Tíminn - 19.04.1991, Blaðsíða 8
8 Tíminn
Föstudagur 19. apríl 1991
SUF-síða
Ungt fólk á listum fram-
sóknarmanna um allt land
SUF-síðunni þykir ástæða til að kynna í örfáum orðum þá ungu
frambjóðendur sem eru á iistum flokksins við alþingiskosningarn-
ar í vor. Þó nú sé örskammt til kosninga og baráttan e.t.v. að mestu
yfirstaðin er sjálfsagt að færa til bókar það mikla mannval á SUF
aldri sem valist hefur til að skipa sæti á framboðslistum flokksins.
Hér eru þó aðeins kynntir þeir sem eru í einhverju af 10 efstu sæt-
um listanna á hveijum stað og eru innan við 36 ára aldur. Tíðinda-
manni SUF síðunnar gafst ekki tími tii að vinna kynningar fyrir
Norðurland eystra og Reykjanes og eru hiutaðeigendur beðnir vel-
virðingar á því og beina sökum sínum að honum ef einhveijar eru.
Reykjavík
ANNA M. VALGEIRSDÓTTIR skip-
ar 5. sæti B-listans í Reykjavík.
Hún er nemi við félagsvísinda-
deild H.Í., gift Höskuldi B. Er-
lingssyni og eiga
þau tvö börn.
Hún hefur starf-
að mikið að fé-
lagsmálum og
er nú formaður
Félags ungra
framsóknar-
manna í Reykja-
vík og á sæti í
framkvæmdastjórn SUF.
Henni segist svo frá um framboð
sitt: „Ég er í framboði af því mér
frnnst þurfa að bæta ýmislegt hér.
T.d. er ég ekki ánægð með aðstöðu
þeirra sem lægst hafa launin. Það
þarf að bæta hag þessara hópa á
einhvern hátt t.d. í gegnum
skattakerfið. Það þarf að hækka
skattleysismörk mjög verulega.
Þess ber einnig að gæta að börn
eiga á brattann að sækja í þessu
þjóðfélagi og því þarf að breyta.
Aðstæður eru orðnar þannig að
konan er komin inn á vinnumark-
aðinn til að vera og við því þarf
ríkisvaldið að bregðast þótt hér sé
að vísu einnig um verkefni sveitar-
félaga að ræða.“
Hvernig heldur þú að gangi fyrir
þig að ná þessu fram?
„Ég geri mér svo sem engar von-
ir um að breyta megi heiminum í
einu vetfangi en ég vona þó að
mér takist að hafa áhrif til góðs.“
GUNNAR BRAGI GUÐMUNDSSON
skipar 9. sæti B-listans í Reykja-
vík. Gunnar er þrítugur véltækni-
fræðingur og starfar hjá Rann-
sóknastofnun
fiskiðnaðarins
og hefur verið
ráðgefandi í
mörgum verk-
efnum er varða
bætta nýtingu
afla og nýtingu
á afla sem áður
hefur ekki verið
nýttur. Hann er kvæntur Halldóru
Grétarsdóttur hjúkrunarfræðingi
og eiga þau tvær dætur.
Gunnar segir komandi kosningar
gífurlega þýðingarmiklar fýrir
ungt fólk vegna þess að í raun sé
verið að kjósa um áframhaldandi
stöðugleika í efnahagslífinu og
víðtæka sátt í þjóðfélaginu undir
forystu framsóknarmanna. Ungt
fólk sé flest skuldum vafið og óða-
verðbólga sé einhver versti óvinur
þess. „Við sem þurfum að borga af
lánum um hver mánaðamót höf-
um á undanförnum misserum séð
höfuðstólinn lækka, sem er mikil
breyting frá því sem áður var.“
Gunnar segir að umræðan um
sjávarútvegsstefnuna hafi að stór-
um hluta verið á lágu plani í þess-
Gunnar Bragl.
ari kosningabaráttu. „Með kvóta-
kerfinu, sem í raun er ekki búið að
vera við líði nema í 4 mánuði í
endanlegri mynd, hefur verið
lagður grunnur að skynsamlegri
nýtingu á takmarkaðri auðlind. í
tíð Halldórs Ásgrímssonar hefur
verið mörkuð skýr stefna í gæða-
og nýtingarmálum sem byggir á
þessum grunni og það er einmitt
hlutverk stjórnvalda að gera slíkt.
Stjórnvöld eiga jafnframt að skapa
almenn skilyrði fýrir fýrirtækin
sem gera þeim kleift að fara eftir
því sem kveðið er á um í gæða- og
nýtingarmálum og stjórnvöld eiga
að styðja við og aðstoða vaxtar-
brodda í vöruþróun á sviði sjávar-
fangs. Það verður hins vegar hlut-
verk fyrirtækjanna að útfæra þessa
stefnu og nýta nýja möguleika og
ný tækifæri. Þetta er raunhæf
sjávarútvegsstefna. Við munum
aldrei geta bætt gæði og nýtingu á
sjávaraflanum með tilskipunum
að ofan og því þarf að vinna að
þessu með fólkinu sem vinnur við
fiskvinnslu. Þetta hefur verið gert
og það þarf að koma í veg fýrir þá
vanhugsuðu niðurrifsstarfsemi
sem margir flokkar eru nú að boða
og kalla sjávarútvegsstefnu," sagði
Gunnar Bragi.
Vesturland
RAGNAR ÞORGEIRSSON er 25
ára iðnrekstrarfræðingur sem
skipar 3. sæti B-listans á Vestur-
landi. Hann er í sambúð með Guð-
ríði Aðalsteins-
dóttur og eiga
þau tvær dætur.
Félagsmál hafa
lengi átt huga
Ragnars. M.a.
hefur hann átt
sæti í stjórn
SUF frá 1988 og
er nú varafor- agnar.
maður þess. Hann hefur einnig átt
sæti í stjórn kjördæmissambands
framsóknarmanna á Vesturlandi.
Helstu baráttumál Ragnars eru
atvinnumálin. „Það er ljóst að at-
vinna í framleiðslugreinunum,
sjávarútvegi og landbúnaði kemur
til með að dragast saman á kom-
andi árum og til að fýlla upp í þau
störf verðum við að horfa til iðn-
aðarins. Ég held hins vegar að nú-
verandi iðnaðarráðherra hafi rekið
alranga iðnaðarstefnu. Hann vill
helst sem mesta stóriðju og að
hún rísi sem næst miðbæ Reykja-
víkur. Ég held hins vegar að
möguleikar okkar liggi í tækni-
væddum smáiðnaði, ekki síst til að
allt það unga fólk sem héðan fer til
náms geti komið heim og fundið
störf við sitt hæfi. Það er ófært að
fólk sem vill snúa heim þurfi frá að
hverfa vegna skorts á atvinnu í
sínu fagi.“
Ragnar hefur einnig mikinn
áhuga á umhverfismálum: „í um-
hverfismálum þarf margt að bæta
þó skref hafi verið stigið fram á við
með stofnun umhverfisráðuneyt-
is. Starf ráðuneytisins hefur hins
vegar valdið vonbrigðum og þar
þarf að verða breyting á. Stuðla
þarf að bættri umgengni og flokk-
un sorps en til þess þurfa allir að
leggja sitt af mörkum. Unga kyn-
slóðin í dag gerir þá kröfu að land-
inu sé skilað til hennar í sama
ástandi og sú eldri tók við því sem
verður að teljast sanngjörn krafa.“
Vestfirðir
KATRÍN MARÍSDÓTTIR er 32 ára
skrifstofumaður á Hólmavík sem
skipar 3. sæti B-listans á Vestfjörð-
um. Hún er gift Ólafi Straumland
og eiga þau tvö
börn. Katrín er
af framsóknar-
heimili og segist
hafa búið við
nokkra innræt-
ingu í æsku en
þegar hún
komst til pólit-
ísks þroska og
fór að rýna
Katrín.
stefnu flokksins
fannst henni auðveld ákvörðun að
vilja styðja hann.
Helstu baráttumál hennar tengj-
ast sjávarútveginum. Þó að kvóta-
kerfið sé ekki gallalaust held ég að
við höfum ekki annað betra á tak-
teinum. Við verðum hins vegar að
fýlgjast mjög vel með kvótatil-
færslum og gæta þess að aðstaða
byggðanna verði sem jöfnust.
Menn verða að gera sér grein fyrir
því að atvinnumöguleikar okkar
Vestfirðinga liggja fýrst og fremst
á sviði sjávarútvegs, hér setja
menn ekki niður álver eða aðra
stóriðju. Fiskurinn er okkar lífs-
björg og hana verðum við að fá að
nýta. Varðandi landbúnaðinn vil
ég segja það að hér byggist hann
nær eingöngu á sauðfjárrækt.
Þetta er gott fé sem ekki má tína
niður þótt nú séu þrengingatímar
í þeirri grein því hvar ætla menn
annars staðar að sækja sér ósýkt fé
ef skera þarf niður vegna riðu eða
annarra sjúkdóma." Katrín hefur
líka orð í eyra handa þeim sem
vilja sækja um aðild að EBE. „Það
er alveg furðulegt að við skulum
þurfa að vera að verja sjálfstæði
landsins núna árið 1991, innan við
50 árum eftir að við fengum það
eftir langa og harða baráttu. Aðild
að EB er það versta sem gæti kom-
ið fýrir íslensku þjóðina."
Norðurland v.
ELÍN R. LÍNDAL er 34 ára gömul
húsfreyja á Lækjarmóti í V-
Húnavatnssýslu. kún er hrepp-
stjóri í sinni sveit og rekur auk
þess sauma-
stofuna Borg
hf. Hún skipar
3. sæti B-list-
ans á Norður-
landi vestra.
Maður hennar
er Þórir ísólfs-
son og eiga þau
þrjú börn.
Þetta vill hún segja um ástæðu
þess að hún valdi sér að starfa í
Framsóknarflokknum „Pólitík er
Elln.
lífsskoðun. Framsóknarflokkur-
inn hefur ávallt lagt rfka áherslu
á að gefa öllum jöfn tækifæri til
náms og starfa. Og það er það
sem mér finnst stjórnmál eiga að
snúast um, að búa öllum sem
best tækifæri."
Atvinnumálin eru í brennidepli
í kjördæmi Elínar. „Héruð eins
og Norðurland vestra hafa byggt
mikið á landbúnaðarframleiðslu
og úrvinnslu afurða sem og ýms-
um þjónustugreinum tengdum
landbúnaðinum. Nú á samdrátt-
artímum verðum við að leggja
áherslu á markvissa uppbygg-
ingu nýrra starfa til að mæta því.
Þetta finnst mér vera langmikil-
vægasta málið hér í kjördæminu.
En til þess að við getum gert
þetta verðum við að varðveita
stöðugleikann í efnahagsmálum.
Hann er grunnur að framfara-
sókn í atvinnumálum því ef hon-
um verður fórnað á altari frjáls-
hyggjunnar verða rekstrarskil-
yrði fyrirtækjanna ómöguleg."
SIGURÐUR ÁRNASON er 22 ára
skrifstofumaður frá Marbæli í
Skagafirði og skipar 5. sæti B-
listans á Norðurlandi vestra.
Hann starfar
hjá Búnaðar-
s a m b a n d i
Skagfi rðinga
og er í sambúð.
Hann valdi sér
að starfa innan
Framsóknar-
flokksins vegna
þess: Hann er
eini flokkurinn sem hefur gert
eitthvað í byggðamálum. Hann
hafnar öfgum bæði til hægri og
vinstri, vill stjórna af skynsemi
en ekki eftir einhverjum erlend-
um kenningum.
Sigurður samsinnir Elínu í því
að atvinnumálin séu helstu bar-
áttumál kjördæmisins. „Það er
brýnt að hefja þegar nýsköpun í
atvinnumálum hér til að mæta
samdrætti í hefðbundinni land-
búnaðarframleiðslu. Unga fólkið
sem hér býr vill geta haft vinnu í
sinni heimabyggð og það verður
að byggja hér upp fjölbreyttara
atvinnulíf um leið og við mætum
fyrirsjáanlegum samdrætti í öðr-
um greinum.“
Siguröur Árna.
Austurland
KAREN ERLA ERLINGSDÓTTIR
er 35 ára ferðamálafulltrúi og
skipar 4. sæti B-listans á Austur-
landi. Hún er fædd og uppalin á
Fáskrúðsfirði
en starfar nú á
Egilsstöðum.
Hún hefur
ákveðnar skoð-
anir á því um
hvað þessar
kosningar snú-
ast. „Það er
hreinn og
beinn ábyrgðarhluti að vera að
skipta um forystu í landsmálum
nú og fórna þar með þeim ár-
angri sem náðst hefur í efnahags-
málum. Ég á nú 'eftir að sjá það
að Sjálfstæðisflokkurinn undir
forystu borgarstjórans í Reykja-
vík hafi einhvern áhuga á að gera
eitthvað fyrir okkur landsbyggð-
Karen.
arfólk. Fjölmiðlarnir þ.á m. ríkis-
sjónvarpið, sem Reykjavíkur-
íhaldið virðist að mínu mati
stjórna, einblína yfirleitt bara á
það sem miður fer og taka jafnvel
einstök byggðarlög út og gera
þau að blóraböggli fyrir rangri
byggðastefnu, en minnast hins
vegar ekki á staði þar sem betur
gengur þó að þeir séu mun fleiri.
Eg hugsa með hryllingi til þess ef
Sjálfstæðisflokkurinn kæmist í
aðstöðu til að framkvæma þetta
eina stefnumál sem hann hefur,
þ.e. einkavæða Ríkisútvarpið þá
væri hvergi hægt að opna út-
varpsrás án þess að á manni dynji
þessi sífelldi niðurrifsáróður."
Karen hefur mikinn áhuga á
byggðamálum: „Já ég hef alltaf
verið málsvari þess að sem mest-
ur jöfnuður ríki í landinu. Við
landsbyggðarfólk eigum ekki að
þurfa að borga meira en aðrir í
orku eða símagjöld og eins vildi
ég jafna vöruverð meira. Það á
ekki að þurfa að vera miklu dýr-
ara að búa úti á landsbyggðinni
en í Reykjavík. Við verðum líka
að gera átak í að byggja hér upp
fjölbreyttara atvinnulíf til að allt
það unga fólk sem héðan fer til
að leita sér menntunar geti snúið
heim og fengið starf í sínu fagi.“
Þú starfar að ferðamálum. Hvað
er þar framundan? „Ég held að
hér liggi miklir atvinnumögu-
leikar á sviði ferðamála og við
þurfum að hlúa betur að þeirri
grein. Við þurfum bæði að bæta
þjónustuna og sinna markaðs-
málunum betur enda kaupir fólk
ekki hluti sem það veit ekki að
eru til. En ég er sannfærð um að
á þessu sviði liggja miklir ónýttir
möguleikar fyrir kjördæmið."
Suðurland
Guðmundur.
GUÐMUNDUR SVAVARSSON er
27 ára gamall rekstrarfræðingur
frá Fögruhlíð í Fljótshlíð og skip-
ar 5. sætið á B-listanum á Suður-
landi. Hann
starfar hjá
Kaupfélagi
Rangæinga og
er í sambúð
með Sigrúnu
H. Eiríksdótt-
ur. Hann hefur
tekið virkan
þátt í störfum
flokksins og er nú formaður
Framsóknarfélags Rangæinga.
Guðmundur sagðist hafa valið
sér að starfa innan Framsóknar-
flokksins vegna uppeldis í ung-
mennafélagshreyfingunni og þar
væri líkt og í Framsóknarflokkn-
um lögð áhersla á að taka félags-
lega á málum. „Ég er félags-
hyggjumaður og sú sterka ein-
staklings- og peningahyggja, sem
er t.d að finna í Sjálfstæðis-
flokknum, fer afskaplega í taug-
arnar á mér svo ekki sé meira
sagt.“
Guðmundur segir að í þessum
kosningum sé um tvennt að
velja. ,^nnars vegar áframhald-
andi traust og heilbrigt efnahags-
umhverfi undir öruggri forystu
Framsóknarflokksins og hins
vegar hrun og efnahagslegt öng-
þveiti með Sjálfstæðisflokkinn í
broddi fýlkingar.