Tíminn - 19.04.1991, Blaðsíða 2
2 Tíminn
Föstudagur 19. apríl 1991
Framsóknarmenn á Austurlandi í mikilli sókn:
Jónas á góða mögu-
leika á þingsæti
í alþingiskosningunum á morgun á Framsóknarflokkurinn á Aust-
urlandi góða möguleika á að fá þrjá menn kjörna. Þegar fylgi flokks-
ins hefur verið mest hefur hann fengið þrjá menn kjörna í kjör-
dæminu. Jónas Hallgrímsson skipar þríðja sæti Framsóknarflokks-
ins á Austurlandi.
„Við erum í miklum meðbyr hér á
Austurlandi. Við fengum tæplega
40% fylgi í síðustu kosningum og
þess vegna er ljóst að okkur vantar
aðeins herslumuninn til að ná inn
þremur mönnum. Alþýðubandalagið,
með Hjörleif Guttormsson í forystu,
er að tapa miklu fylgi. Hvert einasta
atkvæði getur því ráðið úrslitum um
hvort Jónas Hallgrímsson nær kjöri á
þing,“ sagði Halldór Ásgrímsson sjáv-
arútvegsráðherra.
Allt getur því gerst í kosningunum á
Austurlandi á morgun. Fylgi Sjálf-
stæðisflokksins hefur alla tíð verið
veikt í kjördæminu og Iengst af hefur
flokkurinn fengið þar aðeins einn
mann kjörinn. í síðustu kosningum
hefur hann hins vegar náð uppbótar-
manninum og fengið tvo kjöma.
Fylgi Alþýðubandalagsins hefur ver-
ið að hrynja í kjördæminu og er nú
svo komið að margir telja að það geti
ekki lengur talist öruggt um að ná
þar inn manni. Framgangur Hjörleifs
Guttormssonar á þingi síðustu vik-
urnar hefur enda ekki aukið vegsemd
flokksins eystra. Þá hafa kratar farið
mikinn á Austurlandi síðustu vikur.
Fjandsamleg afstaða Jóns Baldvins og
Reykjavíkurkratanna í garð lands-
byggðarinnar, andstaða hans við
landbúnaðinn og auðlindaskatturinn,
sem hann berst fyrir, gerir krötum á
Austurlandi erfitt fyrir. Hagstæð
skipting atkvæða á Austurlandi og á
landsvísu gæti því hæglega orðið til
þess að Jónas Hallgrímsson verði al-
þingismaður þegar talið hefur verið
upp úr kjörkössunum.
-EÓ
Jónas Hallgrímsson skipar
barattusæti Framsóknarflokksins á
Austuriandi.
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, deildarstjóri í Tryggingastofnun, segir:
Umönnunarbætur fyrir
alla er réttlætismál
„í dag fá þeir, sem annast hjúkrunarstörf og umönnunarstörf á
heimilunum, engar bætur úr almannatryggingakerfinu, nema þeir
annist maka sinn. Ef þú ert að hugsa um móður þína, föður, ömmu,
afa, bróður eða systur, færðu ekki neitt. Þetta er vitaskuld mjög
óréttlátt, en þeir eru margir sem þannig eru bundnir heima, en fá
engan stuðning frá hinu opinbera. Ég verð þess mjög vör í starfl
mínu hjá TVyggingastofnun, að þetta mál brennur á mörgum.
{ frumvarpi til nýrra almanna-
tryggingalaga, sem ekki komst í
gegnum þingið, er gert ráð fyrir
umönnunarbótum, sem koma skulu
í stað makabóta, barnaörorkustyrks,
og greiðslu vegna 10. greinar laga
um fatlaða.
Umönnunarbæturnar eru annars
vegar vegna fatlaðra og sjúkra
barna. Þar er gert ráð fyrir að greiða
framfærendum barna, sem eru inn-
an 16 ára aldurs og dvelja í heima-
húsi, allt að 43.450 kr.
Hins vegar eru umönnunarbætur
vegna elli- og örorkulífeyrisþega,
sem er útvíkkun á makabótum í nú-
gildandi Iögum. Þá er bótarétturinn
ekki bundinn við maka, heldur þann
sem heldur heimili með, og annast
elli- og örorkulífeyrisþegann, og
getur af þeim sökum ekki stundað
nema takmarkaða vinnu utan heim-
ilis. Þetta er forgangsmál og það
ætti að vera fyrsta verk nýs Alþingis
að samþykkja frumvarp um al-
mannatryggingabætur," segir Ásta
Ragnheiður Jóhannesdóttir, deildar-
stjóri hjá Tryggingastofnun ríkisins.
-aá.
Ásta Ragnheiður
Jóhannesdóttir, deildarstjóri hjá
Tryggingastofríun.
Forsætisráðherra segist ekki hafa nein afskipti af manna-
ráðningum hjá Byggðastofnun eða Framkvæmdasjóði:
KOSNINGASKJÁLFTI í
STARFSMANNAFÉLAGI?
Olíufélagið mei
góia afkomu
Olíufélagið hf., ESSO, skilaði
207,6 mil|jón króna hagnaði á
síðasta ári, að frádregnum skött-
um. Heildarvörusaia félagsins og
dótturfyrirtækja þess nam 6,955
milljónum króna frá fyrra ári og
jókst um rúm 20% á milli ára.
Þetta kom fram á aðalfundi fé-
lagsins, sem haldinn var í vik-
unni.
í ársskýrslu félagsins þakkar
Vilhjálmur Jónsson forstjóri
stöðugleika í efnahagslíflnu það
m.a. hve reksturinn gekk vel.
Hann segir að olíuverð ætti að
haldast tryggt það sem af þessu
ári. Það ætti að tryggja stöðug-
leika í rekstrinum.
Eigið fé Olíufélagsins og dótt-
urfélaga þess var í árslok 3,407
mil|jónir og hækkaði um 653
milljónir miUi ára. Heildarhluta-
fé er 502,3 miUjónir og þar af á
félagið sjálft 32,9 milljónir.
Stjórn félagsins hefur lagt til að
hluthöfum verði á þessu ári
greiddur út 15% arður.
Góðri afkomu í gegnum tíðina
þakkar Vllhjálmur góðu og
áhugasömu starfsfólki. En ekki
síst trausti viðskiptavina, en 01-
íufélagið er með um 40-50%
hlutdeUd í viðsldptum á olíu hér
á landi. -sbs.
Steingrímur Hermannsson forsæt-
isráðherra vísar algerlega á bug því,
sem ýjað er að í Pressunni í gær, að
hann hafl gert samkomulag við Guð-
mund G. Þórarinsson alþingismann
um að Guðmundur hætti við sér-
framboð í Reykjavík gegn því að
hann fái stöðu aðstoðarfram-
kvæmdastjóra Framkvæmdasjóðs.
„Ég hef ekki heimild til að skipta
mér af mannaráðningum eins og
þarna er um að ræða. Framkvæmda-
sjóður hefur sjálfstæða stjórn og ég
er hræddur um að stjórn hans og
stjórn Byggðastofnunar myndu al-
deilis láta heyra í sér ef ég færi að gefa
þeim fyrirmæli í sambandi viö
mannaráðningar. Ég tel hins vegar að
Guðmundur G. Þórarinsson sé afar
hæfur og duglegur maður. Hann á
ekki að þurfa að gjalda þess að vera
framsóknarmaður," sagði Steingrím-
ur. Forsætisráðherra sagði að það
sama gilti um ráðningu Gunnars
Hilmarssonar til Byggðastofnunar;
hann væri hæfur maður með óvenju
víðtæka reynslu af byggöamálum.
Fáránlegt væri að ætla að hann væri
að hygla pólitískum samherja, enda
vissi hann ekki betur en að Gunnar
Hilmarsson væri pólitískur andstæð-
ingur, ef eitthvað væri.
Starfsmannafélag Byggðastofnunar
og Framkvæmdasjóðs Islands sam-
þykkti í fyrradag ályktun þar sem
vakin er athygli á því sem félagið kall-
ar pólitískar mannaráðningar. Því er
sérstaklega mótmælt að Gunnar
Hilmarsson, fyrrverandi fram-
kvæmdastjóri Atvinnutrygginga-
sjóðs, hafi verið ráðinn í stöðu deild-
arstjóra hlutafjárdeildar Byggða-
stofnunar. Bent er á að Gunnar hafi
minnsta menntun og minnsta starfs-
reynslu umsækjenda.
Ljóst er að ef um pólitískar manna-
ráðningar er að ræða, eins og starfs-
mannafélagið vill vera láta, er Ijóst að
þau pólitísku tengsl eru flókin, því
eins og forsætisráherra benti á er
Gunnar Hilmarsson pólitískur and-
stæðingur og sá sem hyggst mæla
með Gunnari til starfans, forstjóri
Byggðastofnunar, hefur verið kennd-
ur við Sjálfstæðisflokkinn.
Guðmundur Malmquist, forstjóri
Byggðastofnunar, sendi í gær frá sér
fréttatilkynningu vegna þessa máls
þar sem vakin er athygli á því að ekki
sé endanlega búið að ganga frá ráðn-
ingu í stöðuna. Guðmundur sagði að
hann hefði ákveðið að mæla -með því
að Gunnar verði ráðinn, en stjórn
Byggðastofnunar verði endanlega að
samþykkja ráðninguna.
Þórður Friðjónsson, formaður
stjórnar Framkvæmdasjóðs, sagði að
vegna mótmæla starfsmannafélags-
ins verði umsóknarfrestur um stöðu
aðstoðarframkvæmdastjóra sjóðsins
að öllum iíkindum framiengdur um
hálfan mánuð. Hann sagði ólíklegt að
ráðið yrði í stöðuna fyrr en í lok maí-
mánaðar. Ekki væri talin nein þörf á
að flýta sér til að taka ákvörðun um
hver yrði ráðinn í stöðuna. Þórður
sagði að stjórn sjóðsins hefði ekki
verið beitt neinum pólitískum þrýst-
ingi varðandi þessa stöðuveitingu.
„Stjórn sjóðsins mun þegar þar að
kemur taka sjálfstæða ákvörðun um
það hvaða umsækjanda hún telur
hæfastan til að taka þetta starf að
sér,“ sagði Þórður. -EÓ
Selma Dóra
Þorsteinsdóttlr,
formaður
Fóstrufélagsins,
um nýju
leikskóialógin:
Framfara-
skref sem
þakka ber
rm i *i r
rikisstjorn
Skömmu fyrir þinglok sam-
þykkti Alþingi ný lög um Jeik-
skóla. Samkvæmt því er leikskól-
inn sjálfsagður hlutí af mennta-
kerílnu. Þannig er komið á nýju
skólastígi og öllum bömum, frá
því fæðingaroriofl lýkur og tíl 6
ára aldurs, tryggður réttur á því.
Hagfræðlstofnun Háskólans
hefur sýnt fram á að öflugri lelk-
skóli er þjóðhagslega hagkvæm-
ur. Gera má ráð fyrir að hann
auki þjóðartekjur um 1.5 mil|j-
arð á ári, og segir Hagfræðistofn-
un það mat mjög hóflegt Með í
reikninginn er ekki tekið, að
fleiri böm fá þannig notið mann-
bætandi áhrifa leikskólans.
Undirbúningur frumvarpsins
tók langan tíma, og þingleg með-
ferð þess var ekki þrautalaus.
Tíminn innti Selmu Dóm Þor-
steinsdóttur, formann Fóstmfé-
lags íslands, eftír áliti fóstra á
nýju lögunum.
„Iííldsstjóm Steingríms Her-
mannssonar settí það í stjómar-
sáttmála sinn að komið skyldi á
rammalöggjöf fyrír nýtt skóla-
stig, leikskólann. Með því einu
var strax stigið stórt skref fram á
við.
í kjölfar þess skipaði mennta-
málaráðherra nefnd til að vinna
að undirbúningi frumvarpsins,
sem nú hefur veríð samþykkt.
Það tók langan tíma og víst var
ágreiningur um ýmislegt, skoð-
anir vitaskuld skiptar. En með
harðfylgi fólks eins og Cuðrúnar
öldu Harðardóttur fóstm, sem
unnið hefur stórkostlegt starf,
náðist samstaða. Með því var líka
tryggt að frumvarpið kæmist í
gegnum þingið.
Þessi nýju lög um leikskóla
skipta miklu máli, þau gerbreyta
íslensku menntakerfl. Nú hefur
Alþingi ákveðið að koma á fót
skólastigi fyrir böm fiá því faeð-
ingaroriofl lýkur til 6 ára aldurs.
Þar eiga öll böm rétt á að vera.
Það hefur ekki verið áður.
í fyrsta lagi er þama fayggður
réttur ailra bama tíl að vera hluta
úr degi á leikskóla, ef foreldrar
æskja þess. í öðru lagi er stigið
stórkostíegt skref í þá átt að
fækka þeim félagslegu skilum,
sem foreldrar hafa þurft að upp-
fylla til að koma bömum sinum á
leikskóla. í gömlu lögunum vom
tvö kerfi. Annars vegar vom dag-
heimili fyrir forgangshópa. Hins
vegar leikskóli fyrir önnur böm.
Nú hefur ríkisstjómin ákveðið að
hér skuli vera eitt kerfi, eitt
skólastíg, þar sem aflir sitja við
sama boiú. Með því er réttur allra
bama tryggður.
Oft hefiir ríkt einhugur og sam-
staða í Fóstmfélaginu, en ég
held að hann hafí aldrei verið
jafnmikifl og um nýju leikskóla-
lögin. Ég vil sérstaklega óska
Steingrími Hermannssyni for-
sætisráðherra, Svavari Gestssyni
menntamálaráðherra, ríkis-
stjóminni, og öllum þeim öðmm
sem unnu að framgangi leik-
skólalaganna, til hamingju með
þennan áfanga,“ segir Selma
Dóra Þorsteinsdóttír, formaður
Fóstmfélags íslands. -aá