Tíminn - 19.04.1991, Page 5
Föstudagur 19. apríl 1991
Tlminn 5
Sjómenn á Hjaltlandi senda alvarleg skilaboð til íslendinga byggð á biturri reynslu af sjávarútvegsstefnu EB:
Upphafið að endalokunum
komist EB í landhelgina
„Þeir kunnu illa ástandinu eins og það var orðið. Það var jafn mik-
ilvægt að falsa skýrslur, Ianda framhjá, henda góðum fiski fyrir borð
og hvað annað til að geta komist af. Öllum þeirra málum var stjórn-
að frá Brussel og þeir voru aldrei spurðir að neinu. Þeirra mesta
áhyggjuefni var þó að Spánverjar voru að hefja veiðar á miðunum
þeirra eftir áramótin. Þeir sögðu Spánverjana vera ekkert annað en
sjóræningja af verstu gerð og að þeir hefðu ekki einu sinni fyrir því
að falsa skýrslur; þeir gerðu þær ekki nema af illri nauðsyn og þekkt
væri að eftirlitið á Spáni lygi með þeim eftir þörfum.“
Það er Ólafur Sigurðsson matvæla-
fræðingur sem hér mælir fyrir munn
hjaltlenskra sjómanna f grein í síð-
asta tölublaði Sjómannablaðsins Vík-
ings.
Síðastliðin tvö ár hefur Ólafur starf-
að að gæðastjóm við fiskvinnslu á
Hjaltlandseyjum. Þar kynntist hann
af eigin raun hvemig sjávarútvegs-
stefna EB hefur farið með fiskimið og
sjávarútveg heimamanna. Um leið og
fiskimiðin em þurrkuð upp, mega
heimamenn tileinka sér undarleg-
ustu vinnubrögð, aðeins til að halda í
við aðkomumennina. Þar, sem áður
mátti fá mikinn afla, er ekkert að
hafa. Þeir, sem einu sinni lönduðu
góðum afla, koma nú með hálfúldna
ugga. Helmingnum af aflanum er
hent fyrir borð.
Ólafur bætir við:
„Þeir báðu mig um að skila því til ís-
lands að ef Spánverjar eða aðrar Evr-
ópuþjóðir kæmust inn í íslenska fisk-
veiðilögsögu yrði það upphafið að
endalokunum fyrir okkur. Eg vil taka
undir orð hjaltlenskra sjómanna, því
þeir tala af dapurri reynslu. Ofveiðin
þama hefur verið samviskulaus.
Danir voru nýlega sakaðir um að
stunda nótaveiðar á þorskseiðum og
lengi mætti telja ásakanir og gagn-
ásakanir vinaþjóðanna í Evrópu-
bandalaginu.
Sjómenn þessara þjóða hugsa til ís-
landsmiða sem gullkistu. Það hlýtur
að vera hverjum manni Ijóst að ef
ekki á fyrir okkur að liggja að vera í
aðgerð með uppþvottahanska og
skátahnífa verðum við að halda þess
háttar sjómennsku fyrir utan lög-
sögu okkar. Þeir hafa af illri nauðsyn
lært aðrar venjur við fiskveiðar en við
þekkjum til. Ef þeir fá aðgang að
miðunum hér við land, hvort sem
um er að ræða takmarkaðan aðgang
eða eitthvað annað, tel ég að kominn
sé tími til að athuga hvort ekki sé rétt
að stíma í land og gera hallarbylt-
ingu.“
Sigrún Magnúsdóttir, borgarfull-
trúi í Reykjavík.
Tveir framsóknanmenn úr Reykjavík
áþing. Raunhæfur möguleiki:
Ungt fólk
til ábyrgðar
Effir Slgnínu Magnúsdóttur borgarfulltrúa
Framsóknarfólk í Reykjavík á nú
raunhæfa möguleika á að koma
tveimur fulltrúum flokksins inn á
þing. Árið 1949 vann sú merka kona
Rannveig Þorsteinsdóttir fyrst þing-
sæti fyrir Framsóknarflokkinn í
Reykjavík. Þeim kosningasigri
gleyma okkar eldri félagar seint. Við
höfiim valið ungt og dugmikið fólk,
Finn Ingólfsson og Ástu R. Jóhann-
esdóttur, til að leiða listann í borg-
inni. Ég hef starfað mikið með þeim
og treysti þeim afar vel til þess að
vinna að hagsmunamálum borgar-
búa og landsmanna allra. Við höfum
líka fundið það að unga fólkið
treystir Framsóknarflokknum núna
best og metur það að við treystum
unga fólkinu til áhrifa. Eftir 40 ára
bið er aftur í sjónmáli að fá dug-
mikla framsóknarkonu á þing fyrir
flokkinn í Reykjavík. Ég skora því á
framsóknarfólk að þjappa sér saman
um B-listann laugardaginn 20. aprfl
og vinna ötullega að kjöri Finns og
Ástu.
Andlát
Maðurinn, sem lést í umferðarslysi
á Laugavegi sl. miðvikudag, hét Jón
S. Halldórsson, 32 ára gamall, til
heimilis að Austurströnd 10, Sel-
tjamamesi.
Jón var einn af þekktustu rallöku-
mönnum landsins og átti að baki
fjölmarga sigra. Hann lætur eftir sig
unnustu, en saman áttu þau eitt
barn.
Hársnyrtistofur maka krókinn á þjóðarsáttartíma:
Hækka um 3% umfram laun
og 7% umfram vísitölu
Margar hársnyrtistofur hafa s.I. níu mánuði hækkað verð á þjón-
ustu sinni langt umfram almennar verðlags- og launahækkanir í
landinu. Verðlagsstofnun kannaði í marsmánuði verðlag á 126 hár-
snyrtistofum á höfuðborgarsvæðinu og hækkun þess frá því í júní í
fyrra, þ.e. í nfu mánuði. I ljós kom að verð þessarar þjónustu hefur
á einstökum stofum hækkað um allt að 28%. En meðalhækkun hjá
þeim öllum er 10,6%, á sama tfma og laun hafa hækkað um 7,5%
og vísitala framfærslukostnaðar aðeins um 3,9%.
Sex þessara 126 hársnyrtistofa
hafa ekki hækkað verðskrár sínar
og aðrar 23 hækkað verð um 1-5%
að meðaltali. Hátt í helmingur
stofanna hefur aftur á móti hækk-
að verðskrárnar yfir 11%. Þar af
eru 33 stofur með 11-15% hækk-
anir, 18 stofur með 16-20% hækk-
anir og 6 stofur hafa hækkað verð-
taxta sína um 21% og allt upp í
28% á þessu níu mánaða tímabili.
Þessar hækkanir eru meðaltalstöl-
ur yfir verðhækkanir tíu þjónustu-
liða. Hækkun þeirra er hins vegar
nokkuð mismunandi.
Athygli vekur, að bæði klipping og
hárþvottur hefur hækkað 2%
meira fyrir hár kvenna en karla.
Raunar hefur klipping kvenna að
meðaltali hækkað mest af öllu, er
rúmlega 12% dýrari en fyrir níu
mánuðum og tæplega 1496 dýrari
ef klippt er eftir „nýrri línu“, þ.e.
heldur en eftir „nýrri línu“ í fyrra-
sumar. Fyrir karlana hafa báðir
þessir klippingaflokkar, sem og
hárþvottur, hækkað 2% minna sem
fyrr segir, og klipping barna
minnst, eða 9,5%. Állt eru þetta
meðaltalstölur.
Gífurlegur verðmunur var hins
vegar á milli hársnyrtistofa fyrir
einstök verk. Þannig kostaði klipp-
ing kvenna allt frá 800 kr. og upp í
2.760 kr. (245% munur) og „nýja
línan“ frá 950 kr. upp í 3.090 kr.
Fyrir karla kostaði sama þjónusta
800-1.980 kr. og 900-1.985 kr. Fyr-
ir karlana er verðmunurinn því um
helmingi minni.
Á engu var hlutfallslegur verð-
munur þó meiri en á hárþvotti, eða
frá 150 krónum og allt upp í 630
krónur — og aldrei þessu vant
nánast sama verð fyrir konur og
karla.
Verðmunur á permanenti var tvö-
faldur, frá 2.270 kr. upp í 4.600 kr.,
m.v. stutt hár.
Að meðaltali reyndist rúmlega
tvöfaldur verðmunur á ódýrustu og
dýrustu hársnyrtistofunum. Níu
stofur skáru sig nokkuð úr með
hátt meðalverð: Hjá Matta, Hár og
förðun, hjá Dúdda, á Kirkjutorgi,
Kompaníið, Jói og félagar. Og þrjár
stofur Salon VEH trónuðu svo á
„verðtoppnum" með um 50%
hærra verð heldur en meðalverð
hjá öllum hinum.
-HEl
Verð á fóðurvörum og girðingarefni lækkað eða nánast staðið í stað í eitt ár:
Fóðurblanda lækkað
um 10% á tæpu ári
Kúafóðurblanda er nú að meðaltali 9,7% ódýrari heldur en í maí í
fyrra, samkvæmt könnun sem Verðlagsstofnun hefur gert á tæplega
tveim tugum sölustaða víða um land. Verðlækkun á fóðurlýsi er
ennþá meiri, eða 12,7%. Meðalverð á fiskimjöli og kálfafóðri hefur
nokkurn veginn staðið í stað. Og svipað á við um nokkrar tegundir
girðingarefnis og mótatimbur.
Verulegur verðmunur reyndist
hins vegar á milli einstakra sölu-
staða. T.d. um 39% á fiskimjöli, 25%
á fóðurblöndu, 31% á girðingarneti
og mótatimbur kostaði t.d. 52%
meira hjá Kf. ísfirðinga heldur en
Kf. Húnvetninga.
Einnig virðist athyglisvert, að tonn
af sekkjuðu fiskimjöli, sem fæst fyrir
33.000 kr. hjá Frosta í Súðavík, skuli
kosta 13.000 kr. meira, eða 46.000
kr., í Kf. ísfirðinga.
Um tíu þúsund króna verðmunur
er á fóðurblöndutonninu þar sem
það er dýrast, hjá Kaupfélagi Hér-
aðsbúa, og ódýrast, hjá KEA á Akur-
eyri., Fiskimjölið er aftur á móti
2.400 kr. dýrara á Akureyri en Egils-
stöðum.
Tonn af sekkjaðri kúafóðurblöndu -
1) heimsend 2) mjöl - kostar núna
í aprfl sem hér segir:
Fóðurblandan Rvk. 42.257
Jötunn Rvk. 42.268
Mjólkurfélag Rvk. 42.330
Dalakjör, Búðardal 47.250
Kf. Borgnesinga 44.521
Kf. Saurbæinga, Skriðul. 47.000 1)
Kf. ísfirðinga 48.800
Kf. Húnvetninga, Bl. 43.400
Kf. Skagfirðinga, Skr. 40.180 2)
Kf. Eyfirðinga, Ak. 39.790
Kf. Þingeyinga, Hús. 42.820
Kf. Héraðsb., Reyðarf. 41.384 2)
Kf. Héraðsb., Egilsst. 49.980
Kf. A-Skaftf., Höfn 46.440
Kf. Árnesinga, Self. 46.400
Kf. Höfn, Selfossi 46.200
Kf. Rangæinga, Hvolsv. 46.100 1)
Norðlendingar virðast samkvæmt
þessu almennt njóta mun hagstæð-
ari kjara við fóðurblöndukaupin
heldur en kúabændur á Suðurlandi
og í Dölum. Verð á fiskimjöli er
einnig mjög í hærri kantinum á
Suðurlandi, en hins vegar í lægri
kantinum í Borgarnesi, Búðardal, á
Skagaströnd, Höfn og hjá Mjólkur-
félagi Reykavíkur, þótt það sé svo
langódýrast í Súðavík.
Á engu fannst meiri verðmunur
en hreinsuðu fóðurlýsi, eða 65%.
Fimm lítra brúsi kostar 535 kr. hjá
M.R. og Lýsisfélagi VE. En hins
vegar allt upp í 813-848 kr. hjá
Höfn á Selfossi, Kf. á Blönduósi og
hjá Kf. Saurbæinga.
Á kálfafóðri var aftur á móti mjög
lítill verðmunur, eða mest 4%,
milli sölustaða.
- HEI
HafharQörður:
Blfhjól og bifreið Ientu í árekstri
á gatnamótum Hjallabrautar og
Rcykjavflcurvegar f Hafnarfirði
síðdegis í gær. Ungur piltur, sem
ók bifhjólinu, var fluttur talsvert
slasaður á slysadefld Borgarspít-
alans. Að sögn lögreglunnar í
Hafnarfirðl eru þessl gatnamót
býsna hættuleg og mörg umferð-
arslys sem þar hafa orðið.
—SE