Tíminn - 19.04.1991, Page 10
fíminn
Föstudagur 19. apríl 1991
Stefnt að því að bjóða út byggingu tengibyggingar á Landspítalanum á morgun:
Hefur mikla þýðingu fyrir
áframhald framkvæmda
Á morgun er stefnt að því að bjóða út næsta hluta K-byggingar
Landspítalans, sem er tengigangur og skiptir hann miklu máli
fyrir samgöngumál innan spítalans. Að sögn Árna Björnssonar,
fyrrverandi formanns Læknaráðs Landspítalans, er bygging þess-
arar tengibyggingar grundvallarframkvæmd fyrir áframhald
byggingaframkvæmda á Landspítalalóðinni.
Að sögn Bjarna Frímannssonar
verkfræðings er stefnt að því að
auglýsa eftir tilboðum í verkið á
morgun. Kostnaðurinn við allt
verkið er áætlaður 276 milljónir
króna, miðað við byggingarvísi-
tölu 176,5 stig. Tengibygging
þessi er nauðsynleg til þéss að
unnt sé að ráðast í framkvæmdir
við að reisa síðari áfanga K-
byggingarinnar. Þetta tengi-
mannvirki mun koma í stað þess
tengimannvirkis sem nú er á
milli eldhúss og aðalbyggingar
við norðurhlið hennar, þar sem
síðari áfangi K-byggingar mun
rísa. Auk þess að vera nauðsyn-
legur hluti af samgöngukerfi
spítalans er byggingunni ætlað
að leysa ýmsar brýnar þarfir í
húsnæðismálum spítalans. Fyr-
irhugað er að í byggingunni
verði sérstakt rými fyrir rúm-
þvottastöð og geymslur og þvott
matarvagna. Einnig verður rými
fyrir líndreifistöð, en núverandi
húsnæði hennar er allt of lítið.
Að sögn Bjarna Frímanssonar
munu framkvæmdir hefjast um
mitt næsta sumar og stefnt er að
því að þeim verði lokið á seinni
hluta næsta árs.
Árni Björnsson, fyrrum formað-
ur Læknaráðs Landspítalans,
sagði að bygging þessarar tengi-
byggingar hefði mjög mikla þýð-
ingu, vegna þess að það sé stað-
festing á því að byggingu K-
byggingar verður haldið áfram.
„Þegar það var ákveðið á sínum
tíma að byggja K-bygginguna
upp í áföngum, þá seinkaði það
heildarlokum byggingarinnár.
Fram til þessa hefur fengist
fremur lítið fé til framkvæmda
en á síðustu tveimur árum hefur
orðið bragarbót þar á. Þessi
tengigangur sem nú hefur verið
ákveðið að reisa er grundvallar-
framkvæmd fyrir áframhald
byggingarinnar," sagði Árni.
Hann sagði að einnig væri þetta
mikli samgöngubót fyrir sam-
göngur innan spítalans.
í K-byggingunni er fyrirhugað
að skurðstofur spítalans verði
staðsettar í framtíðinni, ásamt
röntgendeild, gjörgæsludeild og
krabbameinsdeild. Þegar er búið
að taka hluta af byggingunni í
notkun fyrir krabbameinsdeild-
ina. Hluti af þeim hluta verður
notaður sem bráðabirgðahús-
næði fyrir rannsóknarstofur
spítalans þangað til að næsti
áfangi í byggingu Landspítala-
lóðarinnar hefur verið ákveðinn,
sem væntanlega verður rann-
sóknastofubygging. Aðspurður
sagði Árni Björnsson að búast
mætti við að það tæki 5-6 ár að
byggja þessar byggingar og
koma þeim í gagnið, en auðvitað
færi það eftir hversu miklu fé
yrði í það varið. Bygging tengi-
gangsins sé mikilvægur áfangi
og hafi mikla þýðingu í sam-
bandi við áframhald fram-
kvæmda.
—SE
Akureyri:
Náttúrufræöi
i fjorutiu ar
Við grasafræðideild Náttúrufræði-
stofnunar Norðurlands er nýlega
Iokið að prenta útbreiðslukort fyrir
allar villtar blómplötur og byrkninga
á íslandi, alls um 450 tegundir.
Nærri 300 manns hafa unnið að
gerð þessara korta en byijað var á
veridnu árið 1973. Nú þessa dagana
heldur stofnunin upp á 40 ára af-
mæli sitt.
Náttúrugripasafnið á Akureyri var
sett á fót árið 1951, í kjölfar fjölsóttar
dýrasýningar. Náttúrugripasafnið og
Lystigarðurinn á Akureyri samein-
uðu starfsemi sína árið 1987 og úr
varð Náttúrufræðistofnun Norður-
lands. Stofnunin er til húsa að Hafn-
arstræti 81 og vinna þar fjórir fast-
ráðnir starfsmenn. Starfsemin skipt-
ist í þrjár megindeildir: grasafræði-
deild, jarðfræðideild og lystigarð.
Að undanförnu hefur meginstarf
grasafræðideildarinnar verið gerð
fyrmefndra útbreiðslukorta um villt-
ar blómplöntur. f jarðfræðideildinni
er unnið, í samvinnu við ýmsa aðila,
að rannsóknum á hopunarsögu
norðlenska jökla og eins að skrán-
ingu skriðufalla á íslandi. í lystigarð-
inum er sífellt unnið að endurbót-
um. Verið er að endurskipuleggja og
tölvuvæða skráningu á plöntusafni
garðsins. Nærri lætur að rúmlega
400 tegundir og afbrigði erlendra og
innlendra plantna séu í honum. -sbs.
Leikföng sýnd
í Árbæjarsafni
Á kjördag, laugardaginn 20.
príl, verða opnaðar tvær nýjar
ýningar í Árbæjarsafni. Annars
egar er um að ræða sýningu á
ömlum Ieikföngum barna, en
essi sýning er í tengslum við
Jstahátíð barna. Hins vegar
erður opnuð sýning á Reykjavík-
irmyndum Jóns Helgasonar
dskups, en nýverið kom út bók á
’egum safnsins og íslandsmynda
;f. með myndum Jóns af gamla
niðbænum í Reykjavfk.
Að sögn Unnar Bjarkar Lárus-
dóttur, safnvarðar á Árbæjarsafni,
sem hefur haft veg og vanda af
leikfangasýningunni, á safnið orð-
ið talsvert af leikföngum sem eru
frá árunum fyrir og eftir seinna
stríð. Hún sagði þessi leikföng
gefa ágæta innsýn inn í líf og leiki
barna fyrr á árum. Hún sagðist
vona að þessi litla sýning í Árbæj-
arsafni gæti kallað fram Ijúfar
minningar hjá fullorðnu fólki og
fólki á miðjum aldri sem á sínum
tíma lék sér með svipuð leikföng
og sjá má á sýningunni.
Reykjavíkurmyndir Jóns Helga-
sonar biskups eru meðal mestu
dýrgripa safnsins. Þær geyma
ómetanlegar upplýsingar um
húsaskipan í miðbæ Reykjavíkur á
síðustu öld. Sigfús Halldórsson
tónskáld mun kynna myndirnar.
Safnið verður opið milli kl. 13 og
17 á laugardaginn. Veitingar verða
seldar í Dillonshúsi. Aðgangur að
safninu er ókeypis.
-EÓ
Kosningamiðstöðin
okkar er að Borgartúni 22
símar 620358 -620360 -620361
Akstur á kjördag: Símar 620356 -620357
Komið í kosningakaffi og takið þátt í lokasókninni
Framsóknarflokkurinn
.. ..............
Lið SPRON, sem varð í öðru sæti íslandskeppninnnar, náði mestum
hagnaði yfir árið 1994, en klaufavilia í upphafi sló þá út af laginu.
Úrslit Samnorrænu stjórnunarkeppninnar:
Heilbrigðlslöggjöf
kom mörgum í bobba
Norðurlandaúrslit í Satnnorrænu
stjómunarkeppninni, sem haldin er
á vegum Alþjóðasamtaka viðskipta-
og hagfræðinema, AIESEC, vom
haldin í Helsinki 13. apríl sl. og
kepptu þar tvö lið frá íslandi, lið Út-
flutningsráðs og SPRON. Liðin
stóðu sig ágætlega og lentu í sjötta
og sjöunda sæti. Lið sem kom frá
finnska fyrirtækin Regulus, sem
sérhæfír sig í framleiðslu á vömm
fyrir sjúkrahús, sigraði í keppninni
en það lið sigraði líka í úrslitum í
fyrra.
Verkefni liðanna í þessari úrslita-
keppni var að framleiða tvær gerðir
af saunaofnum, litla stærð fyrir
heimili og svo aðra stærri sem ætl-
uð er til nota í klúbbhúsum og fyrir-
tækjum. Þessar vörur áttu liðin að
framleiða og selja annars vegar á
heimamarkaði í Finnlandi og hins
vegar á útflutningsmörkuðunum í
Bandaríkjunum og Þýskalandi. Eins
og venja er þá voru ýmis ljón í veg-
inum og má sem dæmi nefna að í
Bandaríkjunum var á miðju ári 1995
tekin upp ný heilbrigðislöggjöf sem
setti liðin í erfiða aðstöðu varðandi
sölumál enda þurftu þau þá að fram-
leiða úr nýju og mun dýrara hráefni
en áður.
Lið Útflutningsráðs hafnaði í sjötta
sæti og náði það mestum hagnaði
yfir árið 1995, þó svo að áðurnefnd
reglugerð hafi gert mörgum lífið
leitt. SPRON náði mestum hagnaði
fyrir árið 1994 en það háði þeim
mikið að þeir gerðu klaufavillu í
birgðaútreikningi fyrsta tímabilið
sem sló þá illilega út af laginu.
Mikil og almenn ánægja var með
keppnina í ár og þótti saunalíkanið
vera sérlega vel heppnað enda hann-
að af Finnum, en keppnin fór fram í
Helsinki, eins og áður sagði. —SE