Tíminn - 19.04.1991, Qupperneq 4
4Tíminn
Föstudagur 19. apríl 1991
UTLONDi
Viöraeöum Gorbatsjovs og Kaifu lokiö:
RAUNVERULEGUR
ÁRANGUR ENGINN
Mikhail Gorbatsjov, forseti Sovétríkjanna, og Toshiki
Kaifu, forsætisráðherra Japans, Iuku seint í gær að jap-
önskum tíma maraþonviðræðum um yfirráð fjögurra
Kúrileyja, án árangurs að heitið getur.
{sameiginlegri fréttatilkynningu
frá þeim segir að Sovétríkin ætli
að minnka þann herafla, sem þeir
hafa á eyjunum, á næstu fimm ár-
um, en Japanar höfðu krafist að
allt herliðið færi frá eyjunum.
Japanskir hernaðarsérfræðingar
teíja að Sovétmenn hafi 15 þús-
und hermenn og 40 MIG-23 orr-
ustuþotur á eyjunum. í tilkynn-
ingunni segir einnig að þjóðirnar
tvær ætli að vinna að því að gera
friðarsamning sín á milli, sem
formlega bindi enda á seinni
heimsstyrjöldina, en Japanar setja
yfirráð yfir Kúrileyjunum fjórum
sem skilyrði fyrir undirritun slíks
samnings. Japanar setja yfirráð
eyjanna einnig sem skilyrði fyrir
víðtækri efnahagsaðstoð við Sov-
étríkin.
Sovétmenn hertóku eyjarnar af
Japönum í seinni heimsstyrjöld-
inni og þær eru mjög táknrænar,
þar sem þær minna á hverjir sigr-
uðu og hverjir töpuðu.
Gorbatsjov sagði eftir viðræð-
urnar í gær að hann vonaðist eftir
Bandarískir hermenn, mest yerk-
fræðingar, fóru inn í Norður- írak í
gær til að leita að heppilegum
stöðum fyrir griðasvæðin sem
ákveðin hafa verið handa kúnh'sk-
um flóttamönnum. Að mörgu þarf
að gæta, Ld. að nóg vatn sé á
staðnum og að griðasvæðin hafí
ekki slæm áhrif á umhverfíð, en
búist er við að allt að 100 þúsund
manns geti leitað hælis á hveiju
griðasvæði, en þau munu verða
sex eða sjö.
Líklegasti staðurinn fyrir griðasvæðin
mun vera frjósamur dalur sem teygir
sig í vestur og austur frá íraska landa-
mærabænum Zakho sem er um 16 km
frá tyrkneska landamærabænum Sil-
opi. Komið hefur til tals að gera flug-
braut í Silopi sem yrði aðalbækistöð
bandarískra, breskra og franskra her-
manna. Þeir hermenn, sem munu fara
inn í írak, munu í mesta lagi verða
13.000, en skyndiárásarsveitir, sem
ætlað er að ráðast inn í írak ef íraski
stjómarherinn gerir árásir á griða-
svæðin, verður þá líklega í Silopi. Þá
munu herflugvélar og herþyrlur vera í
reglubundnu eftirliti yfir svæðunum.
írösk stjómvöld og Sameinuðu þjóð-
imar gerðu með sér samning í gær um
að Sameinuðu þjóðimar settu upp
að hægt væri að halda Kyrrahafs-
ráðstefnu ekki seinna en árið 1993
með fulltrúum Indlands, Kína,
Japans, Sovétríkjanna og Banda-
ríkjanna þar sem rædd yrðu efna-
hags- og öryggismál svæðisins.
Japanar hafa tekið hugmyndum
um slfka ráðstefnu kuldalega.
Kaifu segir að Japanar séu tilbún-
ir til að ræða efnahagsmál ein-
göngu, en ekki hernaöar- eða ör-
yggismál, því Japan ætli sér ekki
að verða hernaðarveldi á ný.
Utanríkisráðherrar landanna
undirrituðu í gær samning milli
ríkjanna sem kveður á um sam-
vinnu milli þeirra á fjölmörgum
sviðum, allt frá umhverfismálum
og menningu til tækni og efna-
hagsmála. Japanar ætla að setja
upp fræðistofnun í Moskvu og
Sovétmenn hafa ákveðið að taka
saman lista yfir þá 60 þúsund jap-
önsku stríðsfanga sem létust í
Sovétríkjunum frá lokum seinni
heimsstyrjaldar til ársins 1956, en
þá var öllum japönskum stríðs-
föngum í Sovétríkjunum sleppt.
griðasvæði í írak fyrir þá íraka sem flú-
ið hefðu til írans og Tyrklands. írösk
stjómvöld hafa harðlega fordæmt
Bandaríkjamenn, Breta og Frakka fyrir
að ætla sér að setja upp á eigin spýtur
griðasvæði í írak og þannig blanda sér í
innanríkismál íraka á ólöglegan hátt.
Hins vegar sagði utanríkisráðherra ír-
aka í gær að hann vonaðist til að mark-
mið Bandaríkjamanna, Breta og
Frakka væri eingöngu mannúðlegs
eðlis og að góð samvinna tækist á milli
þeirra og Sameinuðu þjóðanna.
Bandaríkjamenn hafa lýst yfir að þeir
muni eins fljótt og auðið er koma
griðasvæðunum sínum undir stjóm
Sameinuðu þjóðanna. Tálað hefur ver-
ið um að af því geti orðið eftir u.þ.b. tvo
mánuði.
Rafsanjani, forseti írans, sagði í gær að
íranir mundu ekki senda írösku flótta-
mennina, sem komið heföu til írans,
aftur til íraks fyrr en öryggi þeirra væri
tryggL Talið er að allt að milljón íraskir
Kúrdar og sjítar hafi flúið til írans. ír-
anir hafa ekki enn brugðist við þeirri
ákvörðun Bandaríkjamanna, Breta og
Frakka að setja upp griðasvæði fyrir
Kúrda við tyrknesku landamærin. Þeg-
ar hugmynd Breta um slík griðasvæði
kom fyrst upp á pallborðið sögðu þeir
að samskonar svæði ætti að mynda í
Suður-írak fyrir sjíta.
Reuter-SÞJ
Einnig ætla Sovétmenn að finna
allar grafir stríðsfanganna.
Búist er við að Gorbatsjov fari frá
Fyrir sovéska fulltrúaþinginu ligg-
ur lagafrumvarp til afgreiðslu, sem
veitir öllum Sovétmönnum sjálf-
krafa rétt til að yfirgefa Sovétríkin
og gefur þannig öllum sem vilja
möguleika á aö flytjast búferlum til
annarra landa. Hingað til hefur sá
háttur verið hafður á að Sovétmenn
fá við sextán ára aldur vegabréf sem
gildir innan Sovétríkjanna, en erf-
iðleikum hefur verið bundið að fá
„venjulegt" vegabréf. Þingið mun
koma saman í næsta mánuði til að
ræða frumvarpið, en menn telja að
það verði ekki gert strax að lögum,
þar sem búist er við að allt að sex
milljónir manna mundu strax nýta
sér tækifærið og flytja. Það mundi
valda gífurlegu öngþveiti.
Afar slæmt efnahagsástand og pól-
itísk ólga eru helstu ástæðurnar fyr-
ir flóttavilja fólksins. Meðalmánað-
arlaun í Sovétríkjunum eru 270
rúblur (459 dollarar samkvæmt
Japan í dag til Suður-Kóreu þar
sem hann mun ræða við forseta
landsins, Roh Tae-woo.
gengisskráningu stjórnvalda, sem er
ekki rétt, og um 12 dollarar á svarta
markaðinum). Stjórnvöld í Vestur-
Evrópu óttast straum sovéskra inn-
flytjenda, en taliö er að þeir muni
helst leita til Þýskalands. Stjórnvöld
í Bandaríkjunum hafa hins vegar
lagt mikið upp úr grundvallarmann-
réttindum ferðafrelsis og hafa ýjað
að því að ferðafrelsi sovéskra borg-
ara sé grundvöllur fyrir víðtækri
efnahagsaðstoð af hálfu Bandaríkj-
anna við Sovétríkin.
Árið 1990 fluttu 452 þúsund manns
frá Sovétríkjunum, samkvæmt töl-
um frá sovéska innanríkisráðuneyt-
inu. Flestir fóru til ísraels, eða tæp
60%, en 31,3% fóru til Þýskalands.
Árið 1989 fóru hins vegar ekki nema
235 þúsund manns. Flóttafólkinu
fer fjölgandi samhliða versnandi
efnahags- og stjórnmálaástandi.
Reuter-SÞJ
Fréttayfirlit
DIYARBAKIR, TyiWandi - YRr-
maður herafla bandamanna,
sem vinnur að því að setja upp
giiöasvæði í frak fyrir kúrdíska
Róttamenn sem eru viö landa-
mæri Tyrldands, mun hitta hers-
höfðingja íraska stjómarhersins í
dag í íraska landamærabænum
Zákho.
BAGDAD - frösk stjómvöld
gerðu í gær samning við Sam-
einuðu þjóöimar um samvinnu í
hjálparstarfi I Irak, þó aðallega í
Norður-frak. frakar hafa fondæmt
áætlanir Bandarfkjamanna,
Breta og Frakka um að seQa upp
griðasvæði (Norður- frak. Diptö-
matar (Ankara (Tyrklandi sögðu
í gær að bandarískir hennenn
væru að leita að heppilegum
stöðum f Norður-frak fýrir griða-
svæðin, en þau elga að geta veiti
allt að 700 þúsund fióttamönnum
mat, skól, læknisaöstoð og
vemd fyrir iraska stjómarhem-
um.
DAMASKUS - Taismenn kúrd-
ískra uppreisnarmanna i Norður-
frak sögðu um miðjan dag f gær
að ekki hefði komið til átaka milli
stjómarhersins og uppreisnar-
manna í einn og hálfan sólar-
hring.
NIKÓSÍA - Rafsanjani, forseti ír-
ans, sagði í gær að íranir mundu
ekki sertda irösku flóttamennina
aftur tii fraks fyrr en öryggi þeirra
væri að fúllu tryggt Allt að ein
milljón íraka hafa flúið undan her
Saddams Hussein til (rans.
BAGDAD - frösk stjómvöld buðu
í gær í annað sinn öllum Kúrd-
um, sem tóku þátt i uppreisninni
gegn þeim, sakaruppgjöf. Sakar-
uppgjöfin nær eingöngu til upp-
reisnarinnar, en ekki ýmissa
glæpa sem framdir vom f upp-
lausnarástandinu, s.s. moiða,
nauðgana og þjófriaðar.
SAUBIYA, Kúvæt - Einhver fjöldi
bandarískra landgönguliða mun
verða eftir í Kúvæt og Saudi-Ar-
abíu til frambúöar, en Banda-
rfkjamenn munu ekki setja upp
herstöövar i þessum iöndum, að
sögn undirhershöföingja f her
Saudi-Arabíu.
LONDON - Bresk stjómvöld
sögðu í gær að þau æfluðu að
leita eftir hjálp iraskra stjómvalda
við að fielsa vestræna gísla í Líb-
anon i staðinn fyrir aðstoð við
írösku flóttamennina i íran.
JERÚSALEM - Yitzhak Shamir,
forsætisráðherra fsraels, sagði í
gær að fsraelsmenn ætluðu að
hugleiöa hvort Evrópubandalag-
ið gæti tekið þátt í friðarráðstefnu
sem yrði haldin tif að leysa Pal-
estfnumálið. Hann sagði þó að
EB gæti ekki fengið ákvöröunar-
vaid ef þeir fengju að vera meö á
slikri ráðstefnu.
TOKYO - Maraþonviðræður milli
Gorbatsjovs Sovétforseta og
Kaiiú, forsætisráðherra Japans,
tóku enda í gær. Engin lausn
fékkst á deilunni um yfirráð fjög-
urra Kúriieyja sem Sovétmenn
hertóku af Japönum í seinni
heimsstyrjöldinni, en deilan kem-
ur í veg fyrir undirritun friðar-
samnings milli ríkjanna og víð-
tæka efnahagsaðstoð Japana
við Sovétmenn.
LONDON - Hlutfall atvinnulausra
i Bretlandi var i mars 7,4%, miö-
að við 7,0% i febrúar. Þetta er
mesta aukning m8li mánaða frá
þvi byrjað var að fyigjast ná-
kvæmlega með fjölda atvinnu-
lausra árið 1971. Þetta er mikið
áfall fyrir stjóm ihaldsmanna.
Reuter-SÞJ
Irakar semja við S.Þ.:
Griöasvæöi
handa Kúrdum
undirbúin
Gorbatsjov Sovétforseta tókst ekki að fá efnahagsaðstoð hjá Japönum.
Staða hans er mjög erfið og spuming hvort hann sé ekki að falla á tíma.
Sovétríkin:
Straumur
flóttamanna
yfirvofandi