bandiö, hjúkrunardeild: Heimsóknarlimi frjáls alla daga. Grensásdeild: Mánudaga ti föstu- daga kl. 16-19.30. - Laugardaga og sunnu- daga kl. 14- 19.30. - Heilsuvemdarstööin: Kl. 14 til kl. 19. - Fæðingarheimili Reykjavíkur: Alla daga kl. 15.30 til kl. 16.30. - Kleppsspítali: Alla daga kl. 15.30 tilkl. 16 og kl. 18.30 til kl. 19.30. - Flókadelld: Alladaga kl. 15.30til kl. 17. Kópa- vogshæiið: Eftir umtali og kl. 15 til kl. 17 á helgidögum. - Vifilsstaðaspitali: Heimsóknar- timi daglega kl. 15-16 og kl. 19.30-20. - St Jósepsspitali Hafnarfirði: Alla daga kl. 15-16 og 19-19.30. Sunnuhlið hjúkrunarheimili í Kópavogi: Heim- sóknartimi kl. 14-20 og eftir samkomulagi. Sjúkrahús Keflavikuriæknishéraðs og heilsu- gæslustöðvar: Vaktþjónusta allan sólarhring- inn. Simi 14000. Keflavík-sjúkrahúsið: Heim- sóknartlmi virka daga kl. 18.30-19.30. Um helgarogá hátiðum: Kl. 15.00-16.00 og 19.00- 19.30. Akureyrl- sjúkrahusið: Heimsóknartimi alla daga kl. 15.30-16.00 og 19.00-20.00. Á barnadeild og hjúkrunardeild aldraðra Sel 1: Kl. 14.00-19.00. Slysavarðsstofusimi frá kl. 22.00- 8.00, slmi 22209. Sjúkrahús Akraness: Heimsóknartlmi Sjúkrahúss Akraness er alla daga kl. 15.30-16.00 og kl. 19.00-19.30. Reykjavik: Seltjamames: Lögreglan simi 611166, slökkvilið og sjúkrablfreiö slmi 11100. Kópavogun Lögreglan slmi 41200, slökkvilið og sjúkrabifreið slmi 11100. Hafnarflörðun Lögreglan simi 51166, slökkviliö og sjúkrabifreið simi 51100. Keflavik: Lögreglan simi 15500, slökkvilið og sjúkrablll simi 12222, sjúkrahús 14000, 11401 og 11138. Vestmanneyjan Lögreglan, siml 11666, slökkviliö slmi 12222 og sjúkrahúsið simi 11955. Akureyrí: Lögreglan simar 23222, 23223 og 23224, slökkvilið og sjúkrabifreið slmi 22222. Isafjörðu-: Lögreglan sími 4222, slökkvilið simi 3300, brunaslmi og sjúkrabifreiö slml 3333.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.